Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2001, Qupperneq 32
*
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
1550 5555
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Fjóröungssambands Vestfirðinga:
Grunaður um sex
milljóna fjárdrátt
Endurskoðendur eru nú að skoða
bókhald Fjórðungssambands Vestfirð-
inga vegna meints flárdráttar fyrrver-
andi framkvæmdastjóra. Búist er við
að krafíst verði opinberrar rannsókn-
ar á málinu innan tíðar.
Samkvæmt mjög áreiðanlegum
heimildum DV mun fjárdrátturinn
hafa staðið yfir á annað ár, eða allt
árið 1999 og fram undir það að fram-
kvæmdastjórinn lét af störfum á síð-
ilfcasta ári. Ekki eru öll kurl komin til
grafar en samkvæmt heimildum DV
er talið að hann hafi dregið sér um
sex miUjónir króna á þessum tíma
fyrir utan sín venjubundnu laun.
Framkvæmdastjórinn, sem hefur
eins og áður sagði látið af störfum,
var ráðinn í stöðuna eftir aðalfund
haustið 1998. Vegna uppgjörs reikn-
inga sambandsins við áramótin
1999-2000 greiddi framkvæmdastjór-
inn fyrrverandi um 1.700 þúsund
krónur vegna oftekinna launa og var
það uppgjör lagt fyrir fjórðungsþing á
síðasta ári. Töldu menn þá að málinu
væri lokið en annað kom í ljós.
Heimildir DV herma að fram-
kvæmdastjórinn hafi ekki reynt að
fela þessa úttekt sína og alltaf sett
nafnið sitt við þær gjörðir. Þó munu
einhverjar aðrar færslur reikninga í
bókhaldi orka tvímælis. Hefur stjórn
sambandsins selt eignir til að reyna
að laga stöðu þess og m.a. selt ísafiarð-
arbæ skrifstofuhúsnæði sitt í Stjórn-
sýsluhúsinu á ísafirði. Eigi að síður
er talið vafasamt hvort meintur fjár-
dráttur innheimtist að fullu.
Viðmælendur DV, sem gjörkunnug-
ir eru starfsemi Fíórðungssambands-
ins til fjölda ára, telja daga þess senn
talda. Hlutverk sambandsins sé
hvorki fugl né fiskur lengur eftir
miklar sameiningar sveitarfélaga sem
yfirtekið hafa öll helstu mál sam-
bandsins. Fjórðungssamband Vest-
firðinga var á árum áður virkur sam-
nefnari sveitarfélaga á VestQörðum
en nú eiga 12 sveitarfélög aðild að
sambandinu. Nýr framkvæmdastjóri,
Ingimar Halldórsson fyrrum fram-
kvæmdastjóri Frosta í Súðavik, teng-
ist málinu á engan hátt. -HKr.
DV og Dagur taka höndum saman:
Sameinast undir merkjum DV
- styrkir útgáfu blaðanna á tímum aukinnar samkeppni
DV-MYND BRINK
Nýjar höfuöstöövar DV á Akureyri
Birgir Guðmundsson, fréttastjóri DV, fyrir framan Strandgötu 31
sem áöur hýsti Dag á Akureyri.
Samkomulag hefur náðst milli
Dagsprents og útgáfufélags DV að út-
gáfa Dags verði felld inn í útgáfu DV.
Sameiningin er liður í því að styrkja
útgáfu blaðanna á tímum aukinnar
samkeppni á sviði fjölmiðlunar. Um-
hverfi fjölmiðla á íslandi hefur tekið
miklum breytingum á undanförnum
misserum og útgáfa dagblaða á íslandi
er á tímamótum en innan fárra vikna
lítur nýtt ókeypis dagblað dagsins
ljós.
Samhliða sameiningunni verða
töluverðar breytingar á efni DV og rit-
stjórn þar sem margir af lykilstarfs-
mönnum Dags hafa gengið til liðs við
^^blaðið. Birgir Guðmundsson hefur
verið ráðinn fréttastjóri DV en hann
mun jafnframt stýra ritstjórn DV á
Akureyri sem verður til húsa að
Strandgötu 31. Elías Snæland Jóns-
son, ritstjóri Dags, hefur verið ráðinn
ráðgjafi í útgáfumálum hjá Frjálsri
fjölmiðlun hf. en fyrirhuguð eru nokk-
ur ný verkefni á sviði útgáfu hjá fyr-
irtækinu á næstu misserum.
„Eftir að stjórn Dagsprents hafði
ákveðið að hætta sjálfstæðri útgáfu
blaðsins seint í gærdag og sameina
DV og Dag óskaði Frjáls fiölmiðlun
eftir því að ég tæki að mér starf ráð-
gjafa fyrirtækisins í útgáfumálum. Ég
hef tekið því boði og hlakka til að
takast á við ný verkefni á þeim vett-
vangi.
i w- 'Ég tel að ritstjórn Dags hafi unnið
afar gott starf síðustu árin og við höf-
um fundið fyrir mikilli ánægju með
blaðið hjá tryggum lesendum okkar
en þeim fór fiölgandi á siðasta ári. Það
er vissulega eftirsjá að blaðinu en á
móti kemur að ýmislegt af hefð-
bundnu efni Dags mun eftirleiðis birt-
ast í DV og eins að allir starfsmenn
blaðsins fá boð um önnur störf hjá
fyrirtækjum í eigu Frjálsrar fiölmiðl-
unar,“ segir Elías Snæland.
Óhætt er að fullyrða að ritstjórn
DV á Akureyri verður öflugasta rit-
stjórn fiölmiðils utan höfuðborgar-
svæðisins með allt að sex blaðamenn,
auk starfsfólks á auglýsinga- og dreif-
ingardefid.
„Staða DV hefur alla tíð verið sterk
á landsbyggðinni en með sameining-
unni skapast enn frekari tækifæri til
sóknar á komandi mánuðum," segir
Óli Björn Kárason, ritstjóri DV. „Allt
frá því Dagblaðið var stofnað hefur
bakland blaðsins verið út á landi.“
„Lesendur Dags munu sjá fiöl-
margt af efni síns gamla blaðs á síð-
um DV auk margs annars sem brydd-
að verður upp á í nýrri sókn blaðs-
ins,“ segir Birgir Guðmundsson
fréttastjóri. „Það er von okkar að
með þessum breytingum takist okkur
að veita lesendum okkar enn betri og
öflugari fréttaþjónustu en verið hing-
að til.“
Dagsprent mun halda áfram starf-
semi á sviði prentþjónustu en öllum
starfsmönnum á öðrum sviðum fyrir-
tækisins hefur verið boðin vinna hjá
DV, Frjálsri fiölmiðlun eða tengdum
fyrirtækjum.
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001
Vorboöi í Hafnarfiröi
Jón Óiafsson, trillukarl í Hafnarfiröi, lítur til meö rauömaganum sínum
sem er hinn eini sanni vorboði þeirra sem sjóinn sækja.
Um 130 þúsund tonn eftir af loðnukvótanum:
Talið víst að „austurgangan" svo-
kallaða hafi hrygnt og sé dauð
Fjölmargir loðnubátar héldu út til
veiða í gærkvöld, strax eftir að
bráðabirgðalögin um frestun verk-
fallsins höfðu verið samþykkt á Al-
þingi. í morgun voru skipin ekki
komin á þær slóðir sem líklegast var
að finna það sem eftir er af „austur-
göngunni" svokölluðu en talið er víst
að ekki sé lengur hægt að veiða úr
göngunni sem kom að vestan og mest
hafði verið veitt úr fyrir verkfallið,
sú loðna hafi hrygnt og sé dauð.
„Ég vildi óska að hægt væri að
veiða loðnu fyrir einn og hálfan
milljarð en ég er svartsýnn á að það
takist. Ég held að þetta hljóti að vera
farið að tregðast," sagði Magnúr Þor-
valdsson, skipstjóri á Sunnuberginu,
í morgun, en hann var þá á leið á
miðin. Tvö grænlensk skip voru á
miðunum i gær og fundu ekkert, og
óttast menn að loðnan hafi þegar
hrygnt og drepist, þannig að frestun
verkfallsins hafi komið nokkrum
dögum of seint til að bjarga ein-
hverju.
Frá áramótum hafa veiðst 660 þús-
und tonn og því er heildaraflinn á
vertíðinni 706 þúsund tonn og 132
þúsund tonn eftir af útgefnum kvóta.
Mestu hefur verið landað í Vest-
mannaeyjum eða 84.474 tonnum, á
Eskifirði 75.632 tonn, Neskaupstað
61.048 tonn, Seyðisfirði 51.245 tonn,
Grindavik 50.947 tonn, Akranes
46.862 tonn og á Þórshöfn 41.951 tonn.
Sjá frétt um verkfallsfrestunina
á bls. 2.
-gk
tilboAsverA kr. 2.750,-
Merkilega heimilistækið^
Nú er unnt að "o
merkja allt á §
heimilinu, ^
kökubauka,
spólur, skóla-
dót, geisla-
diska o.fl.
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport___
lafnort
Lampar til fermingargjafa
- -
Rafkaup
Ármúla 24 • sími 568 1518