Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2001, Page 4
20
MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2001
allt brjálað í húsinu. Guðjón Valur
tók vitið og tryggði KA réttinn í úr-
slitaleikinn.
Guðjón Valur var hetja dagsins eft-
ir aö hafa staðið sig frábærlega i
leiknum og aö hafa náð að skora úr
aukakastinu í lok fyrstu framlenging-
ar. Guðjón gerði meðal annars 7 af 9
mörkum KA í framlengingunni.
Hörður Flóki stóð sig vel í mark-
inu hjá KA og náði að verja á ótrúleg-
ustu augnablikum. Atli Hilmarsson
hefur verið að ná frábærum árangri
með þessum strákum og er ljóst hvar
framtíðin er í handboltanum en þetta
eru allt mjög ungir strákar.
Hjá Aftureldingu var Bjarki Sig-
urðsson atkvæðamestur og stóð
Magnús Þór sig vel í framlengingun-
um ásamt Gintas. Reynir Þór fór
hamfórum í marki Aftureldingar en
KA náði aðeins að skora sex mörk hjá
honum í seinni hálfleik en Guðjóni
Val tókst að skora eitt mark hjá Ólafi
Gíslasyni. -JJ
Sport
Valur fyrir KA. Afturelding náði að
jafna og eftir að Reynir Þór varði víti
frá Halldóri Sigfússyni þá skoraði
Gintas sitt annað mark í framlenging-
unni og voru Aftureldingarmenn
komnir yflr og það í fyrsta skiptið í
leiknum.
Ótrúlegt jöfnunarmark
Illa gekk hjá KA og þegar seinni
hálfleikur framlengingar var hálfnað-
ur hafði Magnús Már skorað tvö mörk
fyrir Aftureldingu og voru Aftureld-
ingarmenn með pálmann í höndun-
um. KA vildi þó ekki gefast upp og
náði Halldór Sigfússon að minnka
muninn. KA tókst svo að minnka
muninn niður í eitt mark þegar um
ein mínúta var eftir af leiknum.
Dæmd var leiktöf á Aftureldingu og
fengu KA-menn tækifæri til að
minnka muninn en náðu ekki að nýta
færið en fengu dæmt aukakast þegar
leiktíminn var liðinn. Aukakastið var
við hliðarlínuna og voru áhangendur
Aftureldingar farnir að fagna og kyrja
sigursöngva. Guðjón Valur vildi ekki
enda leikinn á þennan hátt og skoraði
á alveg ótrúlegan hátt úr aukakastinu
og þakið ætlaði að rifna af húsinu.
Dramatíkin var hrikaleg og spennan
ekki síðri. Framlengja varð því aftur.
Guöjón Valur með
sigurmarkiö úr víti
KA virtist ætla að taka þetta strax í
annarri framlengingu og náði tveggja
marka forystu en Afturelding náði að
jafna leikinn þegar um ein og hálf
mínúta var eftir af leiknum. Guðjón
Valur fékk svo tækifæri til að minnka
muninn með glæsilegu skoti en Reyn-
ir Þór náði að verja boltann og varð
því að grípa til bráðabana.
KA tapaði hlutkestinu en KA hafði
unnið hlutkestiö við framlenginguna.
Aftureldingarmenn sóttu og reyndu
að koma boltanum í netið en þeir
misstu hann og þá náði Andrius
Stelmokas að flska vítakast og varð
KA tryggði sér sæti í lokaúrslitum
íslandsmótsins í fyrsta sinn í fjögur
ár eftir ótrúlegan framlengdan leik og
sigur í bráðabana á Aftureldingu,
29-28, í KA-húsinu á laugardag. Þessi
leikur hafði það allt sem handbolti
býður upp á og var upp á 10.
Fjöldinn allur af aðdáendum Aftur-
eldingar mætti í KA-heimilið og lét
ekki sitt eftir liggja og hefur ekki ver-
ið svona stemning í KA-húsinu í lang-
an tíma. Bæði lið lofuðu erfiðum en
góðum leik. Byrjun leiksins lofaði
góðu. KA byrjaði með 3:2:1 vörn en
vörn Aftureldingar var meira aftur-
liggjandi. KA-menn voru mun sterk-
ari í fyrri hálfleik og leiddu með fimm
mörkum í hálfleik, 13-8. Liðsmenn
Aftureldingar hafa trúlega fengið góða
ræðu í hálfleik því þeir komust strax
aftur í leikinn og var þjálfarinn í aðal-
hlutverki og skoraði fyrstu tvö mörk-
in í seinni hálfleik. KA-mönnum gekk
illa að skora í byrjun seinni hálfleiks
því fyrstu fimmtán mínúturnar lokaði
Reynir Þór Reynisson markinu og
gengu Aftureldingarmenn á lagiö og
voru búnir að minnka muninn niður
í eitt mark þegar 14 mínútur voru eft-
ir af leiknum. Það sem eftir lifði af
leiknum var spennan gífurleg. KA
náði þó alltaf að halda sér einu til
tveimur mörkum yfir þar. Aftureld-
ingu tókst að minnka muninn aftur
niður í eitt mark í stöðunni 20-19 og
var þá um ein og hálf mínúta eftir af
leiknum. Afturelding tók þá tvo leik-
menn KA úr umferð og fór það svo að
dæmd var leiktöf á KA þegar 6
sekúndur voru eftir. Afturelding átti
möguleika á að jafna og þegar tíminn
var að renna út stökk Gintas inn í
teiginn og var brotiö á honum og
dæmt vítakast og leiktíminn rann út.
Páll Þórólfsson fékk það erfiða hlut-
verk að taka vítakastið. Hann skoraði
örugglega úr því, jafnaði í 20-20 og því
varð að framlengja.
KA byijaði framlenginguna og eins
og oft áður í leiknum skoraði Guðjón
- þegar KA
Guðjóni Val Sigurössyni, ótvíræðri
hetju KA-manna, var hampaö mjög
eftir leikinn. Hann gerði 13 mörk og
tryggði sínum mönnum síðari
framlenginguna með ótrúlegu marki
beint úr aukakasti þegar leiktíminn
var liðinn.
DV-mynd Brink
KA-Afturelding 29-28
1-1, 4-1, 5-4, 6-5, 8-5, 10-6, 11-7, (13-8),
13-10,14-12,15-14,17-16, 20-18, (20-20),
21-20, 21-23, 22-24, (24-24), 26-24, 27-25,
28-26, (28-28), 29-28.
KA
Mörk/viti (Skot/víti): Guðjón Valur
Sigurðsson 13/5 (21/5), Halldór Sigfússon
7/3 (11/5), Giedrius Csemiauskas 3 (4),
Heimir Óm Árnason 3 (8), Arnór Atla-
son l (1), Andrius Stelmokas 1 (4), Sæv-
ar Árnason 1 (5).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 2 (Cserni-
auskas 2)
Vítanýting: Skorað úr 8 af 10.
Varin skot/viti (Skot á sig): Hörður
Flóki Ólafsson 22 (47/3, 47%), Hans
Hreinsson 1 (4/3, 25%).
Brottvísanir: 14 mínútur.
Aftureldins
Mörk/viti (Skot/víti): Bjarki Sigurðs-
son 8/2 (17/3), Savukynas Gintaras 7
(10), Páll Þórólfsson 4/3 (5/3), Gal-
kauskas Gintas 3 (3), Þorkeli Guðbrands-
son 3 (5), Magnús Már Þórðarson 3 (9).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 1 (Þorkell)
Vitanýting: Skorað úr 5 af 6.
Varin skot/viti (Skot á sig): Reynir
Þór Reynisson 26/1 (54/8, 48%), Ólafur
H. Gíslason 0 (1/1, 0%, víti í stöng).
Brottvisanir: 14 mínútur.
Dómarar (1-10): Bjarni Viggósson og
Valgeir Ómarsson (6).
tiϗi leiks (1-10): 10.
Áhorfendur: 800.
Maöur leiksins: Guðjón Valur
Sigurðsson, KA.
Sá dramatískasti
„Þetta var virkilega erfiður
leikur og örugglega dramatískasti
handboltaleikur sem leikinn hefur
verið á íslandi og það er sárt að
annað liðið þurfi að detta út. Við
byrjuðum ekki leikinn nógu vel.
Við spiluðum ekki nógu vel fyrstu
tuttugu mínúturnar og vorum i
vandræðum með sóknarleikinn
hjá okkur allan fyrri hálfleikinn.
Við erum svo með vænlega stöðu í
lok fyrstu framlengingar en það
var ótrúlega klaufalegt hjá okkur
að fá á okkur þetta mark úr
aukakastinu. Svo var þetta
spuming um heppni og dramatík í
lokin. Ég hugsa að Haukar lendi í
úrslitum og held ég að KA vinni,“
sagði Ásgeir Sveinsson aðstoðar-
þjálfari Aftureldingar eftir
leikinn. -JJ
Guðjón Valur Sigurðsson, hetja KA:
Þakka fólkinu
- fyrir stuðninginn i dramatiskum oddaleik
„Já, þetta var mikil drama-
tik og spenna eins og það á að
vera þegar það er komið
svona langt í mótið. Fyrri
hálfleikur gekk mjög vel. Vor-
um að fá á okkur fá mörk og
stóðum vömina mjög vel og
var Hörður Flóki sterkur fyr-
ir aftan okkur. En við erum
frægir fyrir aö missa niður
gott forskot á stuttum tíma og
okkur tókst að gera þaö enn
einu sinni en þetta er frábært
að hafa klárað þetta,“ sagði
hetja dagsins, Guðjón Valur
Sigurðsson.
Hvaó hugsaöir þú þegar
þú tókst aukakastió í lok
framlengingarinnar? „Að
setja hann í stöngin og inn.“
Hvaó meö framhaldiö?
„Mér er alveg sama hverjum
við mætum. Það er frábært
að geta spilað fyrir framan
þetta fólk og við eigum alltaf
heimaleikjaréttinn og þakka
ég áhorfendum kærlega fyrir
og vona að þeir haldi þessu
áfram í úrslitaleikjunum,“
sagði Guðjón Valur í leikslok.
„Þetta tókst en lengri leiðin
var farin og hafðist þetta í
restina. Er ekki sagt að
heppnin fylgi þeim bestu. Það
skiptir ekki máli hverjum við
lendum á móti og trúi ég að
það verði jafn spennandi en
við töpum ekki á heimavelli
og því munum við hafa
þetta,“ sagði Hörður Flóki
Ólafsson, markvörður KA,
kátur í leikslok. -JJ
Atli, þjálfari KA, um Guðjón Val:
Meö stáltaugar
„Ég held að það sé ekki hægt að hafa meiri dramtík í
handbolta, við meira að segja töpuðum hlutkestinu og
þurftum aö byrja í vörn i fyrstu sókn í bráðabana. Ég
er samt ekki ánægður með hvernig við missum þetta
niður í seinni hálfleik. Við erum fimm yfir í hálfleik og
missum það niður í jafntefli og hefði það verið rosalega
svekkjandi að tapa því þeir jafna í fyrsta skipti þegar
leiktíminn er að renna út. Þaö var ótrúlegt að halda
þetta í framlengingunni en Guðjón er með stáltaugar og
sýndi þaö enn einu sinni. Ég er ánægður með að við
skulum hafa geta spilað okkar framliggjandi vörn allan
tímann en við erum að tala um að strákarnir sem bera
þetta uppi eru um 21 árs og er þetta því ótrúlegt afrek.
Það skiptir engu hver það er sem við mætum. Viö erum
alltaf með heimaleikjaréttinn og er deildar-
meistaratitillinn dýrmætur að fá alltaf að byrja og enda
heima," sagði Atli Hilmarsson, þjálfari KA, eftir
leikinn. -JJ