Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2001, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2001, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 I>V Tilvera Jet Li 38 ára Nýjasta slagsmálastjarn- an sem kemur úr Hong Kong kvikmyndageiranum, Jet Li, er ekki neitt ung- lamb, hann veröur 38 ára í dag. Hann kom fram á sjónarsviðið í Hong Kong upp úr 1980 en hlaut ekki frægð í hinum vestræna heimi fyrr en hann lék í Lethal Weapon 4 og Romeo Must Die. Jet Li fæddist í Peking. Hann hóf að æfa sjálfsvamaríþróttir níu ára gamail og var nokkrum sinnum heims- meistari í Wung Su. Þess má geta að þegar hann var ellefu ára gamall varö hann ung- lingameistari í Kina og fékk í verðlaun Bandaríkjaferð þar sem hann hitt Richard M. Nixon í Hvíta húsinu. Stjörnuspá Gildir fyrir föstudaginn 27. apríl Vatnsberinn f?0. ian.-18. febr.t: ■ Dagurinn verður mjög ' ánægjulegur og þú eyðir honum með fólki sem þér líður vel með. Happatölur þínar eru 4,15 og 27. Fiskarnir (19. febr.-20. mars): > Það gerist eitthvað í Idag sem kemur af stað óvenjulegri atburðarás en það er ekki víst að þú takir eftir þvi fyrr en seinna. Hrúturlnn (21. mars-19. aprílt . Þú færð kjörið tæki- Ifæri til að sýna vænt- umþykju þína í verki í dag. Einnig mætirðu góðvild frá öðrum og færð hjálp sem þú þarfnast. Nautið (20. april-20. mail: Þú gætir þurft að leið- . rétta misskilning sem kom upp alls ekki fyr- ir löngu og þér ætti að vera það létt. Happatölur þinar eru 8,19 og 23. Tvíburarnir (21. maí-21. iúní): V Næstu dagar gætu orð- X^^ið nokkuð fjölbreyti- legir og þú veist ef til vill ekki alltaf hverju þú mátt eiga von á. Kvöldið verð- ur rólegt. Krabbinn (22. iúní-22. iúih: Þú verður hklega | nokkuð óþolinmóður ' fyrri hluta dagsins og j verður að gæta þess að halda ró þinni. Notaðu kvöldið til að slappa af. Liónlð (23. iúlí- 22. áeústl: I Einhver breyting verð- ur á sambandi þinu við ákveðna mann- eskju. Haltu gagnrýni fyrir sjálfan þig þar sem fólk gæti tekið hana óþarflega nærri sér. Mevian (23. áeúst-22. sept.l: Þú gætir lent í erfið- leikum með að sann- «.færa fólk um það sem þér finnst og þú mætir einhverri andstöðu við hugmynd- ir þínar. Vogjn (23. sept.-23. okt.l: J Fyrri hluti dagsins verður óvenjulegur að einhverju leyti en r f kvöldið verður mjög rólegt og þú nærð góðu sambandi við ástvini þína. Sporðdreki (24. okt.-21. nóv.l: Sjálfstraust þitt er ekki í hámarki fyrri phluta dagsins en þú verður sjálfsöruggari og ánægðari eftir þvi sem líður á daginn. Bogamaður (22. nóv.-21. des.): .Ekki vera of opinská(r) Pvið fólk og gættu þess að sýna ókunnugum ekki tilfinningalíf þitt nema að htlu leyti. Skipuleggðu næstu daga eins fljótt og þú getur. Steingeltln (22. des.-19. ian.): Þetta er ekki dagur fyrir áhættu. Reyndu að halda þig við þá hluti sem þú þekkir. Dagurinn verður ánægjulegur með tilliti til vina og ættingja. Kiwanismenn í Ólafsvík koma færandi hendi sem fyrr: Sex ára krakkar fá gefna reiðhjólahjálma DV, ÓLAFSVÍK: Sú hefð hefur skapast að Kiwan- ismenn í Ólafsvík færa, á sumardag- inn fyrsta ár hvert, öllum börnum í SnæfeUsbæ, sem verða sex ára á ár- inu, reiðhjólahjálma og veifur. Það var mikil ánægja hjá börnunum þegar þau tóku við þessum gjöfum þeirra Kiwanismanna nú sem endranær. Það voru þau Guðbjörn Ásgeirsson Kiwanismaður og Sig- rún Ólafsdóttir frá Slysavarnadeild- inni Sumargjöf sem skýrðu fyrir börnunum hve mikla þýðingu það hefði að nota hjálmana. Einnig fór Lárus Einarsson lögreglumaður yfir nokkrar guUvægar umferðarreglur. Kiwanismenn fá til liðs við sig nokkra styrktaraðila í bæjarfélag- inu við þessa gjöf og voru það Vá- tryggingafélag íslands, Sjóvá Al- mennar, Sparisjóður Ólafsvíkur, Landsbanki íslands og Slysavarna- deU'din Sumargjöf sem komu að þessu góða máli. -PSJ DV-MYND PÉTUR S. JÓHANNSSON Góð gjöf Rétt eins og stúdentarnir, búin aö setja upp höfuöfötin, sem án efa munu vernda þau í framtíöinni. Prinsessan ver rithöfundinn Martha Lovísa, prinsessa af Nor- egi, heldur í viðtali við norskt blað uppi vömum fyrir vin sinn, rithöf- undinn Ari Behn, sem á dögunum var harðlega gagnrýndur fyrir ummæli sín í sjónvarpsþætti um fikniefni. Hún segir ummæli hans hafa verið rangtúlkuð. Margir túlkuðu ummæl- in á þann veg að Behn væri ekki mót- faUinn fikniefnaneyslu. Marta Lovísa er ekki sammála þeim sem segja að Ari Behn setji fíkniefnin í jákvætt ljós þegar hann umgengst fíkniefnaneytendur í vinnuferðum sínum í útlöndum. Sjálf kveðst prinsessan algerlega mótfaUin fíkniefnaneyslu og meira að segja hafi barið í borðið fyrir framan nána vini sína og beðið þá um að hætta. Hún tekur fram að fikniefna- neysla sé í öUum stéttum þjóðfélags- ins, einnig meðal hástéttanna. Neysl- Marta Lovísa Kærastinn þótti ræöa jákvætt um fíkniefnaneyslu í sjónvarpsþætti. an sé aUs staðar meðal ungs fólks. Prinsessan telur einmitt ástæðu tU að ræða þessi mál núna þar sem hún hefur verið á ferðalagi um S-Ameríku þar sem kókaínframleiðsla fer fram. Bæði Ari Behn, vinur prinsessunn- ar, og Mette-Marit Tjessem Hojby, unnusta Hákonar Noregsprins, hafa verið spurð að því í fjölmiðlum hvort þau neyti fíkniefna. Bæði hafa svarað því að þau hvorki vilji né þurfi að svara spurningunni. Barnsfaðir Mette-Marit var fíkniefnaneytandi og hafa Norðmenn haft áhyggjur af því að væntanleg drottning þeirra skuli hafa umgengist fíkniefnaneytendur. Jack Nicholson fékk reisupassa Kvennaflagarinn og stórleikarinn Jack Nicholson fékk reisupassann um daginn. Sú sem gaf honum hann var engin önnur en kærastan, leik- konan Lara Flynn Boyle, sem er nokkrum áratugum yngri. Bandarískir fjölmiðlar segja að Lara hafi verið búin að fá nóg af karlinum. Og nú ér hann í ástar- sorg. „Hann hefur aldrei fyrr fengið reisupassann. Venjulega er það Jack sem er fyrri til að hverfa á braut,“ segir vinur þeirra skötu- hjúanna í samtali við æsiritið Star Magazine. Annar heimildarmaður segir öðru blaði að Nicholson hafi alltaf tekið sambandið alvarlegar en Lara. Fyrirsætur á ferð og flugi Kínverskar fyrirsætur taka þátt í tiskusýningu sem kölluö er Forboöna borgin á ferö og flugi og var eitt atriöanna á kynningu á mikilli menning- arhátíö sem haldin veröur í Peking í september í haust. 35 " ,1S exxxotica www.exxx.is * V" V jt- siJi GERUM GOTT KYNLÍF BETRA! LANDSiNS MESTA ÚRVAL AF UNAÐSTÆKJUM ÁSTARLÍFSINS Barónsstíg 27 - S: 562 7400 Ball í Gúttó eftir Maju Árdal Næstu sýningar föstudagskvöld og laugardagskvöld, kl. 20.00. Leikstjóri Maja Árdal Á Akureyri og á leikferð Sniglaveislan eftir:, Ólaf Jóhann Ólafsson Leikstjórn: Sigurður Sigurjónsson. Sýningar í Loftkastalanum jLi.iiuiiianif3iuLjjiiiii.iul jjniDíriLiiiRHnÍjÍE ILEIKFÉLA6 AKURF.YRARl Miðasalan opin alla virka daga, nema mánudaga, frá kl. 13:00- 17:00 og fram að sýningu, sýningardaga. Sími 462 1400. www.leikfelag.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.