Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2001, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2001, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2001 DV 7 Akureyri-Norðurland DV, AKUREYRI: „Það hafa einhverjir verið í því að bera þessa bekki til og frá. Þeim hefur þó ekki verið stolið og við höf- um alltaf fundið þá aftur,“ segir Jón Birgir Gunnlaugsson, fulltrúi garð- yrkjustjóra á Akureyri, en talsvert hefur verið um það að sólbekkir sem settir hafa verið niður víðs veg- ar í bænum hafi verið færðir úr stað, þeir jafnvel bornir talsverðar vegalengdir þótt þungir séu og jafn- vel inn á einkalóðir. Jón Birgir segir aö 48 sólbekkir hafi nú verið settir niður víðs vegar í bænum sem sé nokkur fjölgun frá fyrra ári. Bekkirnir eru gjarnan hafðir við vinsælar gönguleiðir í bænum og því tilvaldir fyrir göngugarpa að setjast á þá og hvíla sig örlítið. Einhverjum hefur hins vegar fundist meira „sport“ að taka bekkina í fangið og færa þá til, oft nokkrar vegalengdir. „Bekkirnir eru býsna þungir og ég skil hreinlega ekki hvernig fólk nennir að vera að rogast um með þessa bekki sem eru gerðir til þess Sólbekkjaferðir Margir njóta þess að setjast á sól- bekkina sem komiö hefur verið upp. að sitja á þeim,“ segir Jón Birgir hjá garðyrkjustjóra. -gk Akureyri: Bekkir á ferð DV-MYND GG Fjögurra presta messa Fjórir prestar voru við hátíðarguðs- þjónustu í Lögmannshlíðarsókn sl. sunnudag, þeir sr. Bolli Gústavsson, vígslubiskup á Hólum, sr. Birgir Snæbjörnsson, fyrrum sóknarprest- ur í Akureyrarkirkju og í Lögmanns- hlíð, sr. Ágúst Sigurðsson, sóknar- prestur að Prestbakka í Stranda- sýslu, og núverandi sóknarprestur, sr. Gunnlaugur Garðarsson. Myndin er af prestunum í sólinni framan við kirkjuna eftir guðsþjónustuna. 140 ára vígsluafmæli Fjórir prestar voru við hátíðarguðs- þjónustu í Lögmannshliðarkirkju á sunnudaginn er minnst var 140 ára vígsluafmælis þessarar kirkju sem lengi var sóknarkirkja áður en Gler- árkirkja var vígð sem sóknarkirkja. Eftir hátíðarguðsþjónustuna var há- tíðarkaffi í safnaðarsal Glerárkirkju þar sem sr. Ágúst Sigurðsson rakti sögu Lögmannshlíðarkirkju. -GG Sauðárkrókur: Slagsmál með skóflu Til slagsmála kom milli fimm manna á Sauðárkróki og má rekja upphaf þeirra til þess að tveir heima- menn vildu ólmir komast í gleðskap sem þeir töldu að fram færi á gisti- heimili í bænum. Þeir sem þar voru vildu hins vegar ekki hleypa heimamönnunum inn og upphófust þá slagsmál þar sem gisti- heimilismenn vörðu sig m.a. með skóflu. Ekki vildi hins vegar betur til en svo að skóflan komst í hendur „innrásarmannanna" sem beittu henni óspart og fór svo að loknum að sauma þurfti um 30 spor til að loka sárum eins gistiheimilismanna en fjórir slagsmálahundanna voru nokk- uð blóðugir þegar átökunum lauk.-gk Intrum á íslandi: Kaupir Lög- mannsstofu Akureyrar Intrum á Islandi hefur keypt Lög- mannsstofu Akureyrar af fjölskyldu Ólafs Birgis Árnasonar hrl. Ólafur stóð að rekstri stofunnar frá 1976 og mun hún verða rekin áfram í sama húsnæði að Geislagötu 5. Skrifstofan mun áfram annast lögmannsstörf fyrir Norðurland og nágrenni. Intrum á ísiandi er hluti alþjóðlega innheimtufyrirtækisins In- trum Justitia sem er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í Evrópu. Á heimsvísu meðhöndlar Intrum milljónir mála á ári hverju og yfir 50.000 fyrirtæki og stofnanir notfæra sér þjónustu þess. í dag rekur Intrum 54 skrifstofur í 22 Evrópulöndum og hefur yfir 120 um- boðsmenn viða um heim. Tilgangurinn með kaupunum er að viðhalda góðum rekstri Lögmanns- stofu Akureyrar og geta boðið enn betri þjónustu á sviði innheimtu. Starfsmenn lögmannsstofunnar verða 4 til að byrja með, lögmenn eru Bjarni Þór Óskarsson hrl. og Helgi Teitur Helgason hdl. -GG Sumir kjósa að skrapa botninn Við hlífum honum! LAN DSSAMBAN D smábátaeigenda

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.