Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Side 10
10
Hagsýni
FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001
E>V
Mörg sveitarfélög með þjónustu fyrir elli- og örorkulífeyrisþega:
Geta fengið aðstoð
við garðvinnuna
Unglingar í garðvinnu
Það er ekki amalegt að fá slíkan hóp til að snurfusa hjá sér garðinn en mörg sveitarfélög bjóða eldri borgurum og ör-
yrkjum þann kost. Verð og umfang vinnunnar er þó afskaplega misjafnt.
Mörg bæjarfélög hafa um árabil
aðstoðað öryrkja og ellilífeyrisþega
við umhirðu garða á sumrin. Flest
bæjarfélögin gera það 1 gegnum
Vinnuskólann og eru unglingarnir
notaðir til þessara starfa. Ekki er þó
þjónustan sambærileg milli.staða,
hvorki í verði né umfangi. Sum
sveitarfélög bjóða enga slíka þjón-
ustu, önnur alla almenna garðvinnu
og enn önnur eingöngu slátt á grasi.
Garðabær er þó undantekningin þar
sem ekki er slegið gras en boðið upp
á aðra garðvinnu. Ástæða þess er sú
að börn undir 16 ára aldri eiga ekki
að stjórna sláttuvélum eða öðrum
slikum tækjum. Verðið er einnig
mjög misjafnt, t.d. er sláttur frír fyr-
ir þessa hópa hjá Reykjanesbæ á
meðan önnur sveitarfélög taka allt
að 10-15.000 kr. fyrir garðvinnuna
sem í þeim tilvikum er reyndar
mun umfangsmeiri. Neytendasíðan
kannaði málin hjá nokkrum sveitar-
félögum, vítt og breitt um landið.
Reykjavík
Ellilífeyrisþegum og öryrkjum
býðst aðstoð við garðaumhirðu á
vegum borgarinnar. Unglingar í
Vinnuskólanum slá garðana,
hreinsa beð, stinga upp flfla,
kantskera og framkvæma alla al-
menna garðvinnu. Fyrir þetta er
greitt 2.000 kr. í hvert skipti og mest
er hægt að fá slika þjónustu tvisvar
yfir sumarið. Þó er ekki víst að
hægt sé að fara í alla garða tvisvar
en þeir ganga fyrir sem skrá sig
fyrst. Skráningin hófst 1. mars sl. en
þeir sem vilja skrá sig núna hringja
í Vinnuskóla Reykjavikur í síma
511 2590.
Hafnarfjörður
í Hafnarfirði er ekki boðið upp á
neina garðaþjónustu fyrir ellilifeyr-
isþega og öryrkja á vegum bæjarins.
Eingöngu er slegið við elliheimili og
á opinberum svæðum. Bæjarstarfs-
menn hafa vísað fólki á verktaka
sem taka að sér umhirðu garða.
Kópavogur
Eldri borgarar og öryrkjar í
Kópavogi geta fengið góða hjálp í
görðum sínum í sumar fyrir vægt
verð. Garðar eru slegnir, beð
hreinsuð og kantskorin og unnin er
létt garðvinna sem húsráðendur
biðja um. Þjónustan er veitt tvisvar
yfir sumarið og er verðið miðað við
stærð garðsins. Vinna við litinn
garð kostar 2.000 kr., við meðalstór-
an garð 2.500 kr. og stóran garð
3.500 kr. Athugið að þetta verð á við
hvert skipti. Þeir sem hafa hug á að
nýta sér þessa þjónustu hringi i
síma 554 0230.
Garðabær
í Garðabæ geta ellilífeyrisþegar
og öryrkjar fengið unglinga til að
hreinsa garðinn en ekki er boðiö
upp á slátt. Eingöngu er um að ræða
almenna hreinsun, svo sem hirð-
ingu beða, hreinsun stétta,
kantskurð og þess háttar. Verðið
miðast við þann tíma sem verkið
tekur og fjölda unglinga sem vinna
það. Greiddar eru 245 kr./klst fyrir
hvern ungling. Sem dæmi um
kostnað má nefna að ef 11 manna
hópur er við störf í 4 klst., sem ekki
er óalgengt, kostar verkið 10.780 kr.
Unglingahópnum fylgir flokksstjóri
sem skipuleggur starfið í samráði
við garðeigandann. Símanúmerið
hjá Vinnuskóla Garðabæjar er 565
8255.
Mosfellsbær
Engin þjónusta af þessu tagi er á
vegum bæjarins. Vísað er á verk-
taka, fagmenn og aðra sem taka að
sér slík ráð en bærinn býður fólki
upp á ráðgjöf og er hún töluvert
mikið notuð. Hjá garðyrkjustjóra
fengust þær upplýsingar að ákveðið
hefði verið að hætta allri slíkri
þjónustu þar sem ekki var mann-
skapur til að sinna henni. Eins hafi
komið upp misnotkun á þessari
þjónustu þar sem efnameiri einstak-
lingar, í stórum húsum með stórar
lóðir, voru með unglinga frá vinnu-
skólanum í garðvinnu jafnvel svo
vikum skipti.
Seltjarnarnes
Garðar eru slegnir fyrir eldri
borgara og öryrkja á Seltjarnarnesi
en ekki er veitt önnur þjónusta á
vegum bæjarfélagsins í þessum efn-
um. Því er ekki hægt að láta hirða
beð, kantskera eða framkvæma
aðra garðvinnu. Það kostar 1250 kr.
að fá garðinn sleginn. Þeir sem óska
eftir slætti hafi samband við Vinnu-
skólann.
Akureyri
Engin þjónusta á vegum bæjarins
og hópur á vegum Sjálfsbjargar sem
bauð upp á þessa þjónustu undan-
farin ár er ekki lengur starfandi.
Því þurfa þeir sem vilja fá aðstoð
við garðverkin að leita til sjálf-
stæðra verktaka.
Reykjanesbær
Á vegum Reykjanesbæjar eru
slegnir 200 garðar hjá öryrkjum og
ellilifeyrisþegum í sumar. Slátturinn
fer fram þrisvar sinnum yfir sumar-
ið og er garðeigendunum að kostnað-
arlausu. Ekki er unnið í beðum eða
framkvæmd önnur garðvinna.
ísafjöröur
ísafjarðabær er með þjónustu fyrir
alla garðeigendur og er greitt fyrir
hana kostnaðarverð. Um er að ræða
tvo verðflokka, annars vegar slátt
sem kostar 1.500 kr./klst. en 2-3 tíma
tekur að slá meðalstóran garð. Hins
vegar er önnur garðvinna, svo sem
hreinsun beða verðlögð á 2.000
kr./klst. Reikna má með að um 10-
15.000 kr. kosti að hirða meðalstóran
garð sem er í rækt en verðið verður
endurskoðað þegar líður á sumarið
því ætlast er til að þjónustan standi
undir sér Qárhagslega þar sem bæjar-
félagið veitir þessa þjónustu ein-
göngu vegna þess að enginn annar
gerir það. Bærinn sendir 6-7 harð-
duglega unglinga í þessi störf.
Tilboð versiana
Esso
Tilboöin gilda til 30. júní. \
0 Sóma langloka 220 kr.
Q Orville örbylgjupopp 159 kr.
Q Mentos Fruit 59 kr.
0 Mentos Mint 59 kr.
Q Bounty 55 kr.
Q Twix King Size 79 kr.
Q Mozart kúlur 45 kr.
Q Emmess Djæf íspinnl 129 kr.
Q Djæf íspinni m/möndlum 129 kr.
0 Djæf íspinnl m/cappuccino 129 kr.
Tilbobln gllda tll 17. júní.
0 Goba Bayonneskinka 1095 kr. kg
Q Ekta krakkabollur 758 kr. kg
Q Merrlld kaffl, 103, 500 g 299 kr.
0 Emmess hversdagsís, 2 I 399 kr.
Q ÍM graflnn lax 1698 kr. kg
Q Kjúkllngalæri frosln 398 kr. kg
Q Myllu helmilisbraub 159 kr.
Q Edta Gordon bleu 342 kr. kg
Q All svinakótll. reyktar 1123 kr. kg
0 Emmess hversdagsís, 11 219 kr.
Tilbobin gilda meban birgbir endast.
Dane Cake luxus kökur 129 kr.
Daloon kjötréttir, 350 g 219 kr.
O&S sveppasúpa, 300 g 178 kr.
O&S grábaostasósa, 300 g 178 kr.
Nóa kropp, 200 g 199 kr.
Campino jarbarbbrjóstsykur 159 kr.
Tilbobin gilda tll 20. júní.
Q Stelktir kjúklbitar, 6 stk. 799 kr. kg
Q UN grillborgari, 140 g 159 kr.
0 VSOP helgarsteik 1198 kr. kg
Q VSOP kon/lærlssn. 1 fí. 1769 kr. kg
Q VSOP kon/lærlssn. 2 fí. 1198 kr. kg
Q VSOP kon/framhr. vöbvl 1959 kr. kg
Q Svínakótel. hambreykt 1395 kr. kg
Q Svínakótel. þurrkrydd. 1395 kr. kg
Q Mexíkó svínakótelettur 1395 kr. kg
0 Sýrbur rjómi, bragbbættur 1395 kr.
Tilboöin gilda til 17. júní. Q Svínahnakksneibar, úrb. 958 kr. kg Q Svínabógur, hringskorinn 398 kr. kg Q Prince Póló, 3 I pk. 119 kr.
0 Marmaraostakaka 798 kr. kg
Q GuHostur 359 kr.
Q Búri, 38% 973 kr.
Q Dan Cake 139 kr.
0 Marmarakaka 139 kr.
0 Dan cake lemon 139 kr.
0 Dan cake súkkulabi 139 kr.
Select
Tilboöin gllda til 27. júni. 1
0 Bahlsen saltkringur 119 kr.
Q Prins polo XXL 69 kr.
Q Marabou súkkulaöirúll., 3 teg. 99 kr.
0 Bllly’s pan pizzur, 3 teg. 110 kr.
0 Tempoklútar 99 kr.
0 Sterling gasgrill 17900 kr.
Q Grillpro tréplnnar 99 kr.
0 Grlllpro töng meö spaöa 259 kr.
0 Grillpro stuttur pensill 199 kr.
0 Hlaupahjól-Wln max 4990 kr.
llidikT'M IIIIIIIII—__________
Tilbobin gilda I júní.
Q Knorr bollasúpur (margar teg.)99 kr.
280 kr.
190 kr.
110 kr.
148 kr.
148 kr.
319 kr.
310 kr.
332 kr.
319 kr.
Q Lion Bar, 4 I pakka
Q Kit Kat, 31 pakka
Q Mix, 0,51 í plastl
Q Appelsínusvali, 31 pakka
0 Eplasvali, 31 pakka
Q Rafhlöbur Energizer LR03
0 Rafhlöbur Energizer LR14
Q Rafhlöbur Energizer LR20
0 Rafhlöbur Energizer LR6
Tilbobin gilda til 17. júní.
Raubvínsl. svínakótelettur899 kr. kg
Kjarnafæbis grábaostasósa 120 kr.
Kjarnafæbis grlll-piparsósa 120 kr.
Grillkartöflur 149 kr.
Pöddur og
stofublóm
Ef upp kemur óþrifnaður í stofu-
blómunum er óþarfi að hlaupa til og
kaupa dýrt og skaðlegt eitur. í Sví-
þjóð þekkist sú aðferíi
að stinga 1-2
litlum hvít-
lauksgeirum
í moldina i
pottinum
og sagt er t ',
að losna megi1
við marga
óværuna með I
því. Beri þessi
náttúrlega að-
ferð ekki árang-
ur má reyna aðr-
ar leiðir, eins og
að hvolfa plöntunum á
kaf ofan í veika
blöndu af uppþvotta-
legi og vatni eða setjið
blönduna á úðabrúsa
og úða yfir plöntuna. Ef
þið eruð ekki viss um hvort blómin
þola slíka meðferð leitið þá ráða hjá
fagmönnum. Sumar tegundir skor-
kvikinda, sem leggjast á blóm, má
fjarlægja með því að setja sneið af
hrárri kartöflu ofan á moldina í
pottinum og fjarlægja hana síðan
þegar skordýrin hafa safnast á hana
Þetta þarf að endurtaka nokkrum
sinnum eða þar til engin padda
finnst lengur.
Fréttatilkynning frá Tali:
Réttar stilling-
ar farsíma
- þegar ferðast er út á land
Nokkuð hefur borið á því að not-
endur Tal GSM nái ekki reikisam-
bandi við dreifikerfi Símans GSM
þegar þeir eru utan þjónustusvæðis
Tals. Anna Huld Óskarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri viðskiptatengsla Tals,
segir að í slikum tilfellum þurfi að
stilla Tal GSM-símann þannig að
hann fmni dreifikerfi Símans GSM
með réttum hætti.
Viðskiptavinir Tals geta verið i
reikisambandi í dreifikerfi Símans
þegar þeir eru utan þjónustusvæðis
Tals. Fýrirtækin gerðu samning um
slíka reikiþjónustu á Vestfjörðum
utan ísafjarðar, Norðurlandi utan
Eyjafjarðarsvæðisins og Húsavíkur,
svo og á austan- og sunnanverðu
landinu að Vík í Mýrdal.
í valglugga Tal GSM-símans þarf
að finna stillingar fyrir dreifikerfi
(Network) og stilla þar handvirkt á
dreifikerfi Símans GSM. Þetta þarf
að gera þegar Tal-notandinn er
staddur inni á þjónustusvæði Sím-
ans GSM þar sem reikisamningur-
inn gildir. Þegar þessu er lokið þarf
að stilla aftur á sjálfvirka (automat-
ic) leit að dreifikerfi. Eftir það eiga
engin vandkvæði að koma upp þótt
fólk fari á milli GSM-kerfa Tals og
Símans.
Anna Huld segir að þessar still-
ingar þurfi aðeins að framkvæma í
þetta eina skipti. Eftir þaö leitar
GSM-síminn sjálfkrafa að því dreifi-
kerfi sem stendur til boða hverju
sinni. Hún bendir jafnframt á að
nánari upplýsingar sé að finna á
vefsíðu Tals og einnig séu allar upp-
lýsingar veittar í þjónustuveri fyrir-
tækisins í gjaldfrjálsu númeri, 1414.