Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Side 4
Fréttir MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2001 r>v Seðlabankinn: Óvenjulega útsmogið „vinnulag“ þriggja Litháa í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni: Töluðu saman gegnum miða í sígarettustubbum - sátu allir í jakkafötum í réttarhöldunum og neita sök þrátt fyrir miklar sannanir Lögreglumenn losa handjárnin Óvenjumikil vinna, tími og peningar hafa fariö í mál Litháanna þriggja m.a.vegna þess aö þá má ekki flytja í sama bíl. Tveir lögreglumenn veröa aö vera í hverjum bíl og feröirnar milli lög- reglustöövar og héraösdóms annars vegar og Litla-Hrauns og annarra fangelsa hins vegar ótelj- andi frá því í mars. Á myndinni taka lögreglumenn handjárnin af tveimur sakborninganna sem eru lengst til vinstri og fyrir miöri mynd. Þrír menn frá Litháen, sem ákærð- ir eru fyrir milljónainnbrot í Hans Pet- ersen og Bræðuma Ormsson i mars, komu ítrekað skilaboðum hver til ann- ars er þeir voru í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni um svipað leyti og lögregl- an var að yfirheyra þá hvem í sínu lagi. Þessi skilaboð - sem vom í miða- formi - og fjölmargt annað, em nú vopn í höndum ákæruvaldsins gegn mönnunum sem neita alfarið sök þrátt fyrir að þeir hafi verið handteknir með þýfið í höndunum og DNA-rannsókn tengi þá beint við ýmis sönnunargögn. Hjalti Pálmason, sækjandi af hálfu Lögreglustjórans í Reykjavík, upplýsti í réttarhaldinu að svo illa hefðu Lithá- arnir látið í gæsluvarðhaldinu að þurft hefði að flytja þá á milli fangelsa til að skilja þá að. Þeir hefðu verið famir að kallast á innan veggjanna - að sjálf- sögðu á tungumáli sem enginn skildi nema þeir sjálflr. Farðu í sturtu einu sinni á dag og... Þremenningamir skrifuðu á miða, vöfðu þá inn í sígarettustubba og skildu þá eftir á ýmsum sameiginleg- um stöðum í gæsluvarðhaldsáimu Litla-Hrauns, s.s. eins og í sturtuklefa. Þannig hittust þeir ekki en vissu til þess að hinir fæm líka í sturtu eða gengju um í útivistartíma. Það vom fangaverðir á Litla-Hraimi sem komu upp um bréfasendingamar. Óttar Sveinsson blaöamaður í miðasendingunum kölluðu menn- imir hver annan t.a.m. Boss eða fóst- bróður, nokkuð sem lögreglumenn hér heima segja að sé algengt þar sem skipulagðir glæpahringir séu annars vegar. „Blessaður Boss,“ stóð m.a. á einum miðannna. í öðrum stóð eitt- hvað á þessa leið: „Farðu daglega í sturtu eftir hádegi og skildu eftir bréf, ég mun líka skrifa til þín.“ Á þriðja miðanum var bein- línis rætt um að þeir þremenningar yrðu að líkindum kyrrsettir hér á landi vegna framan- greindra innbrota. Engu að síður neita mennimir allir sök. Einn þeirra óskaði t.d. sérstak- lega eftir að fara í vitnastúku í gær til að greina frá því að hann væri kailaður Boss af þeirri ástæðu að þegar hann hefði verið unglingur heima í Litháen hefði hann gjaman klæðst bol með slíkri áletran. Þetta telur ákæru- valdið ekki trúverð- ugar skýringar. Jakkaklæddir menn Mennimir, sem eru fæddir á árinu 1977, sátu allir í gær í svörtum jakka- fótum í dómsal Héraðsdóms Reykjavík- ur á seinni degi réttarhaldanna yfir þeim. Þeir vora með túlk á milli sín en gerðu gjaman að gamni sínu með til- heyrandi glotti og skvaldri á meðan máiflutningur fór fram. Hjördís Hákon- ardóttir héraðsdómari stöðvaði eitt sinn réttarhaldið og beindi orðum sín- um til túiksins - hann ætti að túlka fyr- ir landa sína en ekki að „láta þá tala við sig“. Ungu mennimir era ákærðir fyrir að hafa aðfaranótt 17. mars brotist inn í Hans Petersen, Laugavegi 178, og stolið þaðan munum að verðmæti 3,1 milljón króna og nákvæmlega um sól- arhring síðar farið inn í Bræðuma Ormsson og haft þaðan á brott með sér þýfi upp á 4,3 milljónir. Vitni, sem kom fyrir dóminn í gær, sagðist hafa séð þrjá menn í einhvers konar málning- argalla, með nælonsokka á höfðinu, hafa farið og brotið sér leið inn með stálröri á síðamefnda staðinn. Þeir hefðu verið á bíl sem stolið hafði verið. Vitnið kvaðst hafa fylgt bílnum eftir að bilastæði Sundlauganna í Laugardal. Litháamir bjuggu á Farfuglaheimilinu þar skammt frá. ÐV-MYNDIR E ÓL. Brosmildir piltar Til v/nstri einn af sakborningunum, til hægri túlkur þremenninganna. Handteknir með þýfið - neita samt Þegar lögreglumenn komust á sporið fylgdu þeir þremenningunum eftir þar sem þeir fóru í leigubíl með þrjá samanlímda pakka að pósthús- inu við Grensásveg. Voru þeir þá handteknir og þýfið fannst í pökkun- um og átti greinilega að senda það utan. Einnig kom á daginn að Lithá- arnir sáust á öryggismyndavélum í Hans Petersen aðeins 2 klukkustund- um eftir að þeir komu til landsins. Litháamir halda því fram að þeir hafi verið handbendi ónefndra Pól- verja sem hafi sagt þeim að senda pakkana utan gegn greiðslu samtals 300 Bandarfkjadala. Þetta telur ákæruvaldið, eins og svo margt annað í framburði mannanna, ótrú- verðugt, enda hafi þeir ekki einu sinni getað gefið skýringar á veru sinni hér á landi. Dómur gengur á næstunni í máli mannanna. Verði mennimir ekki sýknaðir, eins og þeir krefjast sjálf- ir, má bera mál þeirra saman við sakamál þar sem Rúmeni stal and- virði á þriðja tug milljóna króna í skartgripum. Hann fékk á síðasta ári 3ja ára fangelsi. I máli Lithá- anna er um að ræða heldur verð- minna þýfi en þar er talið að um mun skipulagöari brotastarfsemi hafi verið að ræða og samantekin ráð - einbeittari brotavilja eins og það gjarnan er nefnt, og allt þetta ekki síst með hliðsjón af miðasend- ingunum á Litla-Hrauni. Skiptiborðið aftur heim - frá Raufarhöfn „Við fylgjumst með og sjáum hvað setur. Gamla skiptiborðið okkar er hér enn og við getum gripið til þess ef illa fer,“ segir Ingvar Sigfússon, hjá rekstr- ardeild Seðlabankans, um skiptiborð bankans sem rekið hefur verið af ís- lenskri miðlun á Raufarhöfn að undan- fömu. Nú er reksturinn nyrðra kom- inn í þrot og verður lagður af. Verður þá ekki lengur svarað í símann fyrir Seðlabankann á Raufarhöfn. „Ég býst við að óskað verði eftir gjaldþrotaskiptum strax eftir næstu helgi," segir Bjami Ómar Hai-aldsson, framkvæmdastjóri Islenskrar miðlun- ar á Raufarhöfn, en við þá aðgerð missa 14 manns vinnuna. „Látið hefúr verið í veðri vaka að útstöðvar ís- lenskrar miðlunar á landsbyggðinni væra að draga móðurfélagið í Reykja- vik niður. Frá okkar sjónarhóli er því öfugt farið. Móðurfyrirtækið í Reykja- vik hefur ekkert greitt okkur á þessu ári fyrir þá vinnu sem við höfúm innt af hendi fyrir það og skuldar það okk- ur nú 8 milljónir." Raufarhafnarhreppur á 63 prósent í íslenskri miðlun á Raufarhöfú og tap- ar hann nú því fé sem þar var lagt í. Unnið er að því að skoða alla mögu- leika á áframhaldandi starfi símsvara- þjónustunnar á Raufarhöfn og hefúr Seðlabankinn áhuga á áframhaldandi samstarfi, ef hægt er: „Við erum ánægðir með samstarfið við Raufarhöfn og vildum gjaman halda því áfrarn," segir Ingvar Sigfússon hjá rekstrardeild Seðlabankans. -EIR Fangelsi fyrir kynferðisafbrot Tæplega þrítugur karlmaður úr Garðabæ hefur verið dæmdur í Hér- aðsdómi Norðurlands eystra fyrir kyn- ferðisafbrot gagnvart ungri stúlku í bæ á Norðurlandi. Atvikið átti sér stað árið 1999 þegar karlmaðurinn var 26 ára og stúlkan aðeins 14 ára. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa „káfað innan klæða á bijóstum og kyn- færum stúlkunnar gegn vilja hennar og neytt hana til að fróa sér uns ákærða varð sáðfall". Þetta átti sér stað i sendiferðabifreið mannsins þar sem þau sýndu hvort öðra blíðuhót eins og segir í dómnum. Síðan færðu þau sig aftur í bifreiðina þar sem það gerðist sem maðurinn var kærður fyr- ir. Maðurinn hefur oft áður komist í kast við lögin. Dómurinn yfir honum nú hijóðaði upp á 10 mánaða fangelsi en fullnustu 7 mánaða af refsingunni er frestað í 3 ár haldi maðurinn al- mennt skilorð. -gk Veðrið a morgun Veðrið i kvöld Solargangur og sjavarföll REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 23.25 23.40 Sólarupprás á morgun 03.25 02.39 Síödegisflóö 01.11 05.44 Árdeglsflóö á morgun 01.11 05.44 Færð Léttskýjað víða á landinu Á morgun veröur norövestanátt, 10 til 15 m/s, og slydduél á norðausturhorninu en hægari N- og NV-átt og víðast léttskýjaö annars staðar. Hiti 1 til 12 stig, svalast á Noröausturlandi en mildast sunnan til. Fostudílgú: Vindur: ( 3-5 ov* \ Hiti 5° til 12“ Hæg norblæg eöa breytlleg átt og víöast léttskýjaö. Hltl 5 tll 12 stlg, mlldast sunnan tli. Laiigardagu Vindur: 3-5 nv» Hiti T til 13“ Hæg vestlæg eöa breytileg átt og skýjaö meö köflum. Hitl 7 tll 13 stig- Sunnudagur Hæg vestlæg eöa breytileg átt og skýjaö meö köflum. Hitl 7 tll 13 stig. BVGGT A UPPLYSINGUM FRA VEGAGERD RIKISINS máskúrir og norðvestlæg átt v/ orövestlæg átt, 5 til 8 m/s, smáskúrir og hiti éuagangur þruiyiu- til 12 stig, mildast á Suöausturlandi. VEBUR SKAF- RENNINGUR ögs? ■" '’qcTk r Skýringar á veöurtáknum J^VINDÁTT ÁH *—Hm -10° 'nVINDSTYRKUR Vroncr 1 motrum 5 sekúndu 1 HBÐSKÍRT o LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAD í? Ö W Q RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA Færð og ástand vega Upplýsingar um færö og ástand vega, ásþungatakmarkanir og lokanir á vegum er aö finna á heimasíðu Vegageröarinnar www.vegag.is eöa f þjónustusímanúmeri hennar. cnSNJÖR mm ÞUNGFÆRT wm ÓFÆRT ism AKUREYRI skýjaö 8 BERGSSTAÐIR skýjaö 7 B0LUNGARVÍK rigning 10 EGILSSTAÐIR 8 KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 8 KEFLAVÍK alskýjaö 4 RAUFARHÖFN rigning 6 REYKJAVÍK úrkoma 4 STÓRHÖFÐI alskýjaö 4 BERGEN alskýjaö 8 HELSINKI skýjaö 8 KAUPMANNAHÖFN skúrir 11 ÓSLÓ rigning 7 STOKKHÓLMUR 5 PÓRSHÖFN alskýjaö 10 ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 10 ALGARVE léttskýjaö 22 AMSTERDAM léttskýjaö 15 BARCELONA heiöskírt 20 BERLÍN skýjað 13 CHICAGO skýjaö 9 DUBLIN skúrir 12 HAUFAX alskýjaö 11 FRANKFURT skýjaö 16 HAMBORG skýjaö 12 JAN MAYEN úrkoma 2 LONDON léttskýjaö 13 LÚXEMB0RG skýjaö 15 MALLORCA heiöskírt 20 M0NTREAL léttskýjaö 7 NARSSARSSUAQ alskýjaö 6 NEWYORK skýjað 16 ORLANDO hálfskýjaö 23 PARÍS hálfskýjaö 18 VÍN léttskýjaö 18 WASHINGTON skýjað 17 WINNIPEG heiðskírt 12 EflOlJBLlOrVt: ' > OJLl.UL'1=£!li

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.