Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2001, Qupperneq 24
28
FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2001
Tilvera 3:>V
lí f Lö
E F T I R V I N N U
i X
Skógarganga
um Heidmörk
Gengið verður um skóglendi
Heiðmerkur í kvöld, undir
leiðsögn staðkunnugra. Gangan
hefst kl. 20.30 við Maríuhella,
við hliðið inn í Heiðmörk að
vestanverðu. Gangan er á vegum
skógræktarfélaganna í samvinnu
við Ferðafélag íslands. Hún er
ókeypis og öllum opin en
rútuferð frá Mörkinni 6 kostar
500.
Tónlist
TENA PALMER í KAFFILEIKHÚS-
INU Tena Palmer og félagar halda
tónleika í Kaffileikhúsinu. Að þessu
sinni ætlar hún ásamt Matthíasi
Hemstock trommu- og slagverksleik-
ara og Kjartani Valdimarssyni, sem
leikur á píanó, hljómborð og ýmsa
hljóðgervla, að leika tónlist sem er
byggö á Ijóðum eftir hana sjálfa.
Ljóöin skreyta þau með sameiginleg-
um spuna af rafrænum og lífrænum
tónum sem hefur þróast út frá sam-
vinnu þeirra á geisladiski Tenu,
Crucible (Smekkleysa SMJ3 cd) frá
árinu 1998. Tónleikarnir hefjast
kl.21.00 og miöaverð er kr. 1200.
Krár
BASIC Á KRINGLUKRÁNNI Hljóm
sveitin Basic heldur tónleika á
Kringlukrðnni. Aðalstefna hljóm-
sveitarinnar er frumsamin tónlist en
hún spilar einnig melódískt rokk, allt
frá U2 til Creed. Tónleikarnir hefjast
kl. 22 og aðgangur er ókeypis.
KÖNNUKVÖLD Á VEGAMÓTUM
Tommi þeytir skífur á könnukvöldi
(bjór í amerískum pitsjer) á Vega-
mótum.
Leikhús
PIKUSOGUR Píkusögur éftir Eve
Ensler verða sýndar í kvöld klukkan
20 á þriðju hæð Borgarleikhússins.
Leikstjóri er Sigrún Edda Björnsdótt-
ir en leikkonur eru þær Halldóra
Geirharðsdóttir, Sóley Elíasdóttir og
Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Órfá
sæti laus.
Kabarett
HUÖDVÉRK f NÝLIStÁSÁÍFNINU
Eftirfarandi listamenn koma fram í
dag: Pauia Roush, Eagle Beagle,
Biogen og Plug-in.
VIGDÍS FORSETI í TÚNFÆTINUM
Lokadagur hátíöarinnar I
túnfætinum er í dag. Hátíðin hefur
staðiö í Hátúninu í Reykjavík sjðan á
föstudaginn og verið vel sótt. í kvöld
hefst menningardagskrá kl. 20 í
samkomusalnum og þar mun Vigdís
Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti,
ávarpa gesti. Á eftir verður dansinn
stiginn til miðnættis og hljómsveit
hússins, Jes, leikur undir.
Sýningar
HEFÐ OG NYSKOPUN I
LAUGARNESINU Listasafn
Sigurjóns Olafssonar J Laugarnesi
hefur opnaö sumarsýningu sína.
Hún ber heitið Hefð og nýsköpun og
birtir úrval verka eftir Sigurjón
Ólafsson frá 30 ára tímabili,
1930-1960. Sýningin og kaffistofan
er oþin milli kl. 14 og 17 alla daga
nema mánudaga.
JÖKLASÝNING í SINDRABÆ
Jöklasýningin á Höfn í Hornafirði
hefur verið opnuð, annað sumarið í
röð. Hún er í Sindrabæ og gefur
góða mynd af Vatnajökli og lífinu í
kring um hann.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vtsi.is
Öölingsfólk sem á
allt gott skilið
- segir einstæður faðir þroskahefts drengs
DV-MYND TEITUR
Steinar Þrastarson og Þröstur Steinarsson, faðir hans
Þeir dunda sér saman á kvöldin og fara í bíltúra um helgar.
„Það verður dálítið erfltt hjá okk-
ur feðgum ef verkfall brestur á í
Lyngási á morgun og þar verður
skellt í lás, eins og útlit er fyrir,“
segir Þröstur Steinarsson lagermað-
ur. Hann er einstæður faðir tveggja
sona, 20 ára og 16 ára. Sá yngri,
Steinar Þrastarson, er mikið and-
lega fatlaður, getur ekki tjáð sig
með orðum, er með bleiur og þarfn-
ast hjálpar við að matast. Hann hef-
ur verið í dagvistun á Lyngási frá 6
ára aldri. „Dagurinn byrjar hálfsjö
hjá okkur. Þá fer ég að koma honum
á fætur. Það er stundum svolítið
erfitt því hann er orðinn unglingur
þótt þroskinn sé ekki metinn nema
eins og hjá 1 til 1 og 1/2 árs barni að
sumu leyti,“ segir Þröstur. Leiðir
þeirra feðga skilja um hálfátta þeg-
ar rútan kemur að sækja Steinar og
svo hittast þeir aftur um sexleytið
þegar faðirinn hefur lokið sínum
vinnudegi. „Við dundum okkur eitt-
hvað á kvöldin. Hann er aðeins að
fá áhuga á sjónvarpinu, annars þarf
hann stöðuga athygli. Ef maður tal-
ar í síma eða einhver lítur inn þá er
enginn friður - og það koma ekki
margir," segir Þröstur.
Þarf sólarhringsvakt
Útivera og bíltúrar eru eftirlæti
Steinars og hann er frískur á fæti.
Faðir hans segir hann geta gengið
hvern mann af sér en ekki megi af
honum líta, þá sé hann hlaupinn og
hlaupi hratt. „Hann þarf sólar-
hringsvakt," segir hann. En hvað
ætlar hann að gera ef Lyngási verð-
ur lokað? „Ég verð að taka sumar-
fríið núna þótt ég hefði viljað taka
það síðar þegar drengurinn minn
fer í hálfsmánaðarsumarbúðir upp í
Reykjadal. Það veitir ekkert af því
fríi bæði fyrir mig og hann,“ segir
Þröstur. Hann kveðst afar ánægður
með aðbúnaðinn sem sonur hans
njóti i Lyngási og styður þroska-
þjálfa hundrað prósent í kjarabar-
áttu þeirra. „Þetta er öðlingsfólk og
á meira gott skilið en orð fá lýst.
Það er skömm að þvi hvað það er á
lágum launum. Alger skömrn," eru
lokaorð Þrastar i þessu viðtali.
-Gun.
Send heim þriðja hvern dag
- bæði fötluð og ófötluð
DV-MYND HARI
Jónína Konráðsdóttir leikskólastjóri
Verkfallið bitnar á börnum sem síst mega við þv/ að missa örvun og kennslu.
„Við leikskólastjórar lítum það
alvarlegum augum þegar við þurf-
um að skerða þjónustu. Verkfall
þroskaþjálfa bitnar vissulega á
börnum sem síst mega við því að
missa þá örvun og kennslu sem þau
eiga rétt á að leikskólinn veiti
þeim,“ segir Jónína Konráðsdóttir,
leikskólastjóri á Sólborg. Þar á bæ
eru að meðaltali 2-3 fötluð börn á
hverri deild því sú heildstæða
skólastefna sem unnið er eftir geng-
ur út á nám án aögreiningar.
Þroskaþjálfar eru um 2/3 hlutar
starfsfólks og hluti af teymi sem
vinnur með börnunum.
Nú hafa þeir verið í verkfalli í
þrjár vikur og bitnar skerðing þjón-
ustunnar ekki einungis á fótluðu
börnunum heldur líka á hinum.
„Börnunum er skipt í þrjá hópa,
einn hópurinn er alltaf heima,
þannig að þriðja hvem dag er hvert
barn heima, alveg sama hvort það
er fatlað eða ófatlað," segir Jónína.
En hvernig skyldu foreldrar taka
þessu? Jónina svarar því: „Auðvitað
eru þeir ekki hrifnir en eins og
alltaf gerist þá leysir fólk þetta á
ýmsan hátt. Sumir hafa þurft að
flýta sumarleyfinu sínu, annars
staðar hlaupa ömmur, afar og ann-
að skyldulið undir bagga."
-Gun.
Hætta á að stéttin lognist út af j
- segir Ingibjörg Gyöa Guðrúnardóttir þroskaþjálfi
„Samningsaðilar borgarinnar
virðast ekki tengja verkfallið við
þjónustu þegnanna, heldur snýst
allt um krónur og aura,“ segir Ingi-
björg Gyða Guðrúnardóttir þroska-
þjálfi sem hefur verið i verkfalli síð-
an 18. maí. Hún útskrifaðist sem
þroskaþjálfi 1992 eftir þriggja ára
nám og hefur starfað við fagið síð-
an, eða í 9 ár, auk þess sem hún
hafði unnið með fötluðum áður en
námið hófst og meðan á því stóð. En
hver eru mánaðarlaunin? „Eins og
margoft hefur komið fram eru byrj-
unarlaun þroskaþjálfa 100 þúsund
krónur og sjálf er ég að fá 115 þús-
und í grunnlaun fyrir fulla vinnu.
Engir yfirvinnutimar hífa það upp,
eingreiðslur, aukagreiðslur eða fald-
ir tímar,“ segir Ingibjörg og kveðst
telja að staðan sé svipuð hjá ílestum
þroskaþjálfum sem vinni hjá borg-
inni. „Við höfum dagvinnulaunin
og búið,“ segir hún.
DV-MYND-HARI
Ingibjörg Gyða Guörúnardóttir þroskaþjálfi
Er með 115 þúsund í laun eftir meira en 10 ára starfsreynslu.
Á sjálf fatlaða dóttur
Sjálf á Ingibjörg fatlaða dóttur
sem hefur verið heima að mestu frá
18. maí og nú er sumarleyfi leikskól-
anna fram undan en leikskólar í
Reykjavik eru lokaðir í 4 vikur.
Ingibjörg segir verkfallið hafa gríð-
arleg áhrif á mörg börn og aðstand-
endur þeirra þótt hennar dóttir sé
að því leyti heppin að hún hafi
mömmu heima.
Um 300 manns eru í félagi þroska-
þjálfa og einnig er fólk með þessa
menntun í öðrum félögum. Konur
eru í miklum meirihluta. Ingibjörg
segir laun þroskaþjálfa alltaf hafa
verið langt að baki annarra félaga
innan Bandalags háskólamanna og
bilið breikki stöðugt. „Ef ekkert ger-
ist núna sem breytir okkar högum
þá líst mér þannig á að fólk muni
leita í önnur störf og stéttin lognist
út af,“ segir hún.
-Gun.