Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2001, Page 24
44
______________MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2001
Tilvera dv
lifið
irkjan
Tónleikaröðin Bláa kirkjan á
Seyðisfirði fer nú af stað fjórða
sumarið í röð. Fyrstu tónleik-
arnir hefjast kl. 20.30 þar sem
„heimamennirnir“ Einar Bragi
Bragason á saxófón og flautu,
Aðalheiður Borgþórsdóttir söng-
kona, Ágúst Ármann Þorláks-
son, á hljómborð og harmoníku,
og Jón Hilmar Kárason á gítar,
munu meðal annars leika ís-
lenska djass- og popptónlist.
Leikhús
■ SYNGJANDI I RIGNINGUNNI
Leikritiö Syngjandi í rigningunni eftir
Comden, Green, Brown og Fred
verður sýnt á aukasýningu klukkan
20 í kvöld á Stóra sviöi Þjóðleik-
hússins. Nokkur sæti laus.
Sýningar
I GALDRASYNING A HOLMAVIK
Galdrasýningin á Ströndum er opin
á Hólmavík alla daga vikunnar í
sumar frá 10-18. Þar eru kynntir
helstu þættir galdramála á Islandi,
auk þess sem fjallaö er um
þjóösögur tengdum tímabilinu á
myndrænan og fróölegan hátt.
Meöal annars er aö finna umfjöllun
um fýrirbæri eins og uppvakninga,
-''tilbera, flæöarmýs og nábrækur.
Unnið er aö byggingu 17. aldar
almúgahúss úrtorfi, grjóti og
rekaviöi í Bjarnarfiröi á Ströndum.
Það á aö hýsa annan hluta
Galdrasafnsins.
■ VATNAJÖKULL OG FÓLKIÐ
Jöklasýningin á Höfn í Hornafiröi er
opin í allt sumar í Sindrabæ. Þar er
fróöleikur og munir tengdir Vatnajökli
ogferðum um hann, ásamtýmsu
sem tengist lífi fólksins viö
jökulræturnar.
■ FRÁ BÝLI TIL BORGAR í
ARBÆJARSAFNI
Arbæjarsafn er opiö þriöjudaga-
föstudaga frá 9-17 í sumar. A
kjarnasyningunni Frá býli til borgar
er saga Reykjavíkur rakin frá
. landnámi til nútímans. Laugardaga
og sunnudaga er opiö frá 10-18 en
á mánudögum er gamli Árbærinn
opinn frá 11-16.
■ FINNSK LIST í SKAFTFELLI.
SEYÐISFIRÐI Rnnsku
listamennirnir Pamela Brandh,
Philip von Knorring og Poul Osipv
sýna í listamiðstöðinni Skaftfelli á
Seyöisfiröi.
■ FRANSKAR
FLOAMARKAÐSMYNDIR Á
SKRIÐUKLAUSTRI Olöf Björk
Bragadóttir sýnir myndir sínar í
Gallerí Klaustrl aö Skriöukiaustri í
Fljótsdal um þessar mundir. Þaö
eru Ijósmyndir, teknar á
flóamarkaöinum I Montpellier í
Suöur-Frakklandl. Sýningin er opin á
sama tíma og hús skáldsins frá kl.
...vll til 17.
■ BJÖRG SVEINS SÝNIR Á
RAUÐA VEGGNUM Islensklr
tónlistarmenn skreyta Rauöa
vegginn í Japis, Laugavegi 13. Þaö
er Ijósmyndarinn Björg Sveinsdóttir
sem sýnir myndirnar í tilefni af
opnun Ijósmyndavefjar hennar
BSmyndir.com. Sýningin er opin á
opnunartíma verslunarinnar.
m ÞJÓÐSÖGUR OG ÆVINTÝRI í
ASGRIMSSAFNI Islenskar
þjóösögur og ævintýri er þema
sumarsýningar sem opnuð hefur
verið í Safni Ásgríms Jónssonar að
Bergstaðastrætl 74. Þar eru margar
, af helstu þjóösagnamyndum
listamannsins.
■ HEKLA Á KJARVALSSTÖÐUM
Flogiö yfir Heklu er önnur af tveimur
sumarsýningum á Kjarvalsstööum.
Þar getur aö líta mismunandi myndir
af eldfjallinu Heklu.
Sjá nánar: Lífiö eftir vlnnu á Vísi.is
DV-MYND EINAR J.
Járniö hamrað
Norski eldsmiðurinn Björn Olav Olesrud lætur járniö fá þaö óþvegiö í lönskólanum í Hafnarfiröi.
Auðunarstofa hin nýja:
Járnið hamrað að
fornum hætti
- færustu eldsrhiðir Norðurlanda koma saman í Hafnarfirði
Nokkrir af færustu handverks-
mönnum á sviði eldsmíði á Norður-
löndum komu saman í Iðnskólanum
í Hafnarfirði i síðustu viku til sér-
staks námskeiðs í faginu. Nám-
skeiðið var haldiö í beinum tengsl-
um við verkefnið Auðnarstofa hin
nýja en tilgangur þess var öðrum
þræði að smíða allt járnverk í til-
gátuhúsið Auðunarstofu sem verið
er að reisa á Hólum um þessar
mundir. Um leið gafst eldsmiðunum
gott tækifæri til að bera saman
bækur sínar og miðla af reynslu
sinni og þekkingu. Er enn fremur
stefnt að því að halda annað nám-
skeið að tveimur til þremur árum
liðnum þar sem reynslan af verkefn-
inu verður metin. Iðnskólinn í
Hafnarfirði hefur staðið fyrir nám-
skeiðum í eldsmíði og þykir aðstað-
an þar til að stunda þetta foma
handverk hin besta. Var haft á orði
þegar blaðamaöur leit þar inn í lið-
inni viku aö hér gætu Skallagrímur
og Egill gengið beint til verks. Við
byggingu Auðunarstofu er einmitt
lögð rík áhersla á að notuð sé sú
byggingartækni og verkfæri sem
menn notuðu á miðöldum.
Fyrirmyndin Auðunarstofa
hin forna
Auðunarstofa hin nýja er sem
fyrr sagði tilgátuhús sem tekur mið
af heimildum um Auöunarstofu
hina fornu sem reist var á 14. öld á
Hólum i Hjaltadal og stóð þar í ein
500 ár. Enn fremur eru hafðar til
hliðsjónar upplýsingar um sam-
bærileg hús í Noregi og Færeyjum.
Með þessu vilja menn annars vegar
reyna að draga upp eins trúverðuga
mynd af Auðunarstofu hinni fomu
og kostur er og hins vegar á húsið
að verða vitnisburður um norsk-ís-
lenska húsagerð og byggingartækni
á fyrri hluta 14. aldar. Þá verður
húsið nýtt í framtiðinni sem vinnu-
aðstaða vígslubiskups Hólastiftis.
Eins og gefur að skilja hafa marg-
ir komiö að byggingu Auðunarstofu
enda krefst svona verkefni margvís-
legrar þekkingar og kunnáttu. Þor-
steinn Gunnarson arkitekt gerði
teikningar að húsinu en um kostn-
aðaráætlun, burðarþolsreikninga og
útfærslur tæknilegra lausna sá
verkfræðistofan Linuhönnun. Timb-
ur í húsið kemur frá Félagi skógar-
eigenda í Harðangri í Noregi. Var
trésmíðin enn fremur innt af hendi
ytra og komu handverksmenn frá
Noregi og Islandi að henni auk sjálf-
boðaliða sem margir hverjir komu
langt að til að taka þátt í verkefn-
inu. Tréverkið var síðan flutt til-
sniðið til Islands og verður unnið að
uppsetningu hússins nú í sumar en
stefnt er á að vígja Auðunarstofu á
Hólahátíð í ágúst. -EÖJ
Maður Irfandi______________________________________________
Káfandi kyn
Áreiti
„/ fréttum var sagt aö íþróttahreyfingin heföi stórar áhyggjur af þessari 12
prósent áreitni. Ég held aö menn þar á bæ ættu bara aö slappa af.
Þreifingar eins og þessar eru alls staöar í þjóöfélaginu. “
Það er orðið þreytandi aö vera
kona í nútímaþjóðfélagi og sífellt sett
í hlutverk fórnarlambs og píslar-
votts. Er ekki komið nóg af kellinga-
væli? Síðasti vællinn birtist i skóla-
ritgerð tveggja kennaraháskólanema
þar sem kom fram að 12 prósent
kvenna í íþróttahreyfíngunni hefðu
orðið fyrir kynferðislegri áreitni. Á
manni virkilega að vera brugðið?
Eina athugasemd mín við þessa
niðurstöðu er sú að hlutfallið sé
fremur lágt. Ég hef gengið á milli
kvenna á mínum vinnustað og þær
viðurkenna allnokkrar að hafa ein-
hvern tíma á ævinni orðið fyrir kyn-
ferðislegri áreitni sem var þeim ekki
að skapi, en eru löngu búnar að jafna
sig. Kallarnir á vinnustaðnum eru
ekki jafnfúsir að viðurkenna að káf
kvenna hafi verið þeim til ama. Þeir
virðast fremur telja sér það til tekna
að konur hafi potað í þá. Einn viður-
kennir reyndar að jafnréttisstýra
nokkur hafi leitað freklega á hann á
sólarströnd, og það svo mjög að hon-
um hafi veriö verulega brugðiö. Já,
kynferðisglæpamenn leynast í öllum
stéttum.
Sjálf ætla ég ekki aö stíga fram á
svið í einhvers konar Moskvuréttar-
höldum og játa á mig glæp gagnvart
karlkyninu. Ég læt mér nægja að
segja að stundum hef ég snert og
potað. Ég hef reynt að halda mér
réttu megin við strikið, en stundum
er eins og maður missi stjórn á sér.
Þá er maður sísnertandi og það má
svo sem vel vera að meö þessu athæfi
sé maður freklega að særa blygðun-
arkennd viðkvæmra karlmanna. Er
þaö ekki einmitt á þennan hátt sem
kynin kanna jaröveginn? Það er svo
langt síðan ég var í sveit að ég man
ekki alveg hvernig þetta gengur fyrir
sig hjá blessuðum skepnunum. En
það er eins og mig minni að þar sé
lítið um forleiki, karldýrið hoppi
bara upp á kvendýrið eftir að hafa
nmnið á lyktina. En mannkynið er
móralskt og fer lengri leiðina að
áfangastað.
Hayek bitin af
apaketti
Rómanska þokkagyðjan Salma Hayek
varð fyrir árás af hálfu apakattar þegar
hún var við tökur á nýjustu kvikmynd
sinni í Mexíkó á dögunum. Apaköttur-
inn leikur gæludýr Sölmu i myndinni,
sem fjallar um listakonuna Fridu Kahlo.
Ekki skipti neinum togum að apinn
flaug á Sölmu og stefhdi á andlit henn-
ar. Sem betur fer náði hún að verjast
með höndunum en hún var bitin í fmg-
uma. „Sem betur fer hafði hann litlar
tennur. En samt var þetta virkilega
vont,“ sagði leikkonan geðþekka.
Ekki er ljóst hvort framhald verði á
samstarfi leikkonunnar við apaköttinn
eftir uppákomuna.
Vildu selja sig
fyrir Madonnu
Vinsældir Madonnu á hennar eldri ár-
um virðast engum takmörkunum háðar.
Þýskur netsíðueigandi auglýsti á dögun-
um miða á tónleika hennar til sölu í borg-
un fyrir kynlíf með starfsmanni netsíð-
unnar. Viötökumar létu ekki á sér
standa, komur á síðuna tífólduðust og yf-
ir hundrað sendu umsókn um að selja
blíðu sína fyrir miða á tónleika
Madonnu. Síðar var dreginn út sigurveg-
ari og hlýtur hann kynlíf með dálkahöf-
undi vefsíðunnar að launum. Aðspurð
segist hún spennt yfir rekkjunautinum og
þykir ekkert ósiðlegt við óvenjulegan að-
dragandann að bó
þeirra.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
skrifar.
í fréttaflutningi kom fram að hluti
kvenna í íþróttahreyfingunni hefði
orðið fyrir tilfmningalegri áreitni. Ég
vildi svo gjarnan fílósófera sitthvað
um það. En meinið er að ég skil ekki
hvernig er hægt að áreita manneskju
tilfmningalega. Gera menn það ekki
bara með því að vera leiðinlegir? Ég
hef alltaf haldið að menn sem væru
leiðinlegir gætu ekkert að því gert.
En það er kannski ráð að þjóðfélagið
stemmi stigu við áreiti þeirra og
komi þeim i endurhæfmgu. Nútíma-
þjóðfélag þarf jú á skemmtilegu fólki
að halda.
í fréttum var sagt að íþróttahreyf-
ingin hefði stórar áhyggjur af þessari
12 prósent áreitni. Ég held að menn
þar á bæ ættu bara að slappa af.
Þreifmgar eins og þessar eru alls
staðar í þjóðfélaginu. Viö þurfum
ekki reglugerð inn á borð um að
bannað sé að snerta náungann. Við
eigum ekki að vera hysterísk. Það er
ekkert víst að sá sem klappar okkur
á bakið eða strýkur okkur um hand-
legginn sé fullur af losta. Þetta getur
allt eins verið hlýleg kveðja. Ég vil
frekar lifa með slíkri kveðju en vera
án hennar. En ef konum finnst karl-
menn vera að misbjóða sér þá eiga
þær bara að láta þá heyra það og bíta
frá sér í stað þess að væla sig inn í
hlutverk fómarlambsins.