Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2001, Page 6
22
MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2001
Sport
JOV
Strax farið að
klæja að mæta
þeim erlendu
„Jú, ég er að sjálfsögðu hæstánægður með
að ná mínum fyrsta sigri í þessmn flokki.
Brautin í Ólafsfirði fannst mér hrein snilld og
gott dæmi um þá skemmtilegu þróun sem
orðið hefur í snjókrossinu í vetur. Nú er að
nota næstu daga vel til að undirbúa græjuna
fyrir baráttuna á alþjóðlega mótinu og keppa
við erlendu keyrarana. Mig er strax farið að
klæja að takast á við þá," sagði
verðlaunahafmn Reynir Stefánsson að
lokinni keppni í Ólafsfirði. Reynir er á sinu
fyrsta ári í Pro-Open en hann var valinn
nýliði ársins í Pro-Stock í fyrra.
"Það skyggði að vísu á daginn að hafa keyrt
á Helga Reyni í næstsíðasta hítinu en að
öðru leyti átti ég góðan dag. Ég vil líka þakka
þennan árangur aðstoðarmanni mínum á
keppninni, Sigurði Gylfasyni, margreyndum
snjókrosskeyrara og meistara. Hans leiðsögn
var mér mikils virði í gegnum keppnina,"
segir Reynir.
Þennan veturinn keyrir Reynir Arctic Cat
Snopro en segir allt opið um keppnissleða á
næsta ári en í fyrra ók hann Polaris. "Það er
mjög dýrt að taka þátt í snjókrossinu af
fullum krafti og þess vegna verður að koma
til stuðningur frá umboðsaðilum og öðrum
fyrirtækjum til að halda þessu gangandi.
Ég vona að árangur minn í Ólafsfirði hjálpi
mér að fá stuðning til að taka þátt í
keppnunum áfram," segir Reynir.
5. umferð 10-11 snjókrossins í Ölafsfirði um páskahelgina:
- Helgi Reynir Árnason
og Alexander Kárason eru jafnir aö stigum í baráttu um titilinn
Egilsstaðabúinn og Arctic Cat-
ökumaðurinn Reynir Stefánsson
kom sá og sigraði í 5. umferð 10-11
snjókrossins í Ólafsfirði á laugar-
deginum fyrir páska.
Reynir hafði sigur í úrslitahíti
dagsins eftir harða baráttu við
Helga Reyni Ámason og Alexander
Kárason í Pro-Open flokki og með
sigri hans hefur heldur betur færst
fjör í stigabaráttuna til íslands-
meistaratitils því Helgi Reynir og
Alexander eru nú jafnir að stigum
þegar ein umferð er eftir.
Þann 28. apríl verður hápunktur
keppnisraðarinnar í snjókrossi
þegar lokaumferðin fer fram í stór-
skemmtilegri braut í miðbæ Ólafs-
fiarðar og jafnframt verður mótið
alþjóðleg keppni í snjókrossi þar
sem saman munu leiða vélfáka
sina snjórkrossökumenn frá 5-6
löndum. Líkast til hefur jafn sterk
akstursíþróttakeppni ekki farið
fram hér á landi en skipulag og er-
lendir keppendur verða kynntir á
næstu dögum.
Einstakar aöstæöur í Ólafs-
firöi
Brautin i Ólafsfirði var enn ein
sönnun þess hversu frábærar að-
stæður eru fyrir þessa grein i mið-
bæ Ólafsfiarðar. Hún bauð í senn
upp á mikinn hraða, löng og há
stökk og reyndi svo sannarlega á
aksturshæfni ökumanna. Aðstæður
fyrir áhorfendur eru líka eins og
best verður á kosið.
Þrír sigrar í röð höfðu fært ís-
landsmeistarann Helga Reyni
Árnason á Arctic Cat nær Alexand-
er Kárasyni á Lynx í baráttunni
um meistaratitil í Pro-Open flokki
stærri sleða og augljóst var að þeir
ætluðu sér toppsætið að deginum
loknum. Eftir 2. hit hafði Helgi
Reynir náð Alexander að stigum en
báðir lentu þeir í vandræðum í 3.
híti og máttu sætta sig við að sjá á
bak Reyni í markið í úrslitahíti
dagsins. Auk þess að vera sigurveg-
ari dagsins fékk Reynir tilþrifa-
verðlaun DV Sport, enda var þetta
ein besta keppni hans í vetur.
Halldór meö aöra hönd á
titlinum
í Pro-Stock flokki sigraði heima-
maðurinn Halldór Óskarsson á
Arctic Cat eftir óvenju jafna bar-
áttu við félaga sína. Allt útlit var
fyrir að annað hvort Kristinn
Gunnarsson á Arctic Cat eða Ingv-
ar Þór Óskarsson á Lynx færu með
sigur af hólmi en barátta þeirra
endaði með árekstri í lokahítinu og
þar með náði Halldór að tryggja sér
sætan sigur og koma annarri hönd
á íslandsmeistatitil í flokknum.
Mikil framför í minni flokk-
unum
í minni flokkunum tveimur er
greinilegt að ökumönnum fer fram
með hverri keppni. Annað mótið í
röð stóð Víðir Garðarsson á Polar-
is uppi sem sigurvegari í Sport-
Open en Steinþór Stefánsson á Pol-
aris er ennþá sjö stigum á undan
honum í stigabaráttunni til Is-
landsmeistara.
í Sport 500 hafði Stefán Vignis-
son á Arctic Cat sigur og leiðir
hann einnig stigakeppnina til ís-
landsmeistara.
Heimsviðburður í snjó-
krossi um aðra helgi
Sannarlega er óhætt að hlakka
til keppninnar í Ólafsfirði um aðra
helgi, miðað við þær aðstæður sem
nú eru í Ólafsfirði. Bæði munu
áhorfendur fá að sjá ökumenn úr
öllum helstu snjókrosslöndum
heims og áhugavert verður að sjá
hvernig íslensku keppendumir
munu koma út í þeim samanburði
því mótaröðin í vetur hefur fært ís-
lenskt snjókross á hærra plan og
skipað því á stall með því abra
skemmtilegasta í mótorsporti hér á
landi. Fullar áhorfendabrekkur á
öllum keppnum eru ótvírætt merki
þess. -ÁS
Pað var mikið líf og fjör á Akureyri um helgina þar sem Andrésar Andar-leikarnir fóru fram í 26. sinn.
DV-mynd Brink
Allir í stuði
á Andrésar
Andarleikum
Andrésar andarleikunum á
skíðum, þeim 26. í röðinni,
lauk i Hlíðarfialli í gær eftir
fiögurra daga skíðaveislu í
góðu veðri og við frábærar
aðstæður. Þátttakendur voru
749 frá 21 félagi, flestir frá
Akureyri eða 94, en 10 kepp-
endur koma frá Tasiilaq á
Grænlandi. Þetta er meiri
þátttaka en búist var við þar
sem snjóleysi hefur herjað
flest skíðasvæði landsins í
vetur, nema Akureyringa.
Akureyringar fengu flest
verðlaun á Andrésar Andar-
leikunum eða alls 68 verð-
laun, næstir komu Ólafsfirð-
ingar með 52 verðlaun.
"Andrésar-meistarar" eru
líka flestir frá Akureyri, eða
16 alls. Þeir eru 8 frá Ólafs-
firði. Næst kom Siglfirðingar
og Víkingar úr Reykjavík
með 3 gull en tveir "Andrés-
ar-meistarar" komu frá Sauð-
árkróki og einn frá
félögunum Ármanni, ísaflrði,
Neskaupstaö, Breiðabliki,
Húsavík og Seyðisflrði.
DV-Sport mim fialla betur
um mótið í vikunni.