Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2001, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2001, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 9 Utlönd Stuttar fréttir Stoltenberg ver veiðarnar Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, lagði á það áherslu í heimsókn í Svíþjóð í gær að mótmæli Svía og annarra þjóða myndu ekki koma í veg fyrir áætlun Norðmanna um veiðar á hval, úif- um og selum. Danskir sjómenn æfir Danskir sjómenn eru æfir vegna bannsins við þorskveiðum í Norður- sjó sem Noregur og Evrópusam- bandið náðu samkomulagi um. Bjargaðist naumlega Spænskur liðsforingi slapp naum- lega í gær þegar sprengja undir bíl hans uppgötvaðist áður en hún sprakk. Vilja sjálfir dæma Goran Svilanovic, utanríkisráð- herra Júgóslavíu, ítrekaði í gær kröfu sína um að fá að draga Slobodan Milosevic, fyrrverandi Júgóslavíuforseta, fyrir rétt i Júgóslavíu. Yfirsaksóknari stríðs- glæpadómstólsins í Haag, Carla del Ponte, er nú í Belgrad til að fá nýja stjórn til að framselja Milosevic. Fleiri kúariðutilfelli Þrjú ný kúariðutiifelli voru stað- fest í Þýskalandi í gær. Alls hafa 19 tilfelli fundist frá því í nóvember síðastliðnum. Krefjast ákæru Hópur lögmanna í Chile lagði í gær fram formlega kröfu um að fyrr- verandi einræðis- herra landsins, Augusto Pinochet, yrði ákærður. Við yfirheyrslu hjá rannsóknardómara sagði Pinochet herforingja bera ábyrgð á mannrétt- indabrotum. Nasistamorö var slys Sex ára drengur í Sebnitz í aust- urhluta Þýskalands drukknaði í sundlaug af völdum hjartabilunar samkvæmt nýrri læknisrannsókn. Móðir drengsins sakaði hóp nýnas- ista um að hafa myrt drenginn 1997. Auglýsingaspjöld í ruslið Hfjölmiðla og innan raða flokksins sjálfs daginn eftir að þau voru kynnt. Á spjöldunum voru myndir af Gerhard Schröder kansl- ara eins og í sakaskrá lögreglunnar. Fyrirsögnin var: Stöðvið lífeyrissvindl stjórnarinnar. Sonur Kabila nýr forseti Þingið í Kongó samþykkti i gær Joseph Kabila, son Laurents Kabiia, sem var myrtur í síðustu viku, sem nýjan forseta landsins. Búist er við að hann sverji embættiseið í dag. Ráðgjafi nýja forsetans greindi í gær frá grun um að óvinir Kongó hefðu staðið á bak við morðið á Laurent Kabila. Breski Norður-írlandsmálaráðherrann sagði af sér í gær: Tony Blair missir náinn bandamann Peter Mandelson, ráðherra mál- efna Norður-írlands í bresku stjóm- inni og einn nánasti bandamaður Tonys Blairs forsætisráðherra, sagði af sér í gær vegna hneykslis- máls sem tengist vegabréfi til handa indverskum auðkýfingi. Mandelson mun hafa haft afskipti af umsókn Indverjans, Srichand Hinduja, um breskt vegabréf. Bresku blöðin réðust harkalega að Mandelson í morgun en ekki voru allir á einu máli um hvort skuggi mannsins, sem hefur verið uppnefndur Myrkrahöfðinginn, myndi hvíla þungt á Verkamanna- flokknum í næstu þingkosningum sem búist er við að verði jafnvel í maí í vor. „Ég hef tjáð forsætisráðherranum að ég vilji yfirgefa stjórnina og hann hefur fallist á það,“ sagði Mandelson við fréttamenn fyrir ut- an skrifstofur Blairs i Down- ingstræti í gær. Þetta er í annað skipti á tveimur ámm sem hinn 47 ára gamli Mand- elson hefur sagt af sér ráðherraemb- ætti. I fyrra skiptið var það vegna tugmilljóna króna láns sem hann Peter Mandelson Helsti bandamaður Tonys Blairs í Bretlandi hefur þurft að segja afsér ráðherraembætti vegna þess að hann sagði ekki satt um umsókn indversks auðkýfings um breskt ríkisfang. fékk frá samráðherra sínum en gaf það ekki upp. Mandelson neitaði því í gær að hann hefði afhafst nokkuð rangt í vegabréfsmálinu en sagði að hann hefði átt að viðurkenna afskipti sín af því fyrr. Mandelson gaf til kynna að feriil hans innan stjórnkerfisins væri á enda og að hann vildi lifa eðlilegra lífi. Mandelson sagði í fyrstu að emb- ættismenn sínir heföu fjallað um fyrirspum Hinduja. Það var ekki fyrr en á þriðjudag að Mandelson viðurkenndi að hafa sjálfur rætt við innanríkisráðherrann um málið. Vegna þessa var röngum upplýsing- um komið á framfæri bæði til fjöl- miðla og þingmanna. Þeir Mandelson og Hinduja hitt- ust í veislu árið 1998 þar sem Ind- verjinn spurðist fyrir um breskt rík- isfang. Hann gaf síðan eina milljón sterlingspunda í Þúsaldarhvelfing- una í London sem Mandelson hafði borið ábyrgð á. Tony Blair hefur skipað John Reid, sem fór áður með málefni Skotlands, í embætti írlandsmála- ráðherra í stað Mandelsons. Kalt í flóttamannabúöunum Adam Khamídov heitir hann þessi ungi tsjetsjenski drengur sem hefst við í tjaldi í fimbulkulda í Spútnik- flóttamannabúðunum í Ingúsjetíu. Rússlandsforseti sagði 1 gær aö hann ætlaði aö kalla heim rússneska hermenn. Ástkonan fékk fé úr sjéði góðgerðarsamtakanna Starfsmenn baráttu- og góðgerð- arsamtakanna Rainbow/Push Coa- lition hafa staðfest að Karin Stan- ford, fyrrverandi yfirmaður Was- hingtonskrifstofu samtakanna og ástkona blökkumannaleiðtogans Jesses Jacksons, hafi fengið 35 þús- und dollara greiðslu við starfsloka- samning þegar hún flutti til Los Angeles. Þangað flutti hún 1998 þeg- ar í ljós kom aö hún gekk með barn Jacksons. Vangaveltur hafa einnig verið um hver hafi greitt fyrir fimm svefn- herbergja hús í Los Angeles þar sem Karin Stanford býr nú með 20 mán- aða dóttur þeirra Jacksons. Húsið kostaði 360 þúsund dollara. Ritstjóri tímaritsins National Enquirer, sem fyrst greindi frá framhjáhaldi Jacksons, segist hafa fengið fréttina frá starfsmönnum Karin Stanford Barnsmóðir Jesse Jacksons fékk greiðslur úr baráttusjóöi hans. góðgerðarsamtakanna sem voru óá- nægðir með að ástkonunni hafði verið greitt úr sjóðnum. En þrátt fyrir fullyrðingu um að um starfslokasamningsgreiðslu hafi verið að ræða herma fréttir frá Kali- forníu aö Karin Stanford starfi enn fyrir samtökin í Los Angeles, að því er breska blaðið Sunday Times greindi frá. Stuðningsmenn Jacksons segja það enga tilviljun að greint hafi ver- ið frá framhjáhaldinu nú þegar hann hafði virkjað blökkumenn í andstöðu gegn George W. Bush sem nú er orðinn forseti. Stuðningsmennimir segja það augljóst að um samsæri hægri manna sé að ræða. Strax eftir að upp komst um málið hætti Jackson við að koma fram á mótmælafundi gegn Bush i Flórída. George W. Bush Bréfaskriftir nýs Bandaríkjaforseta eru þegar farnar að valda heiiabrot- um á Grænlandi og í Danmörku. Ekki á einu máli um þýðingu bréfs til Motzfeldts Sérfræðingar og stjórnmálamenn eru ekki á einu máli um þýðingu svarbréfs Georges W. Bush Banda- ríkjaforseta við heillaóskabréfi Jon- athans Motzfeldts, formanns græn- lensku heimastjórnarinnar. Sérfræðingar telja að bandarísk stjórnvöld séu með því að reyna að gera grænlensku heimastjórnina já- kvæðari í garð fyrirhugaðs eld- flaugavarnarkerfis. Danskir stjórn- málamenn telja aftur á móti að skrifelsið sé ekkert annað en kurt- eisishjal. Motzfeldt sjálfur lítur svo á að með bréfinu séu Bandaríkja- menn að bjóða til viðræðna um eld- flaugavarnarkerfið. Bandariska herstöðin í Thule á Grænlandi verður mikilvægur hlekkur í væntanlegu eldflauga- vamarkerfi, ef til þess kemur. Danska stjórnin hefur lengi þver- tekið fyrir að taka afstöðu til þessa en Motzfeldt hefur lýst sig andvígan áformunum. Þá hefur Motzfeldt ósk- að eftir því að fá að hafa áhrif á nið- urstöðuna. Banna innflutn- ing á svínakjöti frá Austurríki Yfirvöld í Sviss hafa bannað inn- flutning á svínakjöti frá Austurríki vegna frétta um að svínaræktendur þar og í Bæjaralandi í Þýskalandi hafi gefið svínum sýklalyf og vaxt- arhormóna. Svisslendingar hafa fengið mestallt svínakjöt sitt frá Austurríki. Lögregla í Austurríki og Bæjara- landi gerði um helgina húsleit hjá fjölda dýralækna og svínaræktenda. Við leitina fannst mikið magn lyfja sem notuð höfðu verið sem fóður- bætir. Evrópusambandið hefur bannað notkun vaxtarhormóna en þeir eru leyfðir í Bandaríkjunum. Strangar reglur gilda um notkun sýklalyfja. Óttast er að sé dýrum gefið of mikið magn sýklalyfja myndist lyfjaþolnar bakteríur sem geti borist í menn. Ármúla 36 • sími 588 1560 www.mitrB.com Jói útherji Knattspyrnuverslun Mitre Reflax-fótbolti fylgir öllum úlpum í janúar. Uvékrp&cJ’ ' úlpur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.