Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2001, Page 10
10
Útlönd
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001
I>V
Hlynnt aö konu á Gaza
ísraelskur hermaöur gætir aö palest-
ínskri konu sem féll í yfirliö þegar
gyöingalandnemar gengu berserks-
gang á Gaza í gær.
ísraelar og Pal-
estínumenn taka
aftur upp þráðinn
ísraelar og Palestínumenn féllust
á það í gær að hefja að nýju viðræð-
ur um friðaráætlun Bills Clintons
Bandarikjaforseta í dag.
Einn helsti samningamaður
Palestínumanna sagði að þeir ættu
von á svörum frá ísraelum við ýms-
um spumingum og fyrirvörum um
friðartillögur Clintons sem rætt var
um á dögunum.
Átök héldu áfram á Gaza í gær
þar sem landnemar gyðinga kveiktu
í heimilum, ökrum og gróðurhúsum
Palestínumanna í hefndarskyni fyr-
ir morðið á 32 ára gömlum land-
nema sem hafði verið saknað frá
því á sunnudag. Tveir landnemar
voru handteknir vegna brunanna.
Júgóslavíuforseti
mun ekki hitta
Carla del Ponte
* Aðstoðarmaður Vojislavs Kostun-
ica, forseta Júgóslaviuforseta, segir
hann ekki munu hitta forseta al-
þjóðastríðsglæpadómstólsins í
Haag, Cörlu del Ponte, þegar hún
kemur til Belgrad 23. janúar næst-
komandi. Del Ponte segir yfirvöld í
Júgóslavíu skyldug til að framselja
Slobodan Milosevic til stríðsglæpa-
dómstólsins til að hægt verði að
rétta yfir honum vegna meints þjóð-
armorðs á Albönum. Del Ponte býst
við að ná fundi Kostunica en vara-
formaður ílokks forsetans sagði í
gær að saksóknarinn væri hvorki
forseti né forsætisráðherra og því
ekki nógu hátt settur til að fá
áheym hjá Júgóslavíuforseta.
Augusto Plnochet
Einræðisherrann fyrrverandi er meö
væg elliglöp.
Pinochet nógu
heilsuhraustur
fyrir réttarhöld
Útvarpsstöð í Chile greindi frá
því í gær að það væri mat saksókn-
ara að Augusto Pinochet, fyrrver-
andi einræðisherra, væri fær um aö
verða yflrheyrður af rannsóknar-
dómara. Útvarpsstöðin kvaðst hafa
aðgang að niðurstöðum læknarann-
sóknarinnar sem Pinochet gekkst
undir. íhenni segði að hann væri
með væg elliglöp. Minni hans væri
óbrigðult.
Læknir á vegum saksóknara
sagði í gær að Pinochet gæti skilið
hluti til hlítar en þjáðist af athyglis-
bresti. Hann væri auk þess upp-
stökkur.
Rúmlega sex hundruð nú látnir eftir skjálftann í E1 Salvador:
Vill lög gegn aðskilnaði
Bill Clinton
Bandaríkjaforseti
lagði í gær fram til-
lögur til að draga
úr kynþáttaaðskiln-
aði í Bandaríkjun-
um. Með tilliti til
kosningaöngþveit-
isins í Flórída legg-
ur forsetinn til að kjördagur verði
fridagur og að þeir sem hafi afplán-
að refsingu fyrir gróf brot fái kosn-
ingarétt.
Draga úr olíuframboði
Samtök olíuframleiðsluríkja,
OPEC, þrýsta á að dregið verði úr
framboði á olíu til að jafnvægi hald-
ist á markaðnum.
Óánægðir með samruna
Meirihluti aðspurðra í 8 af 15 að-
ildarríkjum ESB er óánægður meö
þá leið sem farin er til að koma á
nánari samvinnu. Ekki kemur fram
í könnunni, sem gerð var fyrir
franska blaðið Le Monde, hvað
veldur mestri óánægju.
Hetja Palestínumanna
Nú þegar 10 ár eru liðin frá upp-
hafi Persaflóastríðsins er Saddam
Hussein enn hetja i augum Palest-
ínumanna fyrir að hafa barist gegn
bandamönnum sem hröktu íraka
frá Kúveit.
Þriðjungur hlynntur ESB
Aðeins 33 prósent Norðmanna
eru fylgjandi aðild að ESB sam-
kvæmt könnun blaðsins Dagbladet.
45 prósent eru andvíg aðild en 22
prósent eru óákveðin.
Vísar gagnrýni á bug
Svíinn Carl Bildt
vísar á bug harðri
gagnrýni endur-
skoðenda ESB. End-
urskoðendurnir
segja stjóm hans
hafa einkennst af
öngþveiti er hann
var sérlegur sendi-
maður í Bosníu. „Við sátum ekki og
fylltum út eyðublöð þar sem við
höfðum engin eyðublöð," segir
Bildt.
Beöiö frétta af ástvinum
Tvær konur frá El Salvador veita hvor annarri huggun á meöan þær bíöa frétta af afdrifum ættingla sinna sem grófust
undir mikilli aurskriöu eftir jarðskjálftann mikla á laugardag. Rúmlega sex hundruö manns eru þegar látnir og um
fimm hundruö er enn saknaö. Litlar líkur eru taldar á aö þeir finnist á lífi.
Utanríkisráðherra Þýskalands í sviðsljósinu í dag:
Vitni í réttarhöldunum yfir
ákærðum hryðjuverkamanni
Joschka Fischer, utanríkisráð-
herra Þýskalands, þarf að horfast í
augu við fortið sína sem róttæklings
í dag þegar hann verður kallaöur
fyrir sem vitni í réttarhöldunum yf-
ir Hans-Joachim Klein, gömlum fé-
laga frá róttæklingsárunum á átt-
unda áratugnum.
Klein, sem fór huldu höfði í tvo
áratugi, á yfir höfði sér morðákæru
fyrir þátt sinn í árás á fund olíu-
málaráðherra OPEC, samtaka olíu-
framleiðsluríkja, í Vínarborg árið
1975. Alþjóölegi hryðjuverkamaður-
inn Carlos, sem gengur undir nafn-
inu Sjakalinn, skipulagði þá árás.
Hætt við að hinn 52 ára gamli
Fischer muni skyggja á réttarhöldin
í ljósi játninga hans fyrir stuttu um
að hann hefði lagt hendur á lög-
regluþjón í átökum mótmælenda og
Joschka Fischer
Þýski utanríkisráöherrann ber í dag
vitni í réttarhöldum yfir gömlum fé-
laga sínum frá róttæklingaárunum.
laganna varða í Frankfurt árið 1973.
Fischer, sem er vinsælasti stjórn-
málamaður Þýskalands, hefur ekki
farið leynt með það að hann hafi
verið róttækur vinstrimaður á ár-
um áður. Fréttir undanfarinna
vikna um fortíð Fiscchers hafa hins
vegar hrundið af stað umræðum um
þátt hans í mótmælahreyfingu
námsmanna á sjöunda og áttunda
áratugnum.
Þýskur almenningur gerir ekki
mikið veður út af þessari fortíð
Fischers og þeir örfáu stjórnarand-
stæðingar sem hafa hvatt til afsagn-
ar hans hafa ekki fengið mikinn
hljómgrunn.
Þýska blaðið Die Welt minnti les-
endur sína á það í morgun að
Joschka Fischer og fortíð hans
væru ekki fyrir rétti heldur Klein.
Fallið frá ákæru
Áfrýjunardómstóll úrskurðaði i
gær að fallið yrði frá ákæru á hend-
ur Xaviere Tiberi, eiginkonu borg-
arstjóra Parísar. Hún var sökuð um
að misnota almannafé með því að
þiggja greiðslu fyrir skýrslugerð.
Jaröskjálfti í Istanbul
Vægur jarðskjálfti, 4,2 á Richter,
skók í nótt Istanbul, stærstu borg
Tyrklands. Skelfingu lostnir íbúar
þustu út á götur. í morgun höfðu
ekki borist fréttir af meiðslum.
Hague kom Blair í klípu
William Hague,
leiðtogi íhalds-
flokksins í Bret-
landi, hefur komið
stjórn Tonys Blairs
forsætisráðherra í
klípu með því að
lýsa yflr stuðningi
við eldflaugavarna-
kerfið sem kallað er stjörnustríðið.
Verkamannaflokkurinn, sem ekki
vill komast upp á kant við stjórn
Bush í Bandaríkjunum, hefur ekki
lýst yflr afstöðu.
Tugir þúsunda
sváfu úti í nótt
Tugir þúsunda íbúa Mið-Amer-
íkuríkisins E1 Salvadors sváfu úti í
nótt, þremur dögum eftir að jarð-
skjálfti sem mældist 7,6 stig lagði
heimili þeirra i rúst og varð meira
en sex hundruð manns að bana. Um
það bil fimm hundruð til viðbótar
er saknað og er óttast að þeir séu
látnir.
Öflugir eftirskjálftar héldu áfram
að skekja byggingar og koma af stað
aurskriðum í gær. Skjálftinn á laug-
ardag var sá öflugasti sem hefur
komið í E1 Salvador frá árinu 1986
þegar flmmtán hundruð manns
týndu lífi.
Lögreglan tilkynnti í gær að vitað
væri um 609 látna eftir skjálftann. Á
þriðja þúsund manna hlutu sár og
um 38 þúsund heimili eru mikið
skemmd eða ónýt.
„Talan hækkar með hverri
klukkustundinni sem líður,“ sagði
Francisco Flores, forseti E1
Salvadors, á fundi með fréttamönn-
um í nótt.
„Núna snýst allt um að bjarga
mannslífum. Við verðum að aðstoða
þá sem eru í mestri hættu,“ sagði
forsetinn enn fremur. Hann fór um
öll svæði landsins sem urðu fyrir
búsifjum af völdum skjálftans.
Mörg fórnarlambanna grófust
undir gríðarlegum aurskriðum sem
skjálftinn kom af stað.
Þeir sem misstu heimili sín í
hamfórunum eyddu þriðju nótt
sinni á heimilum ættingja sinna eða
í bráðabirgðaskýlum. Rúmlega tíu
þúsund sváfu utan dyra á íþrótta-
leikvangi þar sem þeir fengu ávexti,
gosdrykki og ábreiður.
„Mig langar að fara heim,
mamma. Hvenær getum við farið
heim?“ spurði hinn níu ára gamli
Miguel Angel.
Móðir hans sagði honum ekki að
heimili þeirra í miðstéttarúthverf-
inu Santa Tecla í höfuðborginni San
Salvador hefði jafnast við jörðu,
ásamt um fimm hundruð öðrum
húsum í mannskæðustu aurskrið-
unni af völdum skjálftans.
Björgunarsveitarmenn í Santa
Tecla voru með grímur fyrir andlit-
inu til að vemda sig gegn sjúkdóm-
um sem berast í loftinu og gegn
stækum óþefnum af rotnandi líkum.
Flores forseti hefur pantað þrjú
þúsund líkkistur erlendis frá.
Jarðskjálftinn, sem átti upptök
sin undan Kyrrahafsströnd E1
Salvadors, um það bil 105 kílómetra
suðaustur af höfuðborginni, fannst
alla leið norður í Mexíkóborg. í
Gvatemala létust sex manns.