Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Page 5
5
FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001________________________________________________________________________
33V Fréttir
Forsætisráöherra hefði betur
látið ósagt aö allt yrði bætt
- segir Heiða Magnúsdóttir á Hellu sem var nýbúin að kaupa húsið þegar það eyðilagðist
Eftir skjálftann
Heiöa segir aö undanfarið ár sé búiö að vera ár mikiis umróts. „ Viö fórum fyrst á
sveitabæ hér rétt hjá og vorum þar í sumar.
DV, SUDURLANDI:_________
Heiða Magnúsdóttir
bjó í húsi sem hún hafði
nýlega fest kaup á að
Leikskálum 2 á Hellu
þegar jarðskjálftinn þann
17. júní í fyrra reið yfir. í
skjálftanum gjöreyðilagð-
ist hús Heiðu. Það hefur
nú verið fjarlægt af lóð-
inni, í stað þess er þar nú
bráðabirgðahús. Heiða
stendur illa eftir skjálft-
ann og afleiðingar hans.
„Húsið var illa tryggt, á
því var afgömul trygging,
þetta var stórt og mikið
hús og tryggingin á því
síðan 1988, síðan var búið
að endurbæta húsiö allt
saman, Þetta var mjög stórt og faílegt
hús, innbúið sem eyðilagðist meira og
minna var óvátryggt svo ég fékk ekk-
ert út úr því,“ sagði Heiöa Magnús-
dóttir sem starfar á dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu Lundi á Hellu.
Heiða segist vera búin að sækja um
að tryggingamatið verði endurskoðað
en hún hafi ekki heyrt frá nokkrum
manni lengi en henni skiljist að það
sé í vinnslu og segist ekki
trúa öðru en svo sé. „Hús-
ið var um 150 fermetrar,
ég fékk tæpar 8 miljónir í
bætur fyrir það. Bæturn-
ar hrukku varla fyrir
þeim lánum sem á því
hvildu. Heiða er nú flutt
inn í bráðabirgðahús sem
er á sama stað og húsið
hennar stóð á.
„Það var sett á grunn,
ég var að hugsa um að ef
það væri sett á grunn á
lóðinni mundi ég festast
héma og jafnvel kaupa
húsið. Ég er nú samt ekki
búin að ákveða mig í þvf
máli enn þá. Ég er ekki
að fullu sátt við húsið,
það er svolítið sumarbústaðarlegt og
er kannski ekki það draumahús sem
mig hefur langað til að eiga, um 80 fer-
metrar eða um helmingi minna en
hitt húsið var. Samt reikna ég frekar
með að ég kaupi húsið á endanum ef
um semst,“ sagði Heiða. Henni býðst
bráðabirgðahúsið til kaups á grunnin-
um fyrir 5,5 milljónir króna.
Heiða segir að undanfarið ár sé
búið að vera ár mikils umróts. „Við
fórum fyrst á sveitabæ hér rétt hjá og
vorum þar í sumar. Við flúðum þaðan
hálfum mánuði áður en við fengum
húsið afhent vegna músagangs, þá
fengum við inni hér á Lundi á meðan.
Síðan komumst við í bráðabirgðahús-
næðið, þá fór lífið að færast í betri
skorður," sagði Heiða. Hún segist
vera örugg um sig í húsinu en jarð-
skjálftinn sé samt enn ofarlega í henn-
ar huga. „Ég stend mig að því að
stirðna upp þegar þungur bíll keyrir
fram hjá og veldur titringi, maður er
stöðugt á vaktinni," sagði Heiða. Hún
segir að þegar litið sé til baka yfir lið-
ið ár sé margt sem stendur upp úr.
„Það sem ég er mest þakklát fyrir
er það sem Rauði krossinn gerði fyrir
okkur. Hann reyndist okkur alveg
óskaplega vel, bæði í andlegri og ver-
aldlegri aðstoð.
Aftur á móti hefur það sem forsæt-
isráðherrann sagði hér á fundi daginn
eftir skjálftann valdið okkur miklum
vonbrigðum og hefði betur verið látið
ósagt. Þar sagðist hann ábyrgjast að
við hlytum engan skaða af hamfórun-
um, hann skyldi sjá til þess. Þetta hef-
ur engan veginn staðist og við höfum
kannski orðið reið yfir því að hann
hefur verið að bera á móti því að hafa
sagt þetta, sem fjölmörg vitni voru að.
Því þetta eru sannarlega erfiöleikar
sem margir hafa lent i. Það þarf að
flytja búslóðir á milli fram og aftur,
koma sér upp nýju, flytja síma og ann-
að sem kostar töluverða fjármuni. Við
þurftum að borga rif á húsinu okkar
og grunninn undir bráðabirgðahúsið
og margt annað. Þetta eru allt saman
hlutir sem leggjast á okkur sem í
þessu lentum. Þessum ósköpum sem
við báðum ekki um aö dyndu yfir okk-
ur.“ -NH
DV-MYNDIR NJORÐUR HELGASON
Ósátt við vanefndir for-
sætisráöherra
Heiða Magnúsdóttir á
vinnustaö sínum, Dvalar-
heimilinu Lundi á Hellu.
DV-MYND NJORÐUR HELGASON
Við nýja húsið
Sveinbjörn og Heiörún framan viö nýja húsiö sitt aö Freyvangi 12 á Hellu.
Ár að verða liðið frá þjóðhátíðarskjálftanum:
Ólýsanleg tilfinning
að sjá húsið sitt ónýtt
- segir Sveinbjörn Jónsson á Hellu
DV, SUÐURLANDI:_______________________
„Við rifum gamla húsið undir mán-
aðamótin júní-júlí. Strax í kjölfarið
var byrjað að grafa fyrir nýja húsinu
og byrjað á byggingu þess. Við flutt-
um síðan inn í það 17. desember, hálfu
ári eftir að það gamla eyðilagðist,"
sagði Sveinbjörn Jónsson sem býr að
Freyvangi 12 á Hellu ásamt Heiðrúnu
Ólafsdóttur, konu sinni, og tveimur
sonum. íbúðarhús fjölskyldunnar
gjöreyðilagðist í jarðskjálftanum 17.
júní. Þau áttu því engra annarra kosta
völ en að fjarlægja það og byggja sér
nýtt hús. Þau ákváðu að byggja að
nýju á sama stað og gamla húsið
þeirra stóð, óbangin við það sem hafði
gerst.
Sveinbjöm segir að aðrar áherslur
hafi verið lagðar við byggingu nýja
hússins en þær sem greinilega hafi
áður verið notaðar. „Það er mjög
vönduð uppfylling undir því, mal-
arpúði ofan á klöpp, sökkullinn vand-
aður að allri gerð og húsið sjálft er
mjög sterkt og prýðilegt í að búa,“
sagði Sveinbjörn. Byggingarlag eldra
hússins sem Sveinbjörn og Heiðrún
áttu var barn síns tíma. Grafið var
fyrir sökklum niður fyrir frost, gólfin
náðu ekki tengingu við sökklana og
ekki var skipt um jarðveg undir
grunnunum. Húsin stóðu því á mis-
jöfnu undirlagi sem dró ekki úr
skjálftahreyfingunum, jafnvel magn-
aði þær upp.
Sveinbjörn segir að undanfarið ár
sé kannski ekki dæmigert fyrir hans
fjölskyldu. „Strákarnir okkar hristu
þetta af sér strax, þeir komust i ágæt-
ismál hjá foreldrum mínum á Rauða-
læk þar sem við vorum meðan á fram-
kvæmdum stóð. En maður er marg-
reyndari eftir, allt er í sóma þannig,
en það er ólýsanleg tilfmning að
standa frammi fyrir því að húsið
manns er ónýtt og allt sem búið er að
gera því horfíð. Það er heilmargt sem
maður þarf að vinna sig út úr á eftir,
þó maður geri sér kannski ekki enn
grein fyrir því öllu saman. Það var
líka mikiö átak að fara út í að byggja
strax annað hús í kjölfarið svo maður
var orðinn nokkuð spenntur á tíma-
bili. En í dag erum við afskaplega sátt
og ánægð héma. Þetta tímabil er að
baki og nú höfum við það óskaplega
gott hérna í nýja húsinu okkar,“ sagði
Sveinbjörn Jónsson á Hellu í samtali
viö DV. -NH
Sé einn
og pú ferð létt með hana
Olympus C-i, stafræn myndavél,
ein sú allra nettasta og skemmtilegasta
OLYMPUS
BRÆÐURNIR
MYNDAVELAR
Lágmúla 8 • Sími 530 2800