Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Síða 9
9
FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001____________________________________________________________________________________________
py Útlönd
Enn ágreiningur um
eldflaugakerfi Bush
KARCHER
HÁÞRÝSTI
DÆLUR
MhV
- fyrir heimilið
RAFVER
SKEIFUNNI 3E-F • SÍMI 581 2333 • FAX 568 0215
rafver@simnet.is
Dauðarefsingar
Minnihlutahópar og íbúar sérstakra
fylkja eru í mun meiri hættu að
veröa teknir af lífi en aörir.
Þingmenn vilja
setja dauðarefs-
ingar á salt
Nokkrir demókratar í öldunga-
deild Bandaríkjaþings hafa kallað á
frestun allra aftaka þar til skorið
hefur verið úr um hvort dauðarefs-
ingum sé misbeitt eftir kynþætti og
landafræði. Bent er á að af þeim 19
sem eru á dauðadeild alríkisins nú
eru 17 af minnihlutahópi og 6 frá
heimaríki Bush Bandaríkjaforseta,
Texas. Efast er um að dauðarefs-
ingakerfið byggist á réttlæti ef
reyndin er að beiting hennar ráðist
af öðru en eðli glæpsins. Nokkrar
umdeildar dauðarefsingar á að
framkvæma á næstu dögum. Þar á
meðal er Mexíkói sem myrti sam-
kynhneigðan mann sem mun hafa
reynt að fá hann til lags við sig.
Hann á að deyja á þriðjudag. Þá er
áætlað að geðklofa maður verði tek-
inn af lífi í dag fyrir þátt sinn í ban-
vænu vopnuðu ráni. Evrópusam-
bandið hefur beðið sérstaklega um
að dómnum verði ekki framfylgt en
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur
synjað beiðni fangans um frestun.
Augusto Pinochet
Lögmenn hans segja hann of
gamlan og veikan til aö hann
sé meöhöndlaöur eins og
venjulegur sakamaður.
Dómsmálaráð-
herrann heimtar
ný fíngraför
Dómsmálaráðherra Chile, Jose
Antonio Gomez, lýsti því yfir í gær
að taka yrði nýja mynd og ný
fingrafór af Augusto Pinochet, fyrr-
verandi einræðisherra landsins,
vegna mannréttindabrotaákæru á
hendur honum. Áður höfðu bæði
saksóknarar og verjendur lýst þvi
yfir í gær að samkvæmt ákvæði í
lögunum hefði verið leyft að nota
myndir og fingrafór úr gömlum
gögnum vegna málshöfðunarinnar.
í maí síðastliðnum úrskurðaði
áfrýjunardómstóll að skrá ætti Pin-
ochet þegar 1 stað sem grunaðan
sakamann fyrir réttarhöldin yfir
honum. Pinochet er ákærður fyrir
aðild að morðum og ránum á um 75
stjórnarandstæðingum.
Bond raunveru-
leikans látinn
David Spedding, hinn raunveru-
legi James Bond, er látinn, að þvi er
breska utanríkisráðuneytið til-
kynnti í gær. Spedding var einn
helsti njósnari Breta. Hann stýrði
leyniþjónustunni MI6 í fimm ár þar
til hann fór á eftirlaun 1999. Innan
bresku stjórnarinnar var Spedding,
sem varð 58 ára, kallaður C. Spedd-
ing og var stjórnarerindreki í Chile
þegar Pinochet tók völdin. Talið er
honum hafi verið kunnugt um áætl-
un bandarísku leyniþjónustunnar,
CIA, um að koma Allende Chilefor-
seta frá. Jólin 1998 bauð hann
leikkonunni Judi Dench, sem leikur
M í Bondmyndunum, i mat. Hún
vildi kynnast alvörunjósnara.
Göran Persson, forsætisráðberra
Sviþjóðar, kveðst vera svartsýnn á
að þaö takist í raun að sannfæra Ge-
orge W. Bush Bandaríkjaforseta um
að minnka losun gróðurhúsaloftteg-
unda þegar hann fundar með leið-
togum Evrópusambandsríkjanna í
Gautaborg í dag. Svíar, sem eru í
forystu Evrópusambandsins, ESB,
nú og önnur Evrópuríki, eru ósátt
við að Bandaríkin skuli neita að
staðfesta Kyoto-sáttmálann um
gróðurhúsalofttegundir. Búist er við
að Bush sæti harðri gagnrýni á
ESB-fundinum í dag.
í gær kom Bush til Brussel frá
Madríd til viðræðna við leiðtoga
NATO. Ágreiningur um fyrirhug-
aða eldflaugavarnaáætlun Banda-
ríkjanna ríkti enn að loknum leið-
togafundinum í Brussel. Þar voru
menn þó sammála um að stækka
bandalagið og auka íhlutun sína í
átökunum í Makedóníu.
Eins og yfirmaöur meðal undirmanna
Stjórnmálaskýrendur höföu á oröi aö Bush heföi veriö eins og yfirmaöur
meöal undirmanna á fundi NATO. Kwasniewski Póllandsforseti reynir aö ná
athygli Bush sem á myndinni ræöir viö Robertson, framkvæmdastjóra NATO.
Bush fékk hlýjar móttökur í höf-
uðstöðvum NATO. George Robert-
son, framkvæmdastjóri NATO,
leiddi Bush kringum fundarborðið
til þess að hann gæti heilsað leiðtog-
unum 18. Bush hafði sjálfur beðið
um að fá að koma til NATO til að
kynnast leiðtogum Evrópu. Stjórn-
málaskýrendur segja að svo hafi
virst sem hópur undirmanna hafi
komið til að hitta æðsta yfirmann
sinn.
Á fundi með fréttamönnum ítrek-
aði Bush nauðsynina á varnakerfi
sem gæti skotið niður eldflaugar
óvinanna áður en þær næðu skot-
marki sínu.
Bæði leiðtogar Frakklands og
Þýskalands lýstu yfir tortryggni
sinni i garð eldflaugavarnakerfis-
ins.
Chirac Frakklandsforseti sagði
nauðsynlegt að jafnvægi héldist í
vígbúnaðarkapphlaupinu.
Syrgja fórnarlömb skriöufalla
Ættingjar fórnarlambs skriöufalla í Ekvador syrgja á meöan lík eru grafin upp úr leöjunni. Aö minnsta kosti 39 eru
látnir eftir flóö og skriöuföll í landinu frá því á föstudag. Flóöin hafa sjatnað en gert er ráö fyrir rigningu næstu tvo
mánuöina, í minna magni þó.
Hrist kornabörn
skaddast á heila
Rannsóknir á heilaskaða ung-
barna sem grunur er á að orsakist
af ofbeldisfullri meðferð á þeim
leiða í ljós að minna þarf til að
valda heilaskaða en hingað til var
talið. Jafnvel það að hrista barn get-
ur valdið banvænum taugaskaða
þar sem mænan og heilinn koma
saman, en þetta svæði er sérstak-
lega viðkvæmt hjá ungbörnum
vegna veikra hálsvöðva og hlutfalls-
lega þungs höfuðs. Ný tækni gerir
kleift að greina þau tilfelli þar sem
ungböm verða fyrir skaða vegna
klaufalegrar meðhöndlunar frá
þeim sem orsakast af ofbeldi. í kjöl-
farið er talið að áfrýjað verði í fjölda
dómsmála. Árið 1997 komst breska
barnapían Louise Woodward í
heimsfréttirnar fyrir að hafa valdið
dauða ungbarns. Nóg er að hún hafl
hrist barnið til að valda dauða þess.
Ráðamenn flæktir í
alnæmishneykslið
Nokkrir helstu ráðamenn Henan-
héraðs í Kína höfðu sjálfir hags-
muna að gæta vegna blóðgjafanna
sem leiddu til að margir bæir eru að
leggjast í eyðni vegna alnæmis íbú-
anna. Kinverskur læknir, sem ekki
vill láta nafns síns getið, greinir frá
þessu í nýrri í skýrslu, að því er
kemur fram í sænska blaðinu Dag-
ens Nyheter.
Yfirmaður heilbrigðisþjónustu
svæðisins, þar sem eru um 94 millj-
ónir ibúa, er sakaður um að hafa
verið gripinn peningagræðgi. Hann
hvatti fátæka bændur til að gefa
blóð gegn greiðslu. Ættingjar yfir-
mannsins og fleiri ráku blóðbank-
ana.
Þegar starfsemin var sem mest
voru reknir um 200 löglegir blóð-
bankar og miklu fleiri ólöglegir.
Bændurnir fengu um 500 krónur
fyrir blóðgjöf sem eru tífóld dags-
laun þeirra. Blóði allra blóðgjafa
var blandað saman. Framleitt var
plasma úr því til lyfjagerðar. Síðan
var blóðinu sprautað aftur í blóð-
gjafana til að þeir gætu fyrr gefið
blóð á ný. Það þurfti ekki nema
einn alnæmissmitaðan blóðgjafa til
að smita alla hina. Talið er að yfir 1
milljón héraðsbúa kunni að vera
smituð af alnæmi.
Vísindamaður í Peking áætlaði i
fyrra að yfir 20 milljónir bænda í
öllu landinu hefðu selt blóð á fyrri
hluta tíunda áratugarins. Alnæmis-
smitaðir kunna því að vera miklu
fleiri þó sama aðferð og í Henan
hafi ekki verið notuð alls staðar.
Eftir að hneykslið var afhjúpað hafa
yfirvöld bannað sölu á blóði. Vís-
bendingar eru um að hún haldi þó
áfram í leyni. Ekki er talið að al-
þjóðleg lyfjafyrirtæki hafi fengið
smitað blóð frá Henan í Kína.
^Ciötoupsveislur — útisamtomur—skemmlanir—Iðnlettor—sýningar—kynningar ogfiogfl. ogfi.
Risatjöld - veislutjöid.
^ ..og ýmsir fylgihlutir
Hkkl treysta á veðrið þegar
skipuleggja á eftirminnilegan viðburo -
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á
staðinn - það marg borgar stg.
Tjöld af öilum stœrðum
frá 20 - 700 mJ.
Leigjum einnig borð
og stóla í tjöldín.
skáta
skótum á heimavelli
simi 550 9800 • fax 550 9801 * bis@scout.is