Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2001, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 I>V Fréttir íslenska útvarpsfélagið bregst við rekstrarvanda: Slátrar útvarpsstöðvum - fjórar farnar - sex eftir „Við erum í endurskipulagningu sem miðar að því að þjóna hlustend- um okkar og viðskiptavinum bet- ur,“ segir Jón Axel Ólafsson, yfir- maður útvarpssviðs íslenska út- varpsfélagsins, sem fyrir skemmstu rak tíu útvarpsstöðvar á höfuðborg- arsvæðinu. Fjórum þeirra hefur nú verið lokað og þá eru sex eftir. Er talið næsta vist að útvarpsstöðvum fyrirtækisins eigi eftir að fækka enn frekar á næstunni. Náöu táningunum Stöðvarnar, sem slökkt hefur ver- ið á, sérhæfðu sig hver á sínu sviði og sköruðust nokkuð eftir að ís- lenska útvarpsfélagið festi kaup á meirihluta í Fínum miðli síðastliðið haust en Fínn miðill var helsti keppinautur útvarpsstöðva íslenska útvarpsfélagsins. Við kaupin eign- aðist Islenska útvarpsfélagið FM 95,7 sem verið hefur vinsælasta tán- ingastöðin á landinu og gat félagið því lokað eigin táningastöð sem hafði verið í loftinu um skeið undir nafninu Mono 87,7. Bara fyrir leigubílstjóra Stjarnan 102,2 hafði verið sett á laggimar af íslenska útvarpsfélag- inu til höfuðs Gulli 90,9 sem var í eigu Fíns miðils og lék gömul dæg- urlög af miklum móð. Við samein- inguna var tækifærið notað og báð- ar stöðvamar slegnar af: „Við höfum ekki efni á að halda úti útvarpsstöðvum eingöngu fyrir leigubílstjóra,“ segir einn af ráöa- mönnum íslenska útvarpsfélagsins en Gullið og Stjarnan skiluðu aldrei þeim tekjum sem vonast var eftir þrátt fyrir töluverða hlustun sem náði langt út fyrir raðir leigubU- stjóra þrátt fyrir staðhæfingar um annað. Bylgjan blífur - Klassík fer X-ið 97,7 (Fínn miðill), sem var framsækin rokkstöð, rann saman við Radió 103,7 (ÍÚ) og var þar með úr sögunni en íslenska útvarpsfé- lagið hefur enn sem komið er hlíft Létt 96,7, Sögu 94,3 og svo að sjálf- sögðu Bylgjunni sem enn er flaggskip íslenska útvarps- félagsins í þessum efn- um: „Bylgjan hefur mikla hlustun og nýj- ar kannanir sýna okk- ur að samanlögð hlustun á Bylguna hefur aldrei verið meiri en einmitt nú,“ segir Jón Axel Ólafs- son sem staðhæfir að án þeirrar endurskipu- lagningar, sem verið hefur í gangi og kristall- ast i lokun útvaps- stöðva fyrirtækisins, hefði reksturinn í heild sinni ein- faldlega ekki gengið upp. Óvíst er hvað i Stöðvar íslenska ■f útvarpsfélagsins sem lagðar hafa verið niður og hinar sem lifa enn Ummæli sem féllu á stórfundi um Reykjanesbraut: Menn leggjast lágt meö slíkum málflutningi - segir bæjarstjórinn á Ólafsfiröi „Manni stendur hreinlega ekki á sama þegar maður heyrir raddir eins og þær sem heyrðust frá borg- arafundi í Stapa í Reykjanesbæ þar sem menn spurðu samgönguráðherra hvort honum þætti réttlætanlegt að verja fé til fram- kvæmda norður í landi og á Austur- landi þegar „hægt væri að nota þetta fé fyrir sunnan," segir Ásgeir Logi Ásgeirsson, bæjarstjóri á Ólafsfirði. Borgarafundurinn í Stapa sem hann vitnar í var um hröðun þess að ráðast í tvöfóldun Reykjanes- brautarinnar, og Ásgeir Logi er ekki sáttur við að mál séu lögð upp með þessum hætti. „Okkur finnst að menn leggist ansi lágt með slík- um málflutningi, að stilla málum upp með þessum hætti. Ég get vel skilið þörf þeirra og vilja á breikk- un Reykjanesbrautarinnar. Það má hins vegar ekki gleyma því að þeir hafa brautina, en við höfum ekki jarðgöngin sem á að ráðast í hér milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Maður verður hálfsár þegar mál- um er stillt þannig upp að það megi ekkert gera hér fyrir norðan af því að hér búi svo fáir, þá þurfl bara ekkert að gera sem kostar peninga, en þannig hljómar þetta i mín eyru. Ég held hins vegar að við Ólafsflrð- ingar leggjum fyllilega okkar hlut til þjóðarbúsins og eigum að fá út á Fundaö um Reykjanesbraut Húsfyjlir var í Stapa þar sem rætt var um nauösyn þess að tvöfalda þrautina. það líka, það er engin ölmusa. Ann- ars nenni ég ekki að standa í nein- um illdeilum við þessa aðila fyrir sunnan. Þegar er búið að sam- þykkja vegaáætlun og ég vona að við hana verði staðið". -gk Ásgeir Logi Ásgeirsson. verður um Klassík 100,7 en hún kemur úr herbúðum Fíns miðils og samkvæmt heimildum DV verð- ur henni einnig lokað innan skamms:....enda hefur hún aldrei skilað neinum tekjum," eins og menn orða það þar á bæ. Eins og meö Stöö 3 Ljóst er að með kaupum ís- lenska útvarpsfélgsins á Fínum miðli var einfaldlega verið að kaupa upp samkeppni og leggja niður útvarpsstöðvar sem hver fyrir sig tók ákveðinn hluta af því auglýsingafé sem í gangi er í út- varpi: „Þetta eru sömu aðferðirnar og notaðar voru þegar Stöð 2 keypti Stöð 3 til þess eins að leggja hana niður. Islenska útvarpsfélag- ið virðist eiga nóg af peningum til að kaupa fyrirtæki og leggja þau niður,“ segir einn af fyrrverandi stjómendum Fins miðils en búast má við málarekstri vegna kaupa Islenska útvarpsfélagsins á fyrir- tækinu eftir að lögfræðingar hafa kannað tilurð þeirra og fram- kvæmd en sú vinna lögfræðing- anna er nú í gangi. -EIR Reykjavík: Vopnaö rán og líkamsárás Talsvert var um innbrot og of- beldisverk í höfuðborginni um helgina. Tveir menn, vopnaðir hníf og barefli, rændu söluturn í Iðufelli í Breiðholti skömmu fyrir miðnætti á sunnudagskvöldið. Mennirnir komust undan með nokkra fjármuni. Skartgripum var stolið úr geymslu í Æsufelli og verkfærum og bíl stolið úr fyrirtæki á Vagn- höfða. Bifreiðin fannst aftur og hefur karlmaður verið handtek- inn, grunaður um aðild að málinu. Einnig var lögregla kölluð að skemmtistað í miðborginni skömmu eftir miðnætti á laugar- dag þar sem einum gesti staðarins varð uppsigað við dyraverði. Mað- urinn hafði bitið tvo þeirra og slegið tönn úr þeim þriðja er lög- regla kom á vettvang. -SMK Reykjavík: Listrænir þjófar á ferö Listelskir þjófar voru á ferð i Reykjavík um helgina. Veglegu Búddalíkneski var stolið úr af- greiðslu fyrirtækis í Kringlunni. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni í Reykjavík er líkneskið rúmlega hálfur metri á hæð og vegur um 30 kíló. Lögreglan biður þá sem gætu hafa orðið varir við afdrif Búddastyttunnar að hafa samband við sig. Einnig var lögreglu tilkynnt á sunnudag um þjófnað sex lista- verka úr sýningarsal við Tryggva- götu. Þá var einnig brotist inn í húð- flúrstofu um helgina. Þjófurinn eða þjófamir hurfu á brott með ýmsa hluti er tengjast rekstri stof- unnar, svo sem dauðhreinsivél, líkamsskart, hringi og pinna. Lögreglan er með öll málin í rannsókn. -SMK Hjálparbeiðni: Sat á steini Aðfaranótt sunnudagsins barst lögreglunni í Reykjavík tilkynning um mann sem sat á steini úti í Rauðavatni og hrópaði á hjálp. Lög- reglumenn mættu á staðinn og hjálpuðu manninum í land en hann var talsvert ölvaður. Maðurinn gat hvorki gert grein fyrir ferðum sín- um né hvernig hann komst út i vatnið. Samkvæmt dagbók lögregl- unnar færðu laganna verðir mann- inn í öruggara skjól. -SMK Rigning eöa slydda í kvöld er gert ráð fyrir sunnanátt, 8 til 13 m/s, og slydduéljum vestanlands. Vestanlands verður rigning eöa slydda undir kvöld en snýst í suðvestan, 8 til 13 m/s, með slydduéljum upp úr miðnætti. Suðaustanlands veröur rigning. Hiti verður á bilinu 1 til 6 stig. Sólargangur og sjáv arföll 1 Veðrið á morgun REYKJAVIK AKUREYRI Sólartag í kvöld 16.24 16.27 Sólarupprás á morgun 10.49 10.51 Síödegisflóð 24.16 16.11 Árdegisflóð á morgun 12.40 15.23 iltýringar á ysáyrtáMnuin ^*"-VINDÁTr 10°+—HITI -10° XVINDSTYRKUR í metrum á 5ekúndu xFR0ST HEIÐSKÍRT •&> o ŒTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ SKYJAO Ö RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA W ár ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR P0KA Greiöfært um allt land Allir helstu þjóðvegir landsiris eru færir. VTða er nokkur hálka, einkum um sunnan- og vestanvert landið. Slydduél sunnanlands Veöurstofan gerir ráð fyrir að á morgun verði sunnan- og suövestanátt um mestallt land. Sunnan- og vestanlands veröa slydduél en víðast úrkomulaust á Norður- og Austurlandi. m Vindur: ~x-n, 10-15 m/% > Fóstud Hiti 1“ til 5° Laugard Hiti 1° til 5° Suðvestanátt, 5 til 8 m/s. Dálitil él verða vestanlands en viðast úrkomulaust um landlð austanvert. Hiti nálægt frostmarkl. Á föstudag er gert ráð fyrir suðaustan, 10 tll 15 m/s, og slyddu eða rlgnlngu sunnanlands. Úrkomulitið norðanlands. Slydda eða rlgning um sunnanvert landlð en 5 tll 10 m/s norðanlands og úrkomul'itlð. 1 AKUREYRI skýjaö 3 BERGSSTAÐIR skýjað 3 B0LUNGARVÍK skúr 4 EGILSSTAÐIR -1 KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 0 KEFLAVÍK slydduél 3 RAUFARHÖFN alskýjaö 0 REYKJAVÍK úrkoma í grennd 3 STÓRHÖFÐI úrkoma í grennd 4 BERGEN skýjaö 0 HELSINKI alskýjað 0 KAUPMANNAHÖFN þokumóða 3 ÓSLÓ skýjaö -13 STOKKHÓLMUR -10 ÞÓRSHÖFN skýjaö 7 ÞRÁNDHEIMUR heiöskírt -8 ALGARVE skýjaö 10 AMSTERDAM heiðskírt -4 BARCELONA skýjaö 7 BERLÍN heiöskírt -4 CHICAGO alskýjaö -1 DUBLIN þokumóöa 0 HALIFAX snjókoma -1 FRANKFURT heiöskírt -6 HAMBORG þokumóöa -4 JAN MAYEN snjóél 0 LONDON mistur -1 LÚXEMBORG heiöskírt -6 MALLORCA þokumóöa 5 MONTREAL -7 NARSSARSSUAQ heiöskírt -21 NEW YORK þokumóöa 3 ORLANDO hálfskýjaö 14 PARÍS skýjaö 0 VÍN þokumóöa -7 WASHINGTON þokuruöningur 3 WINNIPEG þoka -15 I ! á \

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.