Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2001, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2001, Qupperneq 9
9 FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 2001 Útlönd Vestrænt friöarframlag í Makedóníu: Skæruliðar hlíta ekki tillögum Nató Tilraunir Nató í átt að nýju vopnahléi í Makedóníu virtust vera að renna út í sandinn í morgun. Al- banskir skæruliðar neita að draga sig til baka frá svæðum sem þeir náðu á sitt vald eftir að vopnahlé leystist upp um helgina. í gær til- kynnti Pieter Feith, sérlegur sendi- maður Nató í Makedóníu, að sam- komulag hefði náðst við skæruliða og stjórnarherinn að þeir fyrr- nefndu myndu draga sig til baka og þeir síöarnefndu halda aftur af sér. Albönsku uppreisnarmennirnir skyldu fara frá svæðum í kringum Tetovo fyrir klukkan 4 í morgun og í kjölfarið gætu slavneskir flótta- menn snúið aftur til heimila sinna á svæðinu. í nótt sagði albanskur for- ingi skæruliðanna hins vegar að þeim væri ómögulegt að yfirgefa svæði sín. „Við getum ekki skilið eiginkonur og börn eftir í höndum Tígranna og Úlfanna," sagði foring- inn með tilvísan í nöfn sérsveita Makedóníuhers. í fyrradag var Makedónía á Hreinsaö tii á McDonalds Starfsmaöur McDonatds hreinsar til fyrir utan veitingastaö í Skopje, höfuö- borg Makedóníu, í gær. Nóttina á undan réöust þjóöernissinnaöir slavar gegn vestrænum fyrirtækjum, stofnunum og sendiráöum. barmi stjórnleysis og kynþátta- óeirða. Slavneskir þjóðernissinnar réðust á sendiráð og alþjóðlegar stofnanir eftir að stjórn landsins sakaði Vesturlönd um aðstoð við skæruliða Albana. Leiðtogi Sósíal- istaflokksins, næststærsta flokks Makedóníu, fordæmdi í gær óeirð- imar og sagði lausn á vanda lands- ins ekki fást með því að lýsa yfir striði gegn öllum heiminum. „Við töpum stríðinu áður en það byrjar,“ sagði hann. George Robertson, framkvæmda- stjóri Nató, og Javier Solana, fram- kvæmdastjóri utanríkismála hjá Evrópusambandinu, heimsækja Makedóníu í dag. Þeir hitta Boris Trajkovski forseta og leiðtoga helstu flokkanna. Robertson neitaði í gær að Nató fylgdi Albönum að málum. Makedónska stjórnin krafð- ist þess í gærmorgun að Vesturlönd viðurkenndu að átökin væru al- bönskum skæruliðum að kenna. Þýska stjórnin gerði það í yfirlýs- ingu síðar í gær. Kim Jong-ll Fyrsta heimsóknin til Rússlands. Til fundar viö Pútín Kim Jong-Il, leiðtogi Norður- Kóreu, hóf í morgun sína fyrstu opin- beru heimsókn til Rússlands. Með þessari heimsókn er Jong-Il að þekkj- ast boð Vladimír Pútín frá því hann heimsótti i Norður-Kóreu í fyrra. Jong-U mun ekki hitta Pútín fyrr en 4. ágúst í næstu viku. Ástæðan er sú að hann ferðast með lest þvert yf- ir víðfeðmt landsvæði Rússlands sem spannar, m.a. 11 tímabelti. Sama sem ekkert er vitað um dagskrá heim- sóknar Jong-Il. Ekki er vitað hvort ferðin verður tekin í einum rykk eða hvort Jong-Il stoppar í fleiri borgum en Moskvu. Fulltrúi Pútins tekur á móti Jong-Il við landamærin. Mordida í Mexíkó Lögreglumaöur í Mexíkóborg tekur hér á móti mordida, lítilli mútugreiöslu, frá ökumanni vegna umferöarlagabrots. Þetta er viötekin venja í Mexíkó þar sem fólk sparar sér þaö tímafreka skrifræöi aö fara á næstu lögreglustöö og skrá brotiö. Vicente Fox, forseti Mexíkó, hefur skoriö upp herör gagnvart víötækri spillingu í landinu. Spilling fyrirfinnst á öllum stigum stjórnkerfis og þjóöfélagsins, hvort sem þaö er á dómstigi, hjá lögreglu eöa almenningi. flllar gerðir festinga fyrir palla og grindverk á lager Armúli 17, lOB Reyhjavík Síml: 533 1334 fax: 55B 0499 BYGGINGAVINKLAR ..það sem fagmaðurinn nntar! Moskva og Pétursborg 12. september verður borgarferð (15 dagar/14 nætur) til tveggja merkustu borga Rússaveldis, Moskvu og Pétursborgar. Þessar vinsælu ferðir eru á vegum ferðaskrifstofunnar Bjarmalands sem sérhæfir sig i Austur- Evrópulöndum. Lögð er áhersla á góða og fagmannlega fararstjórn enda hefur Haukur Hauksson áratugsreynslu á þessum slóðum og talar rússnesku reiprennandi. í Rússlandi er meginlandsloftslag, sumarið nær út septembermánuð og hitastig i Moskvu er um 18° C. Flogið er til Moskvu og hin merka borg skoðuð. Farið verður i járnbrautarlest til Pétursborgar og þaðan flogið heim um Kaupmannahöfn. Kynnið ykkur hina vönduðu dagskrá á vefnum: www.austur.com Sendið fyrirspurnir á: bjarmaland@strik.is Allar nánari upplýsingar gefur Haukur Hauksson i simum 848 44 29 og 554 06 66. Lifið heil. F.h. ferðaskrifstofunnar Bjarmalands / O.O.O. Tri kita turagenstvo, Haukur Hauksson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.