Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2001, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 20. JUNI 2001
Viðskipti______________________________________
Umsjón: ^^kiptablaðiö
Arni Sigfússon ráðinn
forstjóri Aco-Tæknivals
- velta hins nýja fyrirtækis verður milli 6,5 og 7 milljarðar króna
í gær var sam-
þykkt á hluthafa-
fundi Tæknivals
að fyrirtækið
myndi sameinast
Aco hf. í nýju fyr-
irtæki sem mun
bera nafnið Aco-
Tæknival og hefur
Ámi Sigfússon
verið ráðinn for-
stjóri sameinaðs
fyrirtækis og Magnús Norddahl,
fyrrum framkvæmdastjóri hjá
TechData í Noregi, verður hans
staðgengill. Þar með verður til
stærsta upplýsingafyrirtæki
landsins sem hyggst auka veltu í
6,5-7 milljaröa króna á ári. Er
styrkur sameinaðs fyrirtækis fólg-
inn í öflugum sölu-, þjónustu- og
dreifingarleiöum, bæði á heimilis-
og fyrirtækjamarkaði. Aco-Tækni-
val hefur umboð fyrir marga af
þekktustu framleiðendum í upp-
lýsingatækni í heiminum í dag.
Má þar nefna fyrirtæki líkt og
Sony, Cisco, Microsoft og
Compaq.
Þrír framkvæmdastjórar
Nýráðinn forstjóri, Árni Sigfús-
son, hefur gegnt starfi forstjóra
Tæknivals og átti m.a. þátt í því
að félagið skilaði bestu afkomu
sinni frá upphafi á síðastliðnu ári.
Samkvæmt nýju skipuriti eru þrír
framkvæmdastjórar í fyrirtæk-
inu: Bjarni Ákason, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Aco, verður yf-
irmaður heimilis- og fagtækja-
sviðs, Rúnar Sigurðsson, stofn-
andi og fyrrum framkvæmdastjóri
Tæknivals, verður yfir fyrirtækja-
sviði og Magnús Norddahl verður
yfirmaður rekstrarsviðs. Nýir
stjórnarmenn Aco-Tæknivals
voru kjörnir: Frosti Bergsson,
sem líklegast verður stjórnarfor-
maður, Andri Teitsson, Þorvarður
Gunnarsson, Reynir Guðjónsson
og Jón Adólf Guðjónsson.
Fyrirhugað er að allur skrifstofu-
rekstur, birgðahald og tækniþjón-
usta Aco í Skaftahlíð verði flutt í
Skeifuna 17, þar sem Tæknival
hefur nýlega sameinað starfsemi
sína. Þegar sameiningu lýkur að
fullu er gert ráð fyrir um 200
manna starfsliði en starfsmenn
beggja fyrirtækja voru 270 um síð-
ustu áramót. Starfsmannabreyt-
ingar eru hins vegar flestar um
garð gengnar.
Búnaðarbankinn
hyggst selja Fóð-
urblönduna fljót-
lega aftur
Búnaðarbankinn hyggst selja
Fóðurblönduna fljótlega aftur en
bankinn keypti fyrirtækið, sem
er stærsti fóðurvöruframleiðandi
landsins, síðastliöinn fimmtudag.
Kaupverð var þá og er enn þá
trúnaðarmál. Fram hefur komið
frá Búnaðarbankanum að engar
breytingar séu fyrirhugaðar á
starfsemi Fóðurblöndunnar af
hálfu Búnaðarbankans.
1 samtali við Guðmund Guð-
mundsson, forstöðumann fyrir-
tækjaráðgjafar Búnaðarbankans,
kom fram að bankinn hugsaði
kaupin í tvennu lagi. Annars veg-
ar var Fóðurblandan keypt, sem
Guðmundur sagði aö væri mjög
gott og vel rekið fyrirtæki, og
hins vegar væri einnig verið að
kaupa Reykjagarð hf. sem Fóður-
blandan hefði fest kaup á fyrr í
vetur. Guðmundur sagði aö bank-
inn væri mjög tengdur þeirri at-
vinnugrein sem kjúklingaræktun
er þar sem mörg kjúklingafyrir-
tæki eru í viðskiptum viö bank-
ann en Reykjagarður hf. rekur
Holtakjúkling.
„Við teljum okkar þekkja þenn-
an markaö vel og sáum að tæki-
færi voru til hagræðingar. Við
höföum einnig fengið spurnir af
því að ákveðnir aðilar hefðu
áhuga á Fóðurblöndunni og höf-
um núna verið í viðræðum við þá
um hugsanleg kaup þeirra á
henni,“ sagði Guðmundur. Hann
sagðist ekki vilja gefa upp þá að-
ila sem bankinn væri í viðræðum
við um kaup á Fóðurblöndunni á
þessu stigi málsins en ekki væri
búið að ganga frá því enn þá. Það
yrði þó gert á næstu dögum eða
vikum og eins og staðan er í dag
verða eigendur líklega tveir til
þrír. Guðmundur vildi þó taka
fram að Reykjagarður yrði ekki
seldur samhliða Fóðurblöndunni.
Guðmundur sagðist telja að
bankinn myndi hagnast eitthvað
á þessum kaupum en það heföi að
sjálfsögðu verið markmiðið í upp-
hafi.
Búnaðarbankinn
Ætlar aö selja Fóöurbtönduna fljót-
lega aftur.
íslandsmet
Hver er svo galdurinn viö aö fá alla þessa frábæru listamenn til landsins?
Rammstein
setti íslandsmet
- veltan í kringum 50 milljónir króna
Tónleikar þýsku hljómsveitar-
innar Rammstein sem haldnir voru
um síðustu helgi voru ekki einung-
is velheppnaðir tónlistarlega séð
heldur þykir ljóst að hagnaður hcifi
verið meiri en tónleikahaldarar
hafa hingað til átt að venjast. Kári
Sturluson hjá Hr. Örlygi ehf.,
ásamt Þorsteini Stephensen, er
ábyrgur fyrir innflutningi á Ramm-
stein og er mjög ánægður með nið-
urstöðuna. „Það er ljóst að dæmið
gekk upp en uppselt var á báða tón-
leika hljómsveitarinnar i Höllinni
sem er met,“ segir Kári. Fastlega
má gera ráð fyrir að veltan af tón-
leikunum liggi ekki undir 50 millj-
ónum króna og fær hljómsveitin
venjulega stærri hlut af kökunni
en aðstandendur tónleikanna. Vel-
gengni Hr. Örlygs ehf. í tónleika-
haldi hefur verið mikil að undan-
fomu og svo virðist sem ekkert lát
verði þar á. „Við fluttum inn
kúbversku hljómsveitina Buena
Vista Social Club í lok apríl við
miklar vinsældir, svo Rammstein
núna og þann 22. ágúst næstkom-
andi er væntanleg til landsins
breska hljómsveitin Coldplay,“ seg-
ir Kári.
Hver er svo galdurinn við að fá
alla þessa frábæru listamenn til
landsins? „Við erum orðnir nokkuð
sjóaðir í þessu og mikilvægt er að
halda sig á jörðinni. Við höfum
okkar hugmyndir um hvað virki
vel í þessum efnum og reynum eft-
ir fremsta megni að sannfæra
hljómsveitirnar um ágæti landsins.
í tilfelli Buena Vista höfðu margar
hljómplötur með hljómsveitinni
selst hér á landi miðað við höfða-
tölu og hljómsveitin vildi endur-
gjalda þennan áhuga með komu
sinni. Það eru hins vegar ekki pen-
ingamir sem skipta mestu máli um
hvort þessar hljómsveitir ákveði að
koma hingað eða ekki. Hljómsveit-
imar eru líka áhugasamar um land
og þjóð og hvaö varðar Rammstein
vom meðlimir hennar í skýjunum
eftir helgina. Söngvarinn og annar
gítarleikarinn ákváðu meira að
segja að vera hér lengur og sendu
eftir konum sínum til Þýskalands,"
segir Kári Sturluson.
Sjómannaverkfall skýrir aflasamdrátt
Fiskaflinn í nýliðnum maímánuði
var 51.062 tonn sem er mun minni afli
en fyrir sama tímabil í fyrra en þá
nam aflinn 117.290 tonnum. I tilkynn-
ingu frá Hagstofunni kemur fram að
samdrátturinn er því 66.228 tonn og
skýrist hann af lítilli sjósókn vegna
verkfalls sjómanna framan af mánuð-
inum.
Smábátar með aflamark juku afla
sinn ef miðað er við maímánuð síðasta
árs. Nú öfluðu þeir 3.274 tonn en 1.526
tonn í fyrra og er aflaaukning þeirra
1.748 tonn
Botnfiskafli í mai nam 29.796 tonn-
fdhfdh
dfhghdf
um, samanborið við 55.316 tonn í maí-
mánuði í fyrra. Mestur samdráttur í
afla einstakra tegunda er í afla út-
hafskarfa. Af honum veiddust 17.564
tonn í fyrra en einungis 104 tonn í ár
og þá skrapp kolmunnaafli saman um
tæp 40 þúsund tonn, féll úr 55.288 tonn-
um í 16.024 tonn. Steinbítsaflinn eykst
hins vegar á milli ára, var 2.004 tonn í
maí í fyrra en var 3.213 tonn í ár. Þar
af veiddu krókabátar 2.390 tonn.
Heildaraflinn það sem er af árinu
nemur 996.748 tonnum sem er sam-
dráttur upp á 119 þúsund tonn. Sam-
drátturinn skýrist best af verkfalli sjó-
manna og miklum samdrætti í afla á
kolmunna og úthafskarfa.
I>V
HEILDARVIÐSKIPTI 2600 m.kr.
- Hlutabréf 240 m.kr.
- Spariskírteini 900 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
. i íslandsbanki 71 m.kr.
. i Baugur 45 m.kr.
©Eimskip 34 m.kr.
MESTA HÆKKUN
©Olíufélagiö 3,9 %
©íslandsbanki 0,5 %
©??? ??? %
MESTA LÆKKUN
©Eimskip 5,5 %
©Pharmaco 5,1 %
©Húsasmiöjan 5,0%
ÚRVALSVÍSITALAN 1065 stig
- Breyting O 1,43%
Gengi krónunnar
náði hæsta loka-
gildi sínu í gær
Gengi krónunnar lækkaði um
0,4% í gær í um 4 milljarða viðskipt-
um. Upphafsgildi vísitölunnar var
142,41 og lokagildi hennar 143,00,
sem er hæsta lokagildi gengisvísi-
tölunnar til þessa.
Fram kemur í frétt íslandsbanka
að athygli vekur að viðskipti skuli
ekki hafa verið meiri þrátt fyrir
endurskoðaða þjóðhagsspá Þjóð-
hagsstofnunar sem birt var í gær.
Krónan er áfram undir talsverðum
þrýstingi og má búast við áfram-
haldandi sveiflum.
Mesta verðbólg-
an á íslandi
Samræmd vísitala neysluverðs í
EES-ríkjum var 109,4 stig (1996=100)
í maí sl. og hækkaði um 0,6% frá
apríl. Á sama tíma hækkaði sam-
ræmda vísitalan fyrir ísland um
1,6%.
Frá maí 2000 til jafnlengdar árið
2001 var verðbólgan, mæld með
samræmdri vísitölu neysluverðs,
3,1% að meðaltali i ríkjum EES,
3,4% í Evruríkjum og 5,6% á ís-
landi.
Mesta verðbólga á evrópska efna-
hagssvæðinu á þessu tólf mánaða
tímabili var á íslandi 5,6% og i
Hollandi 5,4%. Verðbólgan var
minnst, 1,7%, í Bretlandi og í Frakk-
landi 2,5%.
BjBHa 20.06.2001 U. 9.15
KAUP SALA
Ste Dollar 105,850 106,390
OEPund 147,960 148,710
T*Jkan. dollar 68,830 69,260
BBIpönakkr. 12,1200 12,1870
— Norsk kr 11,5050 11,5690
| CSsænsk kr. 9,9250 9,9800 ;
i tfHn. mark 15,1893 15,2805
tJÍFra. franki 13,7679 13,8506
| _ Belg. franki 2,2388 2,2522
Ej Sviss. franki 59,1900 59,5100
:£2hoII. gyllini 40,9815 41,2277 ;
™ Þýskt mark 46,1754 46,4529
I_|.it lira 0,04664 0,04692
| SpAust. sch. 6,5632 6,6026
1 . GPort. escudo 0,4505 0,4532
íSTspá. poseti 0,5428 0,5460
l_*JjaP-yen 0,86100 0,86610
| írsktpund 114,671 115,360
SDR 132,3200 133,1100
Eecu 90,3112 90,8539