Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2001, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANUAR 2001
7
I>V
Fréttir
Seinni hluti stóra fíkinefnamálsins:
Vissi ekki að féð tengd-
ist fíkniefnamisferli
- flutti 120.000 gyllini í reiðufé til Hollands fyrir einn forsprakkann
Bitbeiniö Ægir
Sú ákvöröun meirihluta stjórnar Fiskifélags íslands aö seija hinn fornfræga
Ægi mæltist illa fyrir meöal útgerðarmanna.
Skiladagur vegna launamiða og launaframtala er
12. febrúar en ekki 22. janúar eins og áður hafði verið tilkynnt.
Aðalmeðferð seinni hluta stóra
fikniefnamálsins hófst í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Þrettán
manns eru ákærðir í fimm ákærum
en á síðasta ári voru 15 manns sak-
felldir í einu stærsta fikniefna-
smygli sem lögreglan hefur upplýst
á íslandi, þar sem gífurlegu magni
eiturlyíja var smyglað frá Evrópu
og Bandaríkjunum, falið í gámum
skipafélagsins Samskipa.
í fyrstu ákærunni, sem tekin var
fyrir í gærdag, er 29 ára gamall karl-
maður sakaöur um að hafa sumarið
1999 tekið við 120.000 hollenskum
gyllinum frá kunningja sinum, Rún-
ari Ben Maitsland, sem sakfelldur
var í fyrri hluta málsins, og flutt
með sér til Hollands á flutninga-
skipi sem maðurinn starfaði á. Mað-
urinn viðurkenndi að hafa flutt fé
til Hollands að beiðni Rúnars en
kvaðst hvorki hafa vitað hversu
miklir peningar voru í pokanum
sem hann tók við né til hvers pen-
ingarnir voru ætlaðir. Hann sagðist
hafa haldið að peningarnir tengdust
einhverju minni háttar gjaldeyris-
broti en Rúnar átti hollenska unn-
ustu á þessum tíma.
„Ég gerði ekki ráð fyrir því að
þetta væri ætlað til fikniefnakaupa,
því ef ég hefði gert það þá hefði ég
aldrei flutt þetta,“ sagði maðurinn.
Saksóknari Jón H. B. Snorrason
taldi ólíklegt að maðurinn hefði
ekki vitað að peningarnir tengdust
fikniefnamisferli þar sem honum
var kunnugt um afskipti Rúnars af
eiturlyfjum og hafði Rúnar oft beðið
manninn um að flytja fyrir sig eit-
urlyf. Maðurinn kvaðst aldrei hafa
neytt eiturlyfja sjálfur og sagðist
ekki hafa fengið neina þóknun fyrir
að flytja peningana.
Rúnar sjálfur sagðist ekkert
muna eftir þessum greiða mannsins
við sig og bar því við að hann hefði
veriö i mikilli neyslu á þessum
tima.
Síðar í þessari viku og í næstu
viku munu Hjördís Hákonardóttir
og tveir meðdómendur hennar
hlýða á vitnisburð annarra ákærðra
í þessu máli, þar með talið tann-
lækni sem ákærður er fyrir fikni-
efnakaup, -dreifingu og peninga-
þvætti, og lögmann sem ákærður er
fyrir peningaþvætti.
-SMK
Héraðsdómur Reykjavíkur
Aðalmeðferö seinni hluta stóra fikni-
efnamálsins hófst í Héraösdómi
Reykjavíkur í gærmorgun. Þrettán
manns eru ákæröir fyrir fíkniefna-
misferli og peningaþvætti en þegar
hafa 15 manns veriö sakfelldir í hér-
aösdómnum vegna málsins.
Fiskifélag íslands á öðrum endanum:
Stjórnin klofin
vegna tímarits
- LÍÚ vildi selja Fróða reksturinn
Stjórn Fiskifélags Islands klofn-
aði á átakafundi nýlega þar sem
deilt var um sölu tímaritsins
Ægis sem um áratugaskeið hefur
verið málgagn Fiskifélags Is-
lands. Þrír fulltrúar Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna
börðust hatrammlega gegn sölu
blaðins til fjölmiðlafyrirtækisins
Athygli en voru ofurliði bornir af
meirihluta stjórnar þar sem m.a.
sitja fulltrúar sjómanna. Á stjórn-
arfundinum var ákveðið að selja
reksturs blaðsins frá og með 1.
janúar 2001. Hugmyndin var sú
að létta útgáfunni af félaginu og
nýta starfsliðið til að sinna þeim
málaflokkum sem félagið hyggst
beita sér í, svo sem umhverfis-
málum. Rekstur Ægis hefur und-
anfarin ár verið réttum megin við
núllið en ekki skilað afgerandi
hagnaði.
Upphaf málsins var að stjórnin
samþykkti að selja blaðið og skip-
aði í því skyni þriggja manna
nefnd sem leita skyldi til ákveð-
inna aðila og ræða um mögulega
sölu blaðsins. Pétur Bjarnason
formaður, Helgi Laxdal og Örn
Pálsson voru valdir í nefndina.
Til að forðast háværa umræðu
um að Fiskifélagið væri þar með
að tapa síðustu skrautfjöðrinni
úr rekstrinum var ákveðið að
leita í kyrrþey til Athygli ehf. og
Talnakönnunar ehf. Þá var einnig
látið berast til fjölmiðlafyrirtæk-
isins KOM að blaðið væri falt. At-
hygli hefur um fjögurra ára skeið
annast útgáfuna fyrir Fiskifélag-
ið. Athygli og Talnakönnun gerðu
tilboö í reksturinn upp á 12,5
milljónir króna hvort. Nefndar-
menn mátu tilboö Athygli hag-
stæðara þar sem fyrirtækið bauð
greiðslur á skemmri tima og var
lagður grunnur að samningi við
það þar sem meðal annars var
ákveðið að formaður Fiskifélags-
ins ritaði leiðara i blaðið. Málið
var rætt á þremur stjórnarfund-
um en á tveimur fyrstu fundun-
um var enginn ágreiningur. Á
þriðja fundinum fór allt upp í loft
og LÍÚ menn vildu skyndilega
ræöa við Fróða hf.
„Allt í einu var eins og himinn
og jörð væru að farast. Þetta sner-
ist ekki um tölur heldur áhrif.
LÍÚ-menn töldu að Athygli hefði
ekki fjallað um mál eins og þeim
hugnaðist,“ sagði einn stjórnar-
manna Fiskifélagsins sem ekki
vildi láta nafns síns getið. Hann
segir að ekki hafi verið um annað
að ræöa en neyta aflsmunar og
knýja fram samþykkt þess að At-
hygli fengi blaðið þar sem samn-
ingur hefði verið á borðinu.
„Ég verð ekki var við annað en
menn séu sáttir við niðurstöð-
una. Ægir hefur vaxið og er orð-
inn nútímalegt blað,“ segir Pétur
Bjarnason, formaður og fram-
kvæmdastjóri Fiskifélagsins.
Friðrik J. Arngrimsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, vildi ekkert
um málið segja.
Gögn sem skila á í síðasta lagi 12. febrúar
• Launamiðar (RSK 2.01) ásamt almennu launaframtali (RSK 1.05).
Á launamiðum komið m.a. fram greiðslur til verktaka fyrir efni og vinnu, eftirlaun
og aðrar starfstengdar greiðslur.
• Greiðslumiðar vegna lífeyris, tryggingabóta og atvinnuleysisbóta.
• Hlutafjármiðar (RSK 2.045) ásamt samtalningsblaði (RSK 2.04).
• Stofnsjóðsmiðar (RSK 2.065) ásamt samtalningsblaði (RSK 2.06).
• Bifreiðahlunnindamiðar. (RSK 2.035)
• Gögn frá eignarleigufyrirtækjum, sbr. 9. gr. laga nr. 123/1993, um samninga
um rekstrarleigu eða fjármögnunarleigu á fólksbifreiðum fyrir færri en 9 manns.
M.a. skulu koma fram nöfn leigutaka og kennitala, skráningarnúmer bifreiðar,
leigutímabil ásamt því verði er eignarleigufyrirtæki greiddi fyrir bifreiðina.
• Afurða- og innstæðumiðar (RSK 2.075) ásamt samtalningsblaði
(RSK 2.07).
• Sjávarafurðamiðar (RSK 2.055) ásamt samtalningsblaði (RSK 2.05).
Gögn sem skila á 1 síðasta lagi 14. apríl 2001
• Gögn frá lífeyrissjóðum, líftryggingafélögum og fjármálastofnunum
um iðgjöld og framlög launagreiðanda til lífeyrissjóða og til viðbótarlífeyristryggingar.
• Upplýsingar fjármálastofnana um kaup, sölu og umboðsviðskipti
með hlutabréf (RSK 2.08).
Með skattframtali 2001, sbr. auglýsta framtalsfresti:
• Greiðslumiðar (RSK 2.02) yfir hvers konar greiðslur fyrir leigu
eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölulið C-liðar
7. gr. laga nr. 75/1981.
• Greiðslumiðar (RSK 2.025) yfir hvers konar greiðslur til aðila sem
bera takmarkaða skattskyldu hér á landi, og skattskyldar eru skv. 3. og 6. tölul. 3.
gr. laga nr. 75/1981 og ekki er gerð grein fyrir á skilagreinum RSK, sem taldar eru
upp hér að framan. Hér er m.a. átt við þóknanir fyrir þjónustu og greiðslur fyrir afnot
eða hagnýtingu einkaleyfa og hvers konar annarra leyfa, réttinda eða sérþekkingar.
■■■■■■
RÍKISSKATTSTJÓRI
-rt