Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Síða 14
14
FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001
FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001
19
Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoöarritstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson
Fréttastjóri: Birgir Guómundsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, síml: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Oræn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Fréttaþjónusta á Netinu: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 31, sími: 460 6100, fax: 460 6171
Setning og umbrot: Frjáls fjöimiðlun hf.
Plötugerð: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuði 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblað 280 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim.
Fimmfáldir sóðar
Bandaríkjamenn eru 5% af íbúum jaröar og bera
ábyrgð á 25% af útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Að mati
George Bush Bandaríkjaforseta er þetta afar fátæk þjóð,
sem hefur ekki efni á að taka til hendinni í þessu efni. Vís-
ar hann í staðinn á auðþjóðir Indlands og Kína.
Bush hefur dapurlegt veganesti með sér á ferð sinni um
Evrópu. Ríkisstjórn hans hefur á skömmum tíma kippt
Bandaríkjunum úr forustu vestrænna ríkja fyrir margvís-
legum framförum í heiminum, þar á meðal i baráttunni
gegn aukningu gróðurhúsalofttegunda.
Sinnaskiptin vestra stafa ekki af nýjum vísindum.
Þvert á móti hefur Vísindaráð Bandaríkjanna nýlega stað-
fest þær niðurstöður vísindanefndar Sameinuðu þjóðanna
frá í vetur, að loftslag og veðurfar á jörðinni sé af manna-
völdum að breytast á afar skaðlegan hátt.
Á hvern íbúa eru Evrópubúar ekki nema hálfdrætting-
ar á við Bandaríkjamenn í þessum sóðaskap, en vilja fyr-
ir sitt leyti taka til hendinni. Ríkisstjórnir Evrópu hafa
gagnrýnt stefnubreytingu Bandaríkjaforseta, sem gengur
þvert á yfirlýsingar hans í kosningabaráttunni.
Ráðgert hafði verið, að árið 2002 mundu aðildarríki
Kyoto-sáttmálans frá 1997 vera búin að staðfesta hann.
Evrópuríkin segjast enn vera reiðubúin til þess, þótt
Bandaríkin hafi ákveðið að vera utangarðs með tveimur
öðrum sóðaríkjum, sem heita Ástralía og ísland.
í rauninni eru hagsmunir olíufélaga í Texas, heimaríki
Bush, að baki sinnaskipta forsetans. Að yfirvarpi er þó
haft, að bandarískt atvinnulíf hafi ekki ráð á hreinsun og
að ósanngjamt sé að undanskilja fjölmenn ríki á borð við
Indland og Kína frá fyrstu aðgerðum í málinu.
í Kyoto var þó litið þannig á málið, að núverandi meng-
un andrúmsloftsins væri einkum gömlu iðnríkjunum að
kenna. Þvi bæri þeim að taka til hendinni í fyrstu umferð.
í annarri umferð aðgerðanna kæmu svo þróunarlöndin,
sem eru nýlega byrjuð að menga andrúmsloftið.
Kyoto-sáttmálinn er engin fyrirmyndarlausn, heldur
niðurstaða langvinns samningaþjarks með þátttöku
Bandaríkjanna. Sum atriði hans verða erfið í framkvæmd.
Hann átti bara að vera fyrsta skrefið til stöðvunar á meng-
un andrúmsloftsins. Fleiri skref áttu að fylgja.
Það er svo alveg nýtt fyrir mönnum, að Bandaríkja-
menn séu svo fátækir, að þeir hafi ekki sömu efni og aðr-
ir á að hreinsa eftir sig skítinn. Auðvitað verður hver þjóð
fyrir sig að meta, hvort hún hafi komizt í álnir eða ekki,
en óneitanlega leggst lítið fyrir kappann.
Bush Bandarikjaforseti hefur ákveðið að taka ekki frek-
ar mark á Vísindaráði Bandaríkjanna en á vísindanefnd
Sameinuðu þjóðanna. Hann hefur ákveðið að leggja ekki
fram tillögur um betri lausn á málinu en fólst í Kyoto-
sáttamálanum. Hann kemur berhentur til Evrópu.
Það eina, sem hann hefur til málanna að leggja, er að
skipa enn einu sinni nefnd og reyna að finna, hvernig
hægt sé að fá fyrirtæki til að laga stöðu sína á sjálfviljug-
an hátt. Meðan hann fer undan í flæmingi, versnar ástand
heimsins stöðugt vegna bandarískrar mengunar.
í kjölfar ákvörðunar forsetans er eðlilegt, að Evrópa
setji mengunarskatt á bandarískar vörur, svo að þær njóti
þess ekki á markaði að vera framleiddar á ódýrari og
sóðalegri hátt en evrópskar vörur. Skattinn má svo nota
til róttækari aðgerða gegn mengun andrúmsloftsins.
Valdataka Bush i Bandaríkjunum er áfall fyrir allt
mannkyn og sérstaklega fyrir Vesturlönd, sem eru orðin
höfuðlaus her síðan Bandaríkin hurfu inn í skelina.
Jónas Kristjánsson
DV
Átak til að efla þjóðþingið
„Kjördœmaskipanin sem kosið verður eftir vorið 2003 er
ótrúlegur óskapnaður. - Með landið sem eitt kjördæmi yrði
úr sögunni állt karp um misvægi atkvæða og kjördœmapot
og stjórnmálaflokkar og þingmenn væru knúðir til að líta
heildstæðara en nú er á landsins gagn og nauðsynjar. “
Fátt er brýnna fyrir íslendinga
en að þannig sé búið að þjóðþingi
okkar að það geti risið undir
hlutverki sinu sem löggjafarsam-
koma en sé ekki háð fram-
kvæmdavaldinu um mótun lög-
gjafar í þeim mæli sem nú er.
Jafnframt þarf að tryggja með
sanngjörnum fjárframlögum úr
almannasjóðum að stjórnmála-
flokkar geti rækt hlutverk sitt án
fjárframlaga fyrirtækja eða ann-
arra utanaðkomandi þrýstihópa.
Löggjöf um fjármál stjórn-
málaflokka þar sem settar séu
reglur um framlög til þeirra, opið bók-
hald og eftirlit með fjárreiðum er
löngu tímabær og myndi auka traust
almennings á stjórnmálastarfi. Þá
þyrfti að bæta sem fyrst úr þeim
miklu mistökum sem gerö voru með
kjördæmabreytingu fyrir fáum árum
og gera ísland að einu kjördæmi sam-
hliða reglum sem auki rétt kjósenda
um fulltrúaval en tryggi jafnframt
jafnræði milli kynja.
Bættur aðbúnaður þingsins
Góð viðleitni hefur verið tO þess
mörg undanfarin ár að bæta starfsað-
stöðu þingmanna og þingflokka en þó
langt frá því fullnægj-
andi. Sérstaklega þarf að
styrkja aðstöðu þing-
flokka og einstakra þing-
manna til sjálfstæðrar
vinnu við mótun og at-
hugun löggjafar, bæði
eigin tillagna og tillagna
frá öðrum þingflokkum,
ráðuneytum eða með
uppruna í tilskipunum
og tilmælum erlendis frá.
Launa þarf starfsfólk
Alþingis og þingflokka
þannig að von sé til
sæmilegs stöðugleika í mannahaldi, en
eins og nú er má segja að þingið sé eins
konar þjálfunarstöð fyrir ráðuneyti og
hagsmunasamtök sem bjóða mun
hærri laun. Þátttaka Aþingis í alþjóð-
legu samstarfi þyrfti einnig að verða
burðugri en nú er, ekki síst upplýs-
ingagjöf til þingmanna og þingflokka
almennt um það sem fram fer í alþjóða-
stofnunum.
Ráðherrar hafi ekki atkvæðisrétt
Mikilvægur liöur í því að skilja á
milli framkvæmda- og löggjafarvalds
væri að ráðherrar hefðu aðeins setu-
rétt en ekki atkvæðisrétt á Alþingi.
Varamaður tæki sæti þingmanns sem
yrði ráðherra en jafnframt mætti leita
út fyrir raðir þingmanna við val á ráð-
herrum eins og víða tíðkast.
Þessi breyting myndi meira en flest
annað lyfta Alþingi sem handhafa lög-
gjafarvalds, bæði táknrænt en einnig
að innihaldi þar sem það yrði sjálf-
stæðara gagnvart ríkisstjórnum og
réði meira um starfshætti sína en nú
er. Ráðherrar bæru að sjálfsögðu eftir
sem áður upp mál sin fyrir þinginu og
hefðu þar viðveruskyldu þegar þau
væru til umræðu.
Landið allt eitt kjördæmi
Kjördæmaskipanin sem kosið verð-
ur eftir vorið 2003 er ótrúlegur
óskapnaður. Stiga þarf skrefið til fulls
og gera landið að einu kjördæmi til
Alþingis hið fyrsta en jafnframt ætti
að setja upp millistig í stjórnsýslunni
byggt á landsfjórðungum sem eining-
um að viðbættu höfuðborgarsvæði.
Ekkert vit er í því að þenja sveitar-
stjórnarstigið út með þeim hætti sem
sumir mæla fyrir.
Með landið sem eitt kjördæmi yrði
úr sögunni allt karp um misvægi at-
kvæða og kjördæmapot og stjórnmála-
flokkar og þingmenn væru knúðir til
að líta heildstæðara en nú er á lands-
ins gagn og nauðsynjar. Ég er sann-
færður um að landsbyggðin myndi
síður en svo tapa á slíkri skipan á vali
fulltrúa til setu á Alþingi og meginat-
riði er varða málefni landsins alls
verða sýnilegri. Átak til að efla Al-
þingi ætti að vera inntak í þjóðhátíð
17. júní.
Hjörleifur Guttormsson
Hjörleifur
Guttormsson
fyrrv. alþingismaiur
Vanþekking eða blekking?
Þegar kvótakerfi í sjávarútvegi
var komið á var þvi haldið fram að
það væri gert í skyni fiskverndunar-
sjónarmiða. Blekking. Fyrsti kafli
laga nr 38 um stjórn fiskveiða segir
beint út aö úthlutun aflaheimilda
myndi aldrei neina varanlega eign-
arheimild. Hann segir einnig að lög
þessi eigi að stuðla að jafnvægi í
byggðum landsins. Blekking. Núver-
andi stjórnvöld reyna að verja gerðir
sínar með því til dæmis að bera á
móti hinni gífurlegu byggðaröskun
sem kvótakerfið hefur valdið.
í staðinn fyrir útgerð
Hagfræðingurinn Haraldur L.
Haraldsson hefur sannað það á
ótvíræðan hátt að okkar ágætu
stjórnvöld eru einfaldlega að
blekkja, kvótakerfið er að leggja
landsbyggðina af. Stjórnvöld
halda því einnig fram að núver:
andi útgerðarform, með öllum
sínum náttúruspjöllum og gífur-
legu mengun, sé hagkvæmara en
hinar hefðbundnu veiðiaðferðir
með kyrrstæðum veiðarfærum
sem engum spjöllum ollu. Þetta
er blekking svo sem áþreifanlegt
er. Fyrir 1960 voru borin á land
hér milli 5 og 600.000 tonn, en
hvað nú?
Kjallari
Garöar H.
Björgvinsson
útgeröarmaöur og
bétasmiöur.
Nú, þegar útgerðin er að fara með á meðan
efnahag þjóðarinnar
á vonarvöl, á að
sökkva hálendinu og
laða að stóriðju til að
hægt sé að selja raf-
magn á útsöluverði.
Það á að koma i stað-
inn fyrir þá útgerð
sem verið er að leggja
í rúst með núverandi
kvótakerfi. Þeir
landsmenn sem láta
smala sér að færi-
böndum auðhring-
anna verða þá að
” standa þar ævilangt,
efnahagslegt sjálfstæði
þjóðarinnar tapast.
Og á meðan munu
gripdeildarmenn
fiskimiðanna selja
útgerðarmönnum
ESB aðgang að fiski-
miðunum.
Fræðslufundur
sj á varútvegsstofnun-
ar Háskólans á liðn-
um vetri, sem bar
nafnið Ógnir undir-
djúpanna, sýndi
fram á að orkufrek
stóriðja losar fjórum
sinnum meira af
koltvísýringi út í
andrúmsloftið á
hverja vinnsluvirðis-
einingu en gerist í
fiskiskipaflotanum.
„Nú er frákast orðið svo gífurlegt að þegar t.d. togari landar 200 hefur^rdkjiað^út'1 að
tonnum af frystum flökum þá liggja á botninum 7-800 tonn af nýt- fiskiskipin skapa
anlegu hráefni. í þessu felst hið mikla hrun fiskistofna því í reynd ^r°nu^.ak^t®r.t
eru drepin 5-600 þúsund tonn á íslandsmiðum árlega. “ sýringi en stóriðjan
11.300 krónur. Þessar tölur skarast
enn meir með notkun kyrrstæðra
veiðarfæra.
Það kom einnig fram i þessari
rannsókn Þjóðhagsstofnunar að tog-
arar losa tíu sinnum meiri koltví-
sýring á hvert veitt tonn en smábát-
ar. Háskólinn segir að smábátar
skili 2,16 tonnum af fiski á móti þvi
að frystitogarar skila aðeins 0,58
tonnum á móti sama magni af
koltvísýringi.
Hruniö felst í frákastinu
Smábátaflotinn hefur breyst á
undanförnum árum, varðandi vélar-
stærð. Vélarstærð var að meðaltali
undir 100 hestöflum en eftir um 1995
fóru vélar að stækka og eru nú flest-
ir smábátar komnir með vélar sem
eru milli 400 og 500 hestöfl. Fyrir
þann tíma var að meðaltali 50 lítra
olíueyðsla á móti hverju veiddu
tonni en var og er nú á togurum.
1000 lítrar olíu á móti veiddu
tonni af fiski. Varðandi nýtingu
sjávarfangs á smábát og togara, eft-
ir að sala og leiga aflaheimilda var
sett á, þá urðu smábátar að hlýta
lögmáli kvótakerfisins, að fleygja
smærri fiski, en áður en kvótakerf-
ið kom á þá skiluðu bæði smábátar
og stærri skip öllum fiski að landi,
eins og nú er t.d. i sóknardagakerfi
Færeyinga.
Nú er frákast orðið svo gífurlegt
að þegar t.d. togari landar 200 tonn-
um af frystum flökum þá liggja á
botninum 7-800 tonn af nýtanlegu
hráefni. í þessu felst hið mikla hrun
fiskistofna því í reynd eru drepin
5-600 þúsund tonn á íslandsmiðum
árlega.
Garðar H. Björgvinsson,
Bjart steinbítstímabil
„Ég efast ekki um að margir ykkar
horfi björtum augum til næsta steinbíts-
tímabils því ekki gekk ykkur sem verst á
því liðna. Ég minnist þess að ein af þeim
ástæðum sem ykkur var tíðrætt um hve
vel ykkur gekk var að engir togarar og
stór línuskip voru á miðunum vegna verk-
falls. Ég er einn af þeim sem árvisst hef
stundað steinbítsveiðar á togbát mínum út
af Vestfjörðum, bæði grunnt og djúpt.“
Rúnar S. Magnússon skipstjóri
á Patreksfjordur.is.
Draumavörur
„Tölvutæknin og Netið
bjóða neytendum nú þeg-
ar upp á ýmis skilvirk
aðstoðartæki eins og til
dæmis öflugar leitarvélar
sem leita að besta verði
ákveðinnar vöru eða þjónustu sem
neytandi er að leita eftir kaupum á.
Hin nýja tækni mun því hafa mikil
áhrif og bæta stöðu neytenda að því er
varðar aðgengi aö upplýsingum sem
geta hjálpað þeim til þess að meta með
upplýstum hætti, áður en teknar eru
ákvarðanir á markaðnum."
Valgeröur Sverrisdóttir iönaðarráöherra
á heimasíöu sinni.
Hugsjónir og veruleiki
„Tækifæri fyrir alla, „opportunity for
all“, er lykilhugtak í stefnu Tony Blairs.
Hann hefur lagt lykiláherslu á að
menntakerflð veröi endurskipulagt með
það í huga að það þjóni öllum án mis-
mununar. Nýtt nafn kennslumálaráðu-
neytisins er ráðuneyti kennslumála og
hæfileika til að undirstrika að nám er
æfistarf og að allir eigi að hafa tækifæri
til að þróa hæfileika sína til fulls. En
þetta gerir hann ekki með því að leggj-
ast kyHiflatur fyrir hagsmunaaðilum."
Árni Páll Árnason lögfræöingur
á strik.is.
Spurt og svaraö
Eru líkur á að Sjálfstœðisflokkurinn sigri R-listann í nœstu borgarstjórm
Sveinn Jónsson
feröaþjónustubóndi:
„R-lislinn
mer þettáe
„Það held ég varla, ég held að R-
listinn rétt merji þetta og haldi
völdum áfram í Reykjavík. Þetta
verður voða líkt og síðast þegar
Sjálfstæðisflokkurinn hafði aðeins meira í skoðana-
könnunum síðustu mánuðina fyrir kosningar en
tapaði svo á kjördegi. Ég legg þetta að jöfnu. En ef
R-listinn klofnar og boðnir verða fram fleiri listar á
vinstri vængnum þá spyr ég ekki að leikslokum því
hann má ekkert missa til þess að halda höfuðborg-
inni. Þá mun Sjálfstæðisflokkurinn hafa sigur. Ég
held hins vegar að það verði engin sveifla á lands-
vísu og í þessum sveitarstjórnarkosningum ráðast
úrslit meira af persónufylgi en flokkslistum en oft-
ast áður.“
Grétar Mar Jónsson
forseti Far- og fiskimannasamb.ísh:
„Frjálslyndir tryggja
setu R-listansee
„Ég ætla að vona að svo fari
ekki en líkurnar eru svo sem
fyrir hendi. Það verður óvænt
uppákoma í Reykjavík og hún
heitir Frjálslyndi flokkurinn. Hann mun bjóða
fram í Reykjavík til borgarstjórnarkosninga og
setja stórt strik í reikninginn.
Hann mun taka meira frá Sjálfstæðisflokkn-
um og tryggja þannig áframhaldandi valdasetu
R-listans. Einnig gæti Frjálslyndi flokkurinn
lent í oddaaðstöðu svo hinir flokkarnir þyrftu að
biðla til hans.
Ég reikna fastlega með að R-listinn haldi sam-
an og sömu öfl standi að honum eins og áður og
vinstri grænir verði þar með.“
Gunnar Birgisson
þingmaður:
„Mikið persónufylgi
íngibjargar“
„Þetta verða mjög tvísýnar
kosningar í Reykjavík. R-listinn
sér að eini möguleiki þessa
ósamstæða fólks er að hanga
saman en ekki bjóða fram hvert í sínu lagi.
Nýjabrumið er farið af R-listanum eftir nær 8
ára valdasetu og hann hefur ekki gert neinar
stórar meldingar í borginni á þeim tíma. Fjár-
mál borgarinnar eru auk þess ekki í góðu
standi. Á hitt ber að líta að Ingibjörg Sólrún á
mikið persónufylgi sem vegur upp á móti þess-
um þáttum og það kann að fleyta þeim áfram.
Það er hins vegar ekki nokkur leið að spá fyrir
um það hvort breytingar verða á forystu Sjálf-
stæðisflokksins."
Oddur Helgi Halldórsson
bœjarfulltrúi L-lista á Akureyri:
„Klúður í flugvall-
armálinuee
„Ef Sjálfstæðisflokkurinn fer
með sigur í Reykjavík er það
eingöngu vegna þess að Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri klúðraði málefnum Reykjavikurflugvallar.
Framkoma hennar í því máli gekk fram af
mörgum, ekki bara Reykvíkingum heldur lands-
mönnum öllum.
Það kæmi mér þvi ekki á óvart að borgar-
stjórastörf hennar væru á enda eftir eitt ár. Þótt
R-listinn kæmi fram með ný kosningamál á
næsta vetri kann svo að fara að það dugi þeim
ekki, jafnvel þótt enginn klofningur verði í
þeirra röðum og vinstri grænir verði með R-list-
anum.“
Samkvæmt skoðanakönnun Gallups og fréttaþáttarins Kastljóss fengi D-listi 50,9% en R-listinn 49,1%.
Skoðun
Soðning og sígaretta
Nýjustu tíðindin úr heimi
hollustuvísindanna eru þau
að uppstyttulaust át á hráu
og fersku fiskmeti dragi
mjög úr hættunni á að reyk-
ingamenn fái lungnakrabba.
Þetta er niðurstaða úr heil-
miklum rannsóknum jap-
anskra vísindamanna og
m.a. stutt með því að tíðni
lungnakrabba sé umtalsvert
lægri í Japan en í Banda-
ríkjunum og Bretlandi, þótt
Japanir reyki ekki minna
en Vesturlandabúar. Japan-
ir eru aftur á móti miklar
fiskætur sem kunnugt er.
Þetta eru að sjálfsögðu einnig góð
tíðindi fyrir íslenska reykingamenn
því fáir éta jafn mikið af nýjum og
ferskum flski og hérlendir. Gamla,
góða soðningin stendur sem sé enn
fyrir sínu á ýmsum sviðum.
Þessar fréttir ættu því hugsanlega
að verða til þess að auka flskneyslu
i landinu, að minnsta kosti fiskát
reykingamanna. Verra er hins vegar
ef þessi tíðindi auka aðeins
fiskneyslu en draga ekki úr reyking-
um. Því þá er fræðilegur möguleiki á
að auglýsingar eða önnur jákvæð
umfjöllun í fiölmiðlum um nýja ýsu
og steinbít varði við nýju tóbaks-
varnalögin. Það er, að með því að
hvetja til fiskáts sé í raun og veru
verið að brýna reykingamenn til að
auka getu sína til að reykja meira og
meira, meira í dag en í gær.
Tunglblómaolía
En svona er þetta auðvitað alls
ekki í raun. Því þessi frétt um holl-
ustu soðningar og sushi fyrir reyk-
ingamenn er auðvitað ekki mikil
frétt og óþarfi að taka á henni mikið
mark. Það líður nefnilega ekki sá
dagur að ekki birtist í flölmiðlum
eða á Netinu fréttir af nýjum og bylt-
ingarkenndum niðurstöðum úr
rannsóknum „virtra og heims-
frægra" næringarvísindmanna um
stórkostlega eiginleika einhverrar
tiltekinnar neysluvöru. Einn daginn
er það hákarlalýsi, annan daginn sól-
blómaolía, og þriðja daginn sushi og
soðin ýsa. íVrir tilviljun hittist
reyndar stundum svo á að hinir
virtu vísindamenn starfa gjarnan
hjá óháðum stofnunum sem fjár-
magna rannsóknir sínar einkum
með styrkveitingum frá framleiðend-
um hákarlalýsis og sólablómaolíu og
frá Sushi-veitingakeðjum.
Eftir nokkrar vikur þá bregst ekki
að lesa má um um glænýjar rann-
sóknir annarra „heimsfrægra“ holl-
ustuvísindamanna sem leiða í ljós
ýmsar óheppilegar aukaverkanir af
ofneyslu hákarlalýsis, sólblómaolíu
og soðinnar ýsu. Hins veg-
ar hafi þeirra rannsóknir
sýnt fram á að ufsalýsi,
tunglblómaolía og sigin
grásleppa séu allra meina
bót. Og auðvitað algjör til-
viljun að þessar rannsókn-
ir eru kostaðar af helstu
söluaðilum ufsalýsis og
tunglblómaolíu og af grá-
sleppuköllum að hluta.
Staðreyndin er auðvitað
sú að það er ekki til sú
neysluvara á markaði sem
ekki hefur fengið gæða-
stimpil hjá „virtum" vis-
indamönnum. Enn eru m.a. til sér-
fræðingar sem fullyrða að skaðsemi
reykinga hafi ekki verið sönnuð og
þarf ekki að fara í grafgötur með
hverjir borga þeirra laun.
Og síðustu áratugina hafa fjöl-
margar rannsóknir leitt í ljós aö þeir
sem drekka glas af rauðvíni á dag
lifa lengur en algjörir bindindis-
menn. Síðasta fréttin af þessu máli
er svo reyndar sú að ekkert sé að
marka þessar rannsóknir á tengslum
langlífis og rauðvínsdrykkju. Það
hafi sem sé gleymst, að í hópi þeirra
sem ekki drekka, eru einmitt allir
gömlu óvirku alkarnir og ofdrykkju-
mennirnir og þeir verða náttúrlega
ekki langlífir. Þessi skekkja hafi því
öðru fremur leitt til þeirrar niður-
stöðu að þeir sem ekki drekka lifi
skemur en hófdrykkjumenn.
Næsta rannsókn mun svo að sjálf-
sögðu leiða eitthvað allt annað í ljós,
enda verður hún kostuð af vínfram-
leiðendum sem nú þurfa að rétta
sinn hlut í áróðursstríðinu.
Hollustutískan
Málið er auðvitað það að ef maður
ætlar að haga neysluvenjum sínum í
samræmi við nýjustu fréttir af holl-
ustuvísindum á hverjum tíma yrði
maður að breyta um mataræði viku-
lega til að tolla í hollustutískunni.
Trauðla þætti meltingarfærunum
það fýsilegur kostur að vera rétt
búin að aðlaga sig einhverju fjöl-
ómettuðu og þurfa svo skyndlega að
skipta yfir í eitthvað fáómettað.
En auðvitað er það með ólíkindum
að svo margir hafi svo lengi haldið
lífi og heilsu á jörðinni á síðustu ár-
þúsundum, án þess aö hafa haft að-
gang að ráðgjöf virtra og óháðra
næringarvísindamanna og hollustu-
sérfræðinga þar sem enginn telur sig
geta lifað án tilskipana þeirra í dag.
En kannski hafa forfeður okkar og
mæður bara gert það sama og hin
dýrin í skóginum, étið það sem þeim
þótti gott en hafnað hinu. Og allt í
hófi að sjálfsögðu.
„Því þessi frétt um hollustu soðningar og sushi fyrir
reykingamenn er auðvitað ekki mikil frétt og óþarfi að
taka á henni mikið mark. “
Jóhannes
Sigurjónsson
skrifar: