Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2001, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2001, Blaðsíða 5
HPS8 f- 5 MIDVIKUDAGUR 9. MAÍ 2001_____________________________________________________ DV Fréttir Atgervisflótti úr Reykjavík til Hafnarfjarðar: Fýrrum fræðslu- stjóri segir upp - gengur til liðs við Áslandsskóla ásamt fyrrum formanni fræðsluráðs Áslaug Brynjólfsdóttir, fræöslu- stjóri í Reykjavík til 14 ára og nú umboðsmaður foreldra og skóla hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, hefur sagt upp störfum og hyggst ganga til liðs við þann flokk skólamanna sem er að hasla sér völl í nýjum og eina- kreknum Áslandsskóla i Hafnar- firði. Áslaug mun fylla flokk þekkts skólafólks úr Reykjavík sem hefur boðað til kynningarfundar um fram- tíðarsýn í Áslandsskóla sem haldin verður í Hafnarborg í Hafnarfirði næstkomandi mánudag. Þar munu sitja við pallborð og svara spurning- um hafnflrskra foreldra auk Áslaug- ar, Árni Sigfússon, fyrrum formað- ur fræðsluráðs Reykjavíkur, Herdís Egilsdóttir kennari, Jónína Bjart- marz alþingismaður, Andri ísaks- son prófessor, Jón Baldvin Hannes- son, þekktur skólamaður að vestan, og Guðrún Pétursdóttir, fyrrum for- setaframbjóðandi. Eins og fram hefur komið í frétt- um DV er mikil ásókn í skólavist í Áslandsskóla og munu færri komast að en vilja. Skólinn verður einka- rekinn af íslensku menntasamtök- unum sem ætla inn á nýjar brautir í kennslu og skólahaldi. Skólastjóri hefur þegar verið ráðinn en það er Kristrún Birgisdóttir sem nú stýrir skólahaldi á Flateyri. -EIR Aslaug Brynjólfsdóttir. lil i _ itl Arni Sigfússon. Egilsdóttir. Sýslumaöur sýknaður: Lögreglumenn verða að sanna skemmdaraðgerðir Skemmdir unnar á bensínstöó Gerð var atlaga að bensínstöð Essó við Stóragerði í fyrrinótt og meðal annars vafið gaddavír utan um dælu. Þá var yfirlýsingu úðað á gangstétt og geymslukistu þess efn- is að lækka beri bensínverð. Tjón nú er óverulegt en fyrir tveimur dögum voru skemmdir unnar á sömu bensínstöð og dælu- haus stolið. Fullyrða má að gjörningurinn hafi misst marks enda eingöngu um óþægindi starfsmanna að ræða. Málið er hjá lögreglu en ekki er vit- að hverjir stóðu að verki. -jtr Núgildandi lög gera ráð fyrir að lögreglumenn sem verða fyrir skemmdum á eignum sínum í tengsl- um við starf sitt verði að sanna hver vann tjónið ef þeir eiga að fá bætur greiddar. Þetta er niðurstaða Héraðs- dóms Reykjavíkur í máli Daníels Snorrasonar, yfirmanns rannsókna- deildar lögreglunnar á Akureyri, gegn sýslumannsembættinu þar í bæ. I dómsmálinu krafðist lögreglumað- urinn 128 þúsund króna bóta fyrir tjón sem varð þegar einkabíll hans var tvisvar rispaður - í annað skiptið eftir endilangri hlið þar sem hann stóð á sérmerktu bílastæði lögregl- unnar á Akureyri. Daniel taldi ljóst að um hefndaraðgerðir væri að ræða af hálfu aðila í ííkniefnaheiminum sem hann hafði rannsakað á því tíma- bili sem skemmdirnar voru unnar. Héraðsdómur segir að þrátt fyrir að 30. grein lögreglulaga kveði á um að ríkið skuli bæta lögreglumönnum lík- ams- og eignatjón sem þeir verða fyr- ir í starfi verði engu að síður að vera hægt að sýna fram á hver vann tjónið. -Ótt Frjósöm ær í Álftaveri: lömb á hálfu ári DV-MYND SIGURÐUR K. HJÁLMARSSON. Fijósemi Fjögur lömb á Herjólfsstööum í gær - fimmtán lömb á fjórum árum. PV, VlK: Fjögurra vetra ær á bænum Herj- ólfsstöðum í Álftaveri bar í gær fjór- um fallegum lömbum. Ekki er það óal- gengt að ein og ein ær eignist íjögur lömb en það sem er óvenjulegt með þessa á er að hún bar þrem lömbum þann 10. september í haust. Ærin fæddist 1997 og vorið eftir eignaðist hún tvö lömb og vorið 1999 bar hún fjórum lömbum en veturinn 2000 lét hún tveim lömbum og var hún þá stutt gengin með. Svo var það við afréttissmölun þann 10. september í haust að gangnamenn fundu hana ný- borna þrem lömbum en eitt þeirra var þá dautt. Gissur Jóhannesson, bóndi á Herj- ólfsstöðum, segir þessa á af afskaplega frjósömum stofni og sagði hann sem dæmi að vorið 1999 heíði hann verið með þær nýbornar samtímis í íjárhús- unum, þessa á, systur hennar og móð- ur þeirra og samtals hefðu þær verið með 11 lömb. -SKH Allt frálj i; á tilboði hjá Rekstrarvörum Austursíðu 2 • 603 Akureyri Sími 464 9000 • Fax 464 9009 Netfang asgeiri@sjofn.is Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík • Slmi 520 6666 Bréfasfmi 520 6665 • sala@rv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.