Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Síða 11
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001
DV
Útlönd
u
wmximmvm
Átök Júgóslava og Albana við Kosovo:
Áfall fyrir Vajpayee
Atal Behari
Vajpayee, forsætis-
ráðherra Indlands,
og stjórn hans urðu
fyrir enn einu áfall-
inu í gær þegar úr-
slit voru ljós í fylk-
iskosningum í land-
inu. Niðurstöðurn-
ar voru aftur á móti uppörvandi fyr-
ir Kongressflokkinn sem Sonia
Gandhi leiðir.
Þjóðernissinnar fá mest
Þjóðernissinnar sem hafa stjórn-
að Baskalandinu á Spáni undan-
fama tvo áratugi fengu fleiri at-
kvæði en nokkur annar flokkur í
héraðskosningum í gær. Kosninga-
spár gera þó ekki ráð fyrir að þeir
fái meirihluta.
Fagnað sem hetjum
Eistnesku Evróvisjónsigurvegur-
unum var fagnað sem hetjum við
heimkomuna í gær þegar tíu þús-
und manns tóku á móti þeim í mið-
borg Tallinn.
Skaðabætur fyrir flugslys
Lögmenn flestra ættingja fórnar-
lamba slyssins þegar Concorde-þota
franska flugfélagsins fórst nærri
París í fyrra sögðu í gær að þeir
hefðu komust að samkomulagi um
skaðabætur.
Ekkert miðar hjá Hague
William Hague
og félögum hans í
breska íhalds-
flokknum hefur
ekkert orðið ágengt
við að saxa á for-
skot Verkamanna-
flokks Tonys Blairs
forsætisráðherra á
fyrstu dögum kosningabaráttunnar.
Blair og félagar hafa mikið forskot á
íhaldið fyrir kosningarnar 7. júní.
Uppreisnarmenn drepa
Alsírskir uppreisnarmenn gerðu
öryggissveitum stjómvalda fyrirsát
i gær og felldu ellefu menn.
Uppgjör við fortíðina
Uppljóstranir fransks fyrrum
hershöfðingja um kerfisbundnar
pyntingar af hálfu Frakka í Alsir-
stríðinu hafa hleypt af stað miklum
umræðum um þennan þátt í sögu
Frakklands sem þagnarmúr hefur
umlukið í áratugi.
Holger tapaði
Holger K. Niel-
sen, formaður Sós-
ialíska þjóðar-
flokksins í Dan-
mörku, og aðrir
leiðtogar urðu und-
ir í atkvæöa-
greiðslu um mál-
efni innflytjenda og
flóttamanna á landsfundi flokksins í
gær. Meirihluti fundarmanna taldi
að forystan hefði of lengi daðrað við
fjandsamlega afstöðu til innflytj-
enda sem hún hefur sakað borgara-
legu flokkana um.
Perry Como látinn
Söngvarinn og sjónvarpsstjarnan
Perry Como er látinn, 88 ára gamall.
Bjartara fyrir seli
Vonir eru bundnar við að hundr-
uð þúsundir sveltandi sela á ísbreið-
um í Hvíta hafinu komist í æti eftir
að hlýnaði í gær.
Skæruliðarnir
vara við stríði
Átök blossuðu upp í gær milli
júgóslavneskra hersveita og al-
banskra skæruliða á hlutlausu
svæði við Kosovo, sem komið var á
fót eftir stríðsátökin þar. Atlants-
hafsbandalagið (NATO) ákveður í
dag hvort hleypa á serbneskum her-
sveitum inn í vígi uppreisnarmanna
á svæðinu.
Albanskir skæruliðar hafa varað
NATO við því að strið muni brjótast
út verði heimildin veitt. Ekki er bú-
ist við öðru en að sú veröi niður-
staðan.
Eftir að til átaka kom, bæöi á
laugardag og í gær, var haft eftir
innanríkisráðherra Júgóslavíu að ef
til vill væri þörf á að slá ákvörðun-
inni á frest. Hann varaði einnig við
nýjum stríðsátökum.
Talsmenn stjórnvalda í
Júgóslavíu sögðu að albanskir
skæruliðar í þorpinu Oraovica
hefðu beitt stórskotaliðsbyssum og
þungum vélbyssum gegn stjórnar-
hemum. Stjórnarhermenn svöruðu
skothríðinni og að sögn varð enginn
þeirra fyrir meiðslum.
Háttsettur maður í friðargæslu-
liði NATO í Kosovo sagði að öllu ró-
legra hefði verið á svæðinu í gær en
á laugardag.
Serbar í eftirlitsferð
Serbneskir lögreglumenn fara aö
öllu meö gát í eftirlitsferð sinni
nærri borginni Presovo í sunnan-
veröri Serbíu í gær.
54' FESTIVAL INTEKNA'l IONAE 1)U FJLM
CANNES 2001
rrtwrf
iXWffö i, /
\ mms t. / v, 4
rt-Wr; -f wmwí-i ■*'eJWJMtMHmKW
vmm». / v, 4 j
B iwi f r t r'.* -1- -WI *I
Ryksugað fyrir stjörnurnar
Eins gott að rauöi dregillinn aö sýningarhöllinni í Cannes sé hreinsaður fyrir
stjörnusýningu kvöldsins. Þessi mynd var tekin í gær þegar allt vargert klárt
fyrir sýningu nýjustu myndar bandaríska leikstjórans Joels Coens,
The Man Who Wasn’t There, á kvikmyndahátíðinni heimsþekktu.
Lögmenn spá í ný réttarhöld:
Aftöku McVeighs
ekki frestað aftur
Lögmaður Timothys McVeighs,
sprengjuvargsins í Oklahomaborg,
sagði í gær hugsanlegt að farið yrði
fram á ný réttarhöld yfir honum.
Lögmenn McVeighs fara nú yfir
þúsundir síðna af gögnum sem al-
ríkislögreglan FBI hélt leyndum fyr-
ir þeim. Fyrirhugaðri aftöku
McVeighs á miðvikudaginn kemur
fyrir sprengjutilræði við alríkis-
byggingu í Oklahomaborg árið 1995,
þar sem 168 týndu lífi, var frestaö af
þeim sökum til 11. júni.
John Ashcroft, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, hét því að
fresta aftökunni ekki í annað sinn,
þótt verjendumir vildu fá meiri
tíma til að fara yfir gögnin.
Þingmaður demókrata hefur farið
fram á úttekt á starfsemi FBI vegna
máls þessa.
John Ashcroft
Dómsmálaráöherra Bandaríkjanna
telur aö lögmenn McVeighs eigi aö
hafa nægan tíma til aö yfirfara gögn-
in frá alríkislögreglunni FBI.