Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Síða 28
44 MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001 Tilvera DV Two Tricky á sviðinu í Parken Nanna, Gunnar, Kristján og Yesmine á sviðinu í Parken að flutningi loknum sem dugði þó aðeins í neðsta sætið. Úrslitin komu keppendum mjög á óvart: Tekur fulla ábyrgð á ósigrinum Ovæntir sigurvegarar Eistar komu öllum á óvart og líka sjálfum sér með því að sigra í keppninni. Evrópska söngvakeppnin: Sigurvegararnir veðjuðu á Angel - Eistland vann, Danir í öðru sæti lí f iö Salsa, matur og magadans Brasilísk stemmning verður í Listaklúbbi Leikhúskjallarans í kvöld. Fram koma Josyane Konráðsson sem sýnir magadans, Ignacio Pacas myndlistamaður og kokkur og Jackeline Cardoso sem gefur gestum kvöldsins að bragða ekta brasilískan rétt, „fesjoada“. Dagskráin hefst kl. 20. 30. Fundir ■ FYRIRLESTUR I HUGVISINDA- HUSI Franski rithöfundurinn, há- skólakennarinn og fræðimaðurinn Guy Scarpetta heldur fyrirlestur í Hugvísindahúsl Háskóla íslands, Odda, kl. 17 og mun þarfjalla um Francois Rabelais og verk hans, Gargantúi og Pantagrúll. Fyrirlestur- inn er á frönsku en verður þýddur jafnóöum og er öllum opinn. Bíó ■ FILMÚNDUR SÝNIR BLADÉ » RUNNER Kvikmyndaklúbburinn Rl- mundur sýnir myndina Blade Runner frá 1982 í salarkynnum Háskóla- bíós kl. 22.30. Hér er um að ræða eina af bestu framtíðarmyndum sem gerð hefur verið, leikstýrt af hinum virta leikstjóra Ridley Scott. Síðustu forvöð ■ JEAN POSOCCO I HAFNAR- BORG I dag lýkur Jean Posocco sýningu í Sverrissal, Hafnarborg. Á sýningunni, sem nefnist Stemning - Ambiance, eru vatnslitamyndir, flestar unnar á þessu ári. ■ JÓN GUNNARSSON I HAFNAR- BORG Sýning á olíu- og vatnslita- myndum Jóns Gunnarssonar lýkur í dag í Hafnarborg í Hafnarfirði. Jón fæddist í Hafnarfiröi 1925 og hefur haldiö flölmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Sýningin er oþin frá 11-17 alla daga nema þriðjudaga. ■ SIGLINGAR ÍSLENDINGA OG UPPHAF KRISTNI I Arnastofnun, Arnagaröj eru sýndar heimildir um siglingar íslendinga og Grænlendinga til Vínlands pg kristnitökuna á alþingi viö Óxará. Sýningunni lýkur á morgun. Tónlist ■ VISNASONGUR A GAUKNUM Bill Bourne, kanadískur vísnasöngvari og barnabarn Steþhans G. Stephanssonar, heldur tónleika á Gauki á Stöng í kvöld og hefjast þeir kl. 22. Bill Bourne er vinsæll vísnasöngvari í Kanada. t Tónlist hans er frumleg og sérstæð alþýðutónlist, blues, keltnesk tónlist og indíánatónlist. ■ SÖNGVAKA ELDRI BORGARA Sóngvaka verður hjá eldri borgurum í Ásgarði, Glæsibæ, í kvöld kl. 20 (athugið breyttan tíma). Stjórnandi er Gróa Salvarsdóttir. Búast má við óvæntri upþákomu, auk þess sem Gönguhrólfar koma í heimsókn. Sýningar ■ KROSSINN. ÞRIHYRNINGURINN OG LITURINN A sýningu Kristínar Geirsdóttur í Hallgrímskirkju getur aö líta 7 olíumálverk. Áhersla er > lögð á krossinn, þríhyrninginn og litinn. Sýningin er opin frá 9-17 alla daga og lýkur 20. maí. ■ REYKJAVÍK. FJÖLÞJÓÐLEG BORG Erla Haraldsdóttir og Bo Melin sýna í Gallerí Hlemmi undir yfirskriftinni „Here, there and everywhere". Þar breyta þau Reykjavík í fjölþjóðlega borg með , aðstoö Ijósmynda. Sjá nánar: Lífið eftlr vinnu á Vísi.is „Það er ekki hægt að kenna krökkunum um eitt eða neitt. Svona fá stig dæmast á lagið og lagahöfundinn," sagði Einar Bárð- arson, höfundur Angel, eftir keppnina, en úr- slitin komu hon- um algerlega i opna skjöldu. „Þau stóðu sig frábærlega á sviðinu og ef einhver þarf á sökudólgi að halda þá er það ég. Ég ber fulla ábyrgð á síðasta sætinu og reyni að taka því eins og maður.“ Eftir keppnina var mjög þungt hljóðið í íslenska söng- og danshópnum. „Þetta kom okkur öllum á óvart þótt við hefðum ekki gert okkur vonir um annað en að lenda ein- hvers staðar fyrir miðju,“ sagði Gunnar Ólason stuttu áður en hann dreif sig upp á hótel og ekki í neinu skapi til að skemmta sér fram á rauðanótt. „Við gerðum okkar besta og það var bara ekki nóg,“ sagði Kristján Gíslason og bætti því við að hann væri mjög hissa, og þau öll í rauninni, að fá svona fá stig, gegn öllum spám. Þetta voru því erfiðir klukku- tímar fyrir keppendur og að- standendur þeirra á laugardags- kvöld en augljóst er að íslending- ar koma ekki til með að vera með aftur fyrr en 2003. -MT Danska ríkissjónvarpið var að von- um fegið því að Danir töpuðu fyrir Eistlendingumi á laúgardagskvöldið. Þeir urðu þó í öðru sæti og var hljóm- sveitin Rollo & King hæstánægð með þau úrslit. En Eistarnir Tanel Padar og Dave Benton unnu keppnina og fóru heim með verðlaunagripinn. Fyr- ir íslendinga skiptir það litlu máli því enginn er á leið til Eistlands á næsta ári en þjóðinni til huggunar má nefna Bakraddasöngkonumar Regína Ósk Óskarsdóttir og Margrét Eir Hjartar- dóttir stálu senunni oftar en einu sinni á dögunum fyrir Evrópsku söngvakeppnina. Þær sungu án undir- spils í nokkrum partíum og var ósjaldan sem erlendir blaðamenn beinlínis neyddu þær til að hefja upp rausn sína. Eftir keppnina tóku þær svo að sjálfsögðu lagið í eftirpartíinu og vöktu mikla lukku. „Þetta kom bara af sjálfu sér,“ seg- ir Regína um fjöriö í bakraddasöng- að á blaðamannafundi eftir sigurinn lýstu Eistamir því yfir að uppáhalds- lögin sín væru Angel og Two Long með póska flytjandanum Piasek. Þeir félagar veðjuðu á að þessi lönd yrðu í efstu þrem sætunum. Enda var mál erlendu blaðamannanna í Parken að úrslit Evrópsku söngvakeppninnar í ár væru nánast óskiljanleg því mörg góð lög hefðu algerlega týnst í sjálfri keppninni. -MT konunum íslensku. „Við erum búnar að skemmta okkur vel og getum ekki verið annað en ánægðar með það hvemig hópurinn hefur staðið sig.“ Þær stúlkur vildu samt ekkert gefa út á það hvort þær tækju að sér að fara fyrir íslands hönd á Evrópsku söngvakeppnina 2003 en ýmsir í hópi íslendinganna í Parken voru farnir að ræða það sín á milli hvort ekki ætti að senda bakraddirnar næst þar sem þær hefðu hvort eð er stolið senunni. -MT Norömenn líka neöstir Noregur deildi síðasta sætinu með íslendingum. Regína og Margrét Eir 2003: Bakraddirnar áttu eftirpartíið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.