Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2001, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2001, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 9. MAI 2001 11 DV Utlönd Kosningabaráttan í Bretlandi að hefjast: Blair spáð glæst- ari sigri en 1997 Undirritar loforð Fjölmiölakóngurinn Silvio Berlusconi, frambjóðandi mið- og hægrimanna á Ítalíu, undirritaði í gær það sem hann kallaði samning sinn við I ítala. Lofaði hann að efna loforð sín um lækkun skatta, herferð gegn glæpum, hækkun elli- lífeyris og fjölgun atvinnutækifæra. Höfuölaust lík Bandarískir réttarsérfræðingar hafa komist að þeirri niðurstöðu að höfuðlausa líkið, sem fannst utan við Kiev í Úkraínu í nóvember síð- astliðnum, sé af blaðamanninum Georgí Gongadze. Blaðamaðurinn, sem gagnrýnt hafði yfirvöld, hvarf nokkrum mánuðum áður. Halda njósnavélinni Kínversk yfirvöld ákváðu í gær að afhenda ekki Bandaríkjamönn- um njósnavélina sem enn stendur á eynni Hainan. Litið er á ákvörðun- ina sem svar við nýju njósnaflugi Bandarikjanna við Kína. Sonur Biggs niöurbrotinn Sonur lestarræningjans Ronalds Biggs, Michael, grét þegar hann lýsti því hvernig hann hefði beðið föður sinn um að snúa ekki aftur til Englands. Michael, sem er 26 ára, vísar því á bug að faðirinn hafi snú- ið heim til að fá læknishjálp. Tapaöi meiöyröamáli Dómstóll í Aust- urríki hefur úr- skurðað að ekki hafi verið rangt af blaði að skrifa að þjóðernissinninn Jörg Haider notaði slagorð nasista. Var -íáii þetta í annað sinn á nokkrum vikum sem Haider tapar slíku máli. Thule efst á óskalista Endurbætur á ratsjárstöðinni í Thule á Grænlandi og á samsvarandi stöð í Jórvíkurskíri á Englandi eru efst á óskalista bandarískra yfirvalda í tengslum við áform um eldflauga- varnarkerfi, að sögn sögn heimildar- manns danska blaðsins Berlingske Tidende hjá NATO, eftir heimsókn bandarískrar sendinefndar í gær. Clintonmiðar á útsölu Skipuleggjendur I fundar með Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í Stokkhólmi .í næstu viku eru nú búnir að setja miðana á fund- inn á útsölu vegna I dræmrar sölu. 1500 miðar voru til sölu og átti miðinn að kosta nær 100 þúsund íslenskar krónur. Afgangurinn verður seldur á um 45 þúsund krónur stykkið. Vændi löglegt Stjórnarflokkarnir í Þýskalandi hafa lagt fram frumvarp um að vændi verði löglegt. Á vændisfólk að fá bæt- ur eins og aðrir starfandi þegnar. Þjóðstjórn í uppnámi Albanskur stjórnandstöðuflokkur tafði i gær fyrir myndun þjóðstjórn- ar í Makedóníu sem ætlað er að binda enda á átökin í landinu. Skriðdrekar, þyrlur og stórskotalið stjórnarhersins létu skothríðina enn dynja á skæruliðum Albana. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Verkamannaflokkur hans munu sigra í þingkosningun- um 7. júní næstkomandi með meiri yfirburðum en þeir gerðu árið 1997, að því er fram kemur í skoðana- könnun sem birtist í morgun. Blair var þegar kominn í baráttu- skap áður en niðurstöður fylgiskönnunarinnar voru kunn- gerðar og lét á sér skilja að hann væri tilbúinn í slaginn við William Hague, leiðtoga íhaldsflokksins, og ræða bæði evruna og Evrópusam- bandið. Stjórnarandstaðan hefur til þessa haldið því fram að þessi tvö málefni væru Akkilesarhæll Verka- mannaflokksins. Ef marka má niðurstöður skoð- anakönnunar NOP. fyrir blaðið Daily Express mun Verkamanna- flokkur Blairs auka meirihluta sinn á þingi úr 179 sætum í rúmlega 250. Á breska þinginu sitja 659 menn. Tony Blair Breski forsætisráöherrann er kom- inn í baráttuskap fyrir kosningarnar sem hann hefur boöaö 7. júní. Aðrar nýlegar kannanir hafa einnig bent til yfirburðasigurs Blairs. „Við erum ekki enn sú leiðandi þjóð í Evrópu sem vægi okkar, vel- sæld og saga krefjast," sagði Blair í gær. Ýmsir fréttaskýrendur dagblað- anna leiddu líkum að þvi að Blair væri reiðubúinn að ræða um kosti þess að Bretar tækju upp evruna, sameiginlegan gjaldmiðil ESB. Hann hefur forðast það að undan- fórnu þar sem kannanir sýna að 70 prósent þjóðarinnar eru því andvíg. Hague, sem vill gefa pundinu að minnsta kosti fimm ár enn, ítrekaði í gær að Blair vildi ekki ræða Evr- ópumálin en að hann myndi þvinga hann til þess. Hann sakaði stjórnina um að afsala æ meira valdi til Brus- sel. „Þetta er tækifæri þjóðarinnar til að segja að hún vilji vera hluti Evrópu en ekki láta stjórnast af Evrópu," sagði Hague. Síamstvíburi á batavegi Nepalski síamstvíburinn Jamuna horfir á fööur sinn Bhushan K.C. sem situr viö sjúkrabeö hennar í Singapore. Jamuna og systir hennar Ganga voru fastar saman á höföinu þar til þær væru aöskildar í iangri og erfiöri skuröaö- gerö í síðasta mánuöi. Stúlkurnar eiga eins árs afmæli í dag. Þær eru enn á giörgæsludeild en á hægum batavegi. 15 ár í fangelsi vegna falsaðra sönnunargagna Bandaríkjamaðurinn Jeffrey Pi- erce missti bæði frelsi sitt og fjöl- skyldu þegar hann árið 1986 var dæmdur í 65 ára fangelsi fyrir nauðgun. Eiginkona hans, Kathy Wahl, sótti um skilnað og yfirgaf heimaríki þeirra, Oklahoma, með nýfædda tvíburasyni sem aldrei höfðu séð föður sinn. Síðastliðinn mánudag endurheimti Pierce frelsi sitt eftir að DNA-rannsókn hafði leitt í ljós að efnafræðingur ákæru- valdsins, Joyce Gilchrist, hafði gert mistök. Martröð Pierce hófst á afmælis- degi konu hans, 8. maí 1985. Þá starfaði Pierce, sem var landslags- arkitekt, nálægt íbúð þar sem ljós- hærður maður nauðgaði ungri konu. Pierce er sjálfur ljóshærður. Fyrst tjáði unga konan lögreglunni að Pierce væri ekki nauðgarinn en 10 mánuðum síðar benti hún á hann á mynd. Þrátt fyrir að samstarfsmenn Pi- erce greindu lögreglunni frá því að hann hefði skroppið frá til að kaupa afmælisgjöf handa konu sinni trúði lögreglan niðurstöðum rannsóknar efnafræðingsins. Gilchrist fullyrti að hár og sæði nauðgarans væri af Pierce. Verjendur fengu ekki að láta gera rannsókn hjá einkaaðila og ör- lög Pierce voru ráðin. Skriður komst á málið í fyrra þegar sam- þykkt voru í Oklahoma lög um að ákærðir, sem eingöngu voru dæmd- ir á sönnunargögnum réttarrann- sóknar, mættu gangast undir DNA- rannsókn. Ákærendur voru hrifnir af Joyce Gilhrist. Hún gat gert mál pottþétt með litlum sönnunargögnum og nutu ákærendur aðstoðar hennar í um 3 þúsund málum. Hún kom til starfa 1980 og árið 1994 var hún gerð að yfirmanni. Bandaríska alrikislögreglan hef- ur nú skoðað átta af málum hennar og gert athugasemdir við niðurstöð- ur fimm þeirra. Nú hefur ríkisstjór- inn í Oklahoma fyrirskipað rann- sókn í öllum stærri málum sem hún hefur verið viðriðin. Svo virðist sem gífurlegt hneykslismál sé í upp- siglingu. Athyglin beinist fyrst og fremst að þeim 23 dauðarefsingarmálum sem Gilchrist kom að. Ellefu fang- anna hafa þegar verið teknir af lífi en 12 bíða aftöku. Fullyrt er að einnig hafi verið stuðst við önnur sönnunargögn í máli þeirra sem voru líflátnir. Dómsmálaráðherra Oklahoma hefur fyrirskipað aö eng- inn verði tekinn af lífi fyrr en sönn- unargögn hafa verið skoðuð á ný. Samstarfsmenn Joyce Gilchrist höfðu gagnrýnt hana opinberlega og hún hafði fengið áminningu frá stéttarfélögum. Ákæruvaldið greip aldrei inn í. Notaðir bílar hjá Suzuki bílum hf. Suzuki Swift GLS, skr. 3/98,3 d., bsk., ek. 31 þús. km. Verð 660 þús. Suzuki Grand Vitara V6 Excl., skr. 4/98, ssk., ek. 36 þús. km. Verð 2.100 þús. Suzuki Vitara JXL, skr. 6/00, 5 d., bsk., ek. 21 þús. km. Verð 1.590 þús. Suzuki Baleno Wag. 4x4, skr. 7/99, ek. 27 þús. km. Verð 1.290. þús. Suzuki Baleno, skr. 6/96, 4 d., ssk., ek. 73 þús. km. Verð 730 þús. Suzuki Jimny JXL, skr. 6/00, 3 d., bsk., ek. 19 þús. km. Verð 1.290 þús. Suzuki Wagon R+ 4 wd, skr. 8/00, ek. 12 þús. km, 5 d., Verð 1.090 þús. Geo Tracker, skr. 3/96, 3 d., ssk., ek. 76 þús. km. Verð 490 þús. Sjáðu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI ---✓///---------- SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17, simi 568-5100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.