Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001 DV 13 Fréttir Hlutfall Islendinga sem bera þau 50 fyrstu nöfn sem algengust eru: 'i jv, y>s 10 at í íífóiry. w 4i Öll önnur fyrstu nöfn 48,5% Næstu 10 10,5% Næstu 30 18,2% t »;ktj Nær þriðjungur kvenna ber tíu algengustu nöfnin: Enn þá flestir Jónar og Gunnur Gömlu nöfnin okkar virðast enn þá afar lífseig þótt nýbakaðir for- eldrar leggi eflaust höfuðin vand- lega í bleyti við val á nöfnum óska- bamanna. Þannig eru Jón og Guð- rún enn þá algengustu nöfn á ís- landi, borin sem fyrra eða seinna nafn af um um 6.500 körlum og 6.600 konum, eða um 5% landsmanna. Samkvæmt þjóðská í árslok 1999 heitir um tíundi hver karl í landinu Jón, Sigurður eða Guðmundur og um tíunda hver kona: Guðrún, Anna eða Sigríður - langoftast að fyrra nafni. Hátt í þriðjungur allra kvenna í landinu ber eitt af tíu algengustu nöfnunum annaðhvort sem fyrra nafn eða seinna (alls yfir 43.500 kon- ur). Meðal karla er samsvarandi hlutfall röskur fjórðungur. Þór með yfirburði sem annað nafn Hagstofan birti nýlega lista yflr 50 algengustu fyrstu eða einnefni ís- lenskra karla og kvenna. Einnig þau 50 nöfn sem algengust eru sem annað nafn og sömuleiðis algeng- ustu tvínefni. I báðum þessum flokkum hefur Þór algera sérstöðu. Meira en einn af hveijum 25 körlum á landinu (alls 5.640) heita Þór að seinna nafni, nær tvöfalt fleiri en þau sem næst eru á listanum: Öm, Már og Ingi. Þór er líka seinna nafn- ið í helmingnum af fimmtíu algeng- ustu tvínefnunum þar sem Jón Þór trónir vitaskuld á toppnum. Björk, sem er algengasta síðara nafn kvenna, er þó helmingi sjaldgæfara en Þór. Þar koma Ósk og María næst í röðinni. Yfir helmingur landsmanna Rúmlega helmingur allra karla og kvenna í landinu heitir að fyrra nafni einhverju þeirra nafna sem á Hagstofunni eru 50 algengustu fyrri nöfn hvors kyns. Þar við bætast þúsundir annarra sem bera þau sömu nöfn sem síðara nafn þannig að langt yfir helmingur allra lands- manna ber þessi tiltölulega fáu nöfn annaðhvort sem fyrra nafn eða seinna. -hei DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON 20 milljóna króna hagnaður hjá HB DV, AKRANESI: " Hagnaður Haraldar Böðvarssonar hf. fyrstu þrjá mánuði ársins varð 20 milljónir króna. Hagnaður fyrir afskriftir nam 373 milljónum kr. eða 27,5% af tekjum. Ekki liggur fyrir þriggja mánaða uppgjör frá árinu 2000 og því er samanburður við það tímabil ekki til staðar, en allt árið 2000 var hagnaður fyrir afskriftir 598 milljónir. Rekstrarhagnaður fyrir fjár- magnsliði nam 253 milljónum króna en fjármagnsgjöld umfram fjár- munatekjur voru 228 milljónir. Þar af var gengistap vegna lána 155 milljónir kr. Hagnaður af reglulegri starfsemi var 25 milljónir kr. Skuldir fyrirtækisins hafa lækk- að um 245 milljónir kr. frá áramót- um, þrátt fyrir áhrif gengisbreyt- inga, aðallega vegna sölu á nóta- skipinu Óla í Sandgerði, AK 14. Veltufé frá rekstri nam 262 milljón- um kr. fyrstu þrjá mánuði ársins 2001 en allt árið 2000 var veltufé frá rekstri 275 milljónir kr. Verkfall sjómanna hefur haft nei- kvæð áhrif á rekstur fyrirtækisins eftir að það hófst aftur í byrjun apr- íl. Þá hefur lægra gengi íslensku krónunnar áhrif til hækkunar á skuldum fyrirtækisins í erlendum myntum en jákvæð áhrif á tekju- streymi fyrirtækisins til lengri tíma. -DVÓ CRáðstefna um framtíð auglýsinga- og birtingarmála á Netinu fyrir auglýsinga-og markaðsfólk. Framtíð Intemetinu §i Hvernig getur þú fullnýtt þá peninga og vinnu sem fara í Netauglýsingar? Á ráðstefnunni verður farið yfir framtíð auglýsinga á Netmarkaðnum og stiklað á stóru í þeim nýjungum sem eru í sjónmáli í greininni. Farið verður á fræðandi hátt yfir þann hag sem hægt er að hafa af vel útfærðum auglýsingum á þessum ört vaxandi vettvangi. DAGSKRÁ 12:45 13:00 14:30 14:50 15:30 16:30 Móttaka gagna Staða markaðarins og framtíð / Brad Aronson (Situation on the Net market/ The Future) Kaffihlé Fjölmiðlaglundroði morgundagsins / Hilmar Sigurðsson (The Media Chaos of Tomorrow) Hámarksnýting auglýsinga á Netinu / Brad Aronson (Full value of Internet Advertising) Léttar veitingar ■ Brad Aronson erforstjóri og aðaleigandi l-frontier.com, sem er auglýsinga- stofa í Fíladelfíu, Bandaríkjunum. l-frontier.com hefur verið leiðandi í þróunarvinnu við auglýsingar á Netinu síðan hún var stofnuð árið 1996. Brad er höfundur bókanna „Advertising on the Internet", sem hefur verið marg endurprentuð og „Banners and Beyond", sem er um framtíð skapandi þróunarvinnu fyrir Netauglýsingar og var gefin út af Jupiter Communications. ■ Hilmar Sigurðsson er framkvæmdastjóri CAOZ hf., hönnunar- og samskiptastofu í Reykjavík. Hann á að baki langa reynslu I auglýsinga- iðnaðinum og var rekstrarstjóri hjá netráðgjafarfyrirtækinu lcon Medialab í Kaupmannahöfn. Þar sem stækkaði úr fjórum starfsmönnum (250 á þeim tíma sem hann starfaði þar. Skráning fer fram á NetGlugga Vísis.is. Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá markaðsdeild Vísis.is. Þátttökugjald er kr. 12.900,- en kr. 9.900,- fyrir viðskiptavini Vísis.is. Sérstök afsláttarkjör fyrir fyrirtæki sem senda fleiri en einn þátttakanda. Innifalið er kaffi á meðan ráðstefnunni stendurog léttar veitingar í lok dagskrár. Námskeiðið er haldið mánudaginn 28. maí frá kl. 12.45 til 17.00 í Háskólabíói. visir.is* punktur!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.