Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2001, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2001, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2001 Skoðun DV Ferðu oft í kvikmyndahús? Ari Sveinbjörnsson verkamaöur: Nei, þaö er sjaldan, kannski einu sinni í mánuöi, man nú ekki hvaöa mynd ég sá síöast. Steinar Sigurgeirsson járnsmiöur: Já, um tvisvar sinnum í mánuöi, sá síöast myndina Mexican, hún er ágæt. Harrý Jóhannsson nemi: Nei, ég sá síöast myndina 0 Brother Where Art Though, hún er alveg „brilliant". Sverrir Hafnfjörö bílstjóri: Nei, ég fór síöast á Dracula eftir aö hafa fariö í Blóöbankann aö gefa blóö. John Delrosario verkstjóri: Já, ég fór síöast á Dracula í fyrra- dag, gaf þó ekki blóö en heföi viljaö gera þaö. Skúli Skúlason: Þaö eru oröin 15-18 ár síðan ég fór í bíó síöast og hét þaö þá Gamla bíó. Ég er ekkert mikiö fyrir svona kvikmyndir. Ervran: Óraunhæf tenging Gjaldmiöilsskipti sem fyrst Losna viö krónuna og fá dollara í staðinn. Magnús Magnússon skrlfar: Nú er loks farið að ræða það af alvöru að is- lenska krónan sé gjald- miðill sem við getum ekki búið við mikið leng- ur. Þessi staðreynd hefur þó legið ljós fyrir lengi. Man jafnvel eftir grein- um i DV, og allt aftur til Vísis, þegar hann var og hét, sem fjölluðu um nauðsyn þess að skipta um gjaldmiðil. Þetta hefði auðvitað veriö tímabært við peninga- skiptin, rétt um 1980. En samhliða hefði þurft að setja allt verðlag og kaup- gjald fast í svo sem Qögur ár. Ekkert af þessu var gert og áfram hélt krónan að angra efnahagslífið, og nú er svo komið að menn þykjast sjá fyrir mikinn vanda verði krónan ekki af lögð. Aðalhagfræðingur Seðla- bankans sér þó ekki aðra leið fyrir ísland en tengjast evrunni og ganga í Evrópusambandið og sérfræðingur sama banka í gjaldeyrisviðskiptum tekur undir. Forstjóri Þjóðhags- stofnunar lýsir svo svipaðri skoðun; að það kunni að vera mun betri kostur til lengri tíma litið að taka upp evruna en að halda uppi eigin peningastefnu og eigin gjaldmiðli. En hvenær - þess getur forstjórinn ekki. Og það er slæmt. Enginn þessara manna mælir rétt, aö mínu mati. Það er ekki óraunhæf lausn að tengjast evrunni, hvernig sem það yrði gert. Við ís- lendingar eigum aðeins einn kost, „Sáltfiskmarkadurinn einn gœti t.d. verið állur á New York-svœðinu þar sem búa hundruð þúsunda spœnsku- mœlandi manna sem sœkjast mjög eftir góðum saltfiski. “ hann er að sækja um inngöngu í hið nýja tollabandalag sem nú er að verða að raunveruleika milli allra Ameríkuríkjanna, og tengjast þar með bandaríska dollaranum. Marg- ir eru þessu sammála, en benda á að viðskiptin séu svo miklu meiri við Evrópulöndin að þetta sé ekki raun- hæft. Sannleikurinn er þó sá að ekki er lausn þess vanda meiri en svo að færa viðskipti okkar til Bandaríkj- anna og annarra ríkja í vesturálfu. Saltfiskmarkaðurinn einn gæti t.d. verið aUur á New York-svæðinu þar sem búa hundruð þúsunda spænskumælandi manna sem sækj- ast mjög eftir góðum saltfiski. Hug- búnaður og önnur framleiðsla okk- ar sem tengist iðnaði á auðveldan aðgang í þessum ríkjunum vestan- hafs. - íslensk efnahagsmál eru sannarlega í deiglunni þessa stund- ina og þeim verður að sinna með raunhæfum hætti, m.a. að losna við krónuna sem fyrst og taka upp bandarískan dollara. Súðavíkursn j óf lóðin „Súðvikingar eiga allt gott skilið en mér finnst að söfn- unarfénu hafi ekki verið út- hlutað réttlátlega og alls ekki eins og almenningur vildi. “ Hildur skrifar: Ég las nýlega áhrifamikið tíma- ritsviðtal við hjónin sem misstu börnin sín þrjú í snjóhóðinu i Súða- vík. Þar kom m.a. fram að öllum Súðvíkingum var boðið á heilsuhæl- ið í Hveragerði en enginn fékk að vita af því fyrr en eftir að sveitar- stjórinn fyrrverandi var búinn að dvelja þar. Hefur kannski bara vilj- að fá að vera í friði í Hveragerði. Ég get ekki skilið þetta öðruvisi. Þótt viðtalið hafi að mestu fjallað um úrvinnslu hjónanna úr sorginni og gleði þeirra yfir dætrunum ungu hefði þarna mátt segja frá öllum mis- tökunum sem áttu sér stað, bæði fyr- ir og eftir- snjóflóðið, en mér finnst að allur sannleikurinn hafi ekki enn komið fram, eins og t.d. að þrátt fyr- ir viðvörun frá Veðurstofunni var al- menningur í Súðavík ekki varaður við. - En þau sögðu að það væri ann- arra verk að segja frá því. Börnin mín hágrétu yfir öllu fólk- inu sem dó í snjóflóðinu, sérstak- lega börnunum. Þau tæmdu spari- baukana sina til að gefa i söfnunina og við hjónin gáfum miklu meira en við höfðum efni á en okkur langaði til að reyna með einhverju móti að létta líf fólksins sem missti svona mikiö. Allir sem ég þekki gáfu í sama tilgangi og þótt við vitum að peningar komi ekki í staðinn fyrir mannslíf geta þeir létt róðurinn. Súðvíkingar eiga allt gott skilið en mér finnst að söfnunarfénu hafi ekki verið úthlutað réttlátlega og alls ekki eins og almenningur vildi. Var hugsanlega verið að refsa þeim sem gátu ekki eða treystu sér ekki til að búa áfram í Súðavík? Dæmi- gerð eru svo þau viðbrögð að reyna að svæfa allt óþægilegt eða leggja stein í götu þeirra sem berjast fyrir réttlætinu, líkt og nú síðast aðstand- enda þeirra sem létust í flugslysinu í Skerjafirði hafa mátt reyna. - Ég vona samt aö fleiri láti heyra í sér um þetta. Þið verðið hakkaðir, Skagamenn (Öl)froðufellandi fótboltabullur eru vorboði ásamt grænu grasi, lóunni og spóanum. Við mætum á völlinn í næstu viku og látum ófrið- lega. Fótboltaliðin mæta ormahreinsuð af öllum skuldum og með nýja leikmenn til að búa til nýj- ar skuldir. Garri var og er hörkunagli í fótbolt- anum og styður alltaf sterkasta liðið, sterkasta stjórnmálaflokkinn og þykkasta dagblaðið. Hann hefur spilað með káringum eins og Bjarni Fel. kallar „fóboltaliðið" úr veðravítinu vestur i bæ þar sem Garri ólst upp. Nú stefnir allt í að KR og Akranes keppi um gljáandi pjátursdollur sem sigurvegarar fá að sleikja í haust. Maður var nú að vona að þeir yrðu í skuldafangelsi í sumar, þessir gulu. Garri furðar sig á þessari aðgerð sem lesa mátti um í Fréttablaðinu í gær - að Skagamenn hefðu losað sig við næstum 70 milljón króna skuldir, bara svona eins og að smella fingrum. Bara 14 þúsund á mann Hvemig er þetta hægt? Gilli bæjarstjóri, sem reyndi nú að verja markið hjá okkur káringum forðum, er í dag appelsínulitur Skagamaður og bæjarstjóri þeirra, búinn að bora gat á Hvalfjörð- inn sem þýðir að engin lifandi vera lætur sjá sig á Skaganum. Hann lýsir í blaðinu hvernig bjarg- ráðanefnd minnkaði skuldir úr 70 milljónum nið- ur i eina til tvær. Hann segir að mönnum sem hlökkuðu yfir ófórum ÍA verði ekki að ósk sinni - ekki í ár. Það er nú meinið. Garri hefur lúmskt gaman af laufléttri póli- tiskri spillingu. Þessi nefndarstörf voru engin spilling, niðurstaðan kostar hvern Akurnesing ekki nema rétt 14 þúsund kall á hvern skalla, unga sem gamla, konur sem karla. Metnaðurinn kostar alltaf sitt. Þetta er skemmtileg nefnd og í henni einmitt menn sem bjuggu til flotta skulda- halann, þessi í sementsverksmiðjunni í miðbæn- um, haffbakkinn og ráðherramaðurinn í fiskiðju- verinu, bakarinn í Olís sem er aðal fótbolta- strumpurinn á Akranesi, og auðvitað Gísli kár- ingur. Bærinn gaf, bærinn tók, bærinn gefur aftur... Svona nefnd klárar sig vel. Bærinn var bara látinn kaupa allt dótið, grasið, stúkuna, húsin, sem hann gaf ÍA forðum daga. Svo vantaði eitt- hvað upp á. Þá var Búnaðarbankinn látinn borga, bankinn sem Garri er eigandi að. Hei, hver leyfði það eiginlega? Núna selur ÍA bænum gjöfina. Og á 50 ára afmæli gullaldarliðsins verð- ur að gefa ÍA gjöf. Hvernig væri þá að gefa þeim aftur fótboltavöllinn sinn? Það er gaman í íslenskum fótboltaheimi. Fjár- mál eru ekki annað en flís úr jólaköku fyrir stór- veldin. Allt er leyst. Við í KR stöndum vel, samt glutruðum við niður tuttugu millum í fyrrahaust í klúðri. Það var ekkert mál fyrir okkur. Og Skagamenn, þessir miklu jöfrar fjármál- anna? Við tökum þá i nösina, káringar! Þið verð- ið hakkaðir, Agranisingar! \ GðTfl Leiðigjarnar fréttir Björgvin hringdi: Það verður nú að segja eins og er að fréttimar sem lengst hafa dunið á okkur lands- mönnum, annars vegar karpið milli útgerðarmanna og sjómanna og svo hins vegar erlend- ar fréttir af róst- um araba og gyð- inga, eru með leið- inlegri fréttum. Hvort tveggja fréttirn- ar þjóna engum tilgangi við lesendur eða áheyrendur Ijósvakamiðlanna því þær breytast ekki neitt. Verkfall sjó- manna er aukinheldur sjálfskaparvíti sem engir hafa samúð með nema þeir sjálfir og drápin í Mið-Austurlöndum koma ekki hót við okkur, því þarna hafa viðgengist dráp milli þessara að- ila allt síðan 1948 er ég fór að hlusta á fréttir í útvarpi. - Burt með þessar „fréttir" sem engar eru. Kvöldsektir á Hverfisgötu Hafliöi Helgason skrifar: Ég átti fyrir nokkru leið um Hverf- isgötu um kl. 21 að kvöldi. Þar sá ég stöðumælaverði læðupúkast í skjóli myrkurs við að sekta bíla fyrir fram- an kvikmyndahúsið Regnbogann. Hvað var nú í gangi, hugsaði ég? Ég kannaði þetta daginn eftir og var mér tjáð af varðstjóra Bílastæðasjóðs að þetta væri gert tvö kvöld í viku, allt frá Regnboganum á Hverfisgötu niður að Templarasundi. Ekki vissi lög- reglumaður hjá umferðardeild lög- reglu um þessar aðgerðir. Hins vegar sagði hann að radarmæla þyrfti hrað- ann á Hverfisgötunni. Þessi vinnu- brögð komu mér alveg á óvart. Við grænmetisboröið. Það innflutta verður ódýrara. Ódýrir sveppir í Hagkaupi Elin Guðmundsdóttir skrifar: Ódýrir sveppir og jarðarber voru auglýst til sölu í Hagkaupsverslunum fyrir helgina. Ég lét ekki á mér standa og fór í Hagkaup í Smáranum og keypti 2 kíló. Verðið var 399 kr. kíló- ið. Jarðarberin voru hins vegar upp- seld nema í öskjum á óhagstæðu verði. Ég tók eftir því að einnig voru seldir Flúða-sveppir í öskjum á um 250 kr. askjan sem var mun dýrara en sveppirnir í lausri vigt. Ég spurði hvaðan þessir ódýru sveppir kæmu og var tjáð að þeir kæmu frá Hollandi. Ég spyr nú einfaldlega hvers vegna svona innkaup eru ekki viðhöfð yfir- leitt í stað þess að skipta við innlenda framleiðendur. Þetta hlýtur þó að vera framtíðin þegar innlendi tollur- inn hefur verið afnuminn. Ánægjan fyrir bí Kristinn Ágúst Eggertsson skrifar: Ég vil þakka DV kærlega fyrir að hafa eyðilagt fyrir mér og minni fjöl- skyldu (og örugglega fleirum) ánægj- una af því að horfa á „Survivor" á Skjá 1. í DV laugard. 5. maí var nefni- lega tilkynnt hver hefði unnið þessa keppni, þó svo að lokaþátturinn hafi ekki verið sýndur hér á landi. Ég býst við því að nú geti maður bara hætt að horfa á sjónvarp yfirleitt og bara lesið DV til að fylgjast meö hvers konar þáttum hjá sjónvarpsstöðvunum. Maður er því feginn að Eurovision er í beinni útsendingu, annars yrði það gaman sem þvi fylgir að horfa á keppnina fyrir bí líka. Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangiö: gra@ff.is Eöa sent. bréf til: Lesendasíöa DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang. í verkfalli. Engar fréttir fyrir okkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.