Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2001, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2001, Blaðsíða 12
MANUDAGUR 23. APRÍL 2001 Fáir íslenskir knattspyrnumenn hafa verið jafn áberandi og Eiður Smári Guðjohnsen er um þessar mundir. Hann er að gera það einkar gott í ensku úrvalsdeildinni með Chel- sea og nú fyrir helgina kom enn ein fréttin þaðan þess efnis að nú væri ís- maðurinn að hugsa sér til hreyfings. í þetta sinn til Ipswich. Samkvæmt enskum fréttamiðlum á Eiður Smári að vera þreyttur á því'að vera bara stundum i byrjunarliðinu og vill fá fast sæti hjá liði sem leikur í ensku úrvalsdeildinni. Ipswich á að vera að undirbúa 6 milljóna punda boð í Eið Smára en víst þykir, þar sem Eiður er í miklum metum hjá Claudio Ranieri, stjóra Chelsea, og það sé ekki stefna liðsins að selja leikmenn sína til annarra úr- valsdeildarfélaga að það verði ekki nóg til að krækja í kaÚ. Verðið á Eiði Smára hefur sjálfsagt tvöfaldast og með núverandi gengisþróun er verðið fyrir hann komið yflr milljarðinn. Tveir rándýrir Ef það gengi hins vegar eftir að Eiður færi yfir til Ipswich hitti hann þar fyrir núverandi dýrasta islenska knatt- spyrnumanninn, Eyjamanninn Her- mann Hreiðarsson en hann var seldur þangað frá Wimbledon á litlu hærra verði en Eið- ur Smári. Yrðu þá þar saman komnir tveir langdýrustu is- lensku sparkaramir og vafalaust einnig langdýrastu leik- menn Ipswich. Þeir eru annars ekki margir sem hafa rofið 100 millj- óna króna múrinn og allir eru þeir nú- verandi leikmenn ís- lenska landsliðsins - allavega á rétta aldr- inum fyrir lands- liðið. Ber það vitni Hermann Hreiöarsson er dýrasti knattspyrnumaöur ís- lands og líklega einn sá reyndasti líka - hann hefur leikiö í fjórum efstu deildum Englands á jafn mörgum árum. Hér á hann í höggi viö Ebbe Sand í landsleik ís- lands og Danmerkur í september síöastliönum. um hina gífurlega öru þróun atvinnu- knattspyrnunnar og til vitnis um má nefna að aukningin í fjölda íslenskra atvinnumanna i fótbolta hefur stór- aukist á síðustu fimm árum, úr 14 í 52. Til samanburðar var aukningin frá 1990 til 1995 um aðeins 1, úr 13 í 14. Meira, stærra, betra Hvort gæði íslensku knattspyrn- unnar hafa einnig aukist má deila um. Það er hins vegar klárt að pen- ingaflæðið er alltaf að aukast og er metið um dýrasta knattspyrnumann heims nánast slegið árlega. Og þeir ís- lensku hafa fengið sinn skerf af þvi. Fjöldi íslenskra knattspyrnumanna á Norðurlöndunum hefur hlutfallslega aukist á síðustu 10 árum og þá sér í lagi í norsku deildinni. Frændur okk- ar hafa verið duglegir við að fylgjast með íslendingunum og kaupa þá til sín í kjölfarið. Og yfirleitt ef kapparn- ir standa sig vel eru þeir seldir til Mið-Evrópu á margfóldu kaupverði. Hvort sem það er tilviljun eða norskt l ■ + fjármálavit skiptir ekki máli, íslendingamir hljóta að hagnast jafn mikið á því. Félögin okkar íslendingafélög hafa af og til skapast í gegnum tíðina víðs vegar um Evrópu og virðist sem svo að um leið og íslenskur knattspyrnu- maður byrjar að spila með erlendu félagi smiti hann út frá sér og það verði aö kaupa fleiri, eins marga og hægt er. Dæmi um þetta er Bolton Wanderers 1 Englandi, Lokeren og Genk í Belgíu, þar sem hvorki meira né minna en þrír synir Guðjóns Þórðarsonar spiluðu saman á tímabili. Stabæk i Noregi geymir 3 íslenska leikmenn, Lille- ström hefur verið með nokkra í gegnum tiðina og Brann er með íslenskan þjálfara. Stoke er auð- Arnar Gunnlaugsson byrjaði ferlinn vel í Englandi, hjá Bolton, en hefur ekki náö aö fylgja því eftir hjá Leicester vegna tíöra meiösla. vitað aðal Islendingafélagið í dag en það er ekki furða, félagið er að meiri- hluta til í eigu íslendinga. 100 milljóna klúbburinn: Nafn: Frá: Til: Verð: Hermann Hreiðarsson Wimbledon Ipswich 467 m. Eiður Smári Guðjohnsen Bolton Chelsea 460 m. Hermann Hreiðarsson Brentford Wimbledon 290 m. Arnar Gunnlaugsson Bolton Leicester 240 m. Þórður Guðjónsson Genk Las Palmas 190 m. Heiðar Helguson Lilleström Watford 180 m. Helgi Sigurðsson Stabæk Panathinaikos 127 m. r Kaupverðiö hækkar í 535 milljónir eftir 50 leiki Eiður og Björk Þróunin í hinum stóra heimi knatt- spyrnunnar á vafalaust eftir að leiða af sér fleiri krónur í vasa atvinnu- mannanna og sjálfsagt eiga íslending- ar eftir að njóta áfram góðs af því. Eiður Smári er vissulega sterkur vitn- isburður um það og enn er hann ung- ur að árum. Hver veit nema hann eigi eftir að smita það mikið út frá sér að hann geri fyrir íslenska knattspyrnu það sama og Björk er að gera fyrir ís- lenska tónlist. -esá - Eiður Smári Guðjohnsen hefur líklega tvöfaldast í verði á örfáum mánuðum eftir veru sína hjá Chelsea

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.