Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2001, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2001, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2001 9 Fréttir Halldór Blöndal, forseti Alþingis: Vill beint flug ffá Keflavík - telur hálendisvegagerð vera arðbærustu framkvæmdina Blön- Leifsstöö Forseti Alþingis vill aö flogiö veröi beint til Akureyrar. Halldór dal, 1. þingmaður Norðurlandskjör- dæmis eystra, fyrrverandi sam- gönguráðherra og forseti Alþingis, vill að tekið verði upp innanlands- Hann segir að nú sjái fyrir endann á vegagerð til Austurlands og gerð jarðganga til Siglufjarðar. Þess vegna sé nauðsyn- legt að setja sér ný markmið og reyna að stytta leiðina frá Akureyri til Reykjavíkur. „Það rekur á eftir málinu að borg- arstjóri Reykjavíkur hefur lýst því yfir skýrt og skorinort að hann hyggist leggja niður flugvöllinn í Reykjavík. Innanlandsflug frá Kefla- vík er vonlaust dæmi fyrir fram. Á hinn bóginn er kominn tími til þess að byggja upp beint flug þaðan út á land til þess að breikka grunn ferða- þjónustunnar. Til að byrja með mætti gera þetta einu sinni í viku, t.d. á fimmtudögum," segir Halldór á vefritinu íslendingi. Halldór tekur sem dæmi hótel- stjórann í Reynihlíð sem hafi náð góðum árangri í að ná til Mývatns- sveitar breskum ferðamönnum utan háannatímans í helgarferðir án við- dvalar í Reykjavík. Til þess að slík starfsemi geti vaxið þurfi að bæta tenginguna við alþjóðaflugið. Eins og DV hefur greint frá hefur forseti Alþingis lagt fram þings- ályktunartillögu ásamt fleiri sjálf- stæðismönnum um að stytta land- leiðina á milli Akureyrar og Reykja- víkur með því að ferðast um hálend- ið. Hringvegurinn milli Akureyrar og Reykjavíkur er nú 389 km. Með því að fara um Arnarvatnshæðir myndi hann styttast um 70-80 km eftir því hvort farið er sunnan Blöndulóns eða á stíflu. „Ég efast um að nokkur vegagerð utan þétt- býlisstaða sé arðbærari en þessi, m. a. vegna hinna miklu þungaflutn- inga fyrir utan aðra gagnsemi veg- arins,“ segir Halldór. -BÞ Súðavíkurhlíð: Tíöar aurskriður DV, VESTFJORDUM:___________________ Þegar Vetur konungur losar tökin á jörðinni að vori til er alltaf hætt við skriðuföllum í bröttum hlíðum. Nokkuð hefur verið um aurskriður á Súðavikurhlíðinni undanfarið eins og gjaman á þessum árstíma. Vegagerðin á ísafirði lét grafa svo- kallaða skápa inn í hlíðina fyrir stuttu þar sem helst má vænta skriðna. Falla þá skriðurnar í skápana en teppa siður umferð. Hef- ur þetta gefið mjög góða raun þegar um minni og meðalstórar skriður er að ræða. Sumir hafa haft orð á því að skáparnir óprýði hlíðina nokkuð því hún var afar vel gróin fyrir. Geir Sigurðsson, verkstjóri hjá Vegagerðinni, segir að þess sé að vænta að gróðurinn jcifni sig að ein- hverju leyti. -VH DV-MYND VALDIMAR HREIÐARSSON Skriöuföll á Súöavíkurhlíö Elvar Ragnarsson frá Súöavík hreinsar aur og grjót úr skápum á Súðavíkur- hiíö. Á myndinni má sjá þrjá slíka „skápa". Bíllaus lögregla: Komst ekki í útkall erfitt, segir sýslumaður Aöeins einn lögreglubíll í umdæminu Lögregian á Patreksfiröi komst ekki í útkatt vegna þess aö lögreglubíliinn var á verkstæöi. „Ég vil ekki hugsa þá hugsa til enda hvað hefði getað gerst. Við húum við full- komið öryggis- leysi þegar ekki er hægt að kveða til lögreglu vegna þess að eini lög- reglubíllinn er bilaður. Ekki koma þeir fót- gangandi," segir Torfi Steinsson en brotist var inn í fyrirtæki hans, Fiskeldiö Þverá á Barðaströnd, í fyrrinótt. Að sögn Torfa var aldraður faðir hans gestkomandi á svæðinu og rumskaði hann við ókennilegan há- vaða um þrjúleytið. Þegar þjófamir, tveir ungir menn, urðu gamla mannsins varir sáu þeir sitt óvænna og flúðu af vettvangi. Þeir voru staðnir að verki þar sem þeir voru aö háfa fiska upp úr körum. Fiskeldið Þverá er í 60 kílómetra fjarlægð frá Patreksfirði en lögregl- an hefur aðeins einn bíl til umráða um þessar mundir og var hann á verkstæði þegar fyrr- nefnt atvik átti sér stað. „Það getur leitt af sér alvarlegt ástand að hafa einvörðungu einn lög- reglubíl til umráða og auðvitað vildum við hafa varabíl," segir Þórólfur Halldórsson, sýslumaður á Patreks- firði, aðspurður um at- vikið. Þórólfur segir niðurskurð í löggæsl- unni úti á landi oftast felast í yfirvinnubanni og því að löggæslubíl- um er fækkað, enda séu það stórir útgjaldaliðir. Þegar DV talaði viö Þórólf síðdeg- is í gær sagði hann lögreglubílinn útskrifaðan af verkstæði og lög- reglumenn væru á leiðinni að Þverá þar sem þeir myndu rannsaka inn- brotið. -aþ Sturtuhurðir þrískiptar, rennihurðir. 4mm öryggisgler. 80x80 rúnnaður sturtubotn úr plasti Lagerrýmingarsala % afsláttur Fræsari 700W 8mm leggur, 5 fræsitennur fylgja. Kemur i ál tösku Verb kr. 7.900.- 24 W hleSsluborvél með 13mm patrónu, ásamt 72 lylgihlutum í tösku Verð a&eins kr. 7.900.- Gufu- nuddsturtuklefi með 6 nuddstútum og tölvustýrðu stjórnborði. 90x90 cm rúnnaður. Öryggisgler. höggborvél 2 patrónur 500 W í tösku með borasetti Ver& aðeins kr. 6.900.- Hjólsög 1100 W Verb aðeins kr. 6.900.- 3 tæki í tösku: höggborvél stingsög og juðari. Verð aðeins kr. 7.900.- Við Fellsmúla Sími 588 7332 www.heildsoluverslunin.is OPID: Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.