Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2001, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2001, Qupperneq 7
7 FIMMTUDAGUR 25. JANUAR 2001 DV Viðskipti Umsjón: Vi&skiptabladiö mTfST3rT3a HEILDARVIÐSKIPTI 1700 mkr. - Hlutabréf 236 mkr. | - Húsbréf 987 mkr. MEST VIÐSKIPTI Baugur 67 mkr. Islandsbanki-FBA 36 mkr. . Kaupþing 35 mkr. MESTA HÆKKUN O Sjóvá-Almennar 3,6% | O Opin kerfi 2,7% | © SH 1,3% MESTA LÆKKUN O MP-Bio 10,8% O Kögun 3,4% © Samherji 2,9% ÚRVALSVÍSITALAN 1224 stig - Breyting Q -1,12% T-Online með minna tap en búist var við T-Online, stærsti þjón- ustuaðilinn að Netinu í Evrópu, hefur tilkynnt um tap upp á 125 milljónir evra fyrir árið 2000, sem er aðeins minna en búist hafði ver- ið við. Hagnaðurinn fyrir árið 1999 var 18 milljónir evra. Tap varð á starf- seminni núna þrátt fyrir meiri tekj- ur sem jukust um 86% og voru tæp- ar 800 milljónir evra. Mikill vöxtur varð í sölu auglýsinga og smásölu á Netinu. T-Online er að miklum meiri- hluta í eigu Deutsche Telekom en Deutsche Telekom krefur T-Online og önnur fyrirtæki sem nota ISPs fasta greiðslu fyrir hverja minútu sem T-Online notar. Það þýðir að T- Online tapar peningum á viðskipta- vinum sem eru of mikið á Netinu. Máli Sun gegn Microsoft lokið Hugbúnað- arframleið- endumir Microsoft og Sun Microsy- stems hafa komist að samkomulagi sem binda mun enda á þriggja ára deilur félaganna fyrir dómstólum. í samkomulaginu felst að Microsoft mun greiða 20 milljón- ir dollara fyrir takmörkuð not sín af Java forritunartækninni. Málshöfðun Sun gegn Microsoft byggðist á því að Microsoft hefði misnotað notkunarsamning á Java og breytt því þannig að það gat að- eins unnið innan Windows stýri- kerfisins. m 25.01.2001 kl. 9.15 KAUP SALA BS Dollar 86,350 86,790 ÖSPund 125,650 126,290 1*1 Kan. dollar 57,020 57,370 SaSlPönsk kr. 10,6400 10,6990 ! 'rf5- Norsk kr 9,6590 9,7130 £5 Sænsk kr. 8,9070 8,9560 HWn. mark 13,3571 13,4374 | I| Fra. frankl 12,1072 12,1799 tÍBolg. franki 1,9687 1,9805 | 3 Sviss. franki 51,9800 52,2600 dHoll. gyllini 36,0382 36,2548 ™ Þýskt mark 40,6057 40,8497 l .HI ít. líra 0,04102 0,04126 ^EjAust. sch. 5,7715 5,8062 1 j Port. escudo 0,3961 0,3985 Á~Spá. peseti 0,4773 0,4802 r*lJan. yon 0,73280 0,73720 | : irskt pund 100,839 101,445 SDR 111,3100 111,9800 HECU 79,4178 79,8950 Mjuk lending efna- hagslífsins ólíkleg - að mati sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Sendinefnd Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins er ekki eins viss um mjúka lendingu efnahagslífsins og íslensk stjómvöld sem gera ráð fyrir að landsframleiðsla muni verða 1,6% á þessu ári. Sendinefndin telur að svo muni vera vegna þess hve viðskipta- hallinn er mikill og þrálátur og vegna þeirra veikleika í fjármála- kerfinu sem birtast til dæmis i lækkun eiginfjárhlutfalla að undan- fornu. Sendinefndin telur aö aðhald í ríkisfjármálum hafi verið ónóg á síðustu þremur árum í ljósi þeirrar ofþenslu sem hlaust af mikilli aukn- ingu einkaneyslu. Meira aðhald hefði auðveldað peningastefnunni að halda aftur af innlendri ofþenslu og dregið úr viðskiptahalla. Ekki vaxtalækkun aö svo stöddu Áhætta fjármálakerfisins hefur auk- ist töluvert vegna mikillar aukning- ar erlendra lána íslensku bank- anna sem þeir hafa aftur endur- lánað hérna heima, sem hef- ur kynt undir vöxt útlána og eftirspurnar. Vísbendingar úr rekstri fjármála- fyrirtækjanna benda til þess að fjármálakerfið eigi erfiðara með að þola ytri áfóll. Enda þótt svo virðist sem tekið sé að draga úr vexti út- lána og peningamagns er hann enn meiri en svo að hann samrýmist lít- illi og stöðugri verðbólgu. Þess vegna telur sendinefndin að ekki séu forsendur til lækkunar vaxta að svo stöddu. Reyndar gæti Seðla- bankinn þurft að herða á peninga- stefnunni ef gengi krónunnar held- ur áfram að lækka og valda verð- bólguþrýstingi. Seölabankinn. Krónan styrkist lítið þrátt fyrir inngrip Seðlabankans Krónan styrktist lítið í gær þrátt fyrir að Seðlabankinn hefði keypt krónur fyrir 2 milljarða íslenskra króna í gær. Krónan styrktist um 0,2% miðað við daginn áður en þá veiktist um krónan 0,5% og endaði í lægsta gildi sem hún hefur verið, 122,37. í samtali við Halldór Hildimund- arsson sérfræðing hjá gjaldeyrisvið- skiptum Íslandsbanka-FBA telur hann að þessi inngrip hafi ekki breytt miklu á þeirri þróun sem verið hefur. Seðlabankinn greip einnig inni 11. desember síðastlið- inn og styrktist krónan nokkuð en veiktist síðan fljótlega aftur. En erfitt er að meta hvemig þróunin hefði verið hefði Seðlabankinn ekki gripið inní. Veikingin á þriðjudaginn síðast- liðinn þegar krónan fór í sitt lægsta gildi var eitthvað sem kom mark- aðsaðilum ekkert sérstaklega á óvart. „Þetta er einungis framhald af þeirri þróun sem verið hefur und- anfarið. Þrátt fyrir að Seðlabankinn hafi gripið inn í og keypt krónur 11. desember síðastliðinn, með tíma- bundinni styrkingu krónunnar í kjölfarið, var sú aðgerð ekki til að snúa þróuninni við,“ sagði Ingólfur Bender Hagfræðingur hjá FBA. Athygli vekur að verulega hefur dregið úr viðskiptum frá áramótum og meðalvelta á dag einungis þriðj- ungur af meðalveltu frá júníbyrjun árið 2000. „Upphafsgildi ársins var 121,49 og hefur því dregið úr þeirri veikingarhrinu sem einkenndi síð- ari hluta ársins 2000. Nokkurt við- nám var gegn frekari veikingu krónunnar í vísitölugildinu 121,5 en nú er það ekki lengur til staðar,“ sagði Halldór Hildimundarson. Sætanýting Flugleiða batnaði um 2,6 pró- sentustig milli ára Heildarfjöldi farþega í millilanda- flugi Flugleiða á árinu 2000 var 1.432.061, en var 1.327.519 á árinu 1999. Sætanýting Flugleiða var 72,4% á ár- inu 2000, var 2,6 prósentustigum betri en 1999 og fór batnandi þegar leið á árið - var á síðasta ársfjórðungi 2000 um 8,6 prósentustigum betri en á sama tíma 1999. Heildar sætaframboð, mælt í sæt- iskílómetrum var 6,2% meira en á ár- inu 1999 og hefúr aldrei verið meira. Seldir sætiskílómetrar voru hinsvegar 10,3% fleiri en árið á undan og því er sætanýtingin betri að þvf er fram kem- ur í frétt frá Flugleiðum. Á árinu 2000 fjölgaði farþegum til og frá íslandi um 13%, en farþegum yfir hafið fjölgaði um 9,6%. Það er í sam- ræmi við þá stefnu fyrirtækisins að leggja mesta áherslu á fjölgun farþega sem eiga leið til og frá íslandi. Farþegum á viðskiptafarrými fjölg- aði um 8,6% þegar tekið er tillit til þess að samstarfi við SAS um flug miili Kaupmannahafnar og Hamborgar lauk haustið 1999. Mildll bati í desember í desember fjölgaöi farþegum i milli- landaflugi Flugleiða um 7,6%, saman- borið við desember 1999 og voru far- þegar alls 86.986. Sætaframboð var hinsvegar nokkuð minna en árið á undan þannig að sætanýting í desem- ber var 9,8 prósentustigum betri en í desember fýrir ári, fór úr 53,6% í 63,1%. Þessi þróun er í samræmi við ákvarðanir félagsins um að freista þess að draga úr áætlunarflugi yfir vetrarmánuðina vegna mikilla kostn- aðarhækkana, en auka jafnframt sölu. Taka ætti upp fljótandi gengi Nauðsynlegt er að fylgja sveigj- anlegri gengis- stefnu en nú er gert, enda inn- byggð mótsögn í því að fylgja annars vegar mjúkri fast- gengisstefnu og hins vegar sjálfstæðri peninga- stefnu við skilyrði opins fjármagns- markaðar. Fljótandi gengi væri eðli- legt framhald af víkkun vikmarka gengisins á liðnum áratug og væri jafnframt heppilegra með tilliti til þess hve viðkvæmt hagkerfið er gagnvart ytri áfollum. Samfara þessu skyldi Seðlabankinn taka upp verðbólgumarkmið sem er heppileg- asti valkosturinn í stöðunni. Hinu nýja fyrirkomulagi mætti hleypa af stokkunum með sameiginlegri yfir- lýsingu stjórnvalda og Seðlabank- ans sem tryggði raunverulegt sjálf- stæði í framkvæmd peningamála- stefnu þar til formlegt sjálfstæði fengist með lagasetningu. Þrátt fyrir að kerfislæg afkoma rík- issjóðs hafi batnað undanfarin ár hafa útgjöld farið fram úr fjárlögum í öllum stærri málaflokkum. Sendi- nefndin hvetur stjórnvöld til að mæta þeim ófyrirséðu útgjöldum vegna afturvirkra greiðslna til ör- yrkja og launahækkana framhalds- skólakennara með niðurskurði á öðrum útgjöldum og að íhuga að fresta opinberum framkvæmdum en það myndi einnig draga úr þenslu í byggingariðnaði. deCODE er „fyrir- tæki mánaöarins“ Viðskiptastofa Sparisjóðs Hafnar- fjarðar hefur valið deCODE genetics sem „fyrirtæki mánaðarins". í grein- ingu SPH er þó lögð rík áhersla á að um áhættufjárfestingu sé að ræða. „Með fjárfestingu í hlutabréfum fyrirtækisins er tekin áhætta. í slíkum tilfellum er þolinmæði og trú á fyrirtæki til lengri tíma nauðsynleg," segir SPH. Fram kemur að deCODE sérhæfir sig í rannsóknum, þróunarvinnu og upplýs- ingaþjónustu á sviði erfðavisinda. í helstu niðurstöðum er bent á að fyrir- tækið fór í hlutaflárútboð á síðasta ári og aflaði 182 milljóna dollara sem tryggja ætti reksturinn til nokkurra ára, en hann er fjármagnsfrekur og því mega ekki líða of mörg ár þar til auknar tekj- ur skila sér, segir SPH. „Við teljum að aðgengi deCODE að ættfræði-gögnum, einsleitni þjóðarinn- ar, miðlægt heilbrigðiskerfi og væntan- legur gagnagrunnur gefa fyrirtækinu mikla möguleika ef vel tekst til. Nauð- synlegt er að deCODE geri fleiri sam- starfssamninga og fái jafnframt aukna hlutdeiid af væntanlegum tekjum af starfsemi sinni. Mikilvægt er að vel tak- ist til með uppbyggingu gagnagrunnsins í sátt við þjóðina," segir SPH sem ekki treystir sér þó til að leggja mat á vænt gengi félagsins eftir 12 mánuði. án viöhalds! Kjarnagluggar Dalvegur 28 • 200 Kópavogi • Sími 564 4714 • Fax 564 4713

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.