Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Síða 12
28 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2001 I>V KRAKKftKOT Stærð: I. 120 cm br. 180 cm h. 170 cm Pallur 60cl 80 cm Verð kr. 49.500,- (hægt að fá þau samsett og/eða send á staðinn) FftieRIK ft. Johssom ehf. Éyjorsíeft 7 121 Reykjövík, s. 552 2111/696 5296 Smáauglýsingar Markaðstorgið -allt til alls 550 5000 Nú eru sumarplönturnar komnar á stjá! Opið verður alla virka daga í sumar frá kl. 9 til 21 og um helgar frá kl. 10 til 20. Verið velkomin! GROÐRARSTOÐIN S TJORNUGROF18, SIMI581 4288, FAX 581 2228 www.mork.is mork@mork.is Langaöi að breyta tíl Þó að Bjarni Finnsson hafi selt Blómaval er hann ekki sestur í helgan stein. Hann segist sjá mörg sóknarfæri innan garðyrkjunnar og hann ætli ekki að láta þau í friði. Bjarni Finnsson: Ekki sestur í helgan stein Það vakti nokkra athygli þegar bræðurnir Bjarni og Kolbeinn Finnssynir seldu Blómaval. Fyrir- tækið hefur verið í örum vexti undanfarin ár og Bjami stýrt þvi af mikilli lagni. Bjami er fæddur í Reykjavík árið 1948 og því fimmtíu og þriggja ára á þessu ári. Hann lauk námi við Garöyrkjuskóla ríkisins árið 1968 og var í hópi fyrstu garðyrkju- fræðinganna sem læröu skrúðgarð- yrkju eftir að hún varð að löggildri iðngrein. Bjami segist ekki hafa sagt skil- ið viö garðyrkjuna þó hann hafi selt Blómaval. „Það eru miklir möguleikar í greininni og ég er ekki sestur í helgan stein.“ Gróðurhúsið við Sigtún „Ég fékk snemma áhuga á að selja blóm og garðyrkjuvörur og eftir að ég lauk námi hér heima fór ég til Danmerkur á nokkurra mán- aða námskeið í blómaskreytingum. Þar lærði ég ýmis undirstöðuatriði í markaðsmálum og bókhaldi og augu mín opnuðust fyrir möguleik- unum á þessu sviði. Þegar ég kom heim fór ég að vinna hjá Jóni H. Björnssyni í Alaska - gróðrarstöðinni við Miklatorg. Ári seinna tók hann við rekstri Gróðurhússins við Sigtún af Stefáni Árnasyni garðyrkju- manni og gerði mig að verslunar- stjóra. Skömmu seinna fór Kol- beinn bróðir minn aö vinna þar líka og ári seinna eða 1970 leigðum við reksturinn en keyptum hann svo árið 1974. Þegar við seldum Blómaval vorum við búnir að reka það í nákvæmlega þrjátíu ár. Gróðurhúsið var um sjö hundr- uð fermetrar þegar við tókum við því og þótti mjög stórt á sínum tíma. Við höfðum verslun í einum þriðja hússins til að byrja með en vorum með ýmiss konar ræktun í restinni. Fyrsta árið vorum við Kolbeinn þama tveir með einn hálfs dags starfsmann en smátt og smátt fór að bætast við fólk. Blómaval hefur reyndar alltaf verið fjölskyldufyr- irtæki; konurnar okkar komu fljót- lega til starfa og sáu um bókhaldið og annað sem til féll. Reksturinn gekk vel Bjami hefur alltaf verið fram- kvæmdamaður og er lítið fyrir að sitja auðum höndum. Árið 1983 stofnaöi hann heildverslunina Brum ásamt Kolbeini bróður sín- um. Hann var um tíma formaður Kaupmannasamtaka Islands og í forsvari fyrir pokasjóðinn. Blóma- val átti Gróðrarstöðina Alaska í Breiðholti í nokkur ár og rak Foss- vogsstöðina í samvinnu við Barra á Egilsstöðum. „Fyrir fjórum til fimm árum fór- um við Kolbeinn að velta því fyrir okkur hvemig við ætluðum inn í framtíðina, hvort við ætluðum að vera áfram í þessu og láta keyra okkur út í hjólastól eða fara að gera eitthvað annað. Við vorum ekki nema rúmlega tvítugir þegar við stofnuðum Blómaval og það er svo margt sem mann langar til að gera í lífinu. Við ákváðum því að slá til og selja allt saman og fara að gera eitthvað annað. Það var ótrúlega spennandi að reka Blómaval og verslunin mótað- ist hægt og sígandi. Reksturinn gekk vel flest árin en þetta var aldrei neitt stórgróðafyrirtæki. Mig langar reyndar að nota tæki- færið og þakka starfsfólki Blóma- vals frábært starf, þetta hefði aldrei verið hægt án þess.“ Bjarni vill ekki með nokkru móti gefa upp hvað hann fékk fyr- ir Blómaval og snýr bara út úr og hlær. „Nei, nei, það þýðir ekkert að spyrja að þessu, ég segi þér það aldrei." Hann segir aftur á móti að það hafl verið erfitt að hætta. „Ég og fjölskylda mín erum búin að lifa og hrærast í þessu í þrjátiu ár og Blómaval er stór hluti af lífi mínu. Maður var búinn að koma sér upp ákveðinni rútínu og það er heil- mikið átak að koma sér út úr henni. Ég er búinn að keyra sömu leiðina í vinnuna í þrjá áratugi og eftir að ég hætti hefur það nokkrum sinnum komið fyrir að ég hef rankað við mér á planinu fyrir utan Blómaval þegar ég hef ætlað annað.“ Ótrúleg sóknartækifæri „Mér líst mjög vel á þær hug- myndir sem Húsasmiðjan er með um framtíð Blómavals og held að fyrirtækið eigi eftir að blómstra í framtíðinni. Menn eru oft að spyrja hvort ég sé ekki orðinn ríkur og satt að segja er ég það. Ég er hraustur og á góða fjölskyldu og það er stærsta ríkidæmið. En ég þarf ekkert að kvarta yfir afkomunni." Fyrir tveimur árum var Bjarni gerður að heiðurskonsúl Hollands á íslandi. Hann er búinn að koma sér upp lítilli skrifstofu í Borgar- túni en vonast til að fá meira pláss fljótlega. Bjarni vill ekki segja hvað hann ætlar að gera í framtíðinni og verst fimlega öllum uppástung- um. „Ég ætla að slappa af fyrsta kastið og sjá hvemig landið ligg- ur. Garðyrkja býður upp á ótrúleg sóknartækifæri og ég ætla að ein- beita mér að þeim.“ Hann hristir hausinn þegar minnst er á stór- fellda laukarækt eða framleiðslu afskorinna blóma til útflutnings en bætir við að hann sjái ýmsa möguleika á því sviði. „Það eru líka miklir möguleikar innan- lands og ég ætla ekki að láta þá í friði. Nú orðið þykir ekkert mál að flytja vörur á milli heimsálfa og menn eru farnir að hugsa á heimsvísu. Hugtök eins og inn- og útflutningur koma til með að hverfa úr málinu og það verður bara talað um verslun. Verndartollar koma til með að hverfa og fyrirtækin verða að standa sig í samkeppni við er- lenda aðila. Ég er sannfærður um að fyrirtæki eru betur rekin ef þau taka þátt í virkri samkeppni. Aðstæður til ræktunar eru að vísu erfiðari hér en sunnar í álf- unni en við þurfum bara að finna leiðir til að leysa það. ísland er með hreina ímynd út á við og við eigum að notfæra okkur það.“ Að lokum er Bjarni spurður hvort hann eigi sér einhverja uppáhaldsplöntu. „Já, þú segir nokkuð. Ég held mikið upp á ís- lenskt birki og rósir eru líka mjög fallegar. Svo þori ég varla að segja frá því en stjúpur eru uppáhalds- sumarblómin mín.“ -Kip

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.