Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2001, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2001, Blaðsíða 12
12 Hagsýni FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 I>V Verð á gashylkjum og áfyllingum hjá oliufélögunum 4.500 4.000 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 Krónuf Hylki <•> ó> K) co .... !° « -4 H Ifi rJftl K O 1 i H !° ■ o S H M ° N !° g g 00 . o M M M ■ • ■ o o o o o o o o o 00 : ! J l»\ J L r i 1.1 1 I. 350 g 1,2 kg 2 kg 3 ,3kg 9 kg 11 kg 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 Krónur Áfylling *Fyllt er á prímuskútana á bensínstöðvum Olís og Esso og hjá Olís ergasiö selt í heilum kílóum. Því er aöeins sett 1 kg af gasi á 1,2 kg kútana og 3 kg á 3,3 kg kútana. Taka þarf miö af þessu þegar boriö er saman verö á gasáfyllingum hjá olíufélögunum. H 1 i» - § Sí H g J95Ö .401 » Hl-j. U h* H <S <0 <0 <e O -P> idsb w B w : U U H> O i.,. -4 O w » <n <n 350 g 1,2 kg 2 kg 3,3 kg 9 kg 11 kg Verðkönnun DV: Gas og kútar fyrir grill og prímusa - mikill verðmunur milli olíufélaga samkvæmt verðkönnun DV Tilboð verslana Nú er grilltíminn aö renna upp og undanfarið hefur lyktin af brenndu kjöti borist milli garða á góðviðris- dögum. Með grillinu bætist við heim- ilisreksturinn kostnaðarliður sem á mörgum heimilum er ekki til staðar á veturna, nefnilega gas. Reyndar verð- ur æ algengara að fólk kjósi eldavélar sem brenna gasi svo sumir þurfa á þessari vöru að halda allt árið. Olíu- félögin þrjú selja bæði gashylkin og áfyllingarnar, bæði fyrir eldavélarn- ar, grillin og í prímusana sem eru mikið notaðir í ferðalögum á sumrin. DV fór á stúfana nú í vikunni og kannaði verð á hylkjum og gasi hjá Esso, Olís og Skeljungi. í ljós kom að verðmunur getur verið töluverður og því getur borgað sig að fara örlitið lengra til að komast á bensínstöð frá því olíufyrirtæki sem best býður. Ekki mikill munur á grillkútum Gaskútar á útigrill eru í einni staðlaðri stærð sem tekur 9 kg af gasi og eru þeir til i tveimur mismunandi útgáfum eða hæðum. Þessi hylki kosta 2000 kr. hjá öllum olíufélögun- um en verð áfyllinganna er mismun- andi þó ekki muni miklu. Gas á 9 kg kút kostar 2620 kr. hjá Esso, 2740 kr. hjá Skeljungi og 2743 kr. hjá Olís. Munurinn á hæsta og lægsta verði er 4%. Á 11 kg kútum er munurinn heldur meiri og vegur verð hylkjanna þar mest, en þau kosta 3400 kr. hjá Esso en 4233 kr. hjá hinum olíufélögunum. Gasgrill eru til á flestum heimilum. Þau eru óspart notuö viö eldamennskuna þegar veöur ergott. Ekki kostar mikið aö reka þau en verö áfyllinga er afskaplega mismunandi hjá olíufélögunum. Þarna munar tæpum 20% á verði. Áfylling á þessa stærð er hins vegar á svipuðu verði en er dýrust hjá Skelj- ungi, þar sem hún kostar 3267 kr., en hún kostar 3135 kr. hjá Esso og 3025 kr. hjá Olís, þar sem hún var ódýrust. Misjafnar leiðir til áfyllingar Minni kútar, eða svokallaðir prímuskútar, koma í nokkrum stærð- um og gerðum. DV skoðaði verð á þremur stærðum af slíkum hylkjum og áfyllingu á þá. Hér var um að ræða 340-350 g, 1,2 kg og 3,3 kg kúta. Olíu- félögin fara ólíkar leiðir við áfyllingu þessara kúta. Skeljungur tekur þinn tóma kút og lætur þig hafa annan fullan. Hins vegar eru stærri Esso- og Olísstöðvar á landinu með búnað til að fylla á slika kúta og getur það komið sér vel þegar verið er á ferð um landið og rétti gaskúturinn er ekki til á viðkomandi bensínstöð þeg- ar skipta skal á tómum kút og fullum. Allt að 56% verðmunur Mikill verðmunur er á minnstu hylkjunum, eða yfir 30%. Þau voru einungis til hjá Skeljungi, þar sem þau kosta 1348 kr., og Olís sem selur þau á 1960 kr. Þessi mikli munur jafn- ast að einhverju leyti út þegar verð áfyllingarinnar er tekið með en hún kostar 729 kr. hjá Skeljungi en aðeins 317 kr. hjá Olís. Þó ekki fengist verð á hylki hjá Esso þá fékkst þar verð á áfyllingu og kostar hún 496 kr. Mun- urinn á hæsta og lægsta verði er því 412 kr., eða 56%. Algengustu kútarnir sem notaðir eru við prímusa taka 2 kg af gasi. Á þeim var einnig töluverður verðmun- ur. Hylkin eru ódýrust hjá Esso en þar kosta þau 2000 kr. Skeljungur sel- ur þau á 2018 kr. en Olís á 2790 kr. Munurinn þarna er 28%. Áfyllingin er einnig ódýrust hjá Esso, eða 950 kr., en hún kostar 1401 kr. hjá Olís. Þurfi maður að kaupa hylki og áfyll- ingu kostar sá pakki 1241 kr. minna hjá Esso en Olís, en það er um 30% munur. Þessi pakki kostar 3366 kr. hjá Skeljungi. -ÓSB Tilboöin gilda til 29. apríl. Eidfugi Buffaló vængir 896 kr. kg Eldfugl kjúkllnganuggetsl494 kr. kg Eldfugl hunangslæri 896 kr. kg Eldfugl kjúkl.borgar 2 stk.279 kr. kg Esso Tilboöin gilda tll 31. maí. 0 Garöáhöld, Flskars, 3 stk. 1495 kr. 0 Nóa kropp, 150 g 175 kr. Q Opal rjómatoffy, 25 g 35 kr. Q Kók í dós, Maarud m/papr. 149 kr. Q Góa prlns 45 kr. Q Merrild No. 103 359 kr. o Q Q !© Uppgrip-verslanir Olís Tilboöin gilda út apríl. 1 0 Lindu buff, 50 g 45 kr. 0 Góu prins, 50 g 35 kr. Q Agfa fílmur 690 kr. Q Freyju rískubbar 195 kr. Q Garövettlingar Sahara 385 kr. Q CB grillhrelnsir+málning o A 1285 kr. yJ Q © Select 1 Tllboöln gilda til 30. maí. 0 Sportlunsh súkkulaöi 79 kr. 0 Fílakaramellur 10 kr. Q Yankie glgant s úkkulaöi 76 kr. Q Maarud snakk, 40 g 59 kr. Q Tomma og Jenna safar, 1/4 1 36 kr. Q Pinquln hlt mlx hlaup 179 kr. 0 Sun Lolly klakar, 10 stk. 199 kr. Q Sólkjarna og Sveltabrauö 189 kr. Q Grill og ofnhrelnsir 539 kr. 0 Hreinsibursti fyrir grlll 539 kr. Tilboöin gilda til 29. apríl Goöa gourmet ofnstelk 998 kg. Goöa gourmet ofns. koníak. 998 kg. Goöa gourmet ofnst. hun. 998 kg. Goöa gourmet ofnst. dijon 998 kg. Kelloggs Special K, 500 g 299 pk. UN hakk 8-12% fíta, kjötb. 699 kg. Myllu heimillsbrauö 770 gr. 149 pk. Tllboöin gilda til 2. maí 0 KEA ofnst. m/frönsk. blæ 998 kg Q KEA ofnst. m/rauövíns blæ 998 kg. 0 KEA ofnst. m/ítölskum blæ Q 99Naggar kjötbollur, 350 g 229 kr. 0 Naggar gordon bleu, 290 g 299 kr. Q Bayonnesklnka 898 kg. 0 Rauövínslærí 898 kg. Q Rauövínsl. sv. kótelettur 998 kg. Q KEA skyr, 200 g, 7 bragöteg. 69 kr. Q KEA skyr 500 g, 7 bragöteg. 179 kr. Fjarðarkaup Tilboöin gilda til 28. apríl \ 0 Bratwurst pylsur 499 kr. 0 Kartöflusalat 350 gr. 99 kr. Q Úrb. hamborgarahryggur, Ali 990 kr. Q Baconhleifur 479 kr. A V o A U © © Smáauglýsingar DV visir.is Flísalagt borð Ef borðplatan er orðin illa farin og óásjáleg má flísaleggja hana. Það er í tísku núna eins og sjá má I hús- búnaðarblöðum. Framkvæmdin er ekki mjög flókin: Takið nákvæmt mál af plötunni og kaupið leirflísar að stærð og lögun sem hentar og „gengur upp“ á borðplötunni. Mósaíkflísar hafa verið vinsælar undanfarið og þær má t.d. nota I miðju borðsins tii skrauts og til að auðvelda lausn á dæminu. Munið eftir bilinu milli flísanna þegar út- reikningar eru gerðir. Síöan eru flísarnar límdar á borð- plötuna og fúgurnar fylltar. Að lok- um er listi úr málmi eða góðum viði skrúfaður á borðbrúnina og er þá kominn nýr rammi á borðið. Leir- flisarnar þola flest og því þarf ekki að óttast glasaför eða aðrar slíkar skemmdir auk þess sem hreinsun verður auðveld og þægileg. Geymsla á grænmeti Ýmsar grænmetistegundir fara illa saman í geymslu því sumar gefa frá sér etýlen sem rýrir geymsluþol annarra. Má t.d. nefna tómata og gúrkur í þessu sambandi. Epli, per- ur, tómatar og plómur eru örlátast- ar á etýlen og má þvi ekki geyma þessa ávexti með gúrkum, salati, blómkáli, dilli og steinselju sem þola illa etýlen. Þá visnar grænmet- ið og spillist. Það þarf að búa um hverja tegund fyrir sig í plastpoka eða öðrum loft- þéttum umbúðum áður en þær eru látnar í kæliskáp. Rannsóknir sýna að rótarávextir, kál og blaðjurtir geymast best við 5"C en tómatar við 8-12‘C. Kaldur kjallari eða svala- skápur henta þessu grænmeti betur en kæliskápur. Aukatrekt Ef þig vantar aukatrekt vegna tómstundaiðju er ráð að skera stút af plastbrúsa og nota hann. Hinn hluta brúsans má nota undir eitt og annað, t.d. skrúfur eða nagla. Nýttu skápinn Auðvelt er að festa tvær glugga- tjaldastangir eða gorm innan á skáphurð og hengja þar eitt og ann- að sem oft týnist í skápnum, svo sem belti, bindi og klúta. Laus skrúfa Festa má skrúfu í of víðu gati með ýmsu móti, t.d. setja í það tré- tappa eða fylia það á einhvern hátt. Auðveldast er þó að klippa neðri hlutann af sams konar skrúfu og nota í gatið og oddurinn látinn snúa upp. Verður þá hægðarleikur að fá gott hald fyrir skrúfuna. Skógeymsla Ef sett er stöng á botninn í klæða- skápnum, nokkru aftar en sláin sem fótin eru hengd á, er fengin prýðileg skóstæða. Rúnit þarf að vera um hæla milii stangar og baks. Best er að nota ferstrendan lista því flatir hælar renna hæglega fram af sívölu kefli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.