Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2001, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2001, Blaðsíða 16
16 25 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun hf. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvæmdastjórí og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aóstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson Fréttastjórí: Birgir Guðmundsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðiunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmíðlun hf. Plótugerð: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuði 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblað 280 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formí og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Sjálfskaparvíti kjósenda Einkennilegt er, að fólk með kosningarétt telur sig yfir- leitt ekki bera neina ábyrgð á gerðum sínum. Það telur eðlilegt að kvarta og kveina yfir gerðum stjórnvalda, en hefur ekki lyft litla fingri til að koma í veg fyrir, að gæzlu- menn sérhagsmuna einoki störf Alþingis. Alþingismenn taka flestir málstað sérhagsmuna fram yfir málstað almannahagsmuna, hvort sem fjallað er um grænmeti eða eitthvað annað, af því að þeir vita, að þeir komast upp með það. Kjósendur munu ekki láta umboðs- menn sérhagsmuna fá makleg málagjöld. Starf alþingismanna og einkum þeirra alþingismanna, sem Alþingi gerir að ráðherrum, felst einkum 1 að veita sérhagsmunum brautargengi. Frægust dæmi um slíkt eru í landbúnaði og sjávarútvegi, en sama stefna einkennir líka störf ríkisstjómar og Alþingis á öðrum sviðum. Áratugum saman hefur verið bent á þá óhrekjanlegu staðreynd, að hefðbundinn landbúnaður á íslandi er rek- inn á kostnað neytenda og skattgreiðenda. Sjálft vinnslu- virðið í greininni er alls ekki neitt og hefur raunar lengst af verið neikvætt á sumum sviðum greinarinnar. Kjósendur vita vel um þessa umræðu og eru flestir sam- mála niðurstöðunum. Þeir vita, að þeir eru látnir borga hærri skatta en ella vegna þessa. Þeir vita líka, að þeir em látnir borga meira fyrir matinn en ella vegna þessa. Þeir gera samt ekkert með þessa vitneskju. Síðasta áratug var hörkuumræða um gjafakvótann í sjávarútvegi, sem felst í, að auðlindir, sem sjálft þjóðfélag- ið hefur með verndaraðgerðum bjargað frá hruni, em af- hentar fámennum hópi gæðinga, sem leigja síðan kvótann og selja eins og þeir eigi sjálfa auðlindina. Kjósendur vita vel um þessa umræðu og eru flestir sam- mála niðurstöðunum. Þeir vita, að þeir eru látnir borga hærri skatta en ella vegna þessa. Þeir vita raunar, að þetta jafngildir öllum tekjuskatti einstaklinga í landinu. Þeir gera samt ekkert með þessa vitneskju. Ráðherrar og alþingismenn styðja sérhagsmuni, af því að þeir em öflugir og samstæðir og leggja sumir mikið fé í kosningasjóði. Ráðherrar og alþingismenn hafna al- mannahagsmunum, af því að þeir eru lágværir og sundraðir og fjármagna ekki kosningabaráttu. Ef kjósendur tækju ábyrgð á gerðum sínum og veldu sér umboðsmenn 1 stjórnmálum eftir hagsmunum sínum sem skattgreiðendur og neytendur, sem um leið eru almanna- hagsmunir, mundu stjómmálamenn ekki voga sér að taka sérhagsmuni fram yfir almannahagsmuni. Svo blindir em kjósendur á eigin hagsmuni, að fæstir þeirra styðja Neytendasamtökin með aðild sinni, og svo starblindir eru þeir á eigin hagsmuni, að ekkert Skatt- greiðendafélag er til, svo vitað sé. Stjómmálamenn horfa á þetta sinnuleysi og haga sér auðvitað eftir því. Stjórnmálamönnum er ekki hafnað í skoðanakönnun- um og prófkjöri innan flokka, þótt þeir hafi það á sam- vizkunni að hafa tekið sérhagsmuni fram yfir almanna- hagsmuni. Stjórnmálaflokkum er ekki hafnað í kosning- um, þótt þeir hafi lagt lóð sitt allt á sömu vogarskál. Því ættu kjósendur ekki að kvarta og kveina, þótt land- búnaðarráðherra, aðrir ráðherrar, allir þingmenn stjóm- arflokkanna og nokkrir þingmenn stjórnarandstöðunnar hækki matarverð með ofurtollum. Kjósendur ættu heldur að sparka þessum umboðsmönnum sínum úr starfi. Meðan kjósendur neita að gæta hagsmuna sinna sem neytendur og skattgreiðendur er engin von til þess, að stuðningi við þrönga sérhagsmuni linni í pólitíkinni. Jónas Kristjánsson + ________________________________________FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001_FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 I>V Þarf að stofna kúaathvarf? Guöbctgur Bergsson rithöfundur Ég verð að segja, að mér liggur við að segja, að ég þurfi að segja, þótt ég segi það ekki fyrr en núna, og þá tek ég auðvitað strax aftur það sem ég segi (það er háttur sannra íslendinga), að mér finnst landbúnað- arráðherrann hafa verið upp á síðkastið það sem er kallað í mæltu máli - ekki ljóð- máli - of tuddalegur í augunum. ....... ..... Þetta gekk svo langt á dögunum í útsendingu sjónvarps á því sem var kallað á fréttamannamáli fegurðar- samkeppni kúa að kona á Njálsgöt- unni varð hrædd um að hann væri að verða kúaníðingur af því hann faðmaði belju svo ákaft að sér. Henni fannst of langt gengið og líklega þyrfti hann að láta fötin í hreinsun svo konan fyndi ekki þá frumstæðu lykt sem fylgir þessu. Ég reyndi að róa hana og sagði þetta vera venjuleg héralæti því karl- menn kunni ekki að vera það sem er kallað eðlilegir í tilfinningamálum og að augu geti þanist án þess að eitthvað ljótt sé á bak við það. Andans menn í stjórnmálum Ráðherrann hefur reyndar aldrei verið sérlega blíður til augnanna, heldur spenntur og oft undarlegur i tali, eins og þegar hann varði stefnu sína í agúrkumálinu og sagði að ís- lendingar hefðu verið fagrir frá fyrstu tíð - hvað veit hann um það? - einkum konur, þótt — ekki höfum við alltaf étið grænmeti. Hann sagði þetta til að verja háa tolla og gaf þannig í skyn að engin þörf væri á grænmeti fyrir fegurð okkar, og síst ódýru. Á að skilja þetta þannig að einkum konur verði fagrar á engu grænmeti eða rándýru? - Við eigum mikla and- ans menn í stjórnmálum því hugs- un þeirra nálgast flórinn fremur en æöri svið. Einhverra hluta vegna gekk landbúnaðarráðherrann ekki svo langt í rökum sínum að hann héldi því fram að best væri að við ætum „Svo ég spyr hina lœrðu sem standa að Kúavinafélagi Islands og hafa komið fram með hugmynd um kúaathvarf vegna þess sem gerist daglega á dónarásunum á Netinu: - Er virkilega enn verið að setja hér á landi samasemmerki á milli kúa og kvenna?“ skóbæturnar undan skónum okk- ar eins og ömmur, fræðimenn, skáld og vinstrisinnar sögðu fyrir ekki löngu í hugsjónavímu og upphafningunni á ævintýrum fá- tæktarinnar að gert hafi verið á hetjuöldunum þjóðarinnar. Kýr og konur? Ráðherrann hefur haft hemil á rökunum vegna þess að kannski hefði hann annars komist að þeirri niðurstöðu að ef konur fengju ókeypis grænmeti eins og kýrnar gras yrðu þær of fagrar fyrir bragðið? í fréttinni af fegurðarsam- keppni kúnna og sýningu á kossaflensi ráðherrans kom fram að einhver á bak við hana hafi áður staðið að fegurðarsam- keppni kvenna. Svo ég spyr hina lærðu sem standa að Kúavinafélagi íslands og hafa komið fram með hug- mynd um kúaathvarf vegna þess sem gerist daglega á dónarásun- um á Netinu: - Er virkilega enn verið að setja hér á landi sama- semmerki á milli kúa og kvenna? Guðbergur Bergsson „Cool Reykjavík Ummæli Reykjavík er búin að vera í tísku. Hvert einasta glanstímarit á íslandi hefur verið með grein um málið. Þar kemur fram að undanfarið hafi Reykjavík verið í tísku og þá sem há- borg skemmtanalífsins, ekki síst hið öfluga reykviska „næturlíf'. Enn einu sinni hefur sannast að ísland er nafli alheimsins; í þetta sinn skemmtanaheimsins. Ferðamála- frömuðir eru fljótir til og auglýsa „Cool Reykjavík", borgina sem aldrei sofi. „Partíliöiö“ Reykjavík hefur ekki verið í tísku hjá hverjum sem er. Þeir sem um málið fialla eru á einu máli um að nú sé það „partíliðið" sem hafi verið (og sé jafnvel enn) á leið hingað. Hvað er „partíliðið"? Nafnið hljómar spenn- andi. „Partíliðið“ er að sögn fróðra manna samevrópskur (en einkum breskur) hópur ungs og skemmtana- sjúks fólks sem ferðast borg úr borg í leit að mesta stuðinu. „Partíliðið" eru krossfarar nútímans, ekki vopn- að öðru en góða skapinu en likt og þeir í stöðugri leit að hasar. „Partiliðiö“ er ekki komið hingað vegna fialla og fossa. Ekki vegna handrita eða hesta. „Partíliðið" er í Armann Jakobsson íslenskufræöingur leit að hinum íslenska nú- tíma, en einkum hinu „famosa" skemmtanalífi þar sem vakað er lengur frameftir en annarstaðar. Áhugi „partíliðsins" sannar að Reykjavík er ekkert hallærislegt afdala- þorp heldur nútímaborg, eins og hinar. Það var Björk sem vakti áhuga „partíliðsins" á Reykjavik hinni köldu. Svo kom Damon og þá komu allir hinir. Að lokum þurfti Baltasar Kormákur að gera heimildarmynd um Cool Reykjavík með Damon og Victoriu Abril og sannaði þar með aö Reykjavík væri evr- ópsk nútímaborg. Burt meö gamla tímann Nú skal tekið fram að ég hef aldrei hitt „partíliðið“. Það hvarflar þó ekki að mér að það sé ekki til. Ég hef ekki heldur hitt atóm eða gen. Ég veit ekki um neinn annan sem hefur hitt „partíliðið" en það sannar ekkert nema það hversu óáhugavert fólk ég þekki. En mér finnst í raun málið ekkert snúast um það hvort „partíliöið" sé komið eða farið, spurningin er hvers vegna fiölmiðlar eru svona - ,------- .——----------------—r——-------—------—,-------——----—----- fullir af því að það hafi verið „Ahugi „partiliðsins sannar að Reykjavik er ekkert hallœnslegt hér. ísiendingar hafa aiitaf afdalaþorp heldur nútímaborg, eins og hinar. Það var Björk sem vilJaö vera heimsfrægir, vakti áhuga „partíliðsins“ á Reykjavík hinni köldu. Svo kom Sfumaldrefvertóheimsfræg Damon og þá komu allir hinir. “ -1 biðröð eftir næringunni. þjóð. Einu sinni viidum við Spurt og svarað Hvemig fer úrslitakeppni KA og Hauka um íslandsmeistaratitilinn í ham vera heimsfræg hirðskáld og á 19. öld urðum við heimsfræg fyrir „geyser" og fyrir íslendingasögurnar. í nútímanum nægir það ekki. Nú viljum við verða fræg sem poppstjömur, úr því að Björk gat það. í ís- lenskum fiölmiðlum er farið háðuglegum orðum um for- tið íslands. Hér var allt í eymd og volæði og höftum þangað til Davíð kom og bjargaði öllu. Hér var eng- inn alvöru bisness, hér var ekkert stjórnmálasiðferði. Við viljum ekki þennan tíma lengur. Nú viljum við borgarmenningu og túristarnir sem við viljum eru „partiliðið". Maðurinn í strætó Um daginn sá ég ferðalang í stræt- isvagninum. Hann var greinilega ekki í „partíliðinu". Hann var um sextugt. Hann var í ódýrum fótum og hafði greinilega reykt kamelsígarett- ur lengi. Hann virtist vera veikur, jafnvel á hinsta snúningi. Hann var afar málgefinn og kátur. Ég velti því fyrir mér hvort hann væri að nota seinustu mánuði lífs síns til að heim- sækja Reykjavík - og af hverju. Þessi maður var ekki úr „partíliðinu", og þó að það væri ennþá kalt í veðri sá ég aö Reykjavík var ekki orðin „cool“, þó að þessi maður væri kom- inn hingað. Ég sem hef aldrei séð „partiliðið" varð aö gera mér þennan mann að góöu. Einhvern veginn þótti mér það samt ekkert verra. Ármann Jakobsson ■ Græðgin er dyggð „Hvemig má það vera að menn sjái engan gróða í því að tala ís- lensku I þjóðfélagi þar sem hamingj- an mælist í hagn- aði dagsins, þar sem gróði er það eina sem skiptir máli í lífi fólks, þar sem græðgin er talin dyggð? Eða að skilja að það sé fiárfesting að hugsa og tala íslensku. Nei, en þeir skilja að það sé gróði í enskunni. Ó já.“ Bubbi Morthens á Reykjavik.com Hin nýju lífsgildi „Það er ljóst að við þurfum að fara að móta okkur ný viðhorf gagnvart starfslokum. Ýmislegt jákvætt hefur gerst í þá veru, s.s. viðbótarlífeyris- sparnaður, hlutabréfakaup almenn- ings og almenn eignamyndun. Það hlýtur að vera umhugsunarefni hvort sterk staða lífeyrissjóða og sparnaður geti ekki stutt þá breytingu að starfs- lok verði fyrr en nú svo fólk geti, með jákvæðu hugarfari, hætt störfum fyrr og helgað sig nýjum lífsgildum." Siguröur J. Sigurðsson á íslendingur.is Afstöðuleysið fyrirlitlegt „Hin breytta heimsmynd kallar á allt aðra nálgun en þá sem einkennir íslenska stjórnmálaumræðu. Liður í því er að taka mark á mótmælum fólks sem hefur áhyggjur af framtíð heimsins. Sá sem sýnir þessum mál- um afskiptaleysi er ekki hlutlaus heldur tekur afstöðu gegn miklum meirihluta mannkyns. Afstöðuleysi er fyrirlitleg hegðun vegna þess að málið snýst um líf eða dauða hundr- aða milljóna manna.“ Ágúst Einarsson á heimasíöu sinni Stefán Konráðsson framkvæmdastjóri: Reynsla Hauka vegur þyngra „Ég hef fylgst með úrslita- keppninni og þessir leikir KA gegn Aftureldingu og Hauka gegn Val eru stórkostlegur sigur fyrir handbolt- ann, enda leikirnir alveg ótrúlega spennandi. Ég hallast að því að Haukarnir taki þetta. Þeir eru íslandsmeistarar og unnu bikarkeppnina og hafa yfir gríðarlegri reynslu aö búa. KA-liðiö hefur verið alveg stórkostlegt í vetur, með Guð- jón Val Sigurðsson fremstan í ílokki. Reynsla Hauka vegur þyngra. Þetta eru hvort tveggja frábær handboltalið. En í mínum huga er KA- liðið framtíðarliðið í handboltanum." Logi Ólafsson, þjalfari FH í knattspymu: Spennuleikir með mikilli dramatík „Ég held að Haukar vinni þessa keppni 3-2 á reynslunni og að síðasti leikurinn fyrir norðan verði hreinn úrslitaleikur. Ég á von á því að þetta verði spennuleikir með mikilli dramatík, það væri auk þess ósk- andi fyrir handboltann, enda ekki vanþörf á. Mér finnst það athyglisvert ef Haukarnir verða íslandsmeistarar því þá hafa þeir verið á toppn- um alveg síðan í septembermánuði sl. Ég held að þeir hefðu unnið deildina ef þeir hefðu ekki tekið þátt í Evrópukeppninni. Guð- jón Valur Sigurðsson er frábær íþróttamaður." Valdimar Grímsson, leikmadur Vals: Heimaleikimir ráða úrslitum „Ég hef trú á því að heima- leikirnir eigi eftir að ráða úr- slitum og KA standi uppi sem íslandsmeistari eftir fimmta leikinn við Hauka. Allir leikirnir í þessari rimmu vinnast á heima- velli. Það eru meiddir menn hjá Haukum. Haukarnir þurfa að klára leik fyrir norðan, og ég efast um að það takist. Þetta eru kannski ekki liðin sem ég reiknaði með að væru að spila til úrslita en þó reiknaði ég með að sex lið kæmu til greina, þ.e. þessi tvö lið auk Vals, Aftureld- ingar, Stjörnunnar og Fram. En deildin var al- veg ótrúlega jöfn i vetur." Bjarki Sigurðsson, þjálfari Aftureldingar: Það er mikil veisla fram undan „Þetta eru mjög ólík lið. KA er að spila sína 3-3 vörn og það þarf ekki að henta Haukum illa sem eru með mjög samhæft lið. Þeir hafa verið mjög skynsamir og það sást best í undanúrslita- leiknum gegn Val. Ég held að þetta fari í fimm leiki og ég hef heyrt að Halldór Ingólfsson verði ekkert með Haukum og að Óskar Ármannsson sé tæpur, og það kann að ráða úrslitum og KA vinni og íslandsbikarinn fari norður í land. Það er engin spurning að það er mikil veisla fram undan og allir leikirnir hörkuspennandi. Undanúrslitin sýndu hvað er fram undan.“ £ KA og Haukar tryggöu sér rétt til aö leika um íslandsmeistaratitilinn í handboita í æsispennandi viöureignum í undanúrslitum. t Skoðun Paprikulýð- veldið ísland „Slæm eru hin alræmdu banana- lýðveldið en ekki hugnast mér betur þessa dagana að búa í paprikulýð- veldi á borð við ísland,“ sagði hnugg- in og hollustufikin húsmóðir á dög- unum og hristi hausinn yfir hinu óg- urlega samsæri sem virðist vera í gangi gegn neytendum og miðast einkum að því að draga sem mest úr paprikuneyslu þjóðarinnar eða í það minnsta að gera paprikuna alfarið að lúxusfæðu útvalinna auðmanna, með magn- og verndartollum marg- víslegum og ofursmásöluálagningu. íslendingar þekktu ekki grænmeti í þúsund ár eða þar um bil þó Egill Skallagrimsson hafi reyndar á sín- um tíma og óvart tuggiö sjávargræn- metið söl og varð honum til lifs, en það er nú önnur saga og í annarri bók. En þjóðin á sér sem sé engar grænmetishefðir, byggir ekki á göml- um merg í grænmetismálum og var raunar lengstum hallari undir merg og feitar sauðasiður en grænfóður sem aðeins var ætlað skepnum. Þessi skortur á tradisjónum í radísumálum er ugglaust ein helsta ástæðan fyrir þeirri borgarastyrjöld sem nú er háð í grænmetismálum þar sem enginn veit hver annars gúrku hlýtur og fylkingar innfluttra og innlendra tómata takast á með til- tækum vopnum, grænar paprikur berja á gulum og enginn botnar neitt í neinu og allra síst neytendur. Enginn saklaus Vísir álitsgjafar og talsmenn tálg- aðra grænmetisfíkla hafa að undan- förnu reynt að skoða og skilgreina ástandið í stóra grænmetisstriðinu. Þannig segir Össur Skarphéðinsson að neytendur þurfi að sæta árásum úr þremur áttum: Frá landbúnaðar- ráðuneytinu undir forystu belju- kyssandi ráðherrans; frá heildsölun- um með sinum óhuggulegu samráðs- aðgerðum og frá stóru smásölukeöj- unum með sina fákeppni sem stapp- ar nærri einokun. Jóhannes Neytenda hvetur menn til að koma sér niður á jörðina þannig að þjóðin geti farið að borða grænmeti. Og talsmaður Samtaka verslunar og þjónustu viðurkennir að í sjálfu sér sé enginn sem að græ- metismálunum komi saklaus af því óviðunandi ástandi sem ríkir. í raun virðast allir málsaðilar sammála um grundvallaratriðin i grænmetismálum þjóðarinnar. Allir telja nefnilega grænmeti hollt og því sé nauðsynlegt að tryggja sem almennasta neyslu þess og þar með við- unandi verð. Og þarna stendur auðvitað hnífurinn |n( í kúnni því þegar íslending- ar eru sammála um eitt- hvað þá fyrst verða vanda- málin óviðráðanleg eins og dæmin sanna. Frelsi til samráðs Þetta séríslenska lögmál þekkja menn best úr kjara- samningum. Þar eru allir málsaðilar ævinlega sammála um að meginmarkmiðið sé að hækka lægstu launin mest og menn berjast um á hæl og hnakka í fullkominni eindrægni við að ná settu marki. Það hefur hins vegar undantekningar- laust mistekist hrapallega. Þá er þorri landsmanna og sam- mála um að það sé óviðunandi að fáir einstaklingar maki krókinn af braski með meinta sameign þjóðar- innar, kvótann, en þar hefur heldur aldrei tekist að breyta neinu í þágu þjóðarvilja. Jóhannes Sigurjónsson skrifar - Sjálfsagt geta líka flestir tekið undir eftirfarandi yf- irlýsingu Samtaka um verslun og þjónustu: Mark- aðurinn snýst um neytend- ur og hlutverk verslunar- innar er að þjóna neytand- anum og veita honum val- kosti. Frjáls verslun og heilbrigð samkeppni eru forsendur þess að verslun- in geti rækt þetta hlutverk sitt. Vandamálið er bara að það virðist vera orðið lög- mál frjálsrar verslunar og „heilbrigðrar samkeppni“, að minnsta kosti á íslandi, aö þróast yfir í fákeppni og síðan einokun hinna fáu og stóru. Dæmin um slíkt eru legíó: úr útgerðinni, Qölmiðla- rekstri, matvöruversluninni, græn- metisgeiranum og nú síðast hafa Neytendasamtökin bent á bullandi samráð um verð á eggjum þar sem fáeinir risar stjórna öllu um fram- leiðslu og verð. Kannski fara fúleggin aö fljúga yfir borðin þegar sér fyrir endann á tómatakasti grænmetisstríösins. J raun virðast allir málsaðilar sammála um grundvall- aratriðin í grænmetismálum þjóðarinnar. Allir telja nefnilega grænmeti hollt og því sé nauðsynlegt að tryggja sem almennasta neyslu þess og þar með viðunandi verð. Og þama stendur auðvitað hnífurinn í kúnni...“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.