Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2001, Síða 20
24
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001
Tilvera
*
Crouching Tiger, Hidden Dragon
' Frábær kvikmynd. Það er
eins og listin hafi loksins ratað aftur
heim í fjölleikahúsið. Maður situr í
sætinu sínu og er borinn gegnum æv-
intýrið, undrandi og þakkiátur eins og
bam. En myndin er líka svolítið skrýt-
in. Leikaramir em allir með sama
íbyggna svipinn og bera fram textann
eins og þeir séu að lesa hann af blaði.
Og ömgglega á einhverri mállýsku sem
þeim er ekki eigirdeg. En við héma
uppi á íslandi segjum bravó og tökum
það sem hluta af ævintýrinu. -GSE
Saving Grace
AAA Saving Grace er fyndin og
skemmtileg mynd allt fram í lokin þeg-
ar endirinn verður að rútínu sem allt
of oft er notuð. Leikur er frábær.
Brenda Blethyn er slík yfirburðaleik-
kona að það þarf mikið til að skyggja á
hana en í heild er gott jafnvægi í leikn-
um og mesti hláturinn kemur frá
kostulegum persónum í litlum hlut-
verkum. -HK
Ikíngut ArAA
Góð kvikmynd sem byggist á þjóð-
sagna- og ævintýrahefð. Myndin fjailar
um grænlenskan dreng sem rekur á ís-
landsstrendur í vetrarhörkum. Aðall
myndarinnar er, líkt og í góðum ævin-
v týrum, bamsleg einlægni sem skilar
sér til áhorfenda. Mest áhersla er lögð
á samband Bóasar og Ikínguts og þar
mæðir mikið á hinum ungu leikurum,
Hjaita Rúnari Jónssyni og Hans Tittus
Nakinen. Drengimir ná upp sérlega
góðum og einlægum samleik. Góð fjöl-
skylduskemmtun. -HK
Snatch
Snatch hröð og góð skemmt-
un með sterkum höfundareinkenn-
um Guy Ritchie. Hún er samt þegar
að er gáð frekar innantóm. Stíll
Ritchies gerir út á hraða, stutt sam-
töl, ofbeldi og margar persónur sem
fá að mestu leyti jafn mikið pláss í
myndinni. Þetta tekst honum af
snilld og skipuleggur hann kaos sitt
af stakri snilld og má greinilega
ekki vera að því að kafa ofan i
þunnan söguþráðinn. -HK
Unbreakable
AA Unbreakable er næstum eins
og The Sixth Sense. Hún er myrk og
hæg en ekki eins ógnvekjandi og
fyrirrennarinn. Andblærinn gefur
til kynna hnignun fremur en ógn.
Henni tekst hins vegar að Qalla um
ævintýralegt efni á raunsæjan hátt;
áhorfandinn trúir henni. Stóri gall-
■ inn er hins vegar endirinn. Tilraun
sem er nánast móðgun við áhorfend-
ur. -GSE
The 6th Day
ArA Þegar Schwarzenegger á f hlut
er oftast mikill hasar og læti og það
vantar ekki hasarinn í The 6th Day.
Myndin hefur það samt framyfir
hefðbundinn hasar að vera með
áhugaverðan söguþráð og kemur á
óvart stefnubreyting sem verður
þegar líða fer að lokum. Því miður
hefur verið of mikið gert út á hæfi-
leika Schwarzeneggers sem ekki
liggja í töluðu máli á kostnað sög-
unnar svo myndin nær aldrei þeirri
, reisn sem hæfir sögunni.
-HK
Einn á
eyðieyju
Einangraður
á eyju
Tom Hanks í
hlutverki
Chuck Nol-
ans sem
veröur
stranda-
glópur á
eyöieyju.
Cast Away, sem frumsýnd verður í Háskóla-
bíói, Sambíóunum og Borgarbíói, Akureyri, hef-
ur verið vinsælasta kvikmyndin vestan hafs síð-
ustu vikurnar. í fljótu bragði má ætla að Cast
Away sé nokkurs konar nútímaútgáfa af Róbin-
son Krúsó. Myndin fjallar um mann sem verður
strandaglópur á eyðieyju. Leikstjórinn, Robert
Zemenicks (Forest Gump, What Lies Beneath), er
samt ekki alveg sammála þessari kenningu og
segir að hann sé meira að fjalla um andlegt heil-
brigði nákvæmnismanns sem þarf að lifa við
gjörbreyttar aðstæður.
í Cast Away leikur Tom Hanks Chuck Nolan,
mann sem vinnur hjá flutningafyrirtæki og er
mikill nákvæmnismaður. Má segja að líf hans
snúist um hvað klukkan sé, gera þetta og gera
hitt á þessum og þessum tíma. Nolan er metnað-
argjarn og á mikilli uppleið. Nolan ferðast mikið
og þarf því kærasta hans að venja sig við hraðan
V
að
lifsmáta. A einu ferðalag-
inu ferst flugvélin sem
hann er farþegi i. Nolan
kemst einn lífs af og
verður strandaglópur á
eyðieyju. Nú þarf hann
lifa við aðstæður sem honum
eru algjörlega ókunnugar og and-
stæða við líf hans hingað til þar
sem fyrsta hugsun hans daglega
verður að snúast um það hvernig
hann á að lifa af daginn. Nolan,
sem er mikill reikningshaus og
vanur að taka á vandamálum, þarf
að endurskipuleggja lífsklukku
sina og gerir það með sinni aðferð.
Tekst honum að koma sér í sálar-
legt jafnvægi og venja sig við lífið
á eyjunni en hann getur ekki
Leikstjórinn aö störfum
Robert Zemenicks viö tökur á eyjunni.
reiknað út eða skipulagt
hvernig hann á að láta
vita af sér eða koma sér
aftur i siðmenninguna.
Tom Hanks hefur feng-
ið mikið lof fyrir leik sinn i myndinni og er þess
skemmst að minnast að hann fékk Golden Globe-
verðlaunin um síðustu helgi og þykir einna heit-
astur af þeim sem koma til með að keppa um ósk-
arsverðlaunin. -HK
Blair-nornin snýr aftur
Einhver óvæntasti smellur síð-
ustu ára var án efa Blair Witch
Project, kvikmynd sem kostaði
nánast ekki krónu og var gerð eins
og tæknilega ófullkomin heimilda-
mynd. í myndinni sagði frá þrem-
ur nemum í kvikmyndagerð sem
fóru út i skóg nálægt Burkittsville
i Marylandríki í Bandaríkjunum.
Þeir ætluðu að gera heimHdar-
mynd um þjóðsöguna Blair Witch
en hurfu allir sporlaust. Ári síðar
finnst búnaður þeirra og þar á
meðal það sem kvikmyndað var
fram að þeim degi sem þau hurfu.
Þetta var efni myndarinnar sem
setti allt á annan endann. Lýðnum
var gert ljóst að framhald yrði gert
og tók það nokkuð langan tíma fyr-
ir aðstandendur myndarinnar að
koma sér niður á sögu sem gæti
veriö trúverðugt framhald. í haust
leit síðan framhaldsmyndin The
Book of Shadow: Blair Witch 2,
dagsins ljós og þá kom í ljós að
ekki voru þar á ferðinni sömu
sniHdartUþrif og i fyrri myndinni
og það af skUjanlegum ástæðum:
BORGARLEIKHUSIÐ
‘17TSHWF l»iUI ' .
Bjami Geir Guðjónsson Teigagerði 17 108 Reykjavík 6270
Ásgeir Tómas Guðmundsson Flókagötu 8 105 Reykjavík 6477
Þórunn Heimisdóttir Löngumýri 4 210 Garðabæ 12759
Lovisa S. Erlingsdóttir Stekkjarbergi 8 221 Hafnarfirði 12410
Anna S. Ámadóttir Túngötu 21 400 ísafirði 16476
Krakkaklúbbur PV oq BorgarleikHúsið
þakka frábasra þátttöku.
Leitaö aö nornmni
Fimmmenningarnir búa sig undir nótt í skóginum
Nornin lætur til skarar skríða.
Einn af leiöangursmönnunum getur
ekki gert sér grein fyrir því hvernig
hann fékk djúpar skrámur.
Það er erfitt að koma fólki á óvart
tvisvar með sama hlutnum.
í nýju myndinni eru leikaramir
óþekktir eins og I fyrri myndinni
og halda flestir eigin nöfnum.
Myndin hefst í bænum
BurkitsvUle þar sem goðsögnin um
Blair Witch varð tU og lifir þar enn
góöu lífi. Jeff var einn þeirra sem
sáu Blair Witch Project og ákveður
að græða dollara á því að opna
ferðaskrifstofu og fara með hóp-
ferðir í skóginn. Dag einn koma
flögur ungmenni og panta ferð. Jeff
fer með þau í einnar nætur ferð.
Morguninn eftir svaUsamt kvöld
gera þau sér grein fyrir þvi að þau
hafa vakað alla nóttina en muna
ekkert hvað þau gerðu. Þau fara til
BurkitsvUle með það á tilfinning-
unni að eitthvað fylgi þeim þang-
að.
Leikstjóri Book of Shadows: Blair
Witch 2 heitir Joe Berlinger og er
þetta fyrsta leikna kvikmyndin sem
hann leikstýrir. Hann er þekktur
leikstjóri heimildamynda og sjálf-
sagt hefur hann verið valinn tU að
stjórna framhaldinu þar sem mikU
áhersla er lögð á að myndin sé trú-
verðug heimildamynd. Frægasta
heimildamynd hans heitir Paradise
Lost: The ChUd Murders at Robin
Hood HiUs þar sem hann fer í
saumana á frægu sakamáli þar sem
þrjú böm voru myrt.
Book of Shadow: Blair Witch 2
verður sýnd í Saga bíói, Kringlu-
bíói, Nýja biói, Akureyri og Nýja
bíói, Keflavík. -HK