Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Blaðsíða 32
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001
Verkfall Hlífar í Hafnarfirði hófst á miðnætti:
Yfir þúsund leik-
skólabörn heima
- hefur víðtæk áhrif, segir bæjarstjóri
Verkfall tæplega 400 félagsmanna
í Verkamannafélaginu Hlíf í Hafnar-
firöi hófst á miðnætti í gær. Félags-
menn felldu í síðustu viku samning
sem gerður hafði verið við launa-
nefnd sveitarfélaga og var það í ann-
að skiptið í kjaradeilunni sem þeir
felldu kjarasamning.
Að sögn Sigurðar T. Sigurðssonar,
i formanns Hlífar, nær verkfallið að-
allega til kvenna sem vinna á leik-
skólum, gæsluvöllum, við heima-
þjónustu og ræstingu hjá stofnunum
bæjarins og eru grunnskólar meðal
þeirra. „Verkfallið mun aðallega
hafa þau áhrif að leikskólar og
gæsluvellir verða lokaðir, heima-
þjónusta fellur niður og ræstingar
verða ekki í grunnskóium," segir
Sigurður og bætir við að þetta muni
Siguröar T. Magnús
Sigurösson. Gunnarsson.
því hafa mikil áhrif. Hann segir að
fulltrúar félagsins hafi fundað í gær
með launanefnd sveitarfélaga í
húsakynnum sáttasemjara en ekki
náðist samkomulag og verður því
fundað aftur í dag, klukkan fimm.
„Við hefðum viljað hafa stífari fundi
og að fleiri hefðu tekið við sér,“ seg-
ir Sigurður. Hann vildi að öðru leyti
ekki ræða hvað skilur á milli deilu-
aðila en vonar að lausn fmnist sem
fyrst.
Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði, segir að verkfallið muni
leiða til þess að loka verði tólf leik-
skólum í bænum sem á eru yfir þús-
und börn. Ef verkfallið dregst á lang-
inn muni það einnig verða til þess
að loka verður öllum grunnskólum í
bænum þar sem engar ræstingar
verða í þeim. „Við lítum málið al-
varlegum augum og þetta kemur
niður á hinum almenna bæjarbúa og
þó svo maður hafi alltaf samúð með
fólki sem er að berjast fyrir sínum
réttindum þá mun þetta hafa víðtæk
áhrif,“ segir Magnús. Hann vonar að
málið leysist sem allra fyrst. -MA
Ekiö á gangandi
r> vegfarendur
Ekið var á tvo gangandi vegfarend-
ur í Mosfellsbæ aðfaranótt sunnu-
dags. Atburðurinn átti sér stað við
Varmárbakka og stakk ökumaðurinn
af. Hann náðist skömmu seinna eftir
ábendingar fórnarlambanna og er
grunaður um ölvun. Vegfarendurnir
voru fluttir á slysadeild með minni
háttar meiðsli. -hdm
Bílvelta við
Enniskot
Umferðaróhapp varð við bæinn
Enniskot í Húnaþingi vestra í gærdag
með þeim afleiðingum að flytja varð
v fólk á slysadeild. Tveir bilar voru að
mætast og virðist sem annar hafi far-
ið yfir á rangan vegarhelming. Bílam-
ir skullu saman og valt annar við
áreksturinn og voru farþegar í honum
fluttir á slysadeild. Báðir bílarnir eru
mikið skemmdir og voru fluttir af
slysstaðnum með dráttarbifreið. -hdm
Tekinn á 177
Ungur ökumaður var mældur á 177
kílómetra hraða á Vesturlandsvegi
um helgina. Þegar lögregla ætlaði að
stöðva hann reyndi hann að komast
undan en það fór ekki betur en svo að
vegslóðinn sem hann ók reyndist
blindgata. Reyndi hann þá að komast
t m undan á hlaupum en vaskir lögreglu-
menn hlupu hann uppi. -hdm
Ókeypis áfengi og matur - rúlletta og black-jack:
Spilavíti í miðborginni
- lögreglan veit ekkert
Höröur
Jóhannesson.
„Eg hef ekki hug-
mynd um þetta -
hef aldrei heyrt af
þessum stað,“ segir
Hörður Jóhannes-
son yfirlögreglu-
þjónn um spilavíti
sem rekið hefur
verið um alllangt
skeið í miðborg
Reykjavíkur. Hús-
næðið
er skráð við Suðurgötu
3, í portinu á bak við
hús Happdrættis Há-
skólans og Hjálpræðis-
hersins, og þar er bjalla
sem gestir hringja vilji
þeir fá inngöngu í spilavítið.
„Ég hef ekki orðið var við að
menn séu sérstaklega valdir til inn-
göngu. Þarna getur hver sem er far-
ið og spilað bæði rúllettu og black-
jack,“ segir viðmælandi DV sem
vanið hefur komur sínar í spilavít-
ið. „Þama er veitt ókeypis áfengi og
matur fyrir spilara og það er ef til
vill glufan sem eigendur hafa fund-
ið til aö fá að starfrækja spilavítið í
friði. Lögreglan hlýtur að vita af
þessu. Allir sem vilja þekkja þenn-
an stað.“
í símaskránni er spilavítið skráð
sem Bridsklúbburinn Suðurgötu 3
en á krítarkortanótum gesta er inn-
Inngangurinn í spilavítiö
Staöinn sækja bæöi þekktir sem og
óþekktir borgarar sem eiga spila-
áráttuna sameiginlega.
heimtuaðili hins vegar „Bridsklúbb-
urinn - Félag“.
„Þarna eru posavélar og maður
tekur út peninga að vild. Ég hef
hins vegar aldrei séð nokkurn
mann spila bridge þarna,“ segir við-
mælandinn og bætir því við að
alltaf sé ró yfir gestum og staðinn
sæki bæði þekktir sem og óþekktir
borgarar sem eigi spilaáráttuna
sameiginlega. -EIR
Rýnt í frumvarp °™™d pjetur
Grétar Mar Jónsson, formaður Farmanna- og fiskimannasambandsins, rýnir í
frumvarp sjávarútvegsráðherra sem bannar verkfall sjómanna. Mikil reiöi er
meöal sjómanna vegna frumvarpsins og jafnvel er taliö að þeir muni leita
liösinnis erlendis frá. Bls. 2 og 4.
LÓÐ FYf^lR FULLT
HU5!
Reykjavíkurborg býður landrými fyrir 383 íbúðir:
Lotterí með nýjar lóðir
- kaupendur standist 20 milljón króna greiðslumat
Reykjavíkurborg býður fram land-
rými fyrir 383 nýjar íbúðir í Grafar-
holti og á Kjalarnesi og hafa lóðirnar
þegar verið auglýstar. Um er að ræða
lóðir fyrir 360 íbúðir í Grafarholti og
23 til viðbótar á Kjalarnesi.
64 einbýlishúsaíóðir í Grafarholti
verða boðnar einstaklingum á föstu
verði en byggingarréttur þeirra lóða
sem eftir standa verður boðinn bygg-
ingaverktökum en þar er um að ræða
fjölbýlis-, par- og raðhús. Einbýlis-
húsalóðirnar veröa seldar á 3-3,5
milljónir króna og fer verðið eftir
Nýjar lóöir í Grafarholti
Dregiö úr umsóknum í viöurvist
sýslumanns.
staðsetningu og stærð lóðar. Lóðir
sem snúa móti suðri verða dýrari en
hinar sem snúa í norður, með útsýni
til Esjunnar.
„Eftirspurn eftir lóðum i Reykjavík
er meiri en framboðið þannig að við
eigum von á að færri fái einbýlis-
húsalóðirnar en vilja. Því hefur verið
ákveðið að draga úr umsóknum sem
berast í viðurvist fulltrúa frá sýslu-
manninum í Reykjavik en allir um-
sækjendur verða að hafa staðist 20
milljón króna greiðslumat til að eiga
möguleika á lóð,“ sagði Ágúst Jóns-
son, skrifstofustjóri borgarverkfræð-
ings. -EIR
Verö frá
35.500 EVRó
Allar staerðir Gsrf533Si4?43