Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2001, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2001, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2001 r>v Fréttir Myndbandsupptaka af því þegar þrír menn gengu í skrokk á liggjandi manni: Lögreglumaður rotaður með spörkum í höfuð - þetta er með því grófasta sem ég hef séð, segir yfirlögregluþjónn í Reykjavík 23 ára lögreglumaður úr Hafnar- firði liggur illa slasaður eftir að á hann var ráðist með einstaklega fólskulegum hætti í Hafnarstræti í miðborg Reykjavíkur að morgni 17. júní. Rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík er með málið í rannsókn og er á það litið sem mjög alvarlega líkamsárás ef ekki tilraun til mann- dráps. Maðurinn var fluttur meðvitundar- laus með sjúkrabíl eftir að þrír menn spörkuðu í höfuð hans er hann lá á gangstétt. Á myndbandi er svo að sjá að grimmd árásarmannanna hafi ver- ið það mikil að þeir héldu áfram að sparka í höfuð og líkama þó svo að fómarlambið lægi blóðugt og hefði þegar verið búið að missa meðvitund í götunni. „Þetta var eitt af því fautalegasta sem menn hafa séð, að minnsta kosti var árásin ótrúlega gróf,“ sagði hátt- settur maður í lögreglunni í Hafnar- firði í samtali við DV. „Þetta er með því grófasta sem ég hef séð, þetta er Á vettvangi þar sem lögreglumaöurinn var limlestur „Þetta var svo fruntalegt aö árásir sem þessi geta bara ekki gerst verrí en þetta, “ segir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn. svo fruntalegt að árásir sem þessi geta bara ekki gerst verri en þetta,“ sagði Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn i Reykjavík, í samtali við DV. Umræddur lögreglumaður var á ffí- vakt og því óeinkennisklæddur. Hann mun hafa verið á leiðinni heim þegar hann og samferðamaður urðu varir við slagsmál í uppsiglingu. Fóru þeir af stað og reyndu að koma 1 veg fyrir stimpingar. Skipti þá engum togum að á manninn var ráðist þannig að hann féll í götuna. Upphófust þá spörk sem beint var í höfuð mannsins. Hann var fluttur á sjúkrahús og er andlit hans og höfuð mjög illa farið. Fékk hann margar ákomur, sár og bólgur og þurfti að sauma mikið sam- an. Geir Jón telur að mikil mildi sé að ekki fór verr en ella - árásin hefði hæglega getað endað með mannsláti. Þremenningamir sem að árásinni stóðu, en fleira fólk var í kring, voru allir handteknir og þeir yfirheyrðir. Málið er áfram í rannsókn hjá lög- reglu. -Ótt Morgunsjónvarp Stöðvar 2: Ingvi Hrafn far- inn að hita upp „Forsvarsmenn Stöðvar 2 hafa heit- iö þvi að gefa okkur endanlegt svar í þessari viku hvort af kaupunum verð- ur,“ sagði Sigurður Hlöðversson sem ásamt félögum sínum á auglýsingastofunni Hausverk og Ingva Hrafni Jónssyni, fyrrum fréttastjóra, hafa gert tilboð í morgunsjónvarp Stöðvar 2. „Við þurfum tima til undirbúnings. Ingvi Hrafn er farinn að hita upp fyrir morgunsjónvarpið eftir langa fjarveru af skjánum," sagði Sigurður. Samkvæmt útreikningum, sem liggja fyrir, hefur Stöð 2 verið að tapa þremur milljónum króna á mánuði á morgunsjónvarpi sínu. -EIR Ingvi Hrafn Jónsson Farinn aö hita upp. DV-MYND BRINK Róið á Pollinum á Akureyri Þessir kappar nýttu sér sumarblíöuna á Akureyri í gær til róöraræfinga. Veöur var enda milt þótt sólarlítiö væri. Pollurinn var því sem spegill. Hafrannsóknastofnun fær styrk frá Rannsóknaráði: Rannsakar tilvist ólíkra þorskstofna við landið - eins og sjómenn hafa haldið fram um árabil Rannsóknaráð íslands kynnti m.a. í Þjóðmenningarhúsinu í gær verkefni sem það styrkir og ber heitið „Stofngerð þorsks við fs- land“. Styrkfiárhæðin nemur 5 milljónum króna á ári í þrjú ár en ætlunin er m.a. að rannsaka tilurð margra þorskstofna við fsland. Skýtur það stoðum undir kenningar sjómanna til margra ára um að ekki væri einungis um einn stofn að ræða eins og veiðistjórnun á þorski hefur miðast við. Guðrún Marteinsdóttir fiskvist- fræðingur er verkefnisstjóri hjá Haf- rannsóknastofnun. Hún segist taka mikið mark á því sem sjómenn hafa haldið fram um staðbundna stofna. „Ólöf Jónsdóttir og Anna Daníels- dóttir skiluðu niðurstöðum um erfðarannsóknir á þorski á tveimur hrygningarsvæðum við suður- ströndina fyrir tveim árum. Þar fundu þær marktækan mun á milli svæða. Rannsóknir Vilhjálms Þor- steinssonar frá 1991 benda einnig í þessa átt.“ Þessu hafa sjómenn viða um land reyndar haldið fram til fiölda ára en ekki fengið viðurkennt fyrr en á síð- ustu árum. Guðrún segir að markmið þessa verkefnis sé að auka þekkingu á stofngerð þorsks við ísland og þar með að gera það mögulegt að meta hlut ólikra hrygningareininga í ný- liðun og veiðistofninum hverju sinni. Reynt verði að skoða eins mörg hrygningarsvæði og hægt er. Þá verði reynt að meta framlegð mismunandi hrygningarstofna inn í veiðistofninn hverju sinni. Stærstur hluti þorsks við ísland er enn þá ókannaður hvað erfða- Styrkveitingar kynntar Fjögur rannsóknarverkefni uröu fyrir valinu og eru þorskrannsóknir eitt þeirra. samsetningu varðar. Guðrún segir ómögulegt að segja til um það áður en niðurstöður liggja fyrir hvort til- urð margra stofna hafi hugsanlega skekkt stofnstærðarmælingar Haf- rannsóknastofnunar við landið. Verkefninu er skipt upp í áfanga en í þeim fyrsta er ætlunin að kort- leggja útbreiðslu hrygnandi þorsks og safna upplýsingum um samsetn- ingu og eiginleika hrygningarhópa og umhverfisþætti sem hafa áhrif á afkomu ungviðis á hverjum stað. Þá verður metin eggjaframleiðsla ein- stakra hrygningarhópa. Erfðafræði- legur breytileiki og aðskilnaður hrygningarhópa eftir útliti og efna- samsetningu kvarna verður og kannaður. Einnig verður metið framlag einstakra hrygningarhópa til eftirlifandi seiða að hausti, hlut- deild einstakra hrygningarhópa í samsetningu veiðistofns hverju sinni og áhrif stofnsamsetningar og umhverfisþátta á nýliðun þorsks. Guðrún gerir ráð fyrir að verkefnið hefiist í haust en ætlunin er að leita eftir víðtækari styrkjum hjá Evr- ópusambandinu. -HKr. Samningur um „tungutækni" Bjöm Bjarnason menntamálaráðherra og Páll Skúlason, rektor Háskóla ís- lands, undirrituðu í dag samning um þjónustu Háskóla ís- lands vegna tungu- tækniverkefna. Tungutækni snýst um undirbúning og smiði ýmiss konar forrita sem vinna með tungumál. Krókabátar með 74% Smábátar á þorskaflahámarki vora að jaíhaði með þrjá af hverjum fiórum steinbítum sem dregnir voru á land á íslandsmiðum í maímánuði. Heildar- steinbítsaflinn í mánuðinum var 3213 tonn og þar af voru þorskaflahámarks- bátamir með 2390 tonna steinbítsafla eða 74,4% aflans. - InterSeafood.com greindi frá. Hæglr á fasteignasölu Vísbendingar eru um að verulega sé farið að hægja á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu, líklegar skýring- ar eru taldar hátt verð og minnkandi kaupgeta aimennings. íbúðum á söluskrá fasteignasala fiölgað um 55% frá því á sama tima fyrir ári. Orkuverð hækkar Orkuveita Reykja- vikur ákvað á fundi sínum í gær að hækka gjaldskrá raf- magns og hita um 4,9% frá og með 1. júli. Á fundinum kom fram að til þess að fylgja kostnaðar- móun innan Orkuveitunnar hefði jurft 7,1% hækkun á gjaldskrá hita og 6,1% á gjaldskrá rafmagns. Hrunamenn hafna Hrunamenn verða ekki með í sam- einingarviðræðum Árborgar, Villinga- holtshrepps, Hraungerðishrepps, Gaul- verjabæjarhrepps, Skeiðahrepps og Gnúpverjahrepps. Hreppsnefnd Hrunamannahrepps telur það ekki tímabært en er tilbúin að skoða minni sameiningu. - Suðurland greindi frá. Samningsstaða óbreytt Fundur var í kjaradeilu þroska- þjálfa og Skálatúnsheimilisins og Styrktarfélags vangefinna hjá Ríkis- sáttasemjara í morgun. Á 8. tímanum í gærkvöld lauk fundum með launa- nefnd sveitarfélaganna og samninga- nefnd Reykjavíkurborgar og hafa við- ræður enn engan árangur borið. Beita andlegu ofbeldi Fólk sem leitar skjóls í svokölluðum sjálfshjálparhópum getur átt á hættu að verða fómarlömb andlegs ofbeldis. Hugmyndafræði leiðtoganna svipar mjög til aðferða hættulegra sértrúar- safnaða. Þetta kemur ffarn í nýjasta tölublaði Vikunnar Bera safnstjóri í Svíþjóð Sænska stjómin ákveður á fundi sín- um í dag eða eftir viku hver verði næsti safhstjóri Modema Museet eða Nýlistasafhsins í Stokkhólmi. Bera Nordal er nefhd með- al fárra sem koma til greina. Einnig er Lars Nittve, stjómandi Tate Modem safnsins í Lundúnum, talinn líklegur. Haldið til haga í viðtali við Jónínu Konráðsdóttur, leikskólastjóra á Sólborg, í blaðinu þann 14. júní er missagt að þroskaþjáif- ar á Sólborg séu 2/3 hlutar starfsfólks- ins. Hið rétta er að þeir em 1/3 hluti starfsfólks. Beðist er velvirðingar á þessari rangfærslu. -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.