Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2001, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2001, Side 24
28 FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2001 Tilvera DV ILLiá Geir og furst- arnir á Kaffi Reykjavík í kvöld troða Geir og furstarn- ir upp á Kaffi Reykjavík. Þeir leika klassíska skemmtitónlist sem endranær og sérstakur gest- ur þeirra verður saxófónleikar- inn Sigurður Flosason' Krár ■ ALEXANDER ÞYSKI A KRINGLUKRANNI Þýski vonnabí-júróvisjón-snillingurinn Alexander Jonas syngur og leikur fyr- ir gesti Kringlukrárinnar í kvöld frá 19 til 23. Sveitin ■ CHICAGO BEAU A N1 BAR Gamall kunningi blúsáhugamanna heimsækir ísland um þessar mund- ir. Hér er á ferðinni Chicago Beau sem kom hér til lands í blúsbylgj- unni sem hófst með Vinum Dóra, KK og fleirum á níunda áratugnum. Kappinn kemur til með að spila á N1 bar í Keflavík í kvöld klukkan 23. Meö Chicago Beau leikur að þessu sinni hljómsveit Guðmundar Péturssonar gítarleikara sem er einn sá fremsti á þessu sviði hér á landi og þó víöa væri leitað. Hljóm- sveitina skipa auk Beau og Guð- mundar þeir Jón Ólafsson píanóleik- ari, útsetjari og stjórnandi, Haraldur Þorsteinsson bassaleikari, sem er ómissandi þegar blúsinn er annars vegar, og Jóhann Hjörleifsson trommuleikari. Leikhús ■ ANTIGONA i kvöld kl. 20 verður Antigóna eftir Sófókles sýnd á Stóra sviði Þjóð- leikhússins. Leikstjóri er Kjartan Ragnarsson en aðalhlutverk eru meðal annars í höndum Halldóru Björnsdóttur og Arnars Jónssonar. ■ LANGAFI PRAKKARI eftir Sig- rúnu Eldjárn verður sýnt í Grindavík kl. 17.15 í dag. ■ VINIR INDLANDS í kvöld verður skemmtidagskrá í Kaffileikhúsinu í Hlaövarpanum á vegum Vina Indlands. Fjölbreyttar uppákomur til styrktar menntunar- átaki fyrir börn og ungt fólk á Ind- landi. Myndlist I FJOLL RIMAR VK) TROLL I AS- MUNDARSAFNI Margt tröllslegt býr í þeim björgum sem Páll Guðmundsson frá Húsafelli hefur skapað.listaverk sín úr. Sýning hans stendur í Ásmundar- safni. Páll er ekki einn íslenskra lista- manna sm sækir hugmyndir sínar I hina hrikalegu og stórbrotnu fegurð sem fjöll- in ein búa yfir. Ásmundur Sveinsson nefndi oftar en einu sinni að tröllin hans ættu upphaf sitt aö rekja til íslensku fjallanna og er allmörg dæmi um þetta að finna í verkum hans. í sýningunni í Ásmundarsafni er þessum tyeimur lista- mönnum stillt upp saman. Útkoman er rammíslensk sýn tveggja ólíkra lista- manna sem sækja hugmyndir sínar í harðgeröa náttúruna og meitla hana af fingrum fram. Sýningunni lýkur 29. apríl. Sport I ISLANP - MAROKKO A SPORT- KAFFI Það verður klikkuö stemning klukk- an 17.30 á Sportkaffi í kvöld því EM-leikur íslands og Marokkós verð- ur í beinni. Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.ls DV, AKUREYRI:_______________________ „Það er mjög gaman fyrir okkur að fá tækifæri til að starfa hér við þessar mjög svo góðu aðstæður sem hér eru og við horfum mjög bjart- sýnir til framtíðarinnar," segja hestamennimir Björgvin Daði Sverrisson og Eyþór Jónasson sem reka hestamiðstöðina að Björgum í Hörgárdal í Eyjafirði. Það er eigin- lega hægt að tengja þá félaga við allt sem tengist hestamennsku því þeir bjóða „upp á allan pakkann" eins og Björgvin Daði orðaði það. Það eru tamningar, þjálfun kynbótahrossa og sala á hrossum. Þá standa fyrir dyrum reiðnámskeið en Eyþór er Bíógagnrýni sérstaklega lærður sem reiðkenn- ari. Ekki er hægt að segja annað en að aðstaðan að Björgum sé mjög góð, a.m.k. ef miðað er við það sem Norðlendingar hafa átt að venjast til þessa. Rúmt er þar um 30 hross sem þeir félagar eru með í húsi, þeir hafa um 300 fermetra reiðskemmu sem er mjög góð inniaðstaða og utan við dymar er hringgerði. Skammt frá húsunum er svo reið- völlur þar sem fyrirhugað er að halda keppni mánaðarlega og byrja strax í næsta mánuði. Þeir félagar segja það mjög skemmtilegt að fást við þessi störf og sérstaklega varð þeim tíðrætt um þjálfun kynbótahrossanna sem væri langtímaverkefni. „Ég neita því ekki að við erum farnir að horfa til landsmótsins sem verður á næsta ári, við erum hérna með hross sem væntanlega verður gaman og spenn- andi að sýna þar,“ segir Eyþór. Hestamenn við Eyjafjörö ættu að notfæra sér þjónustu þeirra félaga, þar eru greinilega á ferðinni menn sem leggja sig alla fram og hafa ánægju af því sem þeir eru að gera, um leið og þeir eru að veita þjón- ustu sem ekki hefur verið svo að- gengileg í Eyjafirði til þessa. -gk DV-MYND GK Björgvin Dabi og Eyþór Á milli þeirra er Kládíus, 4 vetra stóðhestur, sonur Galsa, sem er mikið efni og miklar vonir bundnar við. Robbie eignast Islandsvm- urinn Robbie Williams hef- ur eytt hátt í i % tvö hundruð ■ milljónum króna í eigin veitingastað og nætur- klúbb í London til þess að geta farið út á kvöldin og feng- ið að vera í friði fyrir ágengum aðdá- endum. „Robbie gerir sér vonir um að þetta geti verið eins konar annað heimili hans þar sem hann verður ekki fyrir ónæði,“ segir vinur söngv- arans í viðtali við blaðamann The Sun. „Hann þolir ekki pöbbana af því að alltaf er einhver að angra hann.“ Nýi staðurinn opnar í febrúar. Leikstjórn: Howard Deutch. Handrit: Vince McKewin. Tónlist: John Debney. Kvikmyndataka: Tak Fujimoto. Leikarar: Keanu Reeves, Gene Hackman, Brooke Langton o.fl. Hressir hestamenn í hestamiðstöðinni að Björgum í Hörgárdal: Farnir að horfa til landsmótsins Sambióin - The Replacements Óskadraumur meðal- skussanna Gunnar Smári Egilsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Um einhverja mynd var sagt að hún væri svo fyrirsjáanleg að áhorf- andanum þætti sem hann hefði skrifað handritið sjálfur. Þetta á við um Varaskeifurnar. Ruðningskapp- ar fara í verkfall og eigandi eins fé- lagsins kallar á ódælan þjálfara og felur honum að gera lið úr ósam- stæðum hópi leikmanna sem hafa af mismunandi ástæðum ekki fótað sig i atvinnumennskunni. Allir fá ann- an sjens og með samstöðunni vinna þeir allt og alla og fá prinsessuna að launum. Leikmannahópurinn er hefðbundinn samtíningur af klisju- kenndum karakterum. Það mætti skipta út ruðningsboltanum fyrir byssur, deildarleikjunum fyrir leið- angur inn á óvinasvæði, og þá vær- um við komin með hefðbundna stríðsmynd eða vestra. Undir sögunni liggur trúin á að allir geti blómstrað ef þeir fái sann- gjarna möguleika. Og það sem kem- ur i veg fyrir að þetta hendi alla er kerfið - ríkið, stórfyrirtækin, pen- ingamir og kapítalisminn. Þetta er bandarísk mynd. Þar í landi láta menn 98 prósent bíómynda fjalla um sterka einstaklinga sem sigra þrátt fyrir andstöðu þeirra sem si- fellt eru að ráðskast með líf okkar. Og langflestar skila þessu betur en Varaskeifurnar. Stundum gleymir maður þvi að Hollywood er bara smábær og lýtur sömu lögmálum og aðrir smábæir. Okkur héma á íslandi er innrætt minnimáttarkennd í frumbernsku og höldum oft að fólk af stórum þjóðum sé stærra en við. Og að í Hollywood búi úrvalsfólk; fólk sem hefur stækkað svo að það rúmast ekki lengur í sinni heimabyggð. En svo koma bíómyndir eins og The Replacements og sýna okkur að í Hollywood eiga menn í sömu vand- ræðum með úrvalið og við. Þar búa margir hæfileikamenn sem fá ekk- ert að gera en einhverjum meðal- skussum eru réttar milljónir til að búa til bíó. Sem kunnugt er er mun- urinn á meðalskussum og hæfi- leikamönnum sá að meðalskussinn vill búa til bíó eins og hinir en hæfi- leikamaðurinn vill gera sitt bíó. Howard Deutch leikstýrði Pretty in Pink fyrir 15 árum og hefur síð- an gert æ verri myndir. Pretty in Pink var ekkert meistaraverk; hún var hressileg fremur en góð. Deutch hefur því ekki úr háum söðli að detta en hann liggur eftir sem áður. Undanfarin ár hefur hann mest leik- stýrt sápum í sjónvarpi og fram- haldi af miðlungsmyndum fyrir bíó. Handritshöfundurinn Vince McKewin, sem hafði skrifað tvö handrit áður en hann kláraði The Replacements, hefur mest framfleytt Varamaðurinn og þjálfarinn Keanu Reeves og Gene Hackman í hlutverkum sínum. sér á aukahlutverkum i sjónvarps- sápum. Einhvern veginn tókst þess- um félögum aö fá nógu mikla pen- inga til að gera mynd eftir handrit- inu - svo mikla að þeir gátu borgað Keanu Reeves og Gene Hackman fyrir að leika í henni. Keanu Reeves og Gene Hackman hafa hingað til verið vandlátir á þær myndir sem þeir leika í - ef undan eru skilin síðustu árin áður en rann af Hackman. Ég næ því ekki alveg hvað þeir sáu við þessa mynd. Og enn síður kvikmynda- tökumaðurinn Tak Fujimoto. Fu- jimoto á einkar glæsilegan feril (The Sixth Sense, Philadelphia, The Silence of the Lambs; svo dæmi séu tekin). Hann hefur áður unnið með Deutch svo ef til vill eru þeir vinir. Og kannski þekkir Hackman McKewin og McKewin kannast við Reeves og svo framvegis og áður en nokkur áttar sig eru þeir allir sestir í sömu súpuna - handritið að The Replacements. Carey allt of kynþokkafull Söngkon- an Mariah Carey reyndi hvað hún gat að draga úr kynþokka- fuliri imynd sinni þegar hún lék fyrsta kvik- myndahlut- verkið sitt. Árangurinn varð hins vegar þver- öfugur við það sem til var ætlast. í myndinni leikur Mariah saklausa og harðduglega söngkonu á nætur- klúbbi. Þegar söngkonan fékk að sjá fullklippta myndina setti hana dreyrrauða undir einu atriðinu. í ljós kom nefnilega að fötin sem hún var í voru gegnsæ. „Mariah varð vandræðaleg og hún roönaði þegar hún sá afrakstur- inn. Hún var miklu kynþokkafyllri en áður,“ segir heimildarmaður innan gengisins sem gerði kvik- myndina All That Glitters.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.