Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001 DV Fréttir Sjómenn æfir vegna frumvarps sjávarútvegsráðherra sem stöðvar verkfall: Sjávarútvegsráð- herra mun í dag mæla fyrir frumvarpi á Alþingi sem stöðv- ar verkfall sjómanna sem staðið hefur frá 1. apríl. Frumvarpinu var dreift í þinginu á laugardag þótt ekki Sævar væri mælt fyrir því Gunnarsson. þá, en þaö var til þess að þurfa ekki að treysta á að þingmenn minnihlutaflokkanna myndu sam- þykkja afbrigði til að taka mætti málið á dagskrá um leið og það væri lagt fram. Samkvæmt heimildum DV er litið þannig á málið af háifu stjómarflokk- anna að það verði keyrt af krafti gegn- um þingið, sjávarútvegsnefnd fái það til umfjöllunar milli umferða og senni- legast þykir að frumvarpið verði að lög- um í kvöld og flotinn geti þá haidið til veiða. Oröahnippingar Mikið uppnám varð á Alþingi á laug- ardag þegar þingmenn vom boðaðir á fund til að veita fmmvarpinu viðtöku. Þingmenn stjómarandstöðuflokkanna töldu sér stórlega misboðið og kom til nokkurra orðahnippinga milli þeirra og Halldórs Blöndals, forseta Alþingis. Megininnihald frumvarpsins er, eins og fram hefur komið, að verkfalli sjó- manna verði þegar aflýst, samninga- nefndir sjómanna og útvegsmanna fái frest til 1. júní til að semja en takist það ekki skipi Hæstiréttur gerðardóm til að setja deiluaðilum samninga tii að starfa eftir. „Við höfúm alltaf hvatt okkar menn til að fara að lögum en það er alveg á hreinu að nú er mælirinn fullur og við Ráðherra og tveir þingmenn DV'MYND E0J Fámennt var á þingfundi sem boöaö var til á laugardaginn - en þar lagði Árni Mathiesen fram frumvarp um aö aflýsa verkfalli sjómanna. munum grípa til allra hugsanlegra ráða og þar er ailt inni í myndinni. Það liggur þó ekkert fyrir um það að við hvetjum menn til að neita að fara til sjós, enda óvíst að þeir yrðu við því,“ segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands íslands, um það hvort hugsanlegt sé að sjómenn verði hvattir til að hlíta ekki lögum sem stöðva verkfall þeirra og neita að fara á sjó. Formaður Sjómannafélags Reykja- vikur lét í þetta skína í útvarpsviðtali fyrir helgina. Sævar sagði hins vegar að það væri alveg ljóst að þessum átökum nú lyki ekki með lagasetningu Alþingis sem stöðvaði löglegt verkfall þeirra og það yrði gripiö til allra ráða i því sam- bandi. „Það eru til dómstólar bæöi hér innanlands og einnig erlendis sem hægt er að leita til og má m.a. nefna mannréttindadómstóla í því sambandi. Þá er það líka alveg borðleggiandi að við munum beita okkur fyrir því er- lendis hjá alþjóðlegum samtökmn flutningamanna að þeir neiti að landa og flytja fisk sem kemur héðan frá þess- um verkfallsbrjótum. Við munum setja allt í gang til að stöðva þetta og beita öllum tiltækum ráðum,“ segir Sævar. Samninganefndir aðildarfélaga Sjómannasambandsins funduðu víða um land í gær og var aðalum- ræöuefnið hvort aflýsa ætti verk- fallinu og koma þannig í veg fyrir að geðardómur setji lög um kjör þeirra þar sem að mestu leyti yrði stuðst við nýsamþykktan samning vélstjóra. Aöalsamninganefnd Sjó- mannasambandsins átti síðan að koma saman í morgun og taka end- anlega ákvörðun en samkvæmt heimildum DV eru mjög litlar likur taldar vera á að verkfallinu verði aflýst. -gk Vilja aðstoð að utan - litlar líkur taldar á að verkfalli verði aflýst í dag Hlutu viðurkenn- ingar fyrir störf sín Árlegar Vorvindaviöurkenningar Bama og bóka - íslandsdeildar IBBY, fyrir menningarstarf í þágu barna og unglinga, voru veittar í Norræna húsinu síðastliðinn laugardag. Verð- launahafarnir, sem voru þrír að þessu sinni, eru þau Margrét Gunn- arsdóttir, leikskólakennari og kenn- ari, Silja Aðalsteinsdóttir blaðamað- ur og Þórarinn Eldjárn rithöfundur. Margrét hlaut Vorvinda IBBY fyr- ir störf sín í þágu barna og bama- menningar en hún hefur kennt barnabókmenntir í Fóstruskólanum í 25 ár. Silja Aðalsteinsdóttir fékk við- urkenninguna fyrir fræðslustörf á sviði barnabókmennta, en hún kenndi um árabil barnabókmenntir við HÍ og skrifaði einu barnabók- menntasöguna sem út hefur komið hér á landi. Þórarinn Eldjárn fékk Vorvinda IBBY fyrir leikverkið Völu- spá sem Möguleikhúsið hefur haft til sýninga. -MA Fengu Vorvinda IBBY DVMYND E ÓL- Þau Margrét Gunnarsdóttir, Silja Aöalsteinsdóttir og Þórarinn Eldjárn hlutu Vorvinda IBBY aö þessu sinni. | Veðríð í kvöld 1 Sólargangur og sjávarföll REYKJAVIK AKUREYRI jÉj 8<5 :rjSB . v 4^ y(8 M c, A 0 Sólariag í kvöld 22.35 22.38 Sólaruþþrás á morgun 04J.3 03.39 Síödegisflóö 23.39 04.12 Árdegisflóö á morgun 12.12 16.42 Skýringar á veðurtáknum J*-^vindátt —HITI -10° '"^VINDSTYRKUR "Vrensr í metrum é wkúndu ^rKOSl HBÐSKlRT & !»■ o LETTSKÝJAD HÁLF- SKÝJAD SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ *.*,•,* Wtt W Q Yfirleitt þurrt á landinu RIGNING SKÚRIR SLYÐDA SNJÓKOMA Vestlæg eöa breytlleg átt, 3 til 8 m/s en noröaustan 8 til 13 á annesjum norðanlands. 1 ; = Skýjað meö köflum en yfirleitt þurrt. Hiti 2 til ÉUAGANGUR ÞRUMU- SKÁF- ÞOKA 9 stig. VEÐUR RENNiNGUR wwmR------------------ Lofthiti í maímánuði Maímánuður er nú rúmlega hálfnaöur og hefur veöurfar veriö með ágætasta móti. Áriö 1931 var meðalhiti í Reykjavík í maí 7 gráður. Tíu árum seinna var hann 8,4 gráöur og 1951 6,9 gráöur. Áriö 1961 var meðalhitinn 8,1 og 1971 var hann 6,7 gráður. Hann var 6,6 áriö 1981 og áratug seinna var hann 6,8 gráöur. Á síöasta ári var meöalhiti í maí 6,5. Veöriö á morgun Slydda eða rigning á Austurlandi Á morgun veröur noröan 13 til 18 m/s og slydda eöa rigning austanlands, él á Noröurlandi en skýjaö meö köflum suövestan til. Hitastigiö veröur á bilinu 0 til 5 stig. Míövíkuda Vindur: 5—8 m/s Eut Fimmtudaglif, Hiti 1» til 9° Vindur: 5-8 Hiti 3 f- io !° til 12° *Vá Fóstudagiir Vindur 5-8 m/s Híti 3° til 12' Breytlleg átt, 5 tll 8 m/s og skýjað með köflum en úrkomulitlð. Hltl 1 tll 9 stlg, hlýjast sunnanlands. Suölæg átt og vætusamt vestanlands en þurrt að kalla fyrlr austan. Hlýnandl veður. Suðlæg átt og vætusamt vestanlands, en þurrt að kalla fyrlr austan. Hlýnandl veður. Þjófur á ferð: Fólkið svaf sem fastast DV, AKUREYRI:_____________ Tæplega fimmtugur Reykvík- ingur var handtekinn á Akureyri í gærmorgun en árrisull ibúi sá manninn vera aö fara inn í bif- reiðar við Rauðumýri. Lögreglan fann manninn skömmu síöar og kom í ljós að hann hafði ýmislegt á samvisk- unni og eitt og annaö i poka sem hann var með. í honum voru nefnilega m.a. 3 farsímar og tveir geislaspilarar og ýmislegt annað. Þegar maðurinn haföi sofið úr sér hjá lögreglunni í gær leysti hann frá skjóðunni og viðurkenndi að hafa farið inn í þrjú hús um nótt- ina og einnig inn í bíla. Þar stal hann varningnum sem hann var tekinn með. í ljós kom að i a.m.k. tveimur húsanna sem maðurinn fór inn í var fólk heima en mun hafa sofið sem fastast meðan „að- komumaðurinn“ lét greipar sópa. -gk Ógnaði fólki með hníf Maður var handtekinn um kvöldmatarleytið á laugardag eftir að hann veifaði hníf að nærstödd- um á gistiheimili við Skólavörðu- holt. Ekki er vitað hvort Evró- visjónspenningurinn hefur farið svona illa i manninn en hann var ölvaður og fékk að gista fanga- geymslur lögreglu. Mikiö lið lög- reglu fór á staðinn en máliö var fljótt að leysast. -hdm Vestmannaey j ar: Stútur etti lögguna Lögreglan i Vestmannaeyjum þurfti að hafa afskipti af ölvuðum ökumanni aðfaranótt sunnudags. Málavextir voru þeir að maðurinn keyrði inn á plan lögreglustöðvar- innar og hóf þar að reykspóla og lét öllum illum látum. Lögregla veitti manninum eftirfor en eftir stuttan spöl sneri hann við og ók í áttina að lögreglubílnum. Sáu lög- reglumenn sér þann kost vænstan að bakka undan honum en ekki fór betur en svo að þeir bökkuðu á ljósastaur. Nokkur mannfjöldi hafði safnast að en engan sakaði. Maðurinn kom sjálfur á lögreglu- stöðina skömmu síðar og gaf sig fram. -hdm Veðrið AKUREYRI léttskýjaö 12 BERGSSTAÐIR hálfskýjaö 11 BOLUNGARVÍK heiöskírt 9 EGILSSTAÐIR 12 KIRKJUBÆJARKL. hálfskýjaö 13 KEFLAVlK alskýjaö 7 RAUFARHÖFN alskýjaö 7 REYKJAVÍK þokumóöa 7 STÓRHÖFDI skýjaö 8 BERGEN hálfskýjaö 12 HELSINKI skúrir 12 KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 21 ÓSLÓ skýjaö 22 STOKKHÓLMUR hálfskýjaö 20 ÞÓRSHÖFN aiskýjaö 6 ÞRÁNDHEIMUR skúrir 8 ALGARVE léttskýjaö 18 AMSTERDAM skýjaö 23 BARCELONA hálfskýjaö 19 BERLÍN léttskýjaö 22 CHICAGO heiöskírt 7 DUBLIN skýjaö 15 HALIFAX þoka 8 FRANKFURT skýjaö 22 HAMBORG skýjaö 22 JAN MAYEN alskýjaö -3 LONDON skýjaö 23 LÚXEMBORG hálfskýjaö 22 MALLORCA skýjaö 22 MONTREAL 7 NARSSARSSUAQ þokuruöningur 2 NEWYORK skýjaö 13 ORLANDO heiöskírt 19 PARÍS skýjaö 25 VÍN léttskýjaö 18 WASHINGTON léttskýjaö 12 WINNIPEG alskýjaö 13

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.