Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2001, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2001
Fréttir ' DV
Vélstjórar geröu í nótt kjarasamning til ársins 2004:
48 prósenta hækk-
un kauptryggingar
- veit ekki hver er svikari, sagði Helgi Laxdal í morgun og aflýsir verkfalli
Vélstjórafélag íslannds gerði
kjarasamning eldsnemma í morgun
eftir þriggja sólarhringa samninga-
lotu án aðildar hinna sjómannasam-
takanna. „Ég er ánægður með
samninginn. Við munum nú ganga
til þess að aflýsa verkfalli," sagði
Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafé-
lags íslands, í samtali við DV en
verkfall sjómanna hefur nú staðið í
mánuð.
Vélstjórar sömdu um 48 prósenta
hækkun á kauptryggingu og tíma-
kaupi á samningstlmanum. Þar af
hækka umræddir liðir um 30 pró-
sent strax. Tekið er í samningnum á
hinu svoklallaða kvótabraski sem
snýst um að áhafnir taka þátt í
kvótakaupum útgerða. Ákvæði er
um að allar útgerðir sem ekki selja
fisk um markað greiði flskverð sem
taki að hluta mið af verði á fisk-
mörkuðum og að hluta af beinni
sölu. „Með þessu teljum við okkur
koma i veg fyrir kvótabraskið,"
sagði Helgi Laxdal í morgun. Hann
telur að með þessu hækki verð á
þorski um 20
prósent.
Þá sömdu vél-
stjórar um stór-
hækkaða slysa-
og dánartrygg-
ingu sjómanna.
Þar eru þau ný-
mæli að iðgjöld
eru að hluta
dregin af óskipt-
um afla. Smán-
arbætur til sjó-
manna hafa
lengi verið gagn-
rýndar og telur
Helgi að með
þessu sé stigið
stórt skref í átt
til leiðréttingar.
Vélstjórarnir sömdu um greiðslu líf-
eyris í séreignasjóð. Þær greiðslur
taka þó ekki mið af öllum launum
heldur kauptryggingu.
Útgerðarmenn fengu í samningn-
um fram margra ára báráttumál
varðandi mönnun skipa. Fækkun
Ánægöur formaöur
Helgi Laxdal var í morgun þreyttur eftir
þriggja sólarhringa samningatörn. Hann
telur samtök sín hafa gert góöan samn-
ing og hefur ekki áhyggjur af öörum sjó-
mannaleiðtogum.
manna um
borð hefur
fram að þessu
leitt til hærri
launakostnaðar
vegna hluta-
skiptakerfisins.
Um það var
samnið að
fækkun manna
vegna tækni-
framfara leiddi
aldrei til hærri
launakostnað-
ar. Launakostn-
aður yrði aldrei
meiri en var
fyrir hækkun.
Þetta telja út-
gerðarmenn
mjög mikilvægt atriði.
Þegar spurðist út í gær að vél-
stjórar væru hugsanlega að semja
brugðust nokkrir leiðtogar annarra
sjómanna illa við og vélstjórar
voru sakaðir um svik við sameigin-
lega baráttu sjómanna. Helgi sagð-
ist ekki hafa áhyggjur af slíkum
röddum. Mönnum væri nær að líta
í eigin barm.
„Ég get ekki skilið að sá sem ger-
ir kjarasamning á þremur sólar-
hringum sé kallaður svikari. Ég er
í því ljósi sæll með þá nafngift.
Nær væri að líta til þeirra sem vik-
um saman hafa setið við samninga-
borð án þess að ná svo mikið sem
einum stafkrók á blað,“ sagði
Helgi.
í morgun var Grétari Mar Jóns-
syni, forseta Farmanna- og fiski-
mannasambands Islands, og Sæv-
ari Gunnarssyni, forseta Sjó-
mannasambandsins, boðið að vera
viðstaddir lokafrágang á samningi
vélstjóranna. Grétar Mar þáði boð-
ið en Sævar mætti ekki.
Helgi vildi engu spá um það
hvort aðrir myndu nú semja. Hann
taldi að milli sín og annarra leið-
toga myndi gróa fljótlega um heilt.
„Þetta er svona eins og flensa sem
líður hjá á einhverjum dögum,“
segir Helgi. -rt
700 milljónir
til aldraðra
og öryrkja
- á þessu ári
Samkvæmt tillögum starfshóps
forsætisráðherra, sem var undir for-
sæti Ólafs Davíðssonar ráðuneytis-
stjóra við að endurskoða almanna-
tryggingalögin og átti að gera tillögur
um að bæta kjör verst settu trygg-
ingaþega í landinu, á að auka útgjöld
til tryggingamála um 700 milljónir á
þessu ári og um 1350 milljónir ef mið-
að væri við heilt ár. Tillögurnar
koma í kjölfar umræðu og yfirlýs-
inga i öryrkjamálinu svokallaða. Rík-
isstjómin hefur gert tillögurnar að
sínum og verður frumvarp um breyt-
ingarnar lagt fram á þingi og stefnt
er að því að það fari í gegn fyrir vor-
ið.
Samkvæmt tillögunum hækkar
sérstök heimilisuppbót, sem nú mun
heita tekjutryggingarauki, úr 7.409
krónum í 14.062. Hjón fá rétt til tekju-
tryggingarauka upp á 10.548 hvort.
Skerðing tekjutryggingaraukans
minnkar niður í 67% en hann er nú
100%. Svonefnt frítekjumark tekju-
tryggingar ellilífeyrisþega hækkar úr
22.380 í 32.512 og grunnlífeyrir hjóna
hækkar þannig að hann veröur sá
sami og hjá einhleypingi.
Með breytingunum hækkar lág-
marks-tekjugólf bæöi hjá ellilífeyris-
þegum og örorkulifeyrisþegum
þannig að lágmark einhleyps ellilíf-
eyrisþega verður hækkað i 79.312 úr
72.659 og einhleyps örorkulífeyris-
þega úr 73.546 í 80.200. Reikna má
með að bætur allt að 24.000 bótaþega
muni hækka með þessum aðgerðum.
Mikilvægt skref
Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra,
sem kynnti þessar
breytingar í gær
ásamt forsætisráð-
herra, segir brýnt að
ná fram þessari leið-
réttingu strax. Hann
segist þó vita að
þessi aðgerð muni
ekki binda enda á
kjarabaráttu ellilíf-
eyrisþega og öryrkja, en hún sé engu
að síður mjög mikilvægt skref fyrir
þessa hópa. -BG
Reiður hundaræktandi
Marta ætlar aö kæra yfirdýralækni og landbúnaðarráöuneytiö fyrir brot á lögum.
Rottweilertíkin á einangrunarstöðinni í Hrísey:
Hvolparnir aflífaðir
- og þeim eytt - eigandinn kærir landbúnaðarráðuneytið
Eigandi Rottweiler-
tíkar, sem verið hefur
í einangrunarstöðinni
í Hrísey undanfarnar
8 vikur, ætlar að
kæra yfirdýralækni
og landbúnaðarrráðu-
neytið. Tíkin var flutt
hvolpafuU til lands-
ins. Hún gaut í fyrr-
inótt og aflifaði dýra-
læknir þá tvo hvolpa sem lifðu. Þrír til
viðbótar voru dauðfæddir. Öllum hvolp-
unum hefúr verið eytt.
Marta Gylfadóttir, hundaræktandi og
eigandi Rottweilertikarinnar Xöntju,
sagðist ekki hafa vitað að tíkin væri
hvolpafull þegar hún kom til landsins.
Fyrir tveimur vikum hefði komið upp
grunur um að svo væri. Hún hefði ekki
veriö látin vita eftir formlegum leiðum.
Marta sagði enn fremur að lögmaður
sinn hefði kallað eftir gögnum frá Hrís-
ey, m.a. niðurstöðum sýna úr hvolpun-
um, hvort þeir hefðu verið heilbrigðir
eða ekki.
„Ég ætla að kæra landbúnaðarráðu-
í einangrun
Þetta er Rottweilertíkin Xantja Van
Het Dornedal sem Marta Gylfadóttir
hjá hundaræktarbúinu Silfurskugg-
um bíöur nú eftir að fá úr einangrun.
neytið og yfirdýralækni fyrir þennan
verknaö og fyrir brot á lögurn," sagði
Marta. „Þetta eru hefndaraðgerðir i
framhaldi af því að ég kærði ráðuneytið
í október sl. þegar ég fékk Dobermann-
hund úr einangrun sem var gangandi
beinagrind.“
„Það er ömurlegt að þurfa að vaka
yflr hvolpunum og sjá á eftir þeim,“
sagði Stefán Bjömsson, forstöðumaður
einangmnarstöðvarinnar, við DV í gær.
„Ég er hálfdoflnn eftir þetta.“
Stefán sagði þetta í annað skipti sem
hvolpafull tík kæmi í einangrunarstöð-
ina. Fyrra atvikið hefði átt sér stað áður
en lögum um innflutning dýra var
breytt. Nú væri skýrt kveðið á um þetta
atriði. Tilskipun um að aflífa hvolpana
hefði komið úr landbúnaðarráðuneyt-
inu og um það væri ekkert að segja.
Halldór Runólfsson yflrdýralæknir
sagði að tilskipunin um að aflífa
hvolpana heíði verið gefln af sóttvamar-
ástæðum og á grundvelli laga um inn-
flutning dýra. Þar segði að dýrum sem
flutt væm inn án heimildar skyldi tafar-
laust lógað og skrokkum eytt svo eigi
stafaði hætta af. Þá kæmi skýrt fram í
skilyröum sem Marta hefði undirritað
þegar hún hefði sótt um innflutnings-
leyfi til ráöuneytisins að óheimilt væri
að flytja inn hvolpafullar tíkur og bæri
eigandi alla ábyrgð væri það gert. „Við
vitum ekkert um fóðurinn og af honum
hefðu hvolparnir getað verið sýktir, þótt
tíkin hafi farið í gegnum það ferli sem
krafist er við innflutning dýra,“ sagði
Halldór. „Hún kom frá Belgíu og þar em
hundasjúkdómar til staðar."
-JSS
imrai
Endurupptaka Geirfinnsmáls
Ragnar Aðalsteins-
son hæstaréttarlög-
maður ætlar að óska
eftir því að Guð-
mundar- og Geir-
flnnsmál verði rann-
sökuð í heild sinni
vegna nýrrar laga-
breytingar um að
dómsmálaráðherra geti fyrirskipað
slika rannsókn. - RÚV greindi frá.
Grænt Ijós á Norðurál ,
Áhersla er nú lögð á það í ríkis-
stjórn að greiða fyrir samningum um
stækkun Norðuráls á Grundartanga.
„Það er góður gangur í viðræðum um
þessar mundir," sagði Ragnar Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri flár-
mála hjá Norðuráli. - Fréttablaðið
greindi frá.
Krónan styrkist
Staða krónunnar batnaði vemlega í
dag þegar gengi hennar hækkaði um
2,5% og hefur gengið styrkst um 3,8%
frá því það var lægst fyrir réttri viku.
Sérstaklega styrktist staðan gagnvart
bandaríska dollaranum, eða um 3,5%
og kostar hann nú 97,6 krónur.
Þristurinn til Danmerkur
Danskur klúbbur sem hefur það á
stefnuskrá sinni að varðveita DC-3
flugvélar hefur óskað eftir að fá Land-
græðsluvélina Pál Sveinsson á sýningu
í Hróarskeldu í sumar ásamt öðrum
slíkum flughæfum vélum á Norður-
löndum.
Ný fátækralög
Forystumenn aldraða og öryrkja em
lítt hrifnir af áformuðum breytingum
á lögum um almannatryggingar sem
ríkisstjórnin hefur kynnt. Benedikt
Davíðsson, formaður Landssambands
eldri borgara, segir að ríkisstjómin sé
með þessu að búa til ný fátækralög.
40 hús rifin
Ráðgert er að rifa um 40 hús vegna
uppbyggingar á svæði sem afmarkast
af Skúlagötu, Klapparstíg, Frakkastíg
og Hverflsgötu á næsta ári. Árni Þór
Sigurðsson, formaður skipulagsnefnd-
ar, segir þetta hafa verið kynnt íbúum
á svæöinu.
Níu milljónir í varnir
Guðni Ágústsson
kynnti í ríkisstjóm í
gær aðgerðir yfir-
dýralæknis í vömum
gegn gin- og klaufa-
veiki. Embættið hef-
ur þegar fengið 3
milljónir til verkefn-
isins sem ráðherra
gerði grein fyrir og kynnti veitingu á 6
milljóna króna viðbótarstyrk við verk-
efnið.
Haldið til haga
I mánudagsblaði DV var Halldór
Bjömsson rangtitlaður formaður stétt-
arfélagsins Eflingar. Réttara er að
hann gegnir stöðu varaforseta Alþýðu-
sambands íslands. Hann er hins vegar
fyrrverandi formaður félagsins.
Ekki Samskip
í viðtali við Svavar Gestsson sendi-
herra í blaðinu í gær, þar sem sat var
frá missi búslóðar hans á hafl úti, stóð
að í hlut hefði átt eitt af skipum Sam-
skipa. Þetta er ekki rétt; skipið var á
vegum Atlantsskipa. Sendiherrann
stóð í þeirri trú að búslóð hans hefði
verið flutt með Samskipum og því varð
fyrrgreind villa.
-HKr.