Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2001, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2001, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2001 13 S>~y________________________________________________________________________________________________________________ Menning Umsjón: Sitja Aðalsteinsdóttir Kvikmyndahandritahöfundur skrifar bók um leiðangur Vilhjálms Stefánssonar: Skúrkur eða hetja? „Hvorki hryllingur vesturvígstöðvanna, hel- víti Ypres né öll leðjan í Flanders ... gat þurrk- að út minningarnar um árið á norðurskaut- inu,“ skrifar William Laird McKinley i bók sinni Karluk (1976, á ísl. 1977), og hann kennir Vilhjálmi Stefánssyni landkönnuði um þá hræðilegu reynslu. Hann telur að Vilhjálmur hafi skilið skipið eftir í ísnum til að sannreyna kenningar sínar um ísrek. í nýrri bók eftir Jennifer Niven, The Icemaster, sem Macmillan- forlagið i Englandi gefur út, rekur höfundur sögu þessa heimskautaleiðangurs og tekur und- ir álit McKinleys um Vilhjálm. Gagnrýnanda Times Literary Supplement, Lawrence Millman, finnst Jennifer Niven gera Vilhjálm ótrúlega einhliða sjálfselskt skrímsli, ekki síst vegna þess að hún „hirðir ekkert um þá stað- reynd að hann var að líkindum fremsti heims- skautafari 20. aldar og mikilvægur mannfræð- ingur.“ Hetjan í The Icemaster er hins vegar Robert Bartlett, skipstjóri á Karluk. Umrædd ferð var farin árið 1913 og var til- gangurinn að kanna óþekkt svæði Norður- Kanada, jafnvel finna óþekkt meginland undir ísnum. Aðalskip leiðangursmanna var hval- veiðibáturinn Karluk sem Vilhjálmur hafði fengið fyrir slikk og bætti lítið úr skák hve Bartlett skipstjóri var vanur maður. Karluk festist i ís út af Point Barrow í Alaska og Vil- hjálmur fór á veiðar. Nokkrum dögum seinna bar stormur skipið burt og Vilhjálmur gaf það upp á bátinn (í bókstaflegum skilningi). Karluk rak langt í vestur uns það sökk og áhöfnin varð aö bjargast sem best hún gat á ísnum undir leiðsögn skipstjórans í níu langa mánuði. Þá miklu og ævintýralegu sögu rekur Jennifer Niven í bók sinni og notar einkum bók McKin- leys sem heimild. Vilhjálm vantar Jónas Gunnar Allansson, sérfræðingur hjá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar á Akureyri, segist einmitt hafa kynnst Vilhjálmi gegnum bók McKinleys og ekki fengið mikið álit á hon- um. „En það sem vantar i bók Niven er að hún leiti heimilda hjá Vilhjálmi sjálfum og öðrum sem líka yfirgáfu skipið og sögðu sína sögu um Vilhjálmur Stefánsson landkönnuöur VerOur gerö kvikmynd eftir nýrri bók þar sem hann veröur skúrkurinn? þessa ferð. Þar kemur fram að Vilhjálmur fór frá borði með hóp manna með sér til að ná í ferskmeti og ætlaði sér aldrei að yflrgefa skip- ið. Þeir reyndu ítrekað að komast um borð i Karluk aftur; aðstæðurnar tóku bara yfirhönd- ina eins og iðulega gerist á þessum slóðum. En eðlilega leituðu þeir sem verst fóru út úr þessu að blóraböggli og Vilhjálmur lá vel við höggi hjá þeim sem leyfðu hatrinu að ná tökum á sér. Jennifer Niven hefur fram að þessari bók ein- göngu skrifað kvikmyndahandrit og mér sýnist sá still vera á þessari bók. Mér skilst líka að í undirbúningi sé kvikmynd um þessa atburði og hún gæti orðið æði spennandi - þar sem hetj- urnar og andhetjurnar takast á!“ Vilhjálmur átti bæði andstæðinga og öfund- armenn í Bandaríkjunum og var m.a. kallaður fyrir McCarthy-nefndina, sakaður um komm- únisma. „Hann var í rauninni settur á ís vegna þess,“ segir Jónas. „Maður sér á dagbókum hans að hann gagnrýnir neysluhyggju og ræðst kannski á kviku þeirra hugmynda að aukin vel- megun leiði til meiri hamingju. Það þótti kommúnismi á þeim tíma að efast um slíkt. Al- fræðibók norðurslóða, verkefni upp á milljónir dala, var líka sett á ís út af þessu og hefur aldrei komið út. Nú er verið að gæla við þá hug- mynd að koma verkinu út því gríðarleg vinna liggur í handritinu og mikið vísindasögulegt gildi. Handritið er geymt í Dartmouth-háskóla i New Hampshire. Vilhjálmur fékk sérstaklega skömm í hattinn fyrir að hafa haldið virku sambandi við rússneska fræðimenn á þessum kaldastríðstímum. Honum leiddist sá mórall og fékk Rússa til að skrifa í ritið sem átti að vera bæði þverfaglegt og alþjóðlegt." Að mati Jónasar Gunnars verður persóna Vilhjálms mjög ótrúverðug í bók Jennifer Niven: „Hann var engin súperhetja, hann var bara maður. Það er það sem gerir hann svo spennandi." Þess má geta að sýning Listasafns Reykjavík- ur í Hafnarhúsinu um Vilhjálm Stefánsson, Heimskautalöndin unaðslegu, stendur til 3. júní. Bók Niven er væntanleg á íslensku með haustinu hjá PP-forlagi í þýðingu Rúnars Helga Vignissonar. Að mati hans er hún afar spenn- andi lesning - „ein þeirra bóka sem maður legg- ur ekki frá sér fyrr en henni er lokið,“ eins og hann segir. „En óneitanlega er sjónarhom Vil- hjálms Stefánssonar íjarverandi." Ný glæsihýsi Parísarborgar misheppnuð: Að þrá að vera faraó Fyrir tœpum tveimur árum birtist hér á menningarsíöu úttekt Einars Más Jónsson- ar á nýju þjóðarbókhlööunni í París undir fyrirsögninni „Týndar bœkur og brotin bein“. Eins og titillinn gefur í skyn var þetta ekki lofgjörö um nýju bókhlööuna, þvert á móti hastarlegur dómur um síöasta stórvirki Mitterrands forseta sem hann œtl- aöist til að yröi kórónan á framkvæmdum hans í París, á eftir Bastilluóperunni, gler- píramíöanum í Louvre og fleiri stórhýsum. Þessi misserin eru Frakkar að vakna til æ meiri vitundar um að fleiri stórvirki en bóka- safnið eru hörmulega misheppnuð, enda gjarn- an reist í skyndi og oftar með meiri áherslu á „stór“ en „virki“. Nýlega gerði blaðamaður International Herald Tribune úttekt á helstu glansnúmerum Mitterands og er sú lýsing ófög- ur. Versalir veröa út undan Mitterand ætlaði sér að gera París að smört- ustu og svölustu höfuðborg í heimi, og í stað minnisvarða sem aðeins væru fyrir yfirstéttina áttu nýju húsin að þjóna og skemmta öllum al- menningi. Milljörðum franskra franka hefur verið eytt í þessi glæsihýsi en á meðan var engu fé veitt í viðhald gamalla mannvirkja, jafnvel ekki geysivinsælla ferðamannastaða eins og Versalahalla. Ekki var fé heldur lagt til hliðar til viðhalds eða viðgerða á nýju húsun- um. Nú falla steinar úr framhliðum hins mikla nýja sigurboga fyrir utan borgina og nýja Ba- stillu-óperuhússins og enginn veit hvort á að leyfa þeim að falla eða reyna að lappa upp á klæðningarnar. Eins og er hefur verið sett net yfir framhliðarnar til að fallandi steinar slasi ekki þá sem ganga hjá. „Spurningin er,“ segir stjórnandi óperunnar, „hvort við skiptum um alla 40 þúsund steinana eða bara þá sem eru gallaðir. Ef hið síðarnefnda verður tekið til Glerpíramíöinn fyrir framan Louvre-safniö í París Hann skapaöi umferöaröngþveiti inn í safniö og þykir misheppnaöur sem þjónustubygging, en hefur áunniö sér sess sem eitt af kennileitum borgarínnar. bragðs verðum við að láta banka í alla steinana sem eftir eru til að gá hvort þeir eru illa festir eða úr ómerkilegra efni en hinir!“ Allar þessar byggingar, bókhlaðan, sigurbog- inn nýi og óperuhúsið, hafa verið gagnrýndar bæði af almenningi, sérfræðingum og jafnvel stjórnendum stofnananna sem þær hýsa. Minni gagnrýni hefur píramíðinn við Louvre-safnið fengið á sig í seinni tíð en hann olli þó gífurleg- um umferðartruflunum inn í safnið meðan eini inngangurinn inn í það var um hann. Nú hafa fleiri dyr verið opnaðar víðs vegar á húsinu, en mörgum gestum finnst þeir ekki hafa komið í safnið án þess að fara gegnum þennan fræga píramíða - sem er svo augljós vitnisburður um faraódrauma Mitterands forseta! Litlu landnemarnir Námsgagnastofnun hefur gefið út söguna Litlu landnemarnir eftir Iðunni Steinsdóttur með myndum eftir Sigrúnu Eldjárn. Þetta er skemmtilegt ítarefni með sögukennslubók- um um landnám íslands og segir söguna af systkinunum Helgu og ísólfi Bjólfsbörnum sem sigla frá Noregi með fjölskyldu sinni og nema land í Seyðisfirði. Bróðir Bjólfs heitir Loðmundur og þó að hann sé ekki búinn að finna öndvegissúlurnar sínar i sögulok get- um við giskað á að þær hafi fundist í næsta firði fyrir norðan! í Landnámu má sjá að Helga og ísólfur bjuggu áfram í firðinum því þar kemur fram að Seyðfirðingar eru frá þeim komnir. Meðal sögupersóna eru ambáttin Aldís frá Suður- eyjum og Þórir sonur hennar sem eru kristin og er bæði komið inn á trúar- brögð og þrælahald í sög- unni. Ferðamennirnir leita skjóls undan óveðri við ókunna eyju á leiðinni og það veröur börnunum umhugsunarefni þeg- ar Aldís og Þórir strjúka frá fjölskyldunni en þau skilja vel að sá sem hefur einu sinni ver- ið frjáls kjósi að verða það aftur. Litmyndir Sigrúnar eru einfaldar og íjör- legar og hjálpa lesendum til að tengja sig við þessi börn þó að meira en þúsund ár skilji að. Þetta er léttlestrarbók, línur eru stuttar og gott bil á milli þeirra. Sagan er líka til á snældu. Sigur skáldlegs ímyndunarafls Slóð fiðrildanna eftir Ólaf Jóhann Ólafsson er komin út á ensku hjá Faber & Faber for- laginu og hefur fengið um- sagnir í helstu blöðum og tímaritum og flestar loflegar. M.a. segir gagnrýnandi Obser- ver að þetta sé óvenjuleg skáldsaga sem grípi lesandann fostum tökum og sé mikið afrek: „Ungur, karlkyns rithöfundur hefur skapað eina eft- irminnilegustu kvenpersónu síðari ára. ... Honum hefur einnig tekist sem útlendingi að fanga sitthvað af andblæ Englands frá sögu- tíma, bæði i eldamennsku og siðum. ... Að skapa svo áþreifanlega mynd af náttúru, stétt og kyni er mikill sigur skáldlegs ímynd- unarafls." Gagnrýnandi Times Literary Supplement hælir Ólafi Jóhanni fyrir ljóðrænar lýsingar á enskri sveit og enn meira fyrir lýsingar á hrjóstrugri náttúru íslands en lætur ekki sannfærast af lýsingum á bresku mannlífi á sögutímanum, hvorki af eldamennsku né sið- um, og finnst Ólafi takast betur að ná and- rúmslofti 9. áratugarins í New York í bók- inni Fyrirgefning syndanna. Raunar finnst þessum gagnrýnanda eldri bókin mun betri og sú nýja einungis tilraun til að endurtaka formúluna. En í Time Out segir að fyrstu persónu frá- sögnin í sögunni glati aldrei nánd sinni og þeirri tilfinningu að lesandanum finnist sér veittur aðgangur að átakamiklum einka- heimi: „Lokakaflarnir hefðu getað orðið til- finningaseminni að bráð en eru í staðinn glæsilegir og hrifandi." Gagnrýnandi Sunday Telegraph lýkur lofsorði á persónu- sköpun Dísu í dómi sínum og í tímaritinu Punch segir að í endurminningum Dísu sé að finna vísbendingar um jafnvel enn mikil- vægari sögu sem liggi meðal brotanna úr for- tíðinni og að Ólafur Jóhann valdi ekki von- brigðum í lýsingum á hápunktinum í lífi hennar. Fyrirlestur um Dagný Kristjánsdóttir prófessor flytur fyrirlestur um skáldsöguna Þögnina eftir Vigdísi Grímsdóttur á morgun kl. 12.05 í stofu 301 Nýja Garði. Erindið kallar hún „Út úr þögninni". Þögnin kom út I fyrra og hlaut sem kunnugt er menningarverðlaun DV í bókmenntum í febrúar sl. Þögnma

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.