Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2001, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2001, Page 15
I MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2001 Sport DV í, ‘ ~.wðs 1 Veiðivon Teitur Örlygsson, nýkrýndur Islandsmeistari meö Njarövík í körfuknattleik, meö fallega bleikju viö Eyjafjarðará. SVFR ð£ Lax-á langstærst á veiðimarkaðnum sem veltir 2 milljörðum Ef kíkt er á hverjir eru stærstir á laxveiðimarkaðinum hvað leigutaka varðar kemur í ljós að tveir aðilar eru langstærstir, Veiðifélagið Lax-á og Stangaveiði- félag Reykjavíkur. Lax-á og Árni Baldursson hafa heldur betur sótt í sig veðrið enda mánaðarlega að bæta við sig nýj- um veiðisvæðum. Nýjasta dæmið er Ytri-Rangá, sem var tekin á leigu fyrir 26 milljónir á ári, og svo Meðalfellsvatn og Vatnasvæði Lýsu. Síðan er ekki langt síðan Lax-á leigði Blöndu. Þar fyrir utan er Lax-á með Brynjudalsá í Hvalfirði, Straumana í Borgar- firði, Laugardalsá og Langadalsá við ísafjarðardjúp, Miðfjarðará í Húnavatnssýslu og stóran hluta af veiðileyfunum í Eystri-Rangá þar sem Lax-á stendur í byggingu veiðihúss. Lax-á er mest í við- skiptum við útlendinga en selur íslendingum lika veiðileyfl. Stangaveiðifélag Reykjavikur er stórt og Norðurá í Borgarfirði er stærsta trompið hjá því en síð- an er félagið með Gljúfurá í Borg- arfirði, Elliðaárnar, Korpu, Laxá í Kjós, Hítará á Mýrum, Tungu- fjót, Sogið og Stóru-Laxá í Hrepp- um, svo eitthvað sé nefnt. Langt fyrir neðan þessa tvo risa eru leigumakarnir Brynjólfur Markússon og Gestur Árnason með Víðidalsá í Húnvatnssýslu og Laxá í Dölum. Þverá og Kjarrá i Borgarfirði er Veiðifélagið Sporð- ur með á leigu. Einar Sigfússon og Óttar Ingvason eru með Haf- fjarðarál, Sigurður Helgason og fjölskylda með Hofsá í Vopnafirði, Þröstur Elliðason með Ytri-Rangá og Breiðdalsá. Ingvi Hrafn Jóns- son og fjölskylda með Langá á Mýrum, í Selá i Vopnafirði eru ýmsir mektarmenn og Pétur Pétursson og franskur vinur hans, Guy Geffroy, með Vatns- dalsá í Húnvatnssýslu. Bændur og landeigendur eru líka með puttana ennþá í laxveiðiánum eins og í Laxá á Ásum, langdýr- ustu laxveiðiá landsins. Bændur selja líka veiðileyfi í Grímsá í Borgarfirði. Laxveiðimarkaöurinn veltir í kringum 2 milljörðum með öllu, veiðileyfum, þjónustu og öðru sem fylgir. Þetta er orðin mikil at- vinnugrein og stækkar á hverju ári með fleiri erlendum veiði- mönnum. -G. Bender Þad gœíi oróid fjör á árbakk- anum norðan heiða og sunnan 1. maí en þá verða Litlaá í Keldu- hverfi og Elliðavatnið opnuð. Því er spáð að góð opnum gæti orðið á báðum þessum stöðum og fiskurinn sem veiðist verði vænn, alla vega í Litluánni. Urriðasvæð- ið í Laxá í Þingeyjarsýslu verður síðan opnað 1. júní. Á þessu ári eru liðin 12 ár sið- an Skotfélag Ólafsfjarðar var stofnað og setti félagið sér það markmið að koma upp æfinga- svæðum fyrir félagsmenn sína, vinna gegn hvers konar gálausri meðferð skotvopna og hefja skot- veiði til vegs og virðingar. Eru menn sammála um að vel hafi tekist til í gegnum árin. í haust sem leið keypti félagið miðunar- græjur fyrir loftskammbyssu og Skotfélag Ólafsfjarðar ætlar síðan að halda miðnæturmót í leirskifu- skotfimi 23. júní. Veidihornid hefur verið iðið að brydda upp á ýmsu nýju fyrir veiðimenn, t.d. var íslenski flugu- hnýtingadagurinn haldinn á laug- ardaginn. Þar mættu margir af bestu hnýturum landsins og hnýttu flugur fyrir sumarið. Flug- umar voru síðan seldar og ágóð- ann á að gefa til góðgerðarmála. Það var heldur betur fjör í fimmtugsafmælinu hjá Björgvin Halldórssyni fyrir fáum dögum og afmælisbarnið fékk helling af veiðigræjum, stangir og veiðidót, sem hann á eftir að reyna víða í sumar. Björgvin byrjar veiðisum- arið í Hlíðarvatni • í Selvogi eftir nokkra daga. Þangað fór hann líka í fyrra með þeim Ragnari Hólm Ragnarssyni og Berki Baldurs- syni og fengu þeir fina veiði. Þaö var heldur skrýtinn svip- ur á lesendum Veiðimannsins þegar síðasta blað kom út. Eins og reyndar flestir vita eiga félagar í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur að fá blaöið frítt. Það hefur eitthvað skolast til því sumir fengu reikn- ing fyrir áskriftinni en þeir eru beðnir að farga honum hið snar- asta. Af Veiðimanninum er það ann- ars að frétta að Gylfi Pálsson rit- stjóri ætlar að ritstýra næsta blaði en hætta síðan. -G. Bender „Hef hnýtt margar fyrir- tækjaflugur" - segir Þóröur Pétursson -c Sjóbirtingsveiðin: 900 fiskar á land „Veiðin hefur verið ágæt í Geirlandsá og Vatnamótum en stærstu fiskarnir eru 14 punda. Miklu af fiskinum hefur verið sleppt aftur,“ sagði Gunnar J. Óskarsson, formaður Stangaveiðifélags Keflavíkur, en þeir hjá félaginu hafa verið manna iðnast- ir i sjóbirtingnum fyrir austan. Marga ára hefð er fyrir sjóbirtingsveiði í félaginu. Það er erfitt að segja til um hvað mikið hefur veiðst af fiski núna í vorveið- inni en Varmá hefur gefið best eins og oft áður. Ltklega hafa veiðst um 600 fiskar og þar eru stærsti fiskurinn 7 punda en heild- arveiðin í vorveiðinni núna er um 900 fisk- ar og sá stærsti er 14 punda. „Við fengum nokkra fiska en það hefur oft verið meira fjör, fiskurinn er í ánni en tekur illa,“ sagði veiðimaöur sem var við veiðar í vikunni í Varmá og stærsti fisk- urinn hjá þeim var 3 pund. Flestir fiskarn- ir sem veiðast í Varmá eru sjóbirtingar og þónokkuð hefur veiðst af regnbogasilungi. Ein og ein bleikja veiðist líka í bland við sjóbirting og regnboga. í Brúará hefur veiðin gengið sæmilega en bleikjan hefur verið treg að taka. Veiði- menn sem DV-Sport frétti af fyrir fáum dögum veiddu 4 bleikjur. Hellingur var af fiski en hann var mjög tregur að taka. Eftir að hlýnaði hefur bleikjan byrjað að gefa sig í Soginu og þar geta þær verið vænar, næstu dagar gætu gefið góða veiði. Það er ekki óalgengt að bleikjan þar sé 4 til 5 pund. -G. Bender „Það er rétt að það hefur veriö mikið að gera við að hnýta flugur fyrir hin og þessi fyrirtæki síð- ustu tvö árin, miklu meira en ég hélt að yrði að gera í þessu fyrst þegar ég byrjaði á þessu,“ sagði Þórður Pétursson á Húsavík, leið- sögumaður í Laxá í Aðaldal til fjölda ára, í samtali við DV-Sport. „Núna um helgina var ég á handverksýningunni í Laugar- dalshöll og það gekk mjög vel. Þeir hjá íslenskri erfðagreiningu voru að panta flugu meðal ann- arra fyrirtækja fyrir sumarið og mörg eru að láta hnýta fyrir sig þessa dagana. Ætli ég hafi ekki hnýtt hundrað nýjar flugur á síð- asta ári.“ - Hvernig verður veiðin í drottningunni, Laxá í Aðaldal, í sumar? „Veiðin hefur alls ekki verið góð í henni síðustu árin en hún batnar vonandi og það strax í sumar, við skulum vona það,“ segir Þórður ennfremur. Þórir Ólafsson meö sjóbirtinga sem hann veiddi í Grenlæk. -G. Bender ■í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.