Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001 r>v 9 Fréttir ^ Auglýsingar um skaðsemi togveiða: Omerkilegur áróður smábátasjómanna ^ / / - segir Friðrik Jón Arngrímsson, framkvæmdastjóri LIU um smábáta eða togara er að ræða. Hægt væri að hafa sérstaka útgáfu fyrir smábáta þannig að ekki væri leyfilegt að selja kvóta frá smábáti yfir á stærri bát. Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, segir hugmyndina aldrei hafa ver- ið að leggja niður togaraflotann. Þá vísar hann tillögum um afla- mark fyrir smábáta á bug. kæmi að allar flóðgáttir opnuðust og smábátaflotinn myndi vera þurrkaður upp af stórfyrirtækjun- um. Ekki eru nema örfáir dagar síðan helstu forkálfar stórútgerð- arinnar voru að gæla við þá hug- mynd að það væru þrjú til fjögur stór útgerðarfyrirtæki á landinu," segir hann. Botnlaus húmor Auglýsingar smábáta- sjómanna upp á síðkastið hafa vakið athygli en þar er veiðiskapur smábátasjó- manna auglýstur sem náttúruvænn á meðan i dregin er upp skuggaleg 2 mynd af hafsvæðum sem sögð eru stórsködduð af .£ völdum botnvörpuveiða. st Friðrik Jón Arngríms- son, framkvæmdastjóri ^ Landssambands ís- s lenskra útvegsmanna, segir auglýsingar smá- ? bátasjómanna vera ský- »* lausan áróður sem ekki S _ . íwn er a rokum reistur. SL „Þetta er ómerkilegur áróður. Auðvitað skipt- »» ir máli hvaða veiðarfæri ", maður notar en það «. skiptir ekki máli hvort Á' menn eru á smábáti eða srs, stórum báti. Maður veið- ”1 ir ekki grálúðu eða út- hafskarfa á færi. Það verð- ur að stunda togveiðar líka. Veiðar eiga að vera stundaðar með þeim veið- arfærum sem best falla að í vistkerfinu hverju sinni , en það hefur ekkert með það að gera að smábátar eigi einhvern forgang umfram aðra. Smábáta- sjómenn eru að halda röngum staðreyndum að fólki. Og því mið- ur hefur þeim orðið verulega ágengt í þvi,“ segir hann. Eiga aö láta okkur í friöi Friðrik segist vilja taka upp aflamark fyrir öll skip hvort sem f. V' . W- Sumir kjósa aö skrapa botninn „Útgerðarmenn hafa lagt okkur þau orð í munn að við viljum alia togara burt. Þeir mega gjarnan vera í friði með sína togara en þeir eiga líka að láta okkur smá- bátasjómenn í friði. Ef við færum í aflamarkskerfi með stóru togur- unum er alveg ljóst að sá tími Hann segir við- brögð útvegsmanna við auglýsingum smábátasjómanna einkennast af hroka. „Þetta lýsir vel þeim hroka sem birt- ist hjá LÍÚ í hvert einasta skipti sem bent er á að þeir skaði umhverfið. Nú hafa rannsóknir sýnt að togveiðar skemma hafsbotninn og hent er tugum þúsundum tonna af afla í hafið. Útvegsmenn hafa steindrepið þessa um- ræðu hvar og hvenær sem bryddað er upp á henni.“ LÍÚ hefur sakað smábátasjómenn um stjórnlausar veiðar og vill að tekið verði í taumana. Arthur segir útgerðarmenn fara með firru. „Annaðhvort eru útvegsmenn með botnlausan húmor eða alls engan og ég hallast að hinu síð- ara. Hvernig gengur það upp að bátar sem mega fiska 23 daga á ári séu að ganga að miðunum dauðum? Þvert á móti hefur það sýnt sig að þegar grunnslóðarmiðin fá frið fyrir togveiðunum blossar upp mokveiði - líkt og í steinbítnum nú,“ segir hann. -jtr Skuldir Spalar hafa hækkað um 600 milljónir á hálfu ári DV, HVALFIRÐI:______________________ Gengisþróun undanfarna mánuði hefur haft áhrif til hins verra fyrir flest fyrirtæki sem eru með skuldir sínar í erlendri mynt. Spölur hf. sem á og rekur Hvalfjarðargöng hef- ur illilega orðið fyrir barðinu á þessari þróun, að sögn Stefáns Reynis Kristinssonar, framkvæmda- stjóra Spalar. „Við erum með um helming af skuldum okkar í erlendri mynt. Við erum hins vegar ekki farnir að gera ráð fyrir þvi að gjaldið hækki í göngunum en gengisþróunin hefur mikil áhrif. Hvert prósent sem geng- ið lækkar þýðir 30 milljónir í hækk- uðum skuldum fyrir okkur. Frá 1. október, en þá byrjar okkar reikn- ingsár, hafa skuldir okkar hækkað um 600 milljónir," segir Stefán. Stefán bendir á að það sé ekki langt síðan að Spölur hafi hækkað gjaldskrána og þeir ætli að skoða það betur en sú hækkun sem kom til framkvæmda þá vegur ekki upp hækkun skuldanna að fullu. „Við ætlum hins vegar að reyna að kom- ast hjá þvi að hækka gjaldskrána," sagði Stefán í samtali við DV. DVÓ Vertíðinni lokið í Hlíðarfjalli I Hlíöarfjalli Þar er skíðavertíðinni lokið en met voru slegin þar í vetur. DV, AKUREYRI:______________________ „Þessari ágætu skíðavertíð hjá okk- ur er lokið. Það er reyndar enn þá svo mikill snjór í efstu brekkunum að þar væri hægt að vera á skíðum en neðar í hallinu er allt á floti í vatni og eng- in leið að koma fólkinu upp í lyftun- um eða til baka,“ segir Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíða- svæðisins í Hliöaríjalli við Akureyri. Guðmundur segir að afkomutölur úr fjallinu liggi ekki fyrir enn sem komið er en vertíðin hafi verið góð. Sala lyftu- korta hafi verið mjög mikil og þá var slegið met í fjölda opnunardaga. Þeir voru 132 talsins en til samanburðar voru þeir 81 í fyrravetur. Eins og fram hefur komið í DV hef- ur Vegagerðin lýst veginn upp í Hlíð- arfjali ónýtan. Bæjarráð Akureyrar hefur falið bæjarstjóra að þrýsta á það við Vegagerðina og samgönguráðu- neytið að unnið verði að úrbótum á veginum hið allra fyrsta en vegurinn er þjóðvegur i þéttbýli og heyrir þvl undir Vegagerðina. -gk ÞÚ GEYMIR í GÁMI VIÐ GEYMUM GÁMINN Geymsla í skemmri eða lengri tíma Þarft þú geymslu undir árstíðabundinn lager, eða þarftu að geyma búslóðina eða tjaldvagninn? Þá eru geymslugámarnir frá Hafnarbakka kjörin lausn. Gámarnir eru í mörgum stærðum og eru staðsettir á læstu svæði Hafnarbakka. Sá sem leigir gám fær lykil að geymslusvæðinu og að gámnum. H AFNARÐAKK! HAFNARBAKKI uöurhöfninni Hafitarfirði Sími 565 2733 Fax 565 2735 TRIM /\F0RM Beighdar ( Sími ^ l5533818J Viltu laga Jínurnar Fyrir: Brúðkaupið útskriftina utanlandsferðina eða viltu bara líta vel út? Faglært starFsFólk. Langur opnunartími. Kynnið ykkur tilboðin. Gilda til 17. maí Sjáumst hress. Fyrir eFtir 6 vikur-60 tíma Hjá okkur nærðu árangriH TRIM/\F0RM BeigSndar Grensásvegi 50, sími 553 3818.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.