Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2001, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2001, Blaðsíða 22
30 Kvikmyndir FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 DV > ppggfp The Mexican: Eftirsótt byssa Þegar Julia Roberts og Brad Pitt fást til að leika saman í kvikmynd þá er það gulltryggt að aðsókn verður góð, hvort sem myndin fær hlýjar móttökur hjá gagnrýnendum eða ekki. The Mexican fékk ágæta kritík í Bandaríkjunum og var vinsæl um tíma en þó kannski ekki eins vinsæl og framleiðendur höfðu gert sér von- ir um, enda dýr fjárfesting að hafa Roberts og Pitt saman í mynd. í The Mexican fer Brad Pitt með hlutverk Jerrys Welbachs, smá- krimma sem stendur frammi fyrir tveimur afarkostum. Sá fyrri, sem glæpaforingi hans gaf honum, felst í að fara til Mexíkós og ná í ómetan- lega byssu, sem gengur undir heit- inu Mexíkóinn, eða hafa verra afl Sá seinni, frá kærustu hans sem Julia Roberts leikur, felst í því að hann rjúfi öll tengsl við glæpahóp- inn eöa hún slíti sambandi þeirra. Jerry metur stöðuna þannig að það sé betra að vera á lífi og rífast síðar við kærustuna og heldur yfir landa- mærin til Mexíkós. Það reynist auð- velt að finna þessa forláta byssu en að komast aftur heim er enginn leikur. Jerry kemst að því að byss- unni fylgir bölvun sem sannast áþreifanlega þegar kærasta hans er tekin í gíslingu af leigumorðingja til að tryggja að Mexíkóinn skili sér nú örugglega til glæpaforingjans. Það er James Gandolfini sem leik- ur leigumorðingjann og er þetta fyrsta stóra hlutverkið sem hann leikur í kvikmynd eftir að hafa öðl- ast frægð sem Tony Soprano, höfuð Sopranofjölskyldunnar, í samnefnd- um sjónvarpsþáttum. Þar hefur hann sýnt snilldarleik og er sá leik- ari sem fær bestu dómana í The Mexican. Leikstjóri er Gore Verbinski sem lengi var í fremstu röð leikstjóra sem gera auglýsingamyndir fyrir sjónvarp. Þegar Spielberg og félagar stofnuð Draumasmiðjuna var hann einn nokkurra óþekktra leikstjóra sem Draumasmiðjan réð og leik- stýrði hann Mouse Hunt. The Mex- ican er önnur kvikmynd hans í fullri lengd. The Mexican verður frumsýnd á morgun í Laugarásbiói, Háskólabíói og Borgarbíói, Akureyri. -HK James Gandolfini Leikur leigumoröingja sem rænir Juliu Roberts. Smákrimminn og kærastan Brad Pitt og Julie Roberts í hlutverkum sínum. The Way of the Gun: Mannrán sem stefnir í óvænta átt Atvinnuglæpamenn Ryan Phillippe og Benecio Del Toro í hlutverkum tveggja mannræningja. Parker og Longbaugh eru kald- rifjaðir atvinnuglæpamenn. Dag einn dettur þeim í hug að ræna ófrískri konu sem á stutt eftir i bamsburð og heimta lausnargjald frá verðandi föður. Á teikniborðinu hjá þeim félögum er þetta auðveld aðgerð. Annað á eftir að koma í ljós. Fyrstu aðvörunarljósin kvikna þeg- ar annar þeirra, Parker, verður hrifmn af stúlkunni. Vandamálin fara þó ekki að hlaðast upp fyrr en > komið er með lausnargjaldiö. Þá kemur í ljós að þeir sem það eiga að afhenda eru í Maflunni. Það má því nærri geta að mikið á eftir að ganga á þar til friður kemst á og segja má að eini sakleysinginn í myndinni sé hið ófædda barn sem fær þó að líta dagsins ljós áður en hamagangur- inn er úti. í hlutverkum krimmanna Park- ers og Longbaughs eru Ryan Phil- ippe, sem vann sér það til frægðar að leika eitt aðalhlutverkið i I Know What You Did Last Summer, og 4, Benecio Del Toro, sem er eftir frammistöðu sína I Trafflc og öll verðlaunin sem fylgdu í kjölfarið, sá leikari í Hollywood sem allir leik- stjórar vilja fá í sína kvikmynd. í öðrum hlutverkum eru Juliette Lewis, James Caan, Scott Wilson, Taye Diggs og Nicky Katt. Þá kem- ur Cameron Diaz fram í litlu hlut- verki. Leikstjóri og handritshöfundur er Christopher McQuarrie og er þetta fyrsta kvikmyndin sem hann leik- stýrir en meðal afreka hans ber fyrst aö telja hið snjalla handrit hans að The Usual Suspect. Fyrir það fékk hann óskarsverðlaunin eft- irsóttu. Þá má geta þess að það var einmitt i The Usual Suspect sem Benecio Del Toro vakti fyrst at- hygli. Áður en kom að The Usual Suspect hafði Christopher Mc- Quarrie skrifað eitt handrit, Public Access, og vann sú kvikmynd til æöstu verðlauna á kvikmyndahátíð- inni í Sundance árið 1993. The Way of the Gun verður frum- sýnd á morgun í Kringlubíói og Nýja bíói á Akureyri. -HK Traffic Áhrifamikil og vel gerð kvikmynd frá Steven Soderbergh þar sem í þremur sög- um, sem tengjast óbeint, er Qallað um marg- ar hliðar á eiturlyfjavandanum. Soderbergh kvikmyndaði Traffic að langmestu leyti sjálfur með myndavélina í höndunum og gefur það myndinni sterkara yfirbragð en ella, stundum minnir hún að þessu leyti á dogma-myndimar dönsku, sérstaklega Mexíkó-hlutinn. Leikarar eru upp til hópa mjög góðir þar sem fremstir meðal jafningja fara Benecio Del Toro og Michael Douglas. -HK Crouching Tiger, Hidden Dragon ★★★★ Frábær kvikmynd. Það er eins og listin hafi loksins ratað aftur heim i fjöl- leikahúsið. Maður situr í sætinu sinu og er borinn gegnum ævintýrið, undrandi og þakklátur eins og bam. En myndin er líka svolítið skrýtin. Leikaramir eru allir með sama íbyggna svipinn og bera fram textann eins og þeir séu að lesa hann af blaði. Og ör- ugglega á einhverri mállýsku sem þeim er ekki eiginleg. En við héma uppi á íslandi segjum bravó og tökum því sem hluta af æv- intýrinu. -GSE Bílly Elliot ★★★★ Billy Elliot er hefðbundin hetjusaga um dreng sem yfirvinnur bælingu samfé- lagsins og beitir ræktun hæfileika sinna til sjálfsköpunar. Þessi saga hefur verið sögð þúsund sinnum áður og er ekki annað hægt en að dást að hversu vel þessi hetjusaga er sögð í Billy Elliot. Myndin er frumraun leik- hússmannsins Stephen Daldry í bió. Hann skiiar frá sér fágaðri persónusköpun, ágengu raunsæi, áreynslulausum skipting- um milli frásagnaraðferða og einhvers kon- ar líkamlegri nálgun í dansatriðum. Jamie Bell fer glæsilega með hlutverk Billys. -GSE Thirteen Days ★★★ Það þarfþéttan frásagnarmátaog góð- ar skiptingar á milli atriða til að ná upp góðri spennu í pólitíska atburðarás sem all- ir þekkja. Þetta tekst í Thirteen Days sem er frá upphafi til enda spennandi pólitískur tryllir þar sem myndskeiðum er snilldarlega skeytt saman. Má nefna að sjónvarpsfréttum Walters Cronkite er skeytt inn í söguþráð- inn en á þessum árum var hann „Rödd Am- eríku“ og enginn efaðist um trúverðugleika hans. Spennunni er síðan viðhaldiö með at- riðum sem eru mismunandi áreiðanleg en öll trúverðug. -HK Pay tt Forward ★★★ Pay It Forward er svona „láttu þér líða vel“ ( feel good) mynd af gamla skólanum - andi Frank Capra svífur yfir vötnunum hér. Og það er ekkert nema gott um það að segja. Það er ekkert sérstaklega sennilegt að dópistinn, sem Trevor gefur að borða, gangi síðan af stað, hætti að dópa og bjargi lífi óhamingjusamrar kvensu - En (og það er stórt en) maður verður bara að halla sér aft- ur og gefa góðmennsku og náungakærleika sjens - hversu erfitt sem það er nú. Það sem reddar Pay It Forward frá því að vera til- fmningasöm della eru þrír frábærir aðalleik- arar. -SG Lalli Johns) ★★★ í myndinn fer Þorfmnur Guðnason með okkur í leiðangur um undirheima borg- arinnar og kynnir okkur á skemmtilegan máta, ekki aðeins fyrir goðsagnapersónunni Lalla Johns, heldur mörgum öðrum sem eiga sér verri skuggahliðar en Lalli. Þetta er forvitnilegur heimur þar sem allt snýst um dóp og brennivín. Þorfmnur fer samt sem áður þá skynsömu leið að sýna okkur um leið muninn á veröld Lalla og veröld sem við þekkjum. Merkileg heimildakvikmynd sem bæði skemmtir og fræðir. -HK Finding Fúrrester ★★★ Kvikmynd sem er þannig að flestum líður vel yfir henni. Hún hefur innihalds- ríka sögu þar sem uppbyggjandi vinátta er þemað, er vel leikin, gallalaus í útliti og öll tæknivinna fyrsta flokks. Hún er einnig þannig kvikmynd að það skiptir dálitlu máli í hvemig skapi maður er þegar horft er á hana. Hún er nefnilega stundum á mörkum þess að vera um of melódramatísk. Gus Van Sant, sem leikstýrði Good Will Hunting, er á heimavelli og skýst laglega fram hjá öllum gildrum og útkoman er gæðamynd sem sit- ur eftir í áhorfandanum. -HK Girlfight ★★★ Girlfight kemur með ferskan andvara inn í staðlaö umhverfi iþróttahetjumynda. Það er ekki bara að hetjan okkar er stúlka, sem telur það best fyrir hennar sálarheill að losa sig við reiðina gagnvart umhverfmu með því að slást, heldur þarf hún að berjast við fordóma gagnvart stúlkum í hnefaleik- um. Stór plús við Girlfight er Michelle Rodriguez. Þessi unga leikkona er trúverðug í hlutverki sínu, hún getur verið jafngrimm á svipinn og Mike Tyson og síðan á einu andartaki breyst í unga ráðvillta stúlku sem vill vel en er í vöm gagnvart þjóðfélaginu. -HK Almost Famous ★★★ Stemningarmynd þar sem persónum- ar verða einstaklega lifandi og eftirminnileg- ar. Rokkið, sem ætti að vera þungamiðjan í myndinni, verður bakgrunnur í kvikmynd sem er þroskasaga ungs manns. Leiksýór- inn, Cameron Crowe. fiallar á jákvæðan hátt um rokkið og ímyndina sem þungarokkið hafði á þessum árum, eitthvað sem ekki er algengt að sjáist. Upp úr góðum leikararhóp stendur Kate Hudson. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.