Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Blaðsíða 10
10 Utlönd MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001 Reylgavíkurbor^ Borgarverkfrœðingur Grafarholt Úthlutun lóða fyrir íbúðarhús Reykjavíkurborg úthlutar á nœstunni byggingarréttifyrir 360 íbúðir í Grafarholti. Um er að ræða lóðir sem hér segir: • 64 lóðir fyrir einbýlishús við Jónsgeisla, Þorláksgeisla og Gvendargeisla. • 11 lóðir fyrir fjölbýlishús með samtals 251 fbúð við Gvendargeisla, Þórðarsveig og Andrésbrunn. • 10 lóðir fyrir raðhús með samtals 31 íbúð við Jónsgeisla og Þorláksgeisla. • 7 lóðir fyrir parhús með samtals 14 íbúðum við Jónsgeisla og Þorláksgeisla. Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði byggingarhæfar á tfmabilinu júlí til september 2001. Lóðir fyrir einbýlishús Auglýst er eftir umsóknum um byggingarrétt á ofan- greindum 64 einbýlishúsalóðum. Byggingarrétturinn verður eingöngu seldur einstaklingum og fjölskyldum á föstu verði. Hver umsækjandi getur sótt um eina lóð og litið verður á hjón og sambýlisfólk sem einn umsækjanda. Þeir sem hafa áður fengið úthlutað byggingarrétti fyrir einbýlishús í Grafarholli geta ekki sótt um í þessari úthlutun. Dregið verður úr umsóknum sem uppfylla skilyrði fyrir þessar lóðir og fá umsækjendur að velja sér lóðir í þeirri röð sem umsóknir þeirra eru dregnar út. Áður en val lóða fer fram skal umsækjandi m.a. leggja fram skriflegt mat banka eða annarrar viðurkenndrar fjármálastofnunar sem staðfestir að hann ráði við 20 milljóna króna húsbyggingu. Þeir sem ekki leggja fram fullnægjandi greiðslumat glata valrétti sínum. Umsóknum um byggingarrétt á ofangreindum lóðum fyrir einbýlishús skal skila til skrifstofu borgar- verkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð, fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 23. maí 2001. Lóðir fyrir fjölbýbshús, raðhús og parhús Auglýst er eftir kauptilboðum f byggingarrétt á ofan- greindum lóðum fyrir fjölbýlishús, raðhús og parhús. Byggingarrétturinn er boðinn út til einstaklinga og fyrirtækja. Tilboð skulu taka til alls byggingarréttar á hveni lóð. Hæstbjóðandi skal leggja fram upplýsingar um fjánnál sín og áætlun um fjármögnun framkvæmda við viðkomandi húsbyggingu áður en afstaða verður tekin til tilboðs hans. Kauptilboðum í byggingarrétt á lóðum fyrir fjölbýlishús, raðhús og parhús skal skila á skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð, fyrir kl. 16:00 föstudaginn 25. maí 2001. Tilboðin verða opnuð f Skúlatúni 2, 5. hæð, sama dag kl.l6:10 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Skilmálar, eyðublöð og frekari upplýsingar Umsóknareyðublöð, tilboðseyðublöð, útboðsreglur og skilmálar fást á skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð frá og með 15. maí. Einnig er hægt að nálgast þessi gögn á heimasíðu borgar- verkfræðings (www.reykjavik.is/bv) undir mála- flokknum „lóðir“. Brýnt er fyrir umsækjendum og bjóðendum að kynna sér rækilega þá skilmála sem um lóðirnar gilda. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 563 2300. Borgarverkfrœóingurinn í Reykjavílc Útgönguspár eftir kosningarnar á Ítalíu: Berlusconi vann Kosningabandalag mið- og hægri- flokkanna á Ítalíu, undir forystu fjölmiðlakóngsins og milljarðamær- ingsins Silvios Berlusconis, sigraði bandalag vinstriflokkanna, sem fer með völdin, í þingkosningunum í gær, ef marka má útgönguspár í gærkvöld. Talskona hans sagði hann bæði rólegan og kátan en hann myndi bíða frekari úrslita áð- ur en hann tjáði sig. Samkvæmt útgönguspá Data- media könnunarfyrirtækisins fékk bandalag Berlusconis, þar sem með- al annars eru flokkur hans, Forza Italia, og hið hægrisinnaða Þjóðar- bandalag, hreinan meirihluta í báð- um deildum þingsins. Meirihluti er nauðsynlegur ef Berlusconi á að takast að mynda 59. stjórnina á Italíu frá stríðslokum. Útgönguspá þessi var fyrsta vís- bending um niðurstöðu kosning- anna þar sem mjög hart var barist til síðustu stundar. Fyrstu kosn- ingaspár voru væntanlegar um mið- nætti að staðartíma en fyrstu opin- beru tölurnar voru ekki væntanleg- ar fyrr en i morgunsárið. Stórsigur Útgönguspá Datamedia gerir ráð fyrir að kosningabandalag Berlus- conis fái 369 menn kjörna í neðri deild þingsins þar sem 650 þing- menn eiga sæti og 179 menn af 315 í efri deildinni. Berlusconi mun því hafa rúman meirihluta í báðum deildum þingsins. Bandalag vinstriílokkanna, undir forystu Francescos Rutellis, fyrrum borgarstjóra græningja í Róm, fékk 247 menn kjörna í neðri deildinni, samkvæmt útgönguspánni, og 119 menn i efri deild. Ef þetta verður niðurstaðan er augljóst að Berlusconi hefur unnið stórsigur. Úrslitin eru að sama skapi mikill ósigur fyrir vinstri- flokkana sem hafa farið með völdin á Ítalíu síðan 1996. Norðanmenn tapa „Jafnvel þótt þetta séu aðeins fyrstu tölur má sjá að við höfum sigrað og að líkur eru á að styrk stjórn komist á laggirnar,“ sagði Antonio Martino, sem gegndi emb- ætti utanríkisráðherra í skammlífri ríkisstjórn Berlusconis á árinu 1994. Allt bendir til að Bandalag norð- anmanna, undir forystu Umbertos Bossis, hafl ekki fengið nema tvö til fjögur prósent atkvæða og kemur það á óvart. Norðanmenn fengu tíu prósent atkvæða 1996. Þetta þýðir að Berlusconi gæti stjórnað án fulltingis Bossis, sem margir evrópskir stjórnmálamenn hafa gagnrýnt fyrir kynþáttahatur. Útgönguspá Datamedia kom heim og saman við könnun sem fyrirtæk- ið Abacus gerði meðal fimmtán þús- und kjósenda frá síðastliðnum mið- vikudegi fram til sunnudagsins. Skipulagsleysi á kjörstað ítalskir kjósendur kvörtuðu sár- an yfir skipulagsleysi á kjörstöðum. Víða voru langar biðraðir og þurftu margir að bíða í klukkustund eða lengur eftir þvi að geta neytt kosn- ingaréttar síns. Framlengja varð kjörfund til að gera fólki i biðröðum kleift að kjósa. „Þetta er hræðilegt," sagði kona nokkur sem beið eftir að kjósa. „Þetta er endir við hæfi á viður- styggilegri kosningabaráttu." Fréttaskýrendur bæði á Ítalíu og annars staðar hafa velt fyrir sér hvernig Berlusconi, sem er auðug- asti maöur Ítalíu, geti stjórnað land- inu án þess að til hagsmunaárekstra komi. Hefur Berlusconi verið ákaft gagnrýndur og breska tímaritið The Economist sagði meðal annars á dögunum að hann væri óhæfur sem forsætisráðherra Italíu. Berlusconi á leið úr kjörklefanum Svo viröist sem meirihluti ítalskra kjósenda sé á sama máli og fjölmiölakóngurinn Silvio Berlusconi um þaö aö hann sé hæfastur tii aö veita nýrri stjórn landsins forystu. Fyrstu útgönguspár í gærkvöld bentu til góös sigurs Berlusconis og bandalags miö- og hægriflokkanna. Vinstrimenn, sem hafa stjórnaö Ítalíu undanfarin fimm ár, töpuöu. Háttsettur palestínskur ráðherra: Engar viðræður nema land- nám gyðinga verði stöðvað Háttsettur ráðherra í heimastjóm Palestínumanna útilokaði í gær að friðarviðræður við ísraela yrðu tekn- ar upp að nýju nema endi yrði bund- inn á allt landnám gyðinga á landi sem var hertekið í Sex daga stríðinu 1967. Nabil Shaath, ráðherra skipulags- mála, sagði á fundi með fréttamönn- um í Vesturbakkaborginni Ram- allah að þjóðir heims væru famar að átta sig á því að nauðsynlegt væri að stöðva nýbyggingar land- nema til að draga úr ofbeldisverk- um og til að koma friðarviðræðun- um aftur af stað. Tveir landnemar gyðinga særðust þegar þeim var gerð fyrirsát og skotið var á þá á vegum úti á Vesturbakkan- um í gær. Á Gazaströndinni eyðilögðu ísraelskar jarðýtur hús á yfirráða- svæðum Palestínumanna. Slagorð gegn ísrael Palestínskt ungmenni hrópar vígorö gegn ísrael viö útför manns sem féll í skothriö ísraela á Gazaströndinni. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sakaði ísraela um að beita „óhóflegu valdi“ gegn uppreisn Palestínumanna. í viðtali við fréttamann Reuters í Brussel sagði hann enn fremur að viðræður deilenda hefðu til þessa borið lítinn árangur. „Ég vona þó að með tímanum muni þær leiða til vopnahlés, draga úr efna- hagslegum þvingunum á hendur palestínsku þjóðinni og fá deilendur aftur að samningaborðinu," sagði Annan. Saeb Erekat, helsti samningamaður Palestínumanna, hélt til New York í gær þar sem hann mun ræða við Ann- an um þrengingar Palestínumanna. Jóhannes PáO páfi hvatti til friðar fyrir botni Miðjarðarhafsins i viku- legu ávarpi sínu til fólks sem kom saman á Péturstorginu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.