Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Blaðsíða 24
40 Tilvera MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001 r>v ASCO Hagstætt verð varahlutir Stórhöfða 15 S. 567 6744 • Fax 567 3703 exxxotica www.exxx.is GERUM GOTT KYNLÍF BETRA! LANDSINS MESTA ÚRVAl AF UNAÐSTÆKJUM ÁSTARLÍFSINS Barónsstíg 27 - S: 562 7400 Ball í Gúttó Höfundur og leikstjóri Maja Árdal Næstu sýningar laugard. 19. maí, næstsíðasta sýningarhelgí. Föstud. 25. mai og laugard. 26. maí, síðustu sýningar sýningar hefjast kl. 20 Leikhúskórínn sýnir: Sígaunabaróninn eftir Johann Strauss. Leikstjóri Skúli Gautason. Tónlistarstjórn Roar Kvam. Einsöngvarar: Alda Ingibergsdóttir, Ari J. Sigurðsson, Baldvin Kr. Baldvinsson, Haukur Steinbergsson, Hildur Tryggvadóttir, Sigríður Elliðadóttir, Steinþór Þráinsson, Sveinn Arnar Sæmundsson og Þórhildur Örvarsdóttir. fimmtud. 17. maí og sunnud. 20. maí. Sýningar hefjast kl. 20.30 Sniglaveislan eftir:, Ólaf Jóhann Ólafsson Leikstjórn: Sigurður Sigurjónsson. Sýningar í Loftkastalanum Miðasalan opin alla virka daga, nema mánudaga, frá kl. 13:00- 17:00 og fram að sýningu, sýningardaga. Sími 462 1400. www.leikfelag.is Upp að altarinu - Guðlaugur Þór og Ágústa ganga í það heilaga Tími brúðkaupanna er runninn upp og á laugardaginn fór fram eitt glæsilegasta brúðkaup ársins þegar borgarfulltrúinn og athafnamaður- inn Guðlaugur Þór Þórðarson gekk að eiga Ágústu Johnson likams- ræktarfrömuö. Hjónavigslan sjálf fór fram í Dómkirkjunni en á eftir var slegið upp heljarinnar veislu á Hótel borg þar sem fjöldi gesta mætti tii að samfagna brúðhjónun- um. Kossinn Guölaugur Þór geröi sér lítiö fyrir og smellti kossi á sína heittelskuðu. Valdimar og Nanna Valdimar Svavarsson hjá Heritable Bank og Nanna René skrifstofumær. Nýgift og hamingjusöm Brúöhjónin ungu voru óneitanlega glæsileg þegar þau gengu út úr Dómkirkj- unni aö athöfn lokinni. Bíógagnrýni M mmS. Regnboginn - Dungeons & Dragons: The Movie Þar sem galdrar eru daglegt brauð Hitmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Gylfi Rútsson, framkvæmdastjóri fjármálasviös Tals, Arni Sigfússon, framkvæmdastjóri Tæknivals, Bryndís Guömundsdóttir talmeinafræðingur og Ágústa Kristjánsdóttir snyrtifræöingur voru meöal gesta. Þrjú af Skjánum Þaö fór vel á meö þeim Árna Þór Vigfússyni, sjónvarpsstjóra Skjás eins, Vil- borgu Halldórsdóttur, leikkonu og dagskrárgeröarkonu, og Helga Björnssyni söngvara. Hetjurnar tvær gegn ofureflinu Justin Whalin og Marlon Wayans í hlutverkum Ridleys og Snails. Drekar og dýflissur eru einhver lífseigasti ævintýraleikur sem gerð- ur hefur verið og enn þann dag í dag er hann sígilt verkefni fyrir þá sem hafa gaman af tölvuleikjum eða bara gamaldags spilaleikjum. Hræddur er ég um að hinir fjöl- mörgu aðdáendur leiksins verði fyr- ir vonbrigðum með Dungeons & Dragons: The Movie. Leikurinn góði er orðinn að færibandaframleiðslu þar sem allt er lagt í brellur sem bjóða ekki upp á nýmæli i þeim geira kvikmyndanna - virka frekar sem sýnishorn af því sem var nýtt fyrir tiu árum. Brellur duga sem sagt skammt og þegar sagan er frekar óspennandi þá er það fátt sem gleður augað. í upphafi fylgjumst við með hinum illa Profion (Jeremy Irons) reyna að ná stjóm á drekunum með göldrum sínum. Honum mistekst og sendir því aðstoðarsvein sinn, Damodar (Bruce Payne), til að komast yfir töfrastaf sem er i vörslu hinnar ungu drottningar, Savinu (Thora Birch). 1 millitíðinni kynnumst við tveimur smákrimmum, Ridley (Justin Whalin) og Snails (Marlon Wayans), sem óvænt verða þátttak- endur í stríði milli hinnar góðu drottningar og hins vonda Profions, strið þar sem hver persónan á fætur annarri kann eitthvað fyrir sér í göldrum. Dungeons & Dragons er dæmi- gerð kvikmynd sem hefur útlitið með sér en ekkert annað. Hraðinn er mikill sem stundum getur falið glamrið í tómri tunnu. Myndin er best þegar aðeins er slakað á og reynt aö byggja upp spennu, eins og til að mynda þegar Ridley þarf að ganga í gegnum þrautirnar hjá kol- legum sínum í þjófastéttinni. Eins og oft vill verða í slökum ævintýramyndum, þar sem hið góða berst gegn hinu illa, þá eru þeir leikarar skástir sem eru á bandi hins illa. Jeremy Irons yfirleikur skemmtilega í hlutverki Profions; hin glæsilega rödd hans er seiðandi sem fyrr. Spurningin er hvað slíkur gæðaleikari er að gera um borð í framleiðslu eins og þessari og svar- ið hlýtur að vera: peningar. Bruce Payne er einnig ábúðarmikill og sterkur persónuleiki. Þegar kemur að persónunum sem eru á bandi hins góða þá er eins og reynt hafi verið að búa til einhverja Stars Wars-stemningu sem ekki virkar. Savian er eftirmynd af Leiu prinsessu og Ridley að sama skapi eftirmynd af Luke Skywalker. Það er ákveðið metnaðarleysi sem einkennir Dungeons & Dragons. I stað þess að gera þessum skemmtilega leik hátt undir höfði er leitast við að vera eins og allir aðr- ir og treysta á að tæknimennirnir sjái um að myndin verði vinsæl, sem að sjálfsögðu hefur aldrei nægt og mun ekki nægja. Leikstjóri: Courtney Solomon. Handrit: Topper Lillian og Carroll Cartwright. Kvik- myndataka: Doug Milsome. Tónlist: Justin Caine Burnett. Aðalleikarar: Jer- emy Irons, Justin Whalin, Marlon Wa- yans, Bruce Payne og Zoe McLellen.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.