Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Blaðsíða 24
44
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2001
Tilvera dv
IUifi
Framtíðin á
Seyðisfirdi
Þau Hugleikur Dagsson, Lóa
Hjálmtýsdóttir og Sólveig
Einarsdóttir, nemar í
Listaháskóla íslands, hafa opnað
sýningu í Skaftfelli,
menningarmiðstöð á Seyðisfirði.
Sýninguna nefna þau Framtíðin
og verkin sem til sýnis eru hafa
þau unnið á staðnum á síðustu
vikum.
Klassík
■ TONLISTARANDAKT I HALL-
GRIMSKIRKJU
A tónlistarandakt í Hallgrímskirkju
klukkan 12 í dag verður flutt tónlist
úr kvikmyndinni Allir heimsins
morgnar. Ólöf Sesselja Óskarsdóttir
leikur á viola da gamba og Snorri
Örn Snorrason á lútu.
Leikhús
■ PIKUSOGUR eftir Eve Ensler
verða sýndar í kvöld klukkan 20 á
þriðju hæð Borgarleikhússins. Leik-
stjóri er Sigrún Edda Björnsdóttir en
leikkonur eru þær Halldóra Geir-
harðsdóttir, Sóley Elíasdóttir og Jó-
hanna Vigdís Arnardóttir. Örfá sæti
eru laus.
■ RÚM FYRIR EINN
Hádegisleikhús lönó sýnir klukkan
12 í dag leikritiö Rúm fyrir einn.
Fundir
■ PRAUMAR OG LISTMEÐFERÐ
Sænski sálfræöingurinn Janet
Svensson, sem þróað hefur svokall-
aöa Aima-aðferð í listmeðferð, leiöir
vinnusmiðju og heldur fyrirlestur hjá
Endurmenntunarstofnun HÍ 30. og
31. maí og 1. júní kl. 9-16.
■ KYNNING Á NÁMI í
FELAGSVISINDADEILD
Nám í félagsvísindadeild HÍ fer fram
á 2. hæö í Odda milli ki. 15 og 18 í
dag.
■ KYNNING Á NÁMI í VIÐSKIPTA-
OG HAGFRÆÐIDEILD
Fyririestrar og umræöur um nám í
viðskiþta- og hagfræðideild HÍ verða
í stofu 101 í Odda milli kl. 17 og 18
i dag.
Tónleikar
■ DJASSDÁGAR I GARÐABÆ
Nú er síðasti djassdagurinn í
Garöahæ í bili. Tríó Árna Scheving
ásamt Jóni Páli Bjarnasyni leikur á
Garðatorgi í dag kl. 16.30 fyrir
framan húsnæði Sparisjóðsins. I
kvöld eru svo tónleikar í Kirkjuhvoli
þar sem saman koma stórstjörnur
úr Garðabæ og nágrenni og leika af
fingrum fram. Þetta eru Bjorn
Thoroddsen á gítar, Haukur Gröndal
á saxófón, Hilmar Jensson á gítar,
Karl Möllerá píanó, Matthías MD
Hemstock á trommur/slagverk,
Pétur Grétarsson á trommur, Ólafur
Stephensen á píanó, Ómar
Guðjónsson á gítar og Jón Rafnsson
á kontrabassa sem kemur fram
sem sérstakur aðstoöarmaður.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30.
Sýningar
I SYNING ASGRIM FRAMLENGD
Sýning Asgríms Guöbjartssonar í
Sjóminjasafninu í Hafnarfirði hefur
verið framiengd til 22. júní vegna
fjölda áskorana. Hingað til hefur
einungis verið hægt að skoða hana
um helgar en frá 1. júní verður
Sjóminjasafniö opið alla daga frá
13-17.
■ SÝNINGUM HENRI CARTIER-
BRESSON Við Signubakka, og
áhugaljósmyndaraklúbbs Akureyrar,
Akureyri - bærinn okkar, lýkur um
næstu helgi, sunnudaginn 3. júní,
í Listasafni ALurcyrar.
Bresk-íslenski slagverkskvartettinn 4-MALITY nýtur vaxandi vinsælda:
Jafnskemmtilegt að
keyra trukka og spila
- segir Geir Rafnsson, trommari og „truckdriver“
Biogagnryní
mm
HHH
Laugarásbíó/Stjörnubíó - Tomcats: +
Karlrembur í piparsveinaleik
„Þetta er allt Adrian Spillet að
þakka,“ segir Geir Rafnsson, slag-
verksleikari frá Akureyri, sem und-
anfarin tvö ár hefur starfað með
bresk-íslenska slagverkskvartettin-
um 4-MALITY sem nýtur sívaxandi
vinsælda og hefur á tveimur árum
náð að skapa sér nafn á tónlistarhá-
tíðum og í klúbbum í Bretlandi.
„Adrian vann keppni sem heitir
BBC Young Musician of the Year og
eftir það kallaði hann okkur sem út-
skrifuðumst með honum úr Royal
Northern College of Music í
Manchester saman og við stofnuð-
um kvartettinn. Kvartettinn naut
góðs af sigri Adrians því umboðs-
skrifstofan sem sér um þessa keppni
fyrir BBC sér jafnframt um að koma
sigurvegurunum á framfæri og
Adrian kaus frekar að spila með
kvartettinum en að spila „solo“.
Smátt og smátt vildi fólk lika frekar
fá kvartettinn til að koma og spila,
jafnvel þó það væri töluvert dýrara.
Þetta hefur svo gengið mjög vel hjá
okkur og við erum með slatta af
bókunum alveg fram á næsta ár,
bæði í Bretlandi og Belgíu. Nýlega
fengum við svo beiðni í gegnum
heimasíðuna okkar 4-mality.co.uk
um að koma og spila í Beirút á
næsta ári.“
- Hvemig tónlist spilið þið?
„Það er rosalega blandað, eigin-
lega bara allt. Við erum t.d. að spila
tónlist frá Afríku, Japan, Suður-Am-
eríku og svo auðvitað okkar eigin
tónlist en við erum allir að semja og
hver okkar hefur sinn stíl.“
Með aragrúa af hljóðfærum
- Eruð þið ekkert á leiðinni til ís-
lands?
„Vandamálið með þennan slag-
verkskvartett er að það er meiri
háttar mál að ferðast með allar
græjurnar á milii staða en þær fylla
hvorki meira né minna en átta
tonna trukk. Við erum með alveg
aragrúa af hljóðfærum og uppsetn-
ingum sem við notum, sérstaklega
til að flytja verkin sem eru eftir
okkur sjálfa og það er alveg ægilegt
tilstand að lesta
hljóðfærunum í
trukkinn - tekur
okkur alla jafna
tvo klukkutíma.
Þetta eru ekki
bara trommur
sem við erum
með, við erum lika
með alls konar
hljómborðsslag-
verk og svo risa-
stórar marömbur.
Ef við ætluðum að
fara heim til Is-
lands yrðum við
að fara með trukk-
inn í ferju en það
er bara svo rosa-
lega dýrt. Við
erum reyndar al-
veg hissa hvað
fólk er tilbúið að
borga fyrir að fá
kvartettinn, því
það er svo dýrt
fyrirtæki að koma
þessu „on the
road“ og við héld-
um að það væru
ekki svona margir
staðir sem hefðu
efni á þessu. En
strákamir vilja
náttúrlega endi-
lega fara til ís-
lands - þangað
langar alla og við
eigum eftir að
koma, það er eng-
inn vafi á því -
það er bara spurn-
ing hvenær."
Eru að „meika’öa"
4-MALITY slagverkskvartettinn skipa; Adrian Spillett, Jan Bradley, Stephen Whibley og Geir
Rafnsson sem trónir efst í miöjunni á myndinni.
Milli tromma og trukka
- Hver ykkar keyrir trukkinn?
„Ég er með meirapróf sem ég tók
heima á Islandi og það kemur sér vel.
Eftir að ég útskrifaðist hérna úr skól-
anum þá vann ég næstum eingöngu
við að keyra svona „trailer-trukka" og
finnst það alveg rosalega gaman, eig-
inlega alveg jafnskemmtilegt og að
spila. Eftir aö svona mikið varð að
gera hjá okkur í tónlistinni hef ég er
varla nokkurn tíma til að keyra en ég
nota oft tækifærið þegar koma eyður
á milli „gigga“ og fer í einn og einn
túr til að fá útrás," segir Geir
trommari og „truckdriver".
Fram undan hjá félögunum í 4-MA-
LITY em tónleikar víðs vegar um
Bretland. Má þar nefna: Inverness á
Skotlandi, Chelmsford Festival,
London Planetarium, Cheltenham
Festival, Stratford English Music
Festival, Birmingham Symphony
Hall, sem verður sent út á BBC Radio
3, og Bridgewater Hall í Manchester,
auk þess spila þeir á Edinborgarhátíð-
inni og verða á tvennum Proms-tón-
leikum í Royal Albert
Hall í London i haust.
-W
Karlremburnar Michael og Kyle
Jerry 0 ’Connell og Jake Busey í hlutverkum sínum.
Það er með ólíkindum hvað sum-
ir í Hollywood geta hjakkað í sama
farinu. Eftir að There is Something
About Mary og American Pie slógu
í gegn hafa komið á markaðinn
óteljandi myndir sem reyna að gera
út á sama grófa húmorinn, sem
heppnaðist vel í þessum tveimur
myndum. Húmor sem er mjög vand-
meðfarinn og þar sem nánast er
stiginn línudans á milli þess að vera
sniðugt og ósmekklegt. Megnið af
eftirhermunum eru röngu megin
við línuna, óskemmtilegar og
ósmekklegar kvikmyndir sem lítið
vit er í. Tomcats er slík kvikmynd.
Það örlar stundum á húmor sem
hefði getað heppnast hefði hæfileik-
aríkur leikstjóri verið við stjórnvöl-
inn en slíkt er ekki til staðar og þeg-
ar á heildina er litið er kvikmyndin
ófyndin og ósmekkleg.
I upphafi erum við stödd í gifting-
arveislu. Sá fyrsti úr vinahópnum
er að gifta sig. Hrollur fer um vini
hans og þeir ákveða að stofna sjóð
sem á að ávaxta sig þar til aðeins
einn þeirra á eftir að gifta sig. Sjö
árum síðar eru aðeins tveir eftir.
Teiknimyndahöfundurinn Michael
(Jerry O’Connell) og kvennabósinn
Kyle (Jake Busey) sem hefur það að
markmiði að komast yfir sem flest-
ar stelpur. Kyle er öruggur um að
hann vinni pottinn og sjálfsagt hefði
hann gert það ef Michael dytti ekki
í hug að setjast við spilaborðiö í Las
Vegas. Þegar upp er staðið skuldar
hann rúma fimmtíu þúsund dollara
og honum er gerð grein fyrir því að
borgi hann ekki innan ákveðins
tíma þá styttist lífdagar hans veru-
lega. Það eru því góð ráð dýr.
Michael fer til vinar síns, Kyle, til
að athuga gang mála hjá honum þar
sem eina úrræðið sem hann hefur
er að vinna pottinn sem er að verða
að hálfri milljón dollara. Kyle er
enn eins og rófulaus hundur á eftir
hverju pilsi en lætur út úr sér að
hann hafi kynnst stúlku í brúðkaup-
inu fyrir sjö árum sem hann gæti
hugsað sér að giftast. Michael sér
glætu í myrkrinu og fer á stúfana til
að hafa uppi á stúlkunni.
Þetta er ekki svo galinn söguþráð-
ur ef rétt væri farið með, en svo er
nú ekki. Það er eins og leikstjórinn
og handritshöfundurinn Gregory
Poirier hafi haldið að eina sem gæti
bjargað myndinni væri að hafa
húmorinn á svörtum nótum, eitt-
hvað sem hann ræður greinilega
ekki við. Þegar svo leikarar eru
hver öðrum verri er ekki von á
góðu, enda má með sanni segja að
myndin sé jafnmikið klúður og
hjónabandið sem Michael reynir að
stofna til.
Leikstjóri og handritshófundur: Gregory
Poirier. Kvikmyndataka: Charles Minsky.
Tónlist: David Kitay. Aöalleikarar: Jerry
O'Connell, Elizabeth Shannon, Jake Bus-
ey og Horatio Sanz.