Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2001, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001
9
DV
Fréttir
Tveir í Bláfjöllum
Lífið var ekki amalegt hjá þessum tveimur strákum sem nutu lífsins í Bláfjöll-
um í gær.
Flokksþingið
hafnaði breyting-
um á útvarpsráði
Flokksþing Framsóknarflokksins
hafnaði um helgina tillögu, sem
Árni Magnússon, aðstoðarmaður ut-
anríkisráðherra, lagði fram um að
útvarpsráð yrði lagt niður og í stað-
inn kæmi e.k. þjóðstjórn yfir RÚV
með ópólitiskum tilnefningum.
Flokksþingið hafnaði þessum breyt-
ingum eftir hörð varnaðarorð Giss-
urar Péturssonar, útvarpsráðs-
manns flokksins og Vilhjálms
Hjálmarssonar fyrrum ráðherra,
sem lengi var formaður útvarps-
ráðs. Þá þótti það skemma fyrir til-
lögu Árna þegar þingfulltrúi gerði
kröfu til þess að hestamannafélagið
á Akranesi fengi örugglega fulltrúa
í þjóðstjórnina.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra lýsti þvi opinberlega yfir eftir
þingið að það ætti að hans mati að
leggja útvarpsráð niður og gera
RÚV að sjálfseignarstofnun. Því má
segja að flokksþingið hafi hafnað
þessari stefnu formannsins. Tillaga
Árna var samþykkt af sérstakri
flokksþingsnefnd um mennta- og
menningarmál, en sömu tillögu var
son, útvarps- son, aöstoðar-
ráösmaöur maöur Halldórs
Framsóknar- Ásgrímssonar.
flokksins.
hafnað af þingfulltrúum með yfir-
gnæfandi atkvæðamun. -
Skynsemin réð ferðinni
Gissur Pétursson segir að hann
hafl á þinginu boðað að ræða þyrfti
framtíð RÚV á mun breiðari grunni
en þarna átti að gera. „Mín persónu-
lega skoðun er sú að núverandi fyr-
irkomulag, með kosningu útvarps-
ráðs á Alþingi, sé ekki slæmt fyrir-
komulag og að jafnvel eigi að
treysta þau bönd með því að taka
stofnunina undan menntamálaráðu-
neytinu og færa alfarið undir Al-
þingi. Ég hygg að eilífar deilur yrðu
um þessa þjóðstjórn."
Gissur telur það ankannalegt af
stjórnmálamönnum að segja að út-
varpsráð eigi að vera ópólitískt. „Ég
veit ekki á hvaða forsendum slík
skoðun byggir. Mér finnst að svipað
gildi um útvarpsráð og t.d. banka-
ráðin. Ég hygg að við höfum unnið
góðan varnarsigur fyrir RÚV og að
Framsóknarflokkurinn hafi látið
skynsemina ráða, eins og svo oft
áður,“ segir Gissur.
-fþg
Smáauglýsingar
DV
vísir.is
Herrakvöld FH í Hafnarfiröi fór úr böndum:
Davíð strunsaði
úr Frímúrarhúsinu
- leiddist langdregiö uppboð á notuðum þurrkara
„Við sammælt-
umst um það að
samband skyldi
haft við forsætis-
ráðherra og hann
beðinn afsökun-
ar,“ sagði Gunn-
laugur Magnús-
son, formaður
FH, í kjölfar
herrakvölds hafn-
firska íþróttafé-
lagsins sem hald-
ið var i Frímúr-
arahúsinu í Hafnaríírði siðastliðið
fóstudagskvöld. Davíð Oddsson for-
sætisráðherra mætti á herrakvöldið
sem aðalræðumaður klukkan 20
eins og aðrir gestir. En þegar veislu-
stjóri var enn að bjóða upp notaðan
þurrkara til styrktar félaginu rétt
fyrir klukkan 23 var forsætisráð-
herra nóg boðið og yfirgaf hann
samkvæmið í skyndi ásamt aðstoð-
armanni sinum. Sátu FH-ingar
sneyptir eftir en reyndu þó að halda
gleðskapnum áfram.
Það kom í hlut Guðmundar Árna
Stefánssonar, alþingismanns og for-
manns knattspymudeildar FH, að
biðja forsætisráðherra afsökunar:
„Okkur þótti
þetta afskaplega
leiðinlegt. Tím-
inn hljóp frá okk-
ur,“ sagði Guð-
mundur Ámi en
alls sóttu um 250
FH-ingar herra-
kvöldið. „Ég
hringdi í Davíð
og við ræddum
málið í góðu.“
Veislustjóri á
herrakvöldi FH
var Ingvar Viktorson, fyrrum bæj-
arstjóri í Hafnarflrði, en að sögn 111-
uga Gunnarssonar, aðstoðarmanns
forsætisráðherra, var veislustjórn
hans um margt sérstök:
„Ætli sé ekki hægt að orða það
sem svo að veislustjórnin hafi verið
óhefðbundin. Dagskráin dróst úr
hömlu og forsætisráðherra hefur
vafalítið haft sinar ástæður fyrir
því að þurfa að yflrgefa samkvæm-
ið,“ sagði Illugi Gunnarsson sem
varð samferða forsætisráðherra til
Reykjavíkur að loknu misheppnuðu
herrakvöldi í Frímúrarahúsinu í
Hafnarfirði.
-EIR
Fann dauð hross á Oki
Sigurður Oddur Ragnarsson bóndi
á Oddsstöðum í Lundarreykjadal í
Borgarfirði fann um helgina við jökul-
inn Ok átta dauð hross, en frá því um
áramót hefur hann saknað þrettán
hrossa úr stóði sínu. Sjö af þessum
átta hrossum sem fundust dauð voru í
eigu Sigurðar sjálfs. Flest hrossin
fundust uppi á svonefndri Oköxl sem
er móbergsstapi sem gengur út frá
þessum minnsta jökli landsins.
Það var seint i haust sem Sigurður
smalaði haga sína og náði þá í hús
flestum sínum hrossum. Flogið var
yfir afrétti Borgarfjarðarsveitar fljót-
lega eftir nýár og þannig sást til níu
hrossa og var í framhaldinu hafin að
þeim frekari leit - sem og öðrum sem
ekki hafði sést til og eru í eigu ann-
arra bænda í Borgarfirði. Leitin skil-
aði hins vegar ekki árangri. - Það var
á sunnudaginn sem Sigurður Oddur
fór í fylgd Snorra Jóhannessonar
bónda á Augastöðum í Hálsasveit upp
að Oki og þá fundu þeir áðurnefnd
hross, og telur Sigurður raunar að
fleiri hross gætu verið þarna enn
dauð undir snjó. Að þvi verður gætt
þegar snjóa leysir.
Sigurður telur að hrossin sem nú
hafa fundist dauö hafi tryllst í flug-
eldaskothríðinni um áramót og flúið
þá til fjalla - og ekki skilað sér eftir
það. Geti því hver sem er dregið þann
lærdóm af flugeldagleðinni um ára-
mót að fara beri varlega þannig að at-
burðir líkir þessum endurtaki sig
ekki. -sbs
Það má reglulega búast við nýjum og
spennandi hlutum frá HTH, enda er þetta
viðkunnarlega danska fyrirtæki í forystu á
Norðurlöndum í hönnun og framleiðslu á
eldhús- og baóinnréttingum.
Forvitnilegir litir og nýjar gerðir innréttinga,
þaulhugsaóar í smáatriðum, gera þaó að
verkum aó þú færð innblástur í hvert skipti
sem þú lítur inn í sýningarsal hjá HTH.
Láttu sjá þig.