Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Síða 4
Fréttir
FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001
DV
Náttúruperla á hálendinu í brennidepli:
Átök um lón í jaðri Þjórsárvera
- náttúruverndarsinnar vilja ekki taka áhættuna
í skoðanakönnun, sem birt var í
DV I gær, kemur fram að meiri-
hluti þjóðarinnar, eða 62%, er and-
vígur því að skerða Þjórsárver
með gerð uppistöðulóns vegna
virkjana. í viðræðum við fólk sem
tók þátt í könnuninni mátti samt
vel greina takmarkaða vitneskju
almennings á þessu friðaða svæði
sem Þjórsárver eru. Deilt er um
hvort, eða hversu mikil áhrif miðl-
unarlóns við Norðlingaöldu verði á
friðlandið.
Norðlingaölduveita
og Norðurál
Gerð lóns við Norðlingaöldu hef-
ur verið í brennidepli undanfama
mánuði vegna þess að fyrir liggur
áhugi Norðuráls á frekari orku-
kaupum vegna áforma um stækkun
álversins á Grundartanga upp í þá
stærð sem rekstrarleyfi er fyrir. Til
þess að uppfylla á umbeðnum tíma
þessar þarfir Norðuráls fyrir raf-
orku er taliö nauðsynlegt að byggja
Búðarhálsvirkjun og Norðlinga-
ölduveitu. Aörir kostir eru ekki
taldir mögulegir.
fáímÚXlíÍÍmLM * jr
Hörður Kristjánsson
blaðamaður
Ákvörðun um lón frestað
Undanfarin misseri hefur Þjórs-
árveranefnd unnið að því að komast
að niðurstöðu um hvort áform
Landsvirkjunar samræmast ákvæð-
um friðlýsingarinnar frá 1981 og ber
henni að vísa niðurstöðu sinni til
Náttúruvemdar ríkisins sem tekur
afstöðu til heimildar fyrir lóninu
áður en það kemur til ákvörðunar
umhverfisráðherra. Til þessa hefur
nefndin haft til umíjöllunar mis-
munandi lónhæðir upp að 581 metra
og hugsanlegan 6. áfanga Kvísla-
veitu. Á fundi 3. maí 2001 samþykkti
nefndin eftirfarandi:
„Þjórsárveranefnd hafnar áform-
um um 6. áfanga Kvíslaveitu.
Nefndin hafnar einnig öllum hug-
myndum um lón sem eru hærri en
575 m y.s. Nefndin samþykkir að
fresta ákvörðun um lón í 575 m y.s.
þar sem hluti nefndarmanna telur
nauðsynlegt að fá fyllri úttekt á
áhrifum þeirrar lónhæðar á nátt-
úruverndargildi Þjórsárvera."
Gróðurvin á hálendinu
Þjórsárver er samheiti yfir um
140 ferkílómetra gróið svæði milli
upptakakvísla Þjórsár suður af
Hofsjökli. Er svæðið oft skilgreint
sem víðáttumesta gróðurvin á mið-
hálendinu. Þar eru einnig mestu
varpstöðvar heiðagæsarinnar í
heimi. Þjórsárver voru fyrst lýst
friðland 1981. Þau eru skilgreind
sem svonefnt Ramsar-svæði sam-
kvæmt alþjóðlegum samþykktum og
njóta verndar samkvæmt því. Frá
fyrstu tíð friðlýsingar hefur þó ver-
ið gert ráð fyrir að Landsvirkjun sé
heimilt að mynda lón með stíflu við
Norðlingaöldu í allt að 581 m hæð
y.s. að ákveðnum skilyrðum upp-
fylltum.
Mikil andstaða
Veruleg andstaða reyndist við
Norðlingaöldumiðlun, einkum
meiri vatnsborðshæð en nú er rætt
um. Við slíkt hefði allt að 50-62% af
gróðurlendi
veranna farið
undir vatn en
stærð (um-
reiknað í algró-
ið land) þess er
alls talin um
120 ferkílómetr-
ar. Þá hefðu
glatast um 60 til
74% af hreiður-
stæðum
gæsanna sem
árið 1970 voru
talin um 10.700.
í áætlunum
Landsvirkjunar
var því miðað
við vatnsborðs-
hæð 581 m y.s.
sem minnkaði
verulega áhrif
lónsins. Við þá
vatnshæð hefði
um 13% af gróð-
urlendinu og
8,5% hreiðr-
anna farið und-
ir vatn.
Miklar rannsóknir hafa staðið
yfir frá því snemma á 9. áratugnum
og hafa verið til skoðunar misstór
lón með hæstu vatnshæð á bilinu
575 til 581 metra yfir sjó.
Horft inn í Þjórsárver frá neöri mörkum svæðisins
Blái liturinn neðst á myndinni, sem skyggöur eryfir ána og landið þar næst, sýnir hvar vatn myndi flæða yfir land
innan friðaða svæðisins ef miðlunarlón yrði að veruleika.
Minna lón, mfnni áhætta
Rannsóknir benda til þess að um-
hverfisáhrif lóns með vatnshæð 575
m y.s. séu umtalsvert minni en þau
sem yrðu við lón í 581 m y.s. Vatns-
borð lóns sem næði i 575 metra yfir
sjó yrði 6 metrum lægra og flatar-
mál þess (29 ferkílómetrar) yrði
meira en helmingi minna en lóns í
581 m hæð sem gert er ráð fyrir í
friðlýsingunni. í slíku lóni færu
einkum áreyrar undir vatn innan
friðlandsins og einungis um 1,4 km2
af 93 km2 grónu landi í'friðlandinu.
Eigi að síður telja ýmsir náttúru-
verndarsinnar sem DV hefur rætt
við að neikvæð áhrif af gerð lónsins
séu óásættanleg. Óttast menn þar
mjög að við mannvirkjagerðina
upphefjist uppfok og nefna sem rök-
semd mismunandi vatnshæð í lón-
inu þar sem rokgjarn sandur yrði af
og til ofan yfirborðs við lága vatns-
stöðu. Þessar áhyggjur komu einnig
fram við náttúrufarsrannsóknirnar.
Rannsóknir sem Landsvirkjun
gekkst fyrir sýna að við 575 m hæð
lóns eru um 0,5 km2 gróins lands í
hættu utan lóns og að ráð séu til að
bregðast við því. Grunnvatnsborð
mun hækka í næsta nágrenni lóns-
ins, en áhrifa mun ekki gæta langt
út frá lóninu. Norðlingaöldulón í
575 m hæð er að þremur fjórðu hlut-
um utan friðlandsins og stíflan er
um 5 km utan við mörk þess. Áhrif
lóns á grunnvatnsborð í verum ofan
lónstæðis verði því lítil að sögn
Landsvirkjunarmanna.
í samtölum við þá sem óttast
framkvæmdir á svæðinu er þessi
niðurstaða Landsvirkjunar um
áhrif á grunnvatnsyfirborð í Þjórs-
árverum þó dregin í efa. Þvi beri að
láta friðaða svæðið njóta vafans og
hverfa frá áformum um gerð lóns á
svæðinu.
Vatnsyfirborð stöðugt yfir
sumarið
Blaðið bar það undir sérfræðinga
Landsvirkjunar hvort yfirborðs-
staða vatnsins í miðlunarlóninu
yrði breytileg með tilheyrandi
áhættu fyrir umhverfið. Sú hættan
er að mati Landsvirkjunarmanna
hverfandj. Leysingavatn á vorin
fylli lónið strax í júni. Yfirborðs-
staða lóiisins verði síðan óbreytt
yfir sumarið. Áhrif af lækkun yfir-
borðs þegar tekið er úr lóninu yfir
vetrartímann eigi líka að vera
hverfandi vegna þess að þá sé svæð-
ið að mestu hulið snjó og ís.
Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðar-
ráðherra segir að engar ákvarðanir
hafi verið teknar um gerð miðlunar-
lóns i Þjórsárverum. Ferlið muni
fara sinn eðlilega lögformlega far-
veg sem taki einhverja mánuði.
Veðríö í kvöfd
02.56
24.58
00.58
02.54
18.06
05.31
&
Sólartag í kvöld
Sólarupprás á morgun
Síðdeglsflóð
Árdegisflóð á morgun
SlíýrlngfUf & veðurtáknum
J*''ViNOÁTT *—HITI
15} ,10o
'WINDSTYRKUR XfrR0ST HE!ÐSKIRT
í metrum & su'kiÍþííu
rioo\ ***> LÉTTSKÝJAÐ O O HÁLF- SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ SKÝJAÐ
Hætt við síðdegisskúrum Fremur hæg breytileg átt eða hafgola. Dálítil súld eða skúrir á Suöur- og Suöausturlandi en RIGNING SKÚRIR w SLYDDA SNJÓKOMA
annars skýjað með köflum og hætt við síödegisskúrum, einkum inn til landsins. Hiti 7 til 14 stig, mildast suövestan til en 2 til 7 stig í nótt. **v? ÉUAGANGUR -S? ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Veðríð á morgtm
REYKJAVIK AKUREYRI
24.00 00.02
■
v (8
Færð
BYGGT A UPPLYSINGUM FRA VEGAGERÐ RIKISINS
Fært um Kaldadal
Færöln er góö á öllum aðalvegum
landsins og fjallvegir eru að opnast
einn af öörum. Kjölur er fær, einnig er
fært í Landmannalaugar, bæði um
Sigöldu og Dómadalsleið. Fært er í
Laka og í dag veröur opnaður vegurinn
um Uxahryggi og Kaldadal.
Mildast suðvestan til
Fremur hæg breytileg átt. Dálítil súld á Suöur- og Suðausturlandi en
annars skýjað með köflum og hætt við síðdegisskúrum inn til landsins.
Hiti 7 til 14 stig að deginum, mildast suðvestan til en 2 til 7 stig í nótt.
Surtrmd
íllí
Vindur: í
3—6
Hití 7°til 14'
Fremur hæg breytileg átt
eða hafgola, skýjaö með
köflum og víða hætt vlð
skúrum um landið sunnan-
og austanvert. Hitl 7 tll 14
stig yfir daginn.
Hæg breytlleg átt, skýjað
meö köflum og víða hætt
vlð skúrum, elnkum um
landlö sunnan- og
austanvert. Hiti 7 tll 14
stlg yfir daginn.
IB
Vitidur: \
3-7 m/s J
Marrud
Hiti 5° ti! 15
Fremur hæg suðlæg eöa
breytileg átt og dálítll súld
eða skúrlr vestan tll en
þurrt að kalla austan tll.
Hlti 5 tll 15 stlg.
AKUREYRI alskýjaö 4
BERGSSTAÐIR alskýjaö 3
BOLUNGARVÍK skýjað 5
EGILSSTAÐIR 2
KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 7
KEFLAVÍK léttskýjaö 8
RAUFARHÖFN alskýjaö 2
REYKJAVÍK léttskýjaö 7
STÓRHÖFÐI skýjaö 8
BERGEN skýjað 8
HELSINKI skúr 12
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 12
ÓSLÓ skýjaö 11
STOKKHÓLMUR 14
ÞÓRSHÖFN skýjaö 6
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 7
ALGARVE heiöskírt 20
AMSTERDAM léttskýjaö 13
BARCELONA léttskýjaö 18
BERLÍN skýjaö 13
CHICAGO léttskýjað 26
DUBLIN þokumóöa 12
HALIFAX þoka 12
FRANKFURT léttskýjað 14
HAMBORG rigning 11
JAN MAYEN léttskýjaö 0
LONDON léttskýjaö 12
LÚXEMBORG skýjaö 13
MALLORCA léttskýjaö 18
MONTREAL heiöskírt 19
NARSSARSSUAQ léttskýjaö 7
NEW YORK þokumóöa 20
ORLANDO heiöskírt 22
PARÍS þokumóöa 13
VÍN skýjaö 14
WASHINGTON þokumóöa 21
WINNIPEG alskýjaö 14