Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2001, Blaðsíða 24
36
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001
Tilvera I>V
Eggert sýnir í
Gerðbergi
Um þessar mundir stendur
yfir sýning á verkum Eggerts
Magnússonar næfista. Eggert
sem er fæddur árið 1915, er
sjálfmenntaður listamaður og
hefur stytt sér stundir við að
mála síðan hann hætti siglingum
um 1960 en hann hafði þá verið
sjómaður á ýmsum skipum frá
unglingsaldri og á langri
starfsævi siglt um öll heimsins
höf. Myndefni sitt sækir Eggert í
eigin upplifun, atburði er gerast
á líöandi stund og úr fortíðinni.
Þannig sækir hann myndefni sitt
til Afríku og atburða íslandssög-
unnar og dýraríkið virðist Egg-
ert sérstaklega hugstætt.
Krár
■ KALK A GAUKNUM Þaö þarf
enginn aö þjást af kalkskorti í dag
því gleðipinnarnir í Kalki verða meö
tónleika á Gauknum þegar kvölda
tekur og öryrkjarnir fara á stjá.
Leikhús
■ HAALOFT Geöveiki svarti gaman-
einleikurinn Háaloft heldur nú áfram
eftir áramótin. Sýning í kvöld kl. 21 i
Kaffileikhúsinu i Hlaövarpanum. Ein-
leikari og höfundur verksins er Vala
Þórsdóttir leikkona.
■ LANGAFI PRAKKARI Leikritiö
Langafi prakkari eftir Sigrúnu Eld-
járn veröur sýnt í grunnskólanum í
Þorlákshöfn kl. 17 í dag.
Myndlist _____________________
■ ANNA JOA Myndlistarmaöurinn
Anna Jóhannsdóttir - Anna Jóa,
sýnir málverk, auk vatnslitamynda,
teikninga og myndbandsverks, í
Ustasafni ASÍ við Freyjugötu.
■ MARTA VALGEIRSDÓTTIR Um
helgina opnaði Marta Valgeirsdóttir
sýningu á vegg í skrifstofurými gall-
erí@hlemmur.is, Þverholti 5.
■ SKÁL TIL SÝNIS Um helgina
opnaöi Kári Gunnarsson sýningu í
Gallerí Geysl, Hinu húslnu v/lng-
ólfstorg.
■ STAFNMYND Valgeröur Guö-
laugsdóttir heldur um þessar
mundir einkasýningu sína, Stafn-
mynd, í sal gallerí@hlemmur.is að
Þverholti.
■ GULLPENSILLINN Á KJARVALS-
STOÐUM Gullþensillinn er hópur
ungra listamanna sem sýnir í fyrsta
skipti saman á Kjarvalsstööum nú
um stundir. Hópinn skipa Blrgir
Snæbjörn Birgisson, Daöi Guö-
bjömsson, Eggert Pétursson, Ge-
org Guöni Hauksson, Hallgrímur
Helgason, Helgi Þorglls Friöjóns-
son, Inga Þórey Jóhannsdóttlr, Jó-
hann L. Torfason, Jón Bergmann
Kjartansson, Krlstín Gunnlaugsdótt-
ir, Sigríöur Ólafsdóttir, Siguröur Árni
Sigurösson, Sigtryggur Bjarni Bald-
vinsson og Þorri Hringsson.
Síðustu forvöð
■ TEXTILHÓNNUN OG COLLÁGÉ-
MYNPUM I dag lýkur Sigríöar Olafs-
dóttur sýningu sinni á textílhönnun
og collagemyndum í listhúsi Ófeigs,
Skólavöröustíg 5. Sigríöur nam viö
textíldeild MHI frá ‘90-’93. Frá '95-
'97 var hún viö nám í vöruhönnun T
Högskolan för Design och Kon-
sthantverk 1 Gautaborgarháskóla og
lauk prófi sem Master of Fine Artst
vorið 1997. Sigríður hefur tekið þátt
í nokkrum sýningum hér heima og
erlendis.
Sjá nánar: Lffiö eftir vlnnu á Vísi.is
Salóme Huld Garðarsdóttir er á förum á morgun í kristniboð til Keníu:
Fékk köllun Guðs
Salóme Huld Garðarsdóttir er 23
ára nýútskrifaður kennari frá Há-
skólanum á Akureyri. Hún er á fór-
um á morgun til Keníu þar sem hún
ætlar að stunda kristniboð á vegum
Kristniboðssambandsins. „Ég
kláraði kennaraprófið í vor og fór
svo til Noregs i haust og var þar á
kristniboðsskóla i hálft ár,“ segir
Salóme Huld.
Hlaut trúað uppeldi
Það vekur óneitanlega athygli
þegar ungt fólk heldur út i heim til
að boða trú og Salóme Huld var
spurð um aðdraganda þess að hún
tók þessa ákvörðun. „Mér hefur
alltaf þótt þetta ákaflega spennandi,
alveg frá því ég var pínulítil. Svo
fékk ég köllun Guðs þegar ég var
nítján ára og síðan þá hef ég stöðugt
orðið vissari um að þetta sé réttur
starfvettvangur fyrir mig.“
Salóme er ekki úr kristniboðsfjöl-
skyldu en segist eiga afar trúaða
foreldra. Ákvörðun hennar er því
eingöngu sprottin frá henni sjáifri.
Hún segist hafa verið búin að
ákveða að leggja fyrir sig kristniboð
þegar hún hóf nám í kennaradeild-
inni við Háskólann á Akuyreyri.
„Þetta er stutt nám og hagnýtt og
nýtist mér mjög vel.“ Hún segist
fyrst og fremst hafa tekið kennara-
námið fram yfir guðfræðinámið
vegna þess að það er styttra. „Mér
finnst líka mjög gaman að kenna.“
Starfið fólgið í að boða
trúna
Salóme mun hefja nám í ríkismál-
inu svahílí í Naíróbi og gerir ráð
fyrir að það nám muni taka um þaö
bil fjóra mánuði. „Þetta á að vera
mjög auðvelt tungumál," segir
Salóme en hún vonast til að ná
þokkalegum tökum á því á fjórum
mánuðum."
Salóme Huld heldur svo til Pókot-
héraðs en þar starfar fyrir einn ís-
lensku kristniboði en það er þar í
samstarfi við norska kristniboðið.
„Kristniboðsstarfið er fyrst og
fremst fólgið í því að boða trúna.
einnig er fólgið í starfinu ýmis þró-
unaraðstoð og hjálp en við byggjum
einnig upp skóla og heilsugæslu."
Salóme Huld var spurð hvort
kristniboð ætti erindi til fólks í Afr-
íku enn í dag. „Kristniboð hefur átt
sér stað frá því að Jesú dó á kross-
inum, í bráðum 2000 ár, og er tima-
laust. Megintilgangurinn með
kristniboðinu er að þeir sem ekki
hafa heyrt fagnaðarerindið fái að
heyra það þannig að þeir geti fengið
að velja hvort þeir vilja fylgja Guði
eða ekki.“
Engin blöndun trúarbragða
Salóme segir að innfæddir í
Pókothéraði séu heiðingjar. „Þeir
eru hræddir við illu andana sem
eru út um allt. Fyrst eftir að kristni-
boðið byrjaði á þessum stað var
erfitt fyrir fólkið að sjá muninn á
kristninni og sinni trú og það bland-
aði þessu saman en það hefur verið
leiðrétt þannig að fólk tekur ekki
bæði kristna trú og færir öndunum
fórnir."
Að sögn Salóme búa bæði hirð-
ingjar og bændur í Pókon þannig að
fólk lifir annars vegar eingöngu af
hjörð sinni og hins vegar af því að
rækta jörðina einnig. „Það hefur
ekki rignt nægilega þarna upp á
síðkastið þannig að fólk er að deyja
úr hungri á þessu svæði.“
Salóme ætlar að vera fjögur ár til
að byrja með í Pókon og telur alls
ekki ólíklega í að hún muni vera
þar lengur. „Ég var svo heppin að
koma til Pókon í þriggja vikna
heimsókn árið 1997. Ég var í hópi
ungs fólks sem kom til að kynna sér
kristniboðsstarfið." Hún segist þvi
hafa nokkuð góða tilfinningu fyrir
þvi hvað hún er að fara að takst á
við.
„Það er mikil gleði fram undan að
komast út og byrja að takast á við
kristniboðsstarfið," segir þessi
ákveðna stúlka að lokum. -ss
Mikil fátækt
Eyðnin er útbreidd í Kenía og hér má sjá móður með börn sín í skýti fyrir
eyðnismitaða.
Enn eitt fyrirmyndarhjónaband búið:
Basinger losar
sig við karlinn
Kim Basinger gerði sennilega
það eina rétta í stööunni. Hún
sótti um skilnað við karlinn sinn á
dögunum og bar við óásættanleg-
um ágreiningi, eða hvað sem hið
staðlaða orðalag er.
Þau Kim og Alec Baldwin, bæði
kvikmyndastjörnur á niðurleið í
Hollywood, höfðu verið gift í heil
sjö ár og þótti það miklum tiðind-
um sæta i glysborginni.
Skilnaður þeirra Kim og Alecs
ætti ekki að koma á óvart. Banda-
rísk slúðurblöð hafa um margra
mánaða skeið gefið í skyn að eitt-
hvað þvíumlíkt stæði tfi. Nýlega
birtust meira að segja myndir af
hjónunum þar sem Alec var aö
hundskamma Kim á almanna færi.
Hjónin hafa búið hvort í sínu
lagi frá því í desemberbyrjun, Kim
og fimm ára gömul dóttir þeirra,
Irene, í Los Angeles en Alec í hús-
eign þeirra í New York. Kim er 47
ára en Alec er ekki nema 42 ára.
Ekki lengur fyrirmyndarhjón
Kvikmyndaleikkonan Kim Basinger hefur sótt um skilnað frá eiginmanni sín-
um, kvikmyndaleikaranum Alec Baldwin. Þau hafa verið gift J sjö ár. Að sögn
talsmanns teikkonunnar áttu þau bara ekki lengur skap saman.