Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2001 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2001 35 Útgáfufélag: Útgáfufélagifi DV ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Rltstjórar: Jfinas Kristjánsson og Óli Björn Kárason A&stoöarrítstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson Fróttastjóri: Birgir Guðmundsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreifisia, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Fréttaþjónusta á Netinu: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf. Plótugeró: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuði 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblað 280 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaðsins í stafrænu formí og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndþirtingar af þeim. Að týnast í samsöng íslendingar veröa á stundum of uppteknir af því sem miö- ur fer og sjá því ekki hiö jákvæöa. Þannig staldra stjórn- málamenn og fjölmiðlar fremur við neikvæðar fréttir úr viöskiptalífinu, en gleyma því sem vel er gert. Og í staö þess að sjá fram á bjarta tíma í efnahagsmálum verða allir upp- teknir af barlómi og svartsýni. Vissulega er ekki sami uppgangurinn i íslensku viöskipta- og efnahagslífi og verið hefur undanfarin ár, enda slíkt hvorki æskilegt né eðlilegt. Að hluta til er skýringanna að leita í aðgerðum eða aðgerðaleysi opinberra stjórnvalda og að hluta í aðstæðum sem ekki verður ráðið við. En það fer langt frá því að allt sé að fara á hinn versta veg líkt og tauga- veiklaðir sérfræðingar á sviði efnahagsmála virðast halda. En taugaveiklunin smitar út frá sér og magnar ástandið. Góðar og jákvæðar fréttir týnast í samsöng svartsýnis- manna, hvort heldur þeir eru innan lands eða utan. Stór- glæsilegur árangur stjórnenda og eigenda Pharmaco á fyrsta ársfjórðungi þessa árs féll í skuggann af undarlegum deilum á Alþingi um kvótasetningu smábáta. Að sama skapi hafa fáir veitt athygli góðum árangri Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna og SÍF á undanförnum mánuðum. Síðdegis í gær birtu stjórnendur Sjóvár-Almennra tölur yfir árangur fyrstu mánaða ársins sem benda til þægilegs bata frá fyrra ári. Áræðin og skipuleg útrás Baugs á erlenda markaði, jafnt í Evrópu sem i Bandaríkjunum, hefur ekki nægt til að lækka í samkór svartsýninnar. í liðinni viku birtust fréttir af því að stjórn Alþjóða gjald- eyrissjóðsins hefði gagnrýnt Seðlabanka íslands fyrir löngu tímabæra vaxtalækkun í lok mars síðastliðins. Gagnrýni gjaldeyrissjóðsins, sem er að mestu byggð á misskilningi, vakti að vonum athygli hér á landi enda tónar hún við sam- kórinn. Minna fór hins vegar fyrir því sem stjórn Alþjóða gjaldeyrissjóðsins taldi að vel hefði verið gert á undanforn- um árum - ábendingu um sterka stöðu ríkisfjármála og nauðsyn þess að selja Landssímann og ríkisbankana; Bún- aðarbanka og Landsbanka. Vaxtalækkun Seðlabanka fyrir tæpum tveimur mánuð- um var nauðsynlegt skref í þá átt að örva efnahagslífið enda merki um að hjól þess væru farin að snúast hægar en æski- legt er. Því miður hefur bankinn ekki haldið áfram á sömu braut, eins og nauðsynlegt er, þvert á það sem sérfræðingar Alþjóða gjaldeyrissjóðsins halda fram. Þeir skilja ekki að vaxtalækkun virkar ekki nema gripið sé til hennar í tíma. Á stundum eru hagfræðingar fastir í reiknimódelum og kennisetningum enda margir haldnir þeirri þráhyggju að hagfræði sé raunvísindi. Verst er þó sú tilhneiging íslend- inga að taka öllu trúanlega sem erlendar stofnanir og sér- fræðingar halda fram um okkar eigið heilsufar. Lagasetning á villigötum Hugmyndir stjórnlyndra manna um að hægt sé að laga flest mannlegt böl með opinberum aðgerðum, lögum og regl- um, á góðan hljómgrunn meðal íslenskra stjórnmálamanna og skiptir engu hvar í flokki þeir standa. Nýsamþykkt lög um tóbaksvarnir eru dæmi um að góður ásetningur er langt frá því að réttlæta ofbeldisaðgerðir af hálfu löggjafans. Um það veröur ekki deilt að markmið nýrra laga um tó- baksvarnir eru háleit og raunar er æskilegt að þau markmið nái fram að ganga. En háleit markmið mega aldrei verða til þess að gengið sé á ráðstöfunarrétt frjálsra einstaklinga, hvorki til orðs né æðis. Augljóst er að lögin ganga í grund- vallaratriðum gegn hugmyndum manna um atvinnufrelsi og ákvæði stjórnarskrár um tjáningarfrelsi. Hefði ekki verið hreinlegra fyrir löggjafann að banna alla sölu á tóbaki? Óli Björn Kárason I>'V Er R-listinn á vetur setjandi? Hingað til hefur höfund- ur þessa pistils ekki tilheyrt aðdáendaflokki Helga Hjörvars, forseta borgar- stjórnar, og í raun hefur það ekkert breyst. Þó er ljúft að viðurkenna að greining hans á Sjálfstæðis- flokknum og foringja hans í Morgunblaðinu fyrir fáum vikum er að mínu mati ein snjallasta grein um íslensk. stjórnmál sem skrifuð hefur verið nú um nokkurt skeið enda sveið íhaldið undan henni. Blíkur á lofti Sjálfstæðisflokkurinn er líkur ýmsum erlendum alræðisflokkum hvað það varðar að hann er fyrst og síðast samsafn hagsmunahópa sem oft eiga það eitt sameiginlegt að þurfa að eiga greiðan aðgang að fyr- irgreiðslu. Það er og þjónusta sem flokkurinn hefur ávallt getað veitt með einhverjum hætti. Þótt hann væri í stjórnarandstöðu gat hann ætíð reitt sig á völd sin í Reykjavík og notað þau til að hygla sínum. Það var því ekki að ófyrirsynju að Ólafur Thors sagði ein- hverju sinni að hann vildi heldur sitja í stjórnarand- stöðu á Alþingi en að missa tökin á Reykjavíkurborg. Siðan R-listinn komst til valda hefur staðan hins veg- ar verið sú að flokkurinn hefur haldið um stjórnar- taumana á landsvísu þannig að eyðimerkurgang- an í Reykjavík hefur ekki komið að sök. Um þessar mundir eru blikur á lofti. Margt bendir til að hægt sé að halda flokkunum utan ríkisstjórnar jafnt sem borgar- stjórnar. Skoðanakannanir sýna að rétt herslumuninn vantar til að Sam- fylkingin og Vinstrigrænir nái meiri- hluta í næstu þingkosningum og fátt bendir til að R-listanum verði haggað ef rétt er á spilunum haldiö en þar liggur einmitt hundurinn grafinn. Hið pólitíska landslag er gjör- breytt frá því aö síðast var kosið til borgarstjómar en eftir þær kosning- ar fékk maður stundum óþyrmilega á tilfinninguna að verið væri að gera R-listann að óformlegu samfylking- arapparati með dálitlum framsókn- arbotnlanga. Ýmsir for- svarsmenn listans virðast líka hafa fengið snert af því mannlega kúafári sem gengur undir dulnefninu nútímaleg jafnaðarstefna og lýsir sér einkum í daðri við einkavæðingu, sérstak- lega á þeim sviðum þar sem Margareti Thatcher datt ekki einu sinni í hug að einkavinavæða. Enginn velkist í vafa Áframhaldandi R-lista- samstarf byggir einkum á tveim þáttum. Annars veg- ar þarf að sýna kjósendum með skýrum og ótvíræðum hætti að þeir sem að R-list- anum standa hyggist fylkja sér um þær hugsjónir og gildi sem einkennt hafa hugmyndir félagshyggjufólks frá þvi á 19. öld og eiga ekkert síður erindi til fólks nú en þá. Hins vegar þarf að skipuleggja listann þannig að enginn velkist í vafa um að þar er á ferðinni kosningabandalag þriggja ólíkra stjórnmálaafla sem þó byggja á sama grunni. an extrabónus sem erfitt er að neita sér um. Pólitískar ástæður Þetta síðastnefnda er mörgum kjósendum R-list- ans ákaflega mikils virði. Það verða því að vera krist- alskýrar og stórpólitískar ástæður fyrir því ef ein- hver þeirra hópa sem nú standa að R-listanum skerst úr leik og býður fram á eigin vegum í næstu borgarstjórnarkosningum. - Að verða þess valdandi að Sjálfstæðisflokkurinn komist aftur til valda í Reykjavík verður þung byrði að bera næsta kjör- tímabil. Það yrði óneitanlega fróðlegt að fylgjast með því hvernig Sjálfstæðisflokkurinn spjar- aði sig í stjórnarandstöðu og í minni- hluta í Reykjavík, án aðgangs að mikilvægustu valdamiðstöðvunum. Allt félagshyggjufólk hlýtur að að vera reiðubúið að' leggja talsvert á sig til að sú verði raunin. Guðmundur J. Guðmundsson „Það verða því að vera kristalskýrar og stórpólitískar ástœður fyrir því ef einhver þeirra hópa sem nú standa að R-listanum skerst úr leik og býður fram á eigin vegum í nœstu borgarstjómarkosningum.“ Að sjálfsögðu má gagnrýna margt af þvi sem R-listinn hefur brallað á kjörtímabilinu og vissulega hefur hann ekki gengið nógu langt á ýms- um sviðum. En þegar öllu er á botn- inn hvolft er það þó fleira sem vel hefur tekist en misfarist. Það að úti- loka íhaldið frá kjötkötlunum er síð- Paprikanar Við lifum sérkennilega tíma. Margt er mögulegt og flest leyfilegt. Hollendingar hafa lögleitt liknar- dráp. Vísindamenn vilja klóna menn og hafa nú þegar stuðlað að fæðingu barna sem hafa t.d. litninga tveggja mæðra og eins fóður. Auðkýfingur dekrar við sjálfan sig og kaupir far út í geiminn fyrir milljarða króna. Islendingar vekja furðu víða um heim fyrir ótrúlega löggjöf um gagnagrunn á heilbrigðissviði. Hvað varð um sannleikann? Hvað er orðið um hin gömlu gildi? Hvaö er rétt og rangt? Höfundur bók- arinnar Truth, A History, Felipe Fer- nández-Armesto, kennari í sagn- fræði við háskólann Oxford, talar m.a. um (í lauslegri endursögn minni) að nútímamaðurinn hafi týnt sannleikanum. Það er al- varlegt þegar kennarar við æðstu menntastofnanir hafa misst áhugann á sannleikanum, segir hann. Þar með hafa þeir brugðist hefðbundnum skyldum sínum. Því má líkja við það að læknar neiti að viðhalda lifi, að guðfræðingar missi áhugann á Guði. Að sannleikanum var varpað fyrir róða byrjaði sem akademískur kækur en afleið- ”“ ingamar eru nú dreifðar um allt þjóðfélagið. Þeirra gætir í náms- greinum í háskólum, sem eru í sjálfu sér góðar og gildar, hafa það að markmiði að veita nemendum sálfræði- lega hæfileika, eins og sjálfsöryggi og sjálfs- mynd, eða þjóðfélags- legar dyggðir eins og umburðarlyndi og gagnkvæma virðingu. En viðleitnin til að stefna að göfugu mark- miði getur haft illt í fór með sér. í samfélagi þar sem allt er afstætt er hættan sú að þegn- amir hiki við að halda sannleikanum á lofti og þori ekki að fordæma hið ranga. Við slíkar að- stæður reynist nær ómögulegt að verja hefðbundinn greinarmun á réttu og röngu. Allt tekur mið af við- horfum fólks og við sitjum uppi með það sem Fernández-Armesto kallar ofríki meirihlutans. Orn Báröur Jónsson prestur „Grœnmetisfarsinn með sínum vemdartollum er enn eitt dœmið um vitleysuna. Paprikanar! Stjórnmál á íslandi þurfa að snúast meira um grunngildi en verið hefur til skamms tíma, um rétt og rangt, en ekki aðeins krónur og sérhagsmuni. “ Trú eöa trúgirni íslenska þjóðin er framsækin þjóð, nýjunga- og áhrifagjörn. Það eru kostir hennar en um leið gallar. Þeg- ar engin viðmið eru fyrir hendi er hægt að segja fólki að fara hvert sem er. Við slíkar aðstæður er auðveld- ara að láta tilganginn helga meðalið. Forfeður okkar vissu hvernig sigla átti um heimsins höf vegna þess að þeir höföu leiðarstjörnu fyrir stafni. Við íslendingar erum sagðir trúuð þjóð og það er stutt með tilvísunum í skoðanakannanir og samanburði við aðrar þjóðir. En erum við ekki um leið trúgjörn þjóð? Við gleypum stundum við hverju sem er. Það er auðvelt að blekkja okkur. Trúin á tiltekin gefin gildi hefur vikið fyrir algjörri af- stæðishyggju eöa eins og Faðir Brown, söguhetjan í bókum C.K. Chestertons, segir á einum stað: Þeg- ar fólk hættir að trúa á eitthvað ákveðið, trúir það ekki á ekkert, heldur á hvað sem er. Gæslumenn sérhagsmuna Við höfum gleypt með húð og hári hráar og Ola kokkaðar hugmyndir og þjóðfélagið sýpur nú seyðið af æði- bunuganginum. Stjórnmálamenn eru margir hverjir gæslumenn sérhags- munahópa. Þeir verja t.d. kvótakerfið með kjafti og klóm og blikna ekki þótt þeir hafl gefið höfuðstól þjóðarinnar örfáum flölskyldum í stað þess að bjóða kvótann út. Gagnagrunnslögin eru annað dæmi um ótrúlega smíð, ólög sem vega að helstu siðferðisgOdum þjóðarinnar. Þau voru barin í gegn um þingið án nægrar umræðu og standa sem minn- isvarði um grunnhyggni þingheims og skort á siðviti. Fjöldi fólks hljóp tO og keypti verðlítil bréf í deCode fyrir formúur og horfir nú fram á gjaldþrot meðan erlendu haukarnir velta áfram gróðanum því þeir höfðu auðvitað vit á að selja fljótt og láta bankana, lífeyr- issjóðina og einstaklingana, kaupa á yfirgengi, aumingja Paprikanana. Grænmetisfarsinn með sínum verndartollum er enn eitt dæmið um vitleysuna. Paprikanar! Stjórnmál á íslandi þurfa að snúast meira um grunngOdi en verið hefur til skamms tíma, um rétt og rangt, en ekki aðeins krónur og sérhagsmuni. Það kann að vera að þjóðin kunni skil á flestum heimsins menntum og maskínum, en ef siðvitið vantar, grunngildin og sannleikann, er hún Ola á vegi stödd. Örn Bárður Jónsson Ummæli Fall vatnavirk j un forsenda byggðar „Engum blandast þess vegna hugur um að það yrði áfaO fyrir byggðimar ef draum- urinn breyttist í martröð. Og það er engin ástæða tO þess að svo fari. Virkjun faOvatnanna er umhverflsvæn fram- kvæmd í eðli sínu og raunar forsenda fyrir byggð hér á landi. Og slíkar virkjanir spdla ekki ásýnd öræfanna svo að orð séu á gerandi. Við skulum því halda ótrauð áfram á Austurlandi. Við skulum búa svo i haginn að þar geti þróast fagurt mannlíf í sátt við landið og náttúru þess.“ Halldór Blöndal á Islendingur.is Ákæran hefur þveröfug áhrif „Ég minnist ljós- mynda af glaðbeittum kommúnistum sem voru á sínum tima leiddir i tukthús vegna skoðana sinna. Þeir vora skælbros- andi, enda vissu þeir að refsivistin yrði byltingarstefnu þeirra tO framdráttar. Nú er hættan sú að þegar þjóðernissinninn verður leiddur fyrir dóm eða í fangelsi - und- ir kastbjörmum fjölmiðlanna - fái málstaður hans óþarfa athygli, aOt út af þessu bjánatali um svertingja í Afr- íku. Um þetta verður rætt á kafflhús- um og vinnustöðum. Kannski finna fleiri rasistar á þessu landi hvöt hjá sér tO að koma út úr skápnum og flika skoðunum sínum opinskátt. Þá munu menn skOja að ákæra ríkissak- sóknara hafði þveröfug áhrO.“ Egill Helgason í pistli á Strik.is Spurt og svarað Er tímaskekkja hjá MA að brautskrá einn skóla stúdenta á 17. Steingrímur J. Sigfiisson, 25 ára stúdent frá MA. Upplögð tímasetning „Aldeilis ekki, það er einmitt upplögð tímasetning. Brautskráning á þessum degi er hluti af hefðum sem mér finnst að menn eigi að halda í. í mínum huga er mikil rómantík í kringum það aö verða stúdent frá MA, það er þessi skemmtOegi timi frá próflokum og fram að þjóðhátíö þegar bjartar sumarnæturnar eru til þess að njóta lífsins. Ég held að þetta verði ógleymanlegt öllum sem þennan tíma upplifa. Þegar aUt lífið er fram undan eiga menn ekki að þurfa að sjá eftir fáeinum dögum fram i miðjan júní, þegar menn fái í hendur prófskírteini og hvítan koU.“ Kolbrún Gunnarsdóttir, brautskráist frá MA í vor. Skemmtileg hefð „Nei, mér finnst þetta vera skemmtUeg hefð sem gaman er að halda í. Einnig er gaman að þetta skuli vera gert á þjóðhátíðardegi okkar Is- lendinga, sem gjarnan má fá aukið vægi í þjóð- lífínu. Fyrir krakka í 1., 2. og 3. bekk Mennta- skólans er ef tO vOl miður að þurfa að þrauka svona langt fram á vorið tO að vera laus en í fjóröa bekk eru þetta skemmtOegheitin ein. Ég verö í eintómum veislum á brautskráningardeg- inum en siðan tekur alvara lifsins við - gjald- kerastörf í Sparisjóði Norðlendinga í sumar en svo ætla ég að reyna við læknisfræðina í Há- skóla íslands í haust.“ Hörður Vilberg, 8 ára stúdent frá MA. Eykur hátíð- leika dagsins „Brautskráning á 17. júní er aUs engin tímaskekkja og ég held raunar að aðrir framhalds- skólar landsins ættu að hugsa tU þess að taka upp þennan skemmtilega sið Menntaskólans á Akureyri. Slíkt myndi tvímælalaust auka á há- tíðleika dagsins, sem veitir kannski ekki af á þessum tímum þegar aUt viröist hverfult vera. Það er líka vel til fundið að sameina boðskap þjóðhátíöardagsins því að fólk setji upp stúd- entshúfuna. Ég er býsna sáttur við þann tíma sem ég átti í MA sem er góður og kröfuharður skóli sem skUar nemendum góðu veganesti út í lífið.“ Oddur Helgi Halldórsson, bœjarfulltrúi á Akureyri. Hefðin er sterk „Það held ég varla. Þetta er skemmtileg hefð í bæjarlífinu hér á Akureyri á 17. júní og ekki síður á sextándanum þegar eldri stúdentar fara hér traUandi um götur bæjarins. Við éigum að halda í þessa hefö sem lengst og ég held raun- ar að hvergi standi til að breyta þessu. Sjálfur fór ég ekki í Menntaskólann en sonur minn er þar núna á öðru ári og mun því væntanlega brautskrást að tveimur árum liðnum. Nei, ég held að það væri ekki rétt af öðrum skólum að fara að brautskrá nemendur á þessum degi, þetta er sterk hefð sem Menntaskólinn á Akur- eyri á - og aðrir skólar ekki.“ Brautskráning stúdenta frá Menntaskólanum á Akureyri fer ævinlega fram á þjóðhátíöardaginn en mun fyrr í öörum framhaldsskólum. Skoðun Menningararfur sem ber að varðveita Ljótt er ef satt er, að sveitaböllin séu að leggjast af, eins og staðhæft var í DV í vikunni. Fari svo glatast menningararfur sem setti svip sinn á mannlíflð á öld- inni sem leið og leiddi tO ótal hjónabanda og viðhalds kynstofnsins. Ástæðan til þessarar raunalegu hrakspár er bann sýslu- mannsins í Skagafirði við að unglingar innan 18 ára fengju að fríka út í umdæmi hans. Var því baOið flutti yfir í Húnaþing og tókst með þeim ágætum að fjöldaslagsmál stóðu fram á morgun. Fékk þar margur efnispOt- urinn skrámur og marbletti og verð- ur nóttin lengi í minnum höfð. Ef valdsmenn úti á landi rotta sig saman um að banna unglingum á erf- iðu gelgjuskeiði að sækja margrómuð sveitaböU verður það aðeins einn naglinn tU viðbótar í líkkistu hinna dreifðu byggða. Nóg er uppdráttar- sýkin fyrir í sveitum landsins þótt ekki sé skrúfað fyrir þann gleðigjafa sem fjöldasamkomur á björtum nótt- um norðursins eru. AUt verður sveitalífið svipminna og lítt eftirsókn- arverðara þegar sýslumenn banna krökkunum að lifa og leika sér eftir náttúrunnar eðli og fara á böU til að sýna sig og sjá aðra. Svo þurfa pUtarnir að sýna frækn- leik sinn og gefa hver öðrum á lúður- inn svo að stelpurnar sjái að þar eru engir aukvisar á ferð. Löggjafinn bannar að menn og konur berji kunn- ingja sína með boxhönskum og fari að leikreglum íþróttaandans. Það á aðeins að lemja berhent og sparka í punginn í boltaleikjum og helst þannig að dómarar sjái ekki tO. Máttlaust bannorð SveitaböUin eru ef tU viU síðasti lífsvotturinn sem bærist í nösum dreifbýlisins. Þau eru sótt af bæði af sveitafólki og þeim sem hrærast í þéttbýlinu. Að banna þau af siðferðis- ástæum eða meintri umhyggju fyrir velfarnaði unglinganna er út i hött og mætti aUt eins banna sýslumönnum að fordæma og banna böUin. Einu sinni lagði menntamálaráð- herra Ríkisútvarpinu þær skyldur á herðar að nefna ekki dans í auglýs- ingum. Dansleikur var því bannorð sem ekki mátti heyrast í einokun rík- ismiðUsins. Ráðherrann, sem einnig var athafnamaður með fjölda fólks á launaskrá, bar fram þau rök fyrir bannorðinu að það ruglaði vinnufólk í ríminu og tefði það frá störfum á háannatímanum. Þá átti unga fólkið að stunda heyskap fyrir húsbændur sína og vinna fósturjörðinni það gagn sem það mátti. En það fór sem oftar að þótt náttúran sé lamin með lurk leitar hún út um síðir. Farið var kringum reglu- gerðina um dansbannið með aUs kyns útúrsnúningum og þjóðin hlustaði grannt eftir hvernig þeir sem auglýstu böUin léku á ráðherrann og auglýstu samkomur sínar með orða- flúri og þurfti enginn að velkjast í vafa um hvar fjörið yrði mest og best um næstu helgi. Hafa sveitaböOin aldrei verið auglýst betur en þegar bannað var að nefna dans í þeim sið- vanda upplýsingamiðli sem Ríkisút- varpið er. Eitthvað svipað var uppi á teningn- um þegar sýslumaður Skagfirðinga bannaði baUið í sínu umdæmi. Það var aðeins flutt yfir í það næsta og fór þar fram úr björtustu vonum um líf- leg fjöldaslagsmál og ofsafengið fjör fram á morgun. Húnaver lengi lifi... Fari svo að umsjónarmenn siðlegs lífernis banni unglingum á mesta um- rótsaldri æviskeiðsins að sækja dans- leiki leggjast þeir niður og krakkarn- ir leita annað til að hittast og skemmta sér. Hvort það verður heOlaspor í uppeldinu verður að telja vafasamt. Yfirvöldin eru yfirleitt þeirrar náttúru að hafa vit fyrir þegn- unum og ákveða hvað þeim er hoflt og umfram allt hvað þeir mega ekki aðhafast. Þau boða og banna eftir V heimatilbúnum mælistikum og eiga aUir að dansa eftir þeim nótum sem fyrir eru lagðar. Haldi sýslumaður Skagfirðinga að hann stuðli að bættu siðgæði í hérað- inu með því að meina unglingum á milli 16 og 18 ára að kaupa sig inn á sveitabaU fer hann viUur vega. Dansleikir hafa þeim mun meira aðdráttarafl ef þeir era bannfærðir en leyfilegir. Bönnin setja aðeins Olt blóð í krakkana, eins og glöggt kom í ljós þegar sveitabaUið var flutt úr Skagafirðinum yfir í Húnavatnssýslu. Þar þurfti að skemmta sér svo ærlega að lengi verður í minnum haft. Hvort sem mönnum líkar betur eða verr eru sveitaböllin þáttur í ís- lenskri menningu, og ekki sá ómerkasti. Ef siðgæðisverðir þjóðar- innar ætla að blása þau af, vegna mis- skUinnar umhyggju fyrir unglingun- um, verður lífið í sveitum enn ris- minna og dauflegra en nú er. Dreif- býlið verður af verulegum tekjum og samgöngufyrirtækin missa spón úr sínum aski. Farþegafjöldinn sem fer um Miðbæjarflugvöllinn minnkar umtalsvert. Því ber að hlúa að sveitaböUunum og gera þau sem aðgengUegust fyrir aUa aldurshópa og hætta að jesúsa sig yfir framferði unga fólksins og heimta boð og bönn í nafni siðgæðis- ins. Miðgarður og Húnaver lengi lifi og megi komandi kynslóðir fá að slást og njótast í Atlavík og Aratungu um langa framtíð. Sveitaböllin hafa sett svip sinn á mannlifið í dreifðum byggðum. Nú em horfur á að valdsmenn beiti sér fyrir að þau verði lögð niður af siðgœðisástæðum. Fari svo verður enn daufara yfir sveitum og unga fólkið mun leita annað til að sýna sig og sjá aðra. - Við Húnaver. ■ Gert klárt fyrir ballið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.