Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2001, Blaðsíða 26
34
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001
r
Islendincrabættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
95 ára__________________________
, Guöbjörg Jónsdóttir,
Fannborg 8, Kópavogi.
85 ára__________________________
Bjarni Sveinbjörnsson,
Silfurgötu 21, Stykkishólmi.
Charles John Schwab,
Vesturfold 25, Reykjavík.
?5_ára__________________________
Hreiöar Svarfdal,
Klifagötu 10, Kópaskeri.
Sumarrós Helgadóttir,
Ólafsvegi 7, Ólafsfiröi.
70 ára__________________________
Yueying Yang,
Laufrima 3, Reykjavík.
60 ára__________________________
Gréta Stefánsdóttir,
Þórunnarstræti 136, Akureyri.
50 ára__________________________
Elínborg Jóhannsdóttir,
Vesturvangi 46, Hafnarfiröi.
Hrafn Sturluson,
Norðurbrún 30, Reykjavík.
Ingibjörg Antonsdóttir,
Heiöarlundi 4h, Akureyri.
Magnús Björnsson,
Jakaseli la, Reykjavik.
Ólafur Jóhannsson,
Stóra-Núpi I, Selfoss.
Ragnhildur Þórhallsdóttir,
Miögaröi 2, Egilsstööum.
Siguröur Grímsson,
Þinghólsbraut 51, Kópavogi.
Sólveig Þorleifsdóttir,
Lönguhlíð 9, Reykjavík.
Svanhildur Sigfúsdóttir,
Ægisgötu 9, Dalvík.
Valdemar Jóhannsson,
Stóra-Núpi I, Selfoss.
4 Oára _________________________
Björn Hólm Þórarinsson,
Lyngholti 1, Akureyri.
Erlingur Erlingsson,
Nesvegi 62, Reykjavík.
Gísli Hauksson,
Stóru-Reykjum, Selfoss.
Guöný Dóra Gestsdóttir,
Lyngbrekku 17, Kópavogi.
Haukur Hlíöberg,
Álfhólsvegi 31, Kópavogi.
Hulda Hauksdóttir,
Sjávargrund 2b, Garöabæ.
Jóhann Tryggvason,
Miögaröi 9, Neskaupstaö.
Jóhanna Sigríöur Halldórsdóttir,
Rjúpufelli 27, Reykjavík.
Jóhanna Valgeirsdóttir,
Hllðarvegi 88, Njarðvík.
Siguröur Þór Sigurösson,
Stararima 33, Reykjavík.
Stefnir Helgason,
Hjallabrekku 12, Kópavogi.
Þór Daníelsson,
Neshömrum 11, Reykjavík.
Ævar Haukur Ásgeirsson,
Leynisbraut 8, Grindavík.
Smáauglýsingar
Allt til alls
►I 550 5000
Halldóra Salome Siguröardóttir, Dalseli
13, áöur Stigahlíö 61, Reykjavík, lést á
heimili sínu föstud. 16.3.
Svava Vernharðsdóttir Washington er
látin. Bálför hefur farið fram.
Halldór Bjarni Óskarsson, Krossi, Lund-
arreykjadal, lést á gjörgæsludeild Land-
spítalans fimmtud. 15.3.
Sigurlín Einarsdóttir Jensen lést á
sjúkrahúsi í Hilleröd, Danmörku, mánud.
12.3.
Júlíus Guöjón Oddsson, Sóltúni, Garöi,
lést á sjúkrahúsinu í Keflavík föstud.
16.3.
Sigurður Öm ingólfsson lést föstud.
16.3.
DV
Attræö
Brynhildur Hermannsdóttir
ljósmóðir
Brynhildur Hermannsdóttir ljós-
móðir, Furulundi 9A, Akureyri, er
áttræð í dag.
Starfsferill
Brynhildur fæddist á Akureyri en
ólst upp í Arnarneshreppi í Hörgár-
dal, fyrst í Hofteigi en 1934 ftutti
hún með foreldrum slnum að Litlu-
Brekku. Hún gekk í barnaskóla sem
þá var starfræktur í félagsheimili
sveitarinnar, Reistará sem nú heitir
Freyjulundur. Faðir hennar var
bóndi en auk þess barnakennari og
gat því leiðbeint börnum sínum
heima við.
Að loknu barnaskólanámi vann
hún við bústörf hjá foreldrum sin'-
um, sinnti móður sinni sjúkri og
stundaði íhlaupavinnu sem gafst.
Hún stundaði nám við Ljósmæðra-
skóla íslands, lauk þar prófum og
sneri síðan aftur heim í sVeitina.
Eftir að Brynhildur gifti sig hófu
þau hjónin búskap á föðurleifð
manns hennar, að Hofi í Arnames-
hreppi, en þar bjuggu þau allan sinn
búskap. Brynhildur sinnti barna-
uppeldi og búskap og var auk þess
ljósmóðir sveitarinnar. Þá leysti
hún af um skeið sem ljósmóðir á
sjúkrahúsi Vestmannaeyja og sótti
endurmenntunarnámskeið i hjúkr-
un á Landspítalanum í Reykjavík.
Eftir að bömin komust á legg var
hún hjúkrunarkona við Krist-
nesspítala í átján ár eða þar til hún
komst á eftirlaun. Þau hjónin hættu
búskap á Hofi 1990 og fluttu til Ak-
ureyrar.
Brynhildur var virkur félagi í
kvenfélaginu Freyju og er nú heið-
ursfélagi þess.
Fjölskylda
Brynhildur giftist 6.12. 1952
Bjarna Pálmasyni, f. 14.8. 1914, d.
31.7. 1994, bónda á Hofi í Hörgárdal.
Hann er sonur Halldórs Pálma
Magnússonar, f. 2.4. 1882, d. 15.5.
1928, frá Ytra-Brekkukoti í Arnar-
neshreppi, bónda á Hofi, og k.h., El-
ínar Indriðadóttur, f. 5.2.1890, d. 7.3.
1972, frá Keldunesi í Kelduhverfi,
húsfreyju.
Börn Brynhildar eru Unhþór
Bergmann Halldórsson, f. 24.5. 1948,
útgerðarmaður og eigandi Ljósavík-
ur í Þorlákshöfn, búsettur í Þorláks-
höfn, kvæntur Kristínu Þórarins-
dóttur frá Akranesi, f. 5.5. 1953,
hjúkrunarfræðingi en börn þeirra
eru ívar Hermann, f. 3.4.1978, nemi,
og Örvar Halldór, f. 21,4. 1987; Þór-
dís, f. 18.5. 1953, skrifstofumaður á
Akureyri, en maður hennar er
Smári Jónsson, f. 9.8. 1948, málara-
meistari og eru börn þeirra Heiðdís,
f. 14.5. 1972, lífeðlisfræðingur, Bryn-
hildur, f. 26.11.1974, hjúkrunarfræð-
ingur, og Viktoría Rut, f. 11.11.1978,
nemi; Erla, f. 22.11. 1954, verslunar-
stjóri á Akureyri, en maður hennar
er Ólafur Jakobsson, f. 11.2. 1949,
járnsmiöur og eru börn þeirra
Brynja Hrönn, f. 7.3. 1979, stúdent
frá VMA, og Heiðrún Ósk, f. 7.9.
1981, nemi; Guðrún, f. 19.4. 1958,
garðyrkjufræðingur í Hafnarfirði,
en maður hennar er Örn Falkner, f.
28.9. 1960, gullsmiður og eru börn
þeirra Sölvi Pétursson, f. 8.3. 1983,
nemi, Friörik Falkner, f. 1.2. 1996,
og Arna Falkner, f. 29.7. 1997; Elín
Jórunn, f. 6.6. 1959, fornbókafræð-
ingur er dvelur í Göttingen í Þýska-
landi, en maður hennar Derek
Vaughan, f. 30.11. 1955, heimspek-
ingur; Pálmi, f. 11.7. 1960, málara-
meistari á Akureyri, en kona hans
er Elísabet Hreiðarsdóttir, f. 29.9.
1962, hjúkrunarfræðingur og er son-
ur þeirra Bjarni, f. 12.1. 1984, nemi;
Hólmfríður Margrét, f. 24.5. 1962,
hjúkrunarfræðingur en maður
hennar er Helgi Bjarnason, f. 24.7.
1960, vélamaður og eru börn þeirra
Guðrún Vaka, f. 16.1. 1981, nemi og
Bjarni, f. 27.1.1987, nemi.
Albróðir Brynhildar var Geir
Finnur Hermannsson, f. 14.3. 1923,
nú látinn, bóndi í Litlu-Brekku í
Arnameshreppi.
Hálfsystkini Brynhildar: Hólm-
fríður Margrét Jónsdóttir, f. 5.5.
1907, nú látin; Þórdís Jónsdóttir, lát-
in; Óskar Jónsson, nú látinn.
Foreldrar Brynhildar voru Her-
mann Sigurðsson frá Geirastöðum í
Mývatnssveit, f. 5.6. 1897, nú látinn,
og Jórunn Malen Sigurjónsdóttir, f.
10.4. 1879, d. 12.7. 1962, húsfreyja.
Hafliði Jósteinsson
Guðmundur V. Arnarson
verslunarmaður
Hafliði Jósteinsson verslunar-
maður, Garðarsbraut 53, Húsavík,
varð sextugur í gær.
Starfsferill
Hafliöi fæddist á Húsavík og ólst
þar upp. Hann lauk landsprófi frá
Gagnfræðaskóla Húsavíkur.
Haíliði hóf störf hjá Kaupfélagi
Þingeyinga á Húsavík 1959 og hefur
starfað þar lengst af síðan. Hann
stundaði einnig skrifstofustörf hjá
SÍS í Reykjavík um skeið en fór síð-
an aftur norður á Húsavík til starfa
hjá KÞ. Þá var hann tvö ár með-
hjálpari við Húsavíkurkirkju og
kirkjugarðsvörður á Húsavík. Hann
starfar nú hjá Búbót ehf. á Húsavík.
Hafliði hefur verið virkur í marg-
víslegu félagsstarfi í sinni heima-
byggð. Hann situr í stjóm Verslun-
armannafélags Húsavíkur, í stjórn
Framsóknarfélags Húsavíkur og ná-
grennis, er félagi í karlakórnum
Hreim í Suður-Þingeyjarsýslu og
var um árabil í forystusveit Völs-
unga. Hann söng með kirkjukór
Húsavíkurkirkju og annaðist bama-
starf í kirkjunni í u.þ.b. tuttugu ár.
Fjölskylda
Hafliði kvæntist 25.12. 1968 Lauf-
eyju Jónsdóttur, f. 14.9. 1949, sér-
hæfðri fiskvinnslukonu. Hún er
dóttir Jóns
Þórarinsson-
ar, fyrrv.
bónda í
Fagranes-
koti í Aðaldal, og Unnar Baldurs-
dóttur húsfreyju.
Böm Hafliða og Laufeyjar eru
Inga Björk, f. 14.2. 1970, skrifstofu-
maður í Þýskalandi, í sambúð með
Seydi Demir;Unnur MjöO, f. 21.11.
1972, húsmóðir á Húsavík, í sambúð
með Viðari Hákonarsyni og er son-
ur þeirra Hlynur Snær; Hjálmar
Bogi, f. 18.1. 1980, leiðbeinandi á
Húsavík; Rakel Dögg, f. 25.7. 1981,
nemi á Húsavík, en unnusti hennar
er Gunnar Jónsson.
Systkini Hafliða eru Guðný Jó-
steinsdóttir, f. 9.2. 1932; Hreiðar Jó-
steinsson, f. 28.3. 1933; Hafdís Jó-
steinsdóttir, f. 16.6. 1942; stúlka, f.
andvana 1.1.1952.
Foreldrar Hafliða voru Jósteinn
Finnbogason, f. 3.10. 1909, d. 17.11.
1995, sjómaður á Húsavík, og K.
Þórey Sigmundsdóttir, f. 25.11. 1913,
d. 4.10.1996, húsmóðir og verkakona
á Húsavík.
Hafliði mun taka á móti gestum í
sal stéttarfélaganna á Húsavík laug-
ardaginn 24.3. milli kl. 17.00 og
21.00.
pípulagningameistari
Guðmundur Viðar Arnarson,
pípulagningameistari og nuddnemi,
Hraunbæ 154, Reykjavík, er fertug-
ur í dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist á Blönduósi,
ólst npp í Reykjavík til þriggja ára
aldurs og síðan í Austur-Húnavatns-
sýslu.
Á unglingsárunum frá fimmtán
ára aldri var Guðmundur tamninga-
maður í Húnavatnssýslunum og í
Skagafirði og stundaði þar auk þess
sjómennsku og austur á fjöröum.
Hann hóf nám í pípulögnum, lauk
prófi frá Iðnskólanum í Reykjavík
1980, stundaði nám við Knatt-
spymuskóla KSÍ og lauk þar A- og
B-þjálfaraprófum.
Guðmundur var umboðsmaður
Bubba Morthens 1984-86 og
skemmtana- og framkvæmdastjóri
hjá veitingastöðunum Safarí 1984,
Hollywood 1985 og Hótel Borg 1986.
Guðmundur þjálfaði í knatt-
spyrnu yngri flokka drengja og
stúlkna og auk þess meistaraflokk
kvenna, s.s. í Hveragerði, Þorláks-
höfn, og Aftureldingu í Mosfellsbæ.
Hann hefur setið í ráðum og nefnd-
um hjá Sveinafélagi pípulagninga-
manna og var formaður starfs-
mannafélags Alhliða pípulagna
1997-99.
Fjölskylda
Guðmund-
ur kvæntist
24.6. 1989 Evu Ásrúnu Albertsdótt-
ur, f. 22.5. 1959, dagskrárgerðar-
manni, ljósmóöur og söngkonu.
Hún er dóttir Alberts Valdimars-
sonar og Svanhildar Þórisdóttur.
Guðmundur og Eva Ásrún skildu
1991.
Dóttir Guðmundar og Önnu
Huldu Sigurðardóttur er Særún
Ama, f. 9.1. 1979.
Sonur Guðmundar og Guörúnar
Blöndal er Rúnar Örn, f. 21.9. 1979,
en unnusta hans er Rannveig
Bjarnadóttir og dóttir hans er Guð-
rún Tinna, f. 3.8.1999.
Stjúpböm Guðmundar og böm
Evu Ásrúnar eru Magnús, f. 8.10.
1977; Albert, f. 9.9. 1982.
Sambýliskona Guðmundar
1994-99 er Steinunn Sigurðardóttir,
f. 29.9. 1954. Dætur hennar og stjúp-
dætur Guðmundar eru Stella, f.
21.11. 1974; Sara, f. 1.8. 1979; Sif, f.
2.11. 1984.
Foreldrar Guðmundar: Örn Leós-
son, f. 14.8. 1940, bílstjóri og Bogey
Ragnheiður Jónsdóttir, f. 8.8. 1942,
sjúkraliði. Fósturfaðir Guðmundar:
Sigfús Guðlaugsson, f. 24.10. 1942.
Merkir íslendingar
Björn Þorsteinsson sagnfræðiprófessor
fæddist að Þjótanda í Villingaholts-
hreppi 20. mars 1918. Hann var sonur Þor-
steins Björnssonar, bónda og kaup-
manns og m.a. frumbyggja byggðar-
kjamans að Hellu á Rangárvöllum, og
f. k.h., Þuríðar Þorvaldsdóttur kenn-
ara. Þorsteinn var bróðir Sigurgeirs,
bónda á Orrastöðum, foður Þorbjöms
eðlisfræðiprófessors. Þeir voru synir
Bjöms Eysteinssonar í Grímstungu.
Bjöm lærði til stúdentsprófs hjá feðg-
unum að Fellsmúla á Landi, sr. Ófeigi
Vigfússyni og Ragnari Ófeigssyni, lauk
stúdentsprófi frá MR 1941, cand. mag.-prófi
í íslenskum fræðum frá Hí 1947, stundaði
framhaldsnám í sagnfræði við Univerity of
Björn Þorsteinsson
London 1948 og 1949 og skjalarannsóknir á
söfnum í Þýskalandi 1958 og 1959 á vegum
háskólans 1 Hamborg.
Björn kenndi við gagnfræðaskóla, Iðn-
skólann, Laugarlækjaskóla og loks við
MH 1966-71 og var prófessor í sagn-
fræði við HÍ frá 1971. Björn var farar-
stjóri á sumrum hjá Ferðaskrifstofu
ríkisins 1950-62, stofnaði leiðsögunám-
skeið á vegum hennar 1962 og veitti
þvi forstöðu til 1967 og síðan ásamt
Vigdísi Finnbogadóttur til 1974.
Björn var afar afkastamikill rithöf-
undur um sögu íslands en meðal þekkt-
ustu verka hans eru Enska öldin í sögu ís-
lands, Tíu þorskastríð 1415-1976, og Islensk
miöaldasaga. Björn lést 6. október 1986.
Sigurbjörg Emilsdóttir, Höröalandi 6,
lést á Landspítalanum Vífilsstööum
sunnud. 11.3. Útför hennar fer fram frá
Fossvogskirkju þriðjud. 20.3. kl. 15.00.
Ágúst Sigurjónsson, fyrrum bóndi í
Kirkjuskógi, Miðdölum, veröur jarösung-
inn frá Kvennabrekkukirkju þriöjud.
20.3. kl. 14.00. Ferö frá BSÍ ki. 10.30.
Anne Marie Bjarnason veröur jarösung-
in frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjud.
20.3. kl. 13.30.
Aðalgeir Halldórsson frá Kjalvararstöö-
um, dvalarheimilinu Höföa, Akranesi,
veröur jarösunginn frá Akraneskirkju
þriöjud. 20.3. kl. 14.00.
Anna Pálsdóttir, Hrafnistu, Hafnarfirði,
áöurtil heimilis á Öldugötu 47, verður
jarösungin frá Fossvogskirkju þriöjud.
20.3. kl. 13.30.