Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2001
Fréttir DV
Skýrsla um heimsyfirráð Thermo Plus á kælitækjamarkaði:
Ráðgjafinn sætir rann-
sókn fjármálaeftirlits
- hluthafar treystu mati hins virta PricewaterhouseCoopers
Fjármálaeftirlitið vinnur nú að
rannsókn á þætti endurskoðunar-
fyrirtækisins Pricewaterhou-
seCoopers í upplýsingagjöf með
skýrslugerð um stöðu kælitækja-
framleiðandans Thermo Plus á Is-
landi (TPEI). Skýrsla PWC í fyrra
og mat fyrirtækisins á verðmæti
hluta í Thermo Plus er m.a. talin
hafa leitt til þess að íjöldi fólks,
stofnana og fyrirtækja hafði ofurtrú
á stöðu fyrirtækisins sem siðan
varð gjaldþrota nokkrum mánuðum
seinna.
Fagnarrannsókn
Ragnar Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri PWC á íslandi, segist
fagna rannsókn fjármálaeftirlitsins
á þessu máli. Þá komi trúlega fram
hvað hafi farið úrskeiðis.
„Svona skýrslur eru unnar í sam-
ráði við eigendur en við reynum
síðan að gera áreiðanleikakönnun
um að áætlanir standist. Ég veit að
Höröur Kristjánsson
blaðamaður
það var lögð mikil vinna í og tekist
talsvert á um þetta áreiðanleika-
mat,“ segir Ragnar. Hann segir að
þama hafi einhverjir hlutir þó ekki
gengið eftir og starfseminni lokið
mjög snögglega. Þá segir hann ljóst
að gríðarlegar væntingar hafi verið
í fyrirtækinu. „Ég veit að menn
lögðu mikla vinnu í að ná staðfest-
ingum um sölusamninga og annað
þó það hafi svo ekki skilað sér.“
Ragnar segir að þeir hafi reynt að
ganga eftir því að t.d. sölusamning-
ar sem kynntir hafi verið ættu við
rök að styðjast.
Skýrslan vel nýtt
Upphaf þessa máls má rekja til
þess að þegar Thermo Plus var aö
komast í gang var ákveðið að ráða
BDO endurskoð-
un til að hafa
umsjón með fjár-
reiðum fyrirtæk-
isins. Var sú
vinna í sam-
vinnu við Ás-
bjöm Jónsson,
lögfræðing í
Keflavík, sem
síðar varð stjórn-
arformaður í
Thermo Plus. Fyrirtækið BDO rann
síðan um áramótin 1999-2000 inn í
endurskoðunarskrifstofuna
PricewaterhouseCoopers. í nafni
PWC var gerð ítarleg og mjög lof-
samleg 47 síðna skýrsla um mark-
aðsmöguleika og gengi fyrirtækis-
ins í júní 2000. I ljósi tengsla BDO
við Thermo Plus og síðar samruna
við PWC telja margir að sú skýrsla
veki í það minnsta ýmsar spurning-
Thermo Plus í Reykjanesbæ
Skiptaráðandi reynir nú að selja fyrirtækiö í einum pakka
1. Overview
The purposc of this business pl.m is to providc tiic rcader wjth » compfchensive synopsis oFThermo Plus
Europe wtd íts plar.s for expanvion.
The gcals of the Ðusmm Plan are twofold
A. To provide investors widi a v»cw or all parta of the operation and its linancial objectivcs. aud thus
servc as an action plan for the developmcnt and thc operations of the company tn the coming
nwnths and years.
B. To give investors detailcd information on the company and to províde thcm wuh a basts for
asscssmg i« value and futurc potsibilities.
Thc Businm concept involvcs manufacturing and snles of refrigerauon uniu in Europe and later
throughout the world.
The company’s lcelandic opcratiuru are based tn Reyljanesbacr.
As a result of European Union legitlaiion rcgarding die food choin (“farro to table'T, a revoluuon in e-
commerce grocery shopping ovct the Internet, itnd an imemaúonal elfurt to reduce hungcr m thc world, we
can assumc an uvcrmmg need for practíca! sotulion* in refrigeration and freeztng equipment. The Thcnm*
Plu* business conccpt is aimed at answering these needs. and to olTering reliahle refrigcration and freezing
cqutpmem to businesses at competitivc pnce, m ordcr to protect thcir product* and safeguard thcir quahty.
Tbermo Phis's competitiveness is bused, among other things. on tried and tnte solutions. primanly the
tecluvology which it has líccnsed from Refrigeral.on Masseau. Also lccland’s membenhíp of the EEA. tire
EEA's bi-latcral agreemcnLs with the EU and tlre pending EFTA agrecment with Canada were significant
factors influencing the decision to locate in lceland. Offcring total solutions in refrlgeration and íreezing
equípment, includinc qnick instailation times, low installatlon costs, low maintenancc requirements
and ficvihility with regard to cuslomer needs. Thcrmo Plus has also many connecuoas with Vey players
in ihc European refrigeration markctplace aml so wíll compcte on the European and othcr potciuial
worldwide markeu. Bcyond
1.1. Factor* contributing to the strcngth of Thormo P!u» products
• Sintpledesign
• Emphasis placed on a nwdcrn look for the equipmcm.
• Simplicity in design bas lcd lo low frtquency of brcak-downverrors.
• Equipment is designed with ease of maintenance and inspection in mínd, often aliowing ihe user to
make repairs or odjustments, without having to call in a specialisL
• Care hos been taken to select components with rcgard to operating safety and thdr gcneral availability
(ihere are few specialized cúmponcnu).
• Equipment takes up tmall space.
» Instaliauon of equipment u both simple and quick, and does not requtre cxicttttve wurk on pipes or
wiring or changes to Ctoilities.
• Each umt is made up of modulet that can bc iucrtmcntally put togelhcr to achreve the required
capacity.
Thc abovc facton give Thermo Pius products a uniquc compctitive potition on thc market.
The original goal of Therroo Plus was to bccotnc a pan-Europcan supplitr of tefrigeration equiprncm for
bolh the road ttanspott and sliIk markeu. with initial manuracturing csrablished tn luelami. Tht company
Firet Edítton - Junc 2000 Busincss plan Page>of47
Skýrslan um Thermo Plus
Ótrúlegar væntingar eru gerðar í skýrslunni um hraöa þró-
un fyrirtækisins.
ar um trúverðugleika.
Samkvæmt heimildum
DV nýttust þau plögg
hins vegar vel til að afla
framleiðsluhugmynd-
inni fylgis. Kemur það
ljóslega fram í samtölum
við hluthafa sem treystu
m.a. á þessi gögn um
stööu fyrirtækisins,
enda Pricewaterhou-
seCoopers ehf. á íslandi
hluti af heimsins
stærstu samsteypu fyrir-
tækja á sviði endurskoð-
unar og ráögjafar. Hlut-
hafar sem keyptu í mars
og april í fýrra á geng-
inu 6 til 7 hafa upplýst
að þeim hafi verið gerð
grein fyrir því að búast
mætti við ört vaxandi
gengi hlutabréfa í fyrir-
tækinu. Það yrði komið
í allt aðl8,3 eða meira
undir lok þessa árs en
sem kunnugt er fór það
á allt annan veg og var
fyrirtækið lýst gjald-
þrota 11. apríl slðastlið-
inn. Ýmsar óstaðfestar
sögur um mikla sölu-
samninga virðast fyrst
og fremst hafa verið
komnar frá forstjóran-
um sjálfum, Tom Ros-
eingrave.
Glæsileg heims-
mynd
Skýrsla PWC er mjög
lofsamleg um framtíðarhorfur
Thermo Plus og stórkostlegar hug-
myndir um útþenslu fyrirtækisins
um allan heim. í skýrslunni kemur
fram að áætlanir fyrirtækisins
geröu ráð fyrir að þaö yrði orðið
leiðandi í framleiðslu kæli- og
frystitækja í bíla á heimsvísu árið
2005. Mikil vinna væri lögð í að
gera Thermo Plus að heimsþekktu
merki.
Lýst er fyrirhuguðum úttektum
á mörkuðum í Frakklandi, á Spáni,
Portúgal, írlandi, Hollandi, Kýpur,
í Grikklandi, Svíþjóð, Suður-
Kóreu, Sádi-Arabíu, Egyptalandi,
Jórdaníu og Brasilíu, auk Bret-
lands. í skýrslunni kemur m.a.
fram að áætlun hafi verið um sölu
á framleiðsluvörum fyrir 2,2 millj-
ónir breskra punda á tímabilinu
júní 2000 til júnl 2001 samkvæmt
sölusamningi viö National
Services Co. of Saudi Arabia. Átti
það að dekka sölu í Dubai, Quatar,
Oman, Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum og Kúveit, auk Sádi-Ar-
abíu.
Gríðarlegar væntingar
eru einnig gefnar varð-
andi sölu í Brasilíu. Segir
í skýrslunni að nýlokið
væri þá samningsgerð
um samvinnu við Doulos
Tecno í Brasilíu um
könnun á að koma upp
verksmiðju þar í landi
fyrir framleiðslu á vörum
Thermo Plus fyrir Suður-
Ameríkumarkað. Þar er
gert ráð fyrir 49% hlut
TPEI i verksmiðjunni. Út-
þensla fyrirtækisins á
heimsvísu átti síðan að
gerast í samvinnu við
heimamenn í hverju
landi fyrir sig með
20-49% eignaraðild ís-
lenska félagsins.
Árið 2000 átti sam-
kvæmt skýrslunni að
sækja á markaði í Mið-
Austurlöndum, Argent-
ínu, Þýskalandi, Svíþjóð,
Hollandi, Kýpur og
Grikklandi. Árið 2001 var
hugmyndin að sækja á
markaði í Danmörku,
Belgíu, Spáni, Kóreu, Jap-
an, Frakklandi og á ítal-
íu. Áriö 2002 átti svo að
taka stefnuna á Ástralíu,
Nýja-Sjáland, Singapúr,
Malasíu, Kína, Afríku og
Suður- Ameriku.
Þá er einnig talað um
að stöðug útþensla og þró-
un fyrirtækisins sé byggð
á fjárfestingum fyrirtæk-
isins í þekkingu, reynslu i fram-
leiðsluþróun ásamt sölu- og mark-
aðsstarfi erlendis. Þetta tryggi ljós-
lega lágmarksáhættu við áfram-
haldandi vöxt. í fimm ára fram-
leiðsluáætlun er gert ráð fyrir að
1.753 einingar verði framleiddar
árið 2000, 4.008 einingar 2001, 4.389
einingar 2002, 5.026 einingar 2003 og
5.856 kæli- og frystieiningar af ýms-
um gerðum árið 2004. Af þessu þarf
trúlega engan að undra þó einhverj-
ir hafi fengið doflaramerki í augun.
-HKr.
Hörð viðurlög gegn sprengjugabbi í flugi
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, telur að flugstjóri
bandarísku júmbó-þotunnar hafi
brugðist rétt við með því aö lenda
vélinni í Keflavik og gæta ýtrustu
varúðar vegna sprengjuhótunarinn-
ar. Líkumar á hryðjuverkum eru
meiri þegar bandariskar vélar eiga í
hlut en íslenskar en Flugleiðir hafa
ákveðnar verklagsreglur ef tilvik
sem þessi koma upp.
„Reglurnar byggjast m.a.
á alþjóðlegum samþykktum
en flugstjórinn er hæstráö-
andi um borö og þaö er
hans aö meta og taka
ákvarðanir um viðbrögð
hverju sirnii. Hörð viðurlög
eru í íslenskum lögum viö
svona hótunum þótt þau
séu sjálfsagt enn harðari
t.d. í Bandaríkjunum. Mál
af þessu tagi lenda yfirleitt
fyrir dómstólum í heima-
landi flugvélarinnar," segir
Guðjón.
Hann segir mál United
Airlines-vélarinnar allvöru-
þrungið og hinn seki í mál-
inu eigi líklega yfir höföi
sér langa fangelsisvist.
Ef farþegi í innanlandsflugi ritaöi
orösendingu um sprengju um borð í
Fokker-vél yrðu viðbrögðin þá jafn
hastarleg og í tilviki United Airlines
vélarinnar? „Sömu aimennu viðhorf
gilda i innanlandsflugi,. þaö er mat
flugstjórans á öryggi flugsins sem
ræður viðbrögöunum," svaraði
Guðjón. -BÞ
Umsjön: Birgir Guðmundsson
Hannes skírari
Um nokkurt skeið hefur eitt
helsta umræðuefni pottverja
verið nýleg
upphefð
Hannesar
Hólmsteins
Gissurarson-
ar í banka-
heiminum en
hann er nú
einn af
bankaráðs-
mönnum
Seðlabanka íslands. Hefur þessi
skipan mála orðið til aö fram-
kalla gagnrýni frá ýmsum en
aðrir telja að prófessorinn sé
ílottur í þetta starf. En eitt
virðast menn þó vera sammála
um og það er að innkoma
Hannesar í bankaráðið vekur
upp þann gamla orðróm að
Davíö Oddsson sé jafnvel að
hugsa um að setjast fyrr en
seinna i seðlabankastjórastól-
inn og hætta afskiptum í póli-
tík. Eða eins og sjálfstæðis-
menn i pottinum orðuðu það,
að hann sé að hugsa um að
gera eins og „Margrét Thatcher
og taka sæti í lávarðadeild-
inni“. Kenningin hljómar þá
þannig aö Hannes Hólmsteinn
sé í hlutverki Jóhannesar skír-
ara sem sendur er í bankann
til að undirbúa komu meistar-
ans...
Við ramman reip...
Pottverjar fylgdust af athygli
með þætti Áslaugar Dóru Eyj-
ólfsdóttur í
sjónvarpinu
á dögunum
þar sem hún
fjallaði um
ólíkan hlut
kynjanna i
sjónvarpi.
Þetta var
langur og ít-
arlegur þátt-
ur sem endurspeglaöi væntan-
lega þá áherslu Sjónvarpsins að
hér væri mikilvægt mál á ferð-
inni. Niðurstaðan var eitthað á
þá leið að 70 viðmælenda í
sjónvarpi væru karlar og að-
eins 30% konur. Einnig kom
fram að mikið er rætt við sama
fólkið aftur og aftur þannig að
slíkt jaðrar við að vera mjög
einhæft. Sérstaka undrun vakti
það þó í pottinum þegar kallað-
ur var til hópur álitsgjafa um
þetta mál að þar voru gömlu
kunnuglegu andlitin sem alltaf
svara fyrir þessa hiuti frá því
Sigrún Stefánsdóttir fyrst byrj-
aði að tala um þá fyrir 15 árum
- þetta voru fréttastjórar sjón-
varpsstöðva og fleiri af því
sauðahúsi. Þá urðu pottverjar
ekki síður undrandi á því að
eini kvenfréttastjórinn í land-
inu, Sólveig Bergman á Skjá
Einum, var ekki kölluð til í
álitsgjafahópinn! Telja menn
þetta vera til marks um hversu
ramman reip er við að draga -
karlarnir dóminera líka þætt-
ina um það að karlar dómineri
alla þætti!...
KR-ingar órólegir
Fullyrt er í pottinum aö
menn séu
orðnir nokk-
uð órólegir í
vesturbænum
í Reykjavík
vegna þess aö
íslandsmeist-
arar KR hafa
tapað 2 af 3
eikjum sínum
á íslandsmót-
inu. Þannig mun Pétur Péturs-
son hafa sagt eftir tapleikinn
gegn FH að ef þetta héldi svona
áfram væri best að fara að leita
sér að nýrri vinnu. KR-ingum
finnst ekki gaman að tapa og
þar er þekkt að þjálfarar fjúki
ef töpin verða of mörg!...