Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2000 15 DV Menning Nína Margrét Grímsdóttir gefur út öll píanóverk dr. Páls ísólfssonar: Ófeiminn og síðrómantískur DV-MYND E.ÖL. Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari Píanóverk Páls eru alveg sambærileg viö verk erlendra tónskálda frá sama tímabili og hann þarf aö taka sinn sess meöal þeirra. Á miövikudaginn sendir Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari frá sér á geisla- diski heildarútgáfu á frumsömdum píanó- verkum dr. Páls ísólfssonar, hins vinsœla tónlistarfrömuöar, hljómsveitarstjóra, kór- stjóra, organista og tónskálds með meiru. Á diskinum eru Þrjú píanóstykki óp. 5, Glett- ur, Svipmyndir og Tilbrigði um sönglag eft- ir ísólf Pálsson en öll þessi verk lék Nína Margrét viö firnagóöar undirtektir á Tí- brártónleikum í Salnum í nóvember. Hún lék inn á diskinn fyrir ári síöan í Stokk- hólmi og BlS-hljómplötufyrirtœkiö gefur hann út en Tónskáldasjóöur RÚV, Þjóöhá- tiöarsjóöur og American Scandinavian Soci- ety i New York styrktu útgáfuna. „Diskurinn var tekinn upp í gömlum sal sænsku tónlistarakademíunnar, um 200 manna sal frá aldamótunum 1900 sem allur er gulli sleg- inn og með konungsstúku,“ segir Nína Margrét og brosir við minninguna. „Ég vann með afar færum tónmeistara sem heitir Martin Nagorni og stemningin var mjög góð þó að við Martin værum bara ein í salnum. Almennt þykir betra fyrir upptökur á klassískum verkum að taka upp í tónleikasal, bæði út af stemningu og hljóm- burði. í upptökuverum er óskaplega þurr hljóm- burður og maður verður svolítið feiminn við að spila og beita sér inn í hljóðfærið af því maður fær ekki þessa nauðsynlegu svörun frá salnum." Nína Margrét sendi hugmyndina að geisla- diskinum til BIS vegna þess að þeir hafa hljóðritað mikið af tónlist Jóns Leifs og hafa áhuga á norrænni tónlist, ekki síst ís- lenskri. BIS bað um 20 mínútna sýnishorn sem Nína Margrét tók upp í New York og er skemmst frá því að segja að hún fékk jákvætt svar um hæl. Platan var tekin upp á aðeins fjórum dögum sem var vel að verið. Verkin taka rétt undir 70 mínútum þannig að diskurinn er alveg fullur en Nínu Margréti fannst mikilvægt að geta kynnt þetta sem heild- arútgáfu. Týndi hlekkurinn fannst - Hvenær kynntist þú sjálf píanóverkum Páls? „Mörg þeirra eru auðvitað partur af námsefni pianónemenda," segir Nína Margrét. „Svo skrifaði ég mastersritgerðina mína um íslensk pianóverk en á þeim hafði ekki verið gerð nein sérstök rann- sókn. Þá rakst ég á þekktustu verk Páls, Gletturn- ar og Tilbrigðin. Svipmyndimar höíðu ekki verið gefnar út og ég vissi ekki um þær en mér fannst alltaf vanta eitthvað milli námsáraverkanna og Tilbrigðanna. Upp úr 1992 fór Öm Magnússon pí- anóleikari á stúfana og kynnti sér Svipmyndimar sem lágu óútgefnar i handritasaíni. Hann undirbjó svo útgáfu á þeim á vegum íslenskr- ar tónverkamið- stöðvar, fram- flutti þær og lék þær inn á geisla- disk sem var verulega gott framtak. Ég hef sjálf gert talsvert af því að kynna ís- lenska píanótón- list erlendis og bætti eftir þetta Svipmyndum á efnisskrána hjá mér. Smám sam- an þróaðist svo hugmyndin að gera heildarútgáfu af Páli, af þvi að þetta er í rauninni eina stóra safnið af píanóverkum í þess- um stíl eftir islenskt tónskáld." -1 hvaða stíl? „Síðrómantíska stílnum. Hið eina sem við eig- um hliðstætt við verk Páls era píanóverk Svein- bjöms Sveinbjömssonar sem liggja meira og minna óútgefm og flestum gleymd. Þau era tón- listarlega heOsteypt þó að þau jafnist ekki á við verk Páls. Pianóverk Páls era alveg sambærileg við verk erlendra tónskálda frá sama tímabili þannig að hann þarf að taka sinn sess meðal þeirra.“ A5 vera eða vera ekki frumlegur Nú era góðar líkur á að hann fái þann sess þvi BIS dreifir plötum sínum í 45 löndum og hefim fengið góða dóma fyrir verkefnaval og hljóðritan- ir. BIS hefur líka gefið út verk eftir Jón Leifs sem hafa fengið góðar umsagnir víða og Nina er spurð hvom þeirra hún haldi meira upp á. „Það er erfitt að stilla þeim upp hlið við hlið,“ segir hún, „þeir era svo ólíkir. Verk Jóns eru afar athyglisverð en þau era svo ólík öllu öðra og svo ólík því sem Páll var að gera að mér fmnst þeir eins og svart og hvítt - þó að báðir séu mikilvæg- ir. Jón er bæði nútímalegri og meira inn í sinn eiginn stíl. Páll hefur engar áhyggjur af þvi þó að hann sé að semja í stíl annarra tónskálda, hann semur til dæmis verk í barokkstíl og það er engin leið að heyra hvort það er eftir hann eða Bach! Þetta var hugsunarháttur margra tónskálda af hans kynslóð, ekki bara hér á landi heldur alls staðar í Evrópu. Þegar þeir sömdu verk í tiltekn- um eldri stíltegundum var það virðingarvottur við eldri tónskáld. Páll er ekkert feiminn við að semja undir áhrifum píanóverka Griegs til dæmis eða Schumanns og lítur þá á þau sem innblástur, og hann er hreint ekki einn um þetta. Þessi tón- skáld litu ekki á það sem skilyrði að vera framleg en Jón Leifs gefur sér það sem forsendu að tón- smíðum að vera framlegur. Fyrir Jóni Leifs var líka mikið atriði að vera íslendingur og vinna út frá þjóðlögum og sögulegum íslenskum efniviði en Páli var ekkert umhugað um slíkt þó að hann semdi líka lög eins og Brennið þið vitar sem era mjög íslensk." Nína Margrét vinnur nú að doktorsritgerð um Pál ísólfsson og er geisladiskurinn stór áfangi í rannsókn hennar á verkum hans. Japis dreifir diskinum hér heima. Páll ísólfsson vlð stjórnvölinn Svona minnast ótalmargir íslendingar hans. Ljóð ungra skálda Einar Karl Haraldsson, sem tók viö verðlaunum fyrir Gró Einarsdóttur, Hugrún Geirsdóttir, Sigrún ísleifsdóttir, Snærós Sindradóttir, Ragnheiöur Sjöfn Reynisdóttir og Ólafur Randver Stefánsson. Vel á annað þúsund ljóð bárast í verðlauna- samkeppni um Ljóð unga fólksins sem Þöll, sam- starfshópur um bama- og unglingamenningu á bókasöfnum, stendur fyrir. Á laugardaginn voru sex ung skáld heiðrað í Norræna húsinu og fengu þau einnig afhent eintök af bókinni Vetur, sumar, vor og haust sem Mál og menning gefur út með verðlaunaljóðunum og úrvali úr innsend- um ljóðum. Ljóðunum var skipt í tvennt eftir aldri þátttak- enda, 9-11 ára og 12-16 ára. Fyrstu verðlaun í yngri hópnum hlaut Snærós Sindradóttir (Freys- sonar, skálds), 9 ára, fyrir ljóðið „Árstíðirnar": Vorió er nýþveginn grœnn dúkur með blómamynstri, sem breiddur er út á snœvi þakið boró. Sumarið er tvö lítil börn sem hlaupa berfœtt um í blautu grasi. Haustið er mörg lítil líf sem falla þegar dimm kvöld taka við. Veturinn er margar hvítar stjörnur sem dansa saman niður úr háloftunum. Einnig hlutu viðurkenningu Ragnheiður Sjöfn Reynisdóttir, 10 ára, fyrir ljóðið „Ég vildi að ég væri“ og Ólafur Randver Stefánsson, 10 ára, fyr- ir „Dag“. í eldri hópnum hlaut Sigrún ísleifsdótt- ir, 15 ára, viðurkenningu fyrir ljóðið „í spegli“: Ég horfi á þig, í augum þínum blika þœr þrár sem ég í brjósti mínu finn og vonir þar og sorgir líka kvika og allur innri óróleiki minn. Á þröskuldi nýs lífs ég stend og hika og þaö veit guö, ég þori ekki inn. Þá hlaut Gró Einarsdóttir, 12 ára, viðurkenn- ingu fyrir „Trén“ og Hugrún Geirsdóttir, 15 ára, fyrir „Ég er“. Mikið er um náttúrustemningar í ljóðum yngri bamanna, árstíðimar er'u vinsælt yrkisefni og einnig áhugamál og ýmiss konar hugrenningar. Eldri skáldin era uppteknari af ástinni og hræringum í sálarlífi unglingsins. Fyrst var efnt til samkeppninnar um Ljóð unga fólksins áriö 1998 og stefnt er að því að halda hana annað hvert ár. Við sama tækifæri voru veittar árlegar Vor- vindaviðurkenningar Bama og bóka - Islands- deildar IBBY, fyrir menningarstarf í þágu bama og unglinga. Þær hlutu Margrét Gunnarsdóttir, sem hefur kennt barnabókmenntir í Fósturskól- anum í 25 ár, Silja Aðalsteinsdóttir fyrir fræðslu- störf á sviði barnabókmennta og Þórarinn Eld- jám fyrir leikverkið Völuspá. Myndlistin vinsœl Vinsælasta myndlistarsýning í heimi í fyrra var haldin í Aþenu í Grikklandi á mynd- um E1 Greco, hana sóttu alls tæplega sjö hund- ruð þúsund manns eða 629.572, að meðaltali 6.843 gestir á dag. Þetta kemur fram í The Economist 5. maí ásamt tölum yfir gesti níu sýninga í viðbót sem fjölsóttastar voru í heimi árið 2000. Hermitage-safnið í Pétursborg í Rússlandi er með tvær þær næstu; þemasýningin Jarð- nesk list, himnesk fegurð fékk um 570 þúsund gesti, sýning á íslamskri list um hálfa milljón gesta. Fjórða í röðinni var sýning á þróun Kristsmynda, Seeing Salvation, í Þjóðlista- safninu í London. Þangað komu 355 þúsund gestir sem var talsvert meira en forráðamenn safnsins áttu von á. Listasafn vestrænnar myndlistar í Tókíó var bæði með fimmtu og sjöttu vinsælustu sýninguna á árinu. Sú vinsælli var á barna- myndum Picassós og fékk 386 þúsund gesti, hin var á málverkum Rembrandts og Vermeer og fékk 280 þúsund gesti. Sjöunda vinsælasta myndlistarsýningin var á framúrstefnulist í Guggenheim í Bilbao, gullöldin í Ríkislista- safninu í Amsterdam sú áttunda og sýningin „Van Gogh: Augliti til auglitis" var í níunda sæti í Boston og tiunda sæti í Detroit. Ekkert lát virðist á aðsókn á listsýningar í toppklassa en áberandi hvað dauðir listamenn trekkja meira en lifandi. Gamalt og nýtt Hér heima eru oftast fleiri en ein sýning í gangi í einu í söfnunum sem selt er inn í og erfitt að telja gesti safna sem taka ekki að- gangseyri. Til dæmis er ókeyp- is í Nýlistasafnið en gestir skrifa sig í gestabók - ef þeir taka eftir henni. Vin- sælasta sýningin þar í fyrra var á verkum Rósku. Þá skrifuðu um 1800 manns sig í gestabók en giskað er á að um 2.500 manns hafi séö sýninguna. Gestir Listasafns fslands voru rúmlega 37 þúsund allt árið í fyrra og vinsælasta staka sýningin var á verkum Þórarins B. Þorláks- sonar en ekki eru til nákvæmar tölur yfir aö- sóknina á hana. Þar voru líka Stafrænar sýn- ir sem löðuðu að sér fjölda ungmenna. Önnur slík var Café9.net í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi sem einnig var vinsæl, þó ekki eins og Braggalíf sem kom aðstandendum mjög á óvart vegna þess hve margir sýndu henni brennandi áhuga. Róska laðaöi minnst 2000 gesti að Nýló. Glerverk Chihulys voru ævintýraleg. Á Kjarvalsstöðum hékk Kjarvalssýning uppi allt árið við nokkuð jafna athygli en af stökum sýningum var sérstaklega nefnd hin ótrúlega glerlistasýning Dale Chihuly sem gerði Reykvíkinga vitlausa af hrifningu. Einnig löðuðu Mót, sýning á íslenskri hönn- un, og Garðhúsasýningin að sér fjölda gesta. Ekki getum við státað af tölum til jafns við hinar erlendu en skyldu Náttúrusýnir nú í vetur í Listasafni fslands ekki slá þeim öllum við - ef miðað er við höfðatölu? Hana sáu 20 þúsund manns. Hallgrímur heillar Dani Danska bókaritið Week- end-avisen hefur ráðið hóp norrænna rithöfunda til að skrifa fyrir sig greinar um „lífið í norðri". Meöal þeirra er Hallgrímur Helgason enda frammistaða hans á bókmenntaþingi í Kaupmannahöfn vorið 1999 öllum minnisstæð sem fylgdust með henni. 101 Reykjavík er líka komin út á dönsku og fær þessa dagana flottar umsagnir í blöðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.